Þjóðviljinn - 12.07.1961, Blaðsíða 7
B) — ÞJÖÐVILJINN—: Miðvikudagur 12. júlí 1961
(IIÚÐVILIINN
ðtKefandl: Samelningarflokkur alþýSu - Sósíallstaflokkurinn. - Ritstjórar:
Masnús Kjartansson (áb.), Magnús Torfi Ólafsson, Sigurður Quðmundsson. —
FréttaritstJórar: ívar H. Jónsson, Jón Bjarnason. — Auglýsingastjóri: Guðgelr
Magnússon. — RitstJórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðust. 19.
aimi 17-500 (5 línur). Askriftarverð kr. 45 á mán. — Lausasöluverð kr. 3.00.
Prentsmiðja ÞJóðviljans h.f.
Verðbólgan -- vopn
auðmannastéttarmnar
í róður stjórnarblaðanna fyrir verðbólgu verður æ vand-
ræðalegri. Þessi blöð halda Því fram að samið hafi
verið um hærra kaup en atvinnurekendur þoli, því verði
að koma á verðbólgu.
Hver á að dæma um þetta?
Er ekki bezt að láta atvinnurekendur sjálfa dæma um
þetta með gerðum sínum? Tökum t.d. iðnrekendur. Þeir
hafa samið um kauphækkun án verkfalls. Ekkert neyddi þá
til að semja. Þeir báðu hvorki um né fengu nein loforð frá
ríkisstjórn um hækkun vöruverðs. Þeir sömdu af sjálfsdáðum.
Dettur nokkru ábyrgu stjómarblaði í hug að þeir hafi
hækkað kaup við starfsfólk sitt og ætli svo að gera þjóð-
jfélaginu reikning á eftir?
TVTei. Það er annað og illkynjaðra, sem hér er á ferðinni
' í stj órnarblöðunum. Það eru til í auðmannastétt lands-
ins ábyrgðarlausir braskarar, — menn, sem nota stjórn-
arflokkana sem svikamyllu til að mala sér auð en þjóðinni
verðbólgu. Þessir valdamenn stjórnarflokkanna láta lána sér
hundruð milljóna króna af almenningsfé úr bönkum ríkisins.
Síðan festa þeir féð í fasteignum. Svo setja þeir verðbólguna
af stað og knýja fram gengislækkun á 10 ára millibili.
Þannig hækka þeirra fasteignir. Og þannig lækka þeirra
skuldir í raungildi. Það eru þessir verðbólgubraskarar, sem
hafa ráðið Sjálfstæðisflokknum síðustu áratugina.
Fyrir verðbólgubi*askarana er útgerðin á Sjálfstæðisflokkn-
um gróðavænlegri útgerð en annars er hægt að láta sig
dreyma um á fslandi.
ll/rorgunblaðið er þessum verðbólgubröskurum sem einn sjálf-
spilandi eilífðargrammófónn, sem alltaf spilar sama verð-
bólgulagið: „Atvinnureksturinn þolir ekki kauphækkun! Ef
kaupið hækkar, verður verðið að hækka!“
Og Sjálfstæðisflokkurinn er þeim alltaf sama valdatækið:
Ff verðbólgubraskararnir neyðast til að hækka kaupið eða
þykir nauðsynlegt af einhverjum öðrum ástæðum að gera það,
— þá á Sj álfstæðisflokkurinn að sjá um að stela því aftur af
alþýðunni með verðbólgu.
Ríkisvald Sjálfstæðisflokksins er verðbólgubröskurunum
og auðmannastéttinni allri sem þjófalykill að bönkum rikis-
ins og að vösum alþýðunnar.
k uðmannastéttin á tvenns konar höfuðvopn í stéttabaráttu
sinni við verkalýðinn. Annað er vald hennar yfir at-
vinnutækjunum. í krafti þess valds reynir hún að arðræna
yerkalýðinn beint, með því að lækka kaupgjaldið eða halda
því niðri, er það ætti að hækka. Auðmannastéttinni tókst
ekki að beita þessu valdi núna, þrátt fyrir góðan vilja, mik-
ið ábyrgðarleysi og margra vikna stöðvun hennar á atvinnu-
tækjunum til þess að reyna að svelta verkamenn til undan-
halds.
Hitt vopnið er ríkisvaldið. í krafti þess að auðmarna-
stéttin ræður Sjálfstæðisflokknum og fylgihnetti hans, AI-
þýðuflokknum, hefur hún nú beitt ríkisvaldinu, — fyrst með
beinni, opinberri, lögskipaðri kauplækkun 1. febr. 1959, —
síðan með stöðugt aukinni, lögskipaðri dýrtíð í krafti geng-
islækkunarinnar í marz 1960. Og nú, þegar verkalýðurinn
h,efur tekið dálítið af ránsfengnum til baka, heimtar auð-
írtannastéttin rikisvaldinu beitt, til þess að ræna því aftur
af verkalýðnum með verðbólgu.
ITm þetta stendur baráttan nú.
Dirfist auðmannastéttin að beita ríkisvaldinu til nýrra
ránsaðgerða, þá á alþýða íslands einskis annars kostar, en
týgja sig til harðvítugri baráttu en nokkru sinni fyrr, en
á báðum þeim sviðum, sem auðvaldið haslar sér völl á:
Annarsvegar með nýjum kauphækkunum.
ííinsvegar með því að taka ríkisvaldið af auðmannastétt-
inni, svipta verðbólgubraskarana þjófalykli þeim, sem þeir
hafa of lengi notað, þjóðinni allri og alþýðunni sérstaklega
til óþurftar.
'Eining og samheldnl alþýðunnar í næstu kosningum er
áhejini jafn nauðsynlegt og oiningin í kaupdeilunum.
Fátt er ánægjulegra en fylgj-
ast með ungu fólki er ræðir
framtígaráætlanir. Alveg ný-
lega varð ég slíkrar ánægju að-
njótandi þar sem ferðanefnd
Æskulýðsfylkingarinnar sat á
rökstólum í Tjarnargötu 20.
Það var í undirbúningi kvöld-
ferð, eftir klst. eða svo, en samt
gaf þetta unga fólk sér tíma
til að svara spurningum. Einar
Ásgeirsson, formaður ferða-
nefndarinnar og Dóra Skúla-
dóttir, varaformaður, urðu
einkum fyrir svörum, en auk
þeirra eru í nefndinni Ólafur
Sigurðsson, Skúli Guðmunds-
son og Guðrún Hallgrímsdótt-
ir.
— Hvað er næst fyrirhugað
hjá ykkur?
—' Um næstu helgi, 15. þ.m.,
förum við í Landmannalaugar.
Það er tvennskonar ferð: helg-
arferð fyrir þá sem vilja
dvelja þar um helgina en fara
svo heim, og jafnframt sumar-
leyfisferð fyrir þá sem vilja
og geta verið lengur í ferðinni.
‘— Ætlið þið að halda kyrru
fyrir í Laugunum þar til þið
komið aftur?
— Nei, það er ráðgert að
dvelja þar í 2—3 daga, skoðá
Jökulgilið og ganga á Há-
barm og e.t.v, víðar. Síðan
verður farin FjaUabaksleið um
Kýlinga, Jökuldali og Eldgjá
niður í Skaftártungur o,g það-
an heim.
— Ætlið þið að ganga niður
í Skaftártungur?
— Já, það ætti ekki að verða
í ferðalögum ÆFR er alltaf glatt á hjalla, og þótt veðurguðirnir séu ekki ætíð hliðhollir, þá
syngja menn sér til hita og smávegis sönghæsi skaðar engan.
Ertu með
neinum ofætlun. Við ráðgerinn
stuttar dagleiðir, eða um 15
km — og gefst því nægt tóm
til að athuga hið markverð-
asta á leiðinni, sem er hin
skemmtilegasta. Það eru ekki
ráðgerðar miklar byrðar, en
svefnpoka, nesti og annan nauð-
synlegan útbúnað verða menn
þó að bera. Fylkingin leggur
til tjöld og eldunaráhöld, en
nesti og svefnpoka verða menn
að leggja til sjálfir.
— Verður þetta dýrt ferða-
lag?
—> Nei, það verður mjög ó-
dýrt. Ferðin stendur frá 15.
til 23. júlí og fargjald verður
iaðeins kr. 500 fyrir far í Land-
mannalaugar og síðan úr Skaft-
ártungum til Reykjavíkur.
— Er þetta fyrsta ferðin
ykkar í sumar?
— Nei. Við höfum farið tvær
helgarferðir. Fyrri ferðin var
á Snæfellsnes um hvítasunn-
una. Við gengum á Snæfells-
jökul og skoðuðum nesið. Um
Jónsmessuna fórum við í Þjórs-
árdal. komum að Stöng, fórum
í Gjána og að Háafossi. Þar
fóru menn í bað, bæði vatns-
og regnbogabað.
— Og hvernig var þátttak-
an?
— Það var fullsetinn lang-
ferðabíll í báðum ferðunum.
—r Við höfuni einnig farið
eina sundaferð í sumar, minn-
ir einhver á.
— Sundaferð — hvað er nú
það?
—. Við fengum bát og sigld-
um hér inn um sundin. í þeirri
ferð heimsóttum við Rein á
Akranesi.
— Rein?
— Já, veiztu ekki maður að
það er hið myndarlega félags-
heimili sósíalista á Akranesi!
Þar er mjög gott að koma.
— Höfðu margir áhuga fyrir
sundaferð?
- •— Já, það voru 40—50
,manns í tvelmur bátum.
— Hvað farið þið fleira?
— Við förum einnig út í
bláinn.
— Hverskonar flan er nú
það eiginlega?
— Það eru kvöldferðir, stutt-
ar, lagt af stað kl. 8 síðdeg-
is og komið aftur í bæinn um
miðnættið. Engin föst áætlun
er gerð um þær ferðir held-
ur farið á þann stað hverju
sinni er þá verður fyrir val-
inu. Það er farið til einhvers
staðar í nágrenni bæjarins,
svara þau.
Það virðist vera þrálátur
kvilli hjá miðaldra pólitíkus-
um og bisnissmönnum og
hringormar eru í þorski, að
geta með engu. móti skilið
gagnsemi slíkra ferða „út í
bjáinn“. fjarri öllum fundar-
húsum og veitingástöðúm, og
nú set ég mig í spor þeirra og'
spyr:
— Hver er svo eiginlega
meiningin með öllu þéssu
flakki?
— Það er' hressing, heilsu-
bót, skemmtun og lífsgleði —
og fólkið kynnist jafnframt
landinu, og það kynnist hvað
öðru, svarar þéttá unga fólk
— og brosir vorkunnsamlega í
laumi að fávizku minni.
— En eru þessar ferðir ékki
eingöngu fyrir Fylkingarfélaga?
— Nei, það mega allir vera
með.
— Hafa kannski einhverjir
úr öðrum flokkum tekið þátt
í þessum ferðum?
—, Já, það hafa bæði kunn-
ir unsir framsóknarmenn
og heimdellingar verið með í
þeim.
— En enginn ungkrati?
— Það held ég ekki. — Lík-
lega eru þeir hræddir við
okkur, ef þeir eru ekki allir
útdauðir.
— Eru þessar kvöldferðir
ykkar út í „bláinn“ nokkuð
dýrar?
— Nei, þær eru mjög ódýrar.
Þær eru ódýrari en hanga í
bænum á bíóum og sjoppum
á kvöldin. auk þess sem þær
eru skemn^tileg^r, því- jafn-
framt því að kynnast ná-
.grenninu .förum við í «leiki —
og það er oftiglatt á hjalla. Þá
má ekki gleyma því að 10
dögum eftir hvert ferðalag er
myndakvöld hér í félagsheim-
ilinu, þar sem sýndar eru
myndir úr ferðalaginu.
Við förum í kvöldferðir
á hver jum miðvikudcgi all-
an júlí og frameftir ágúst. Við
höfum haft þessa ferðastarf-
semi í ein 4 ár og eru þær
einn meginþátturinn í sumar-
• starfinu.
- — Hafið þið ekkí ráðgert
■ fleiri lengri íerðir í sumar?
— Jú, um verzlunarmanna-
helgina förum við inn á Kjöl,-
göngum á Kerlingarfjöll og í
Þjófadali og sennilega víðar.
Einhverntíma í ágúst eða
Frámhald á 10. síðu,
Jón Böðvarsson er vinsæll í
ferðalögum ÆFR, Hann kann
frá mörgu skemmtilegu að
segja ,og hefur oítar *n einu
sinni verið sö.gumaður S ferða-
lögum fylkingarmnar.
Gunnar Ólafsson
skólastjóri fimmtugur
Fyrir löngu ákvað ég að
senda Gunnari Óla.fssyni
skólastjóra í Neskaupstað
nokkrar . l'ínur með kveðju
minni og minna, þegar liann
yrði fimmtugur. Nú hefui'
Gunnar lagt fimm tugina að
baki, en ég hef svikið hann
og sjálfan mig um kveðjuna.
Afsökun mín er helzt sú, 3ð
ég var í önnum við undir-
húning að sambandsþingi
og landsmóti Ungmennafélags
Islands að Laugum, þegar af-
mælisdaginn bar að garði.
Gunnar er mikill og fórnfús
félagshyggjumaður. Hann
mun því taka, afsökun mína
til gre:na. En kveðjuna skal
hann fá þótt fátækleg sé og
seiut á; fei'ðinrii.
■Gunnar er /æddur 21. júní
1911, að Efrá-Núpi í Miðfirði.
Hann er sonur hjónanna Öl-
afs bónda á Þverá 'í Miðfirði
Halldórssonar Ólafssonar og
Jóhönnu Margrétar Halldórs-
dóttur bónda á Kárastöðum í
Þingvallasveit Einarssonar.
Gumar stundaði nám í
Flensborgarskóla 1928 til ’30.
Hann lank kennaraprófi við
Kennaraskóla íslands 1932 og
íþi'óttakennaraprófi við í-
þróttakennaraskólann á Laug-
arvatni 1935. Árið 1946 dvaldi
hann við nám í Sviþjóð.
Fyrstu kemnsluár s'in var
hann kennari í Þingvallasveit,
árin 1932 til '34. Ár:n næstu
á eftir e'ða 1935 til 1939 var
hann ungíinga- og íþrótta-
kennari á Eyrarbakka,
Stokkseyri og Keflavík. Hann
flutti til Austin-Iands 1939 og
var kennari við bamaskólanm
á Fáskrúðsfirði til árs:ns
1946, en þá tók hann við
skólastjóm bamaskólans í
Neskaupstað og hefur gegnt
því starfi siðan.
Gunnar var 'i möi'g ár í
stjóm Ungmenna- og íþrótta-
sambands Austurlands og hér-
aðsstjóri- um skeið. Hann hef-
ur einnig verið form. Kenn-
arasamb Austurl. Á Fá-
ski'úðsfirði og í Neskaunstað
hefur Gunnar gegnt marghátt-
uðum trúnaðar- og félags-
störfum,. sem ekki verða raik-
in ihér. -Hann hefur því kom-
ið mjög við sögu í félags- og
menningarmálum Austur-
lands.
Gunnari kynr.tist ég fyrst í
Kennaraskóla Islands vetur-
inn 1931 til 1932. Aðalkynni
okkar hófust þó fyrst á Aust-
urlandi, en í þánn landshluta
fluttum við samt'imis. Á Aust-
urlandi störfúðum við mikið
saman á vettvangi umgmenna-
félaganna og kennarasamtak-
anna í nær tvo áratugi. Sér-
staklega er mér ljúft að minn-
ast samstarfs okkar í stjórn
Ungmenna- og íþróttasam-
bands Austurlands um mörg
ár. Eg þakka honum áhuga
og atorku í þágu sameigin,-
legra áhugamála.
Gunnar er einn þeirra
drengskaparmanna, sem duga
bezt, þegar mest á reynir.
Hann er djarfur í félagsmál-
um, tiaustur, athugull og
samvinnuþýður með ágæt-
um. Hverju máli, sem hann
tekur að sér sinnir hann af
alhug og samvizkusemi. Gurru-
ar á marga þá hæfileika í
ríkiim mæli, sem beztir eru
hverjum kennaia og æsku-
lýðsleiðtoga og hefur sýnt
það í verki.
Gunnar er giftur mestu á-
gætiskonu Ingibjörgu Magn-
úsdóttur og eiga þau þrjá
efnilega syni. Það er gott að
vera géstur á heimili þeirra
lijóna. Þar ríkir vinsemdi og
hlýja. Raunar er maður varla
gestur heldur e;ns og heima
hjá sér. Þau kjósa fremur að
vera en sýnast.
Við þessi tímamót í ævi
Gunnars, þegar liann á hálfa
öld að baki> sendi ég honum
konu hans og bömnm heztu
þakkir og liamingjuóskir frá
mér og fjölskyldu minni. Eg
óska honum lángra lífdaga og
mikils starfa að áhugamálum
sínum I þágu hinna ungu,
sem erfa landið. Sk. Þ.
• •■■ "'• * '• ■•- '• . yyuJT'úUóld . - (?■
Miðvikudagur 12. júl'í 1961 — ÞJOÐVILJINN — (7
bridgeþáttu
Síðastliðið föstudagskvöld
lauk einviginu, um þátttöku-
rétt á Evrópumótið í bridge,
í karlaflokki. Til úrslita
kepptu íelandsmeistararnir,
sveit Stefáns J. Guðjohnsen
og sveit Halls Símonarsonar.
Spiluð voru 120 spil í þrem-
ur lotum. Sigraði sveit Stef-
áns með 27 stigum eftir að
hafa haft forustuna allan
tímann. Lokastigin voru 150:
123. Einstakar lotur fóru
þannig að fyrstu lotu vann
Stefán með 62:25, aðra Hall-
ur með 49:41 en sú þriðja
var jöfn 49:47 fyrir Hall. í
sveit Stefáns voru auk hans
Eggert Benónýsson, Jóhann
Jónsson og Sveinn Ingvars*
son. Þessir fjórir menn muna
spila fyrir Islands hönd á.
Evrópumótinu í Torquay á.
S-Englandi, sem haldið verð-
ur dagana 24. september til
4. október. Þeir munu svo
mjög bráðlega velja tvo menn
í viðbót í samráði við stjóra
Br'dgesambands íslands. Far-
arstjóri verður fyrrverandi
forseti Bridgesambandsins Öl-
afur Þorsteinsson.
Efiirfarandi spil, sem var
nr. 115 í einvíginu, var nokk-
uð kostnaðarsamt, fyrir sveit.
Halls. Staðan var a-v á hættu:
og suður gaf.
Þorgeir
S: 4
H: 10-9-8-7-4
T: A-8-7
L: D-10-8-2
Jóhann N Siefán
S: K-D-7-6-5 S: G-9-2
H: G-5 V A H: K- D-6
T: K-3 T: G-9-4
L: G-5-3 L: A- K-9-6
Símon
S: A- 10-8-3
H: A-3-2
T: D- 10-6-5- -2
L: 7
Borð 1.
Suður Vestur Norður Austur
pass pass 1 hjarta dobl
redobl 1 spaði pass pass
dobl pass 2 lauf pass
3 hjörtu S spaðar pass pass
dobl pass pass pass
Borð 2.
Sveinn Jón Eggert Hallur
pass pass pass 1 lauf
pass 1 spaði pass 1 grand
pass pass pass
Blekkisögn norðurs var ó- síðan hjarta inn á kónginm
heppileg, þar eð hún blekkti í borði. Út kom spaðanía,
aðeins einn mann við borð- tían á og drepin, laufagosi,
ið. Hitt er svo annað mál að drot.tning og kóngu'r. Ennt
dobl suðurs eftir það sem kom spaði, sjöunni svinað ogr
undan er gengið er að bera trompin tekin í botn. Síðan
í bakkafullan lækinn. Út- kom lauf og þar eð laufa-
spilið var hjartatía, drepið á ásinn tryggði spilið, svínaði
ás og lágtígull til baka. Jó- Jóhann ekki níunni og vannt
hann hitti á að láta lágt og spilið slétt.
Þorgeir drap á ásinn og spil- A hinu borðinu spilaðl
aði mei'ri tígli. Jóhann átti Hallur eitt grand og varði
slaginn, spilaði spaða á gos- einn niður. 1 næsta þætti
ann, sem Símon drap með mun ég birta úrslit kvenna-
ás. Enn kom tígull, tromp- flokksins og ef til vill eitts.
aður af Jóhanni, sem spilaði spil frá einvíginu.
Síðasta vika bezta velði
Blaðinu hefur borizt skýrsla
Fiskifélags íslands um sildveið-
arnar í síðustu viku. í henni
eegir, að framan af vikunni
hafi veiði- vérið góð en dregið
úr henni um miðja vikuna.
Veðrátta var hagstæð og síld-
in jöfn og feit. Saltað var eins
og vinnuafl leyfði en svo mik-
ið barst að, að talsvert magn
fór í bræðslu. Vikuaflinn nam
192.511 málun og tunnum (i
fyrra 68.336) og er þetta bezta
veiðivika um langt skeið.
í vikulokin var aflamagn-
ið í heild orðið sem hér segir:
1 salt 213.574 upps. tn. (27.749)
I bræðslu 130.398 mál (324.895)
1 frystingu 7!894 uppm.
Útflutt ísað 0 (834)
Samtals mál og tn. 351.866
(356.904)
I vikulokin höfðu 205 skip
(239 í fyrra) fengið einhvern
afla, þar af 188 (209) yfir 500
mál og tunnur. 6 skip höfðu
fengið yfír 6000 mál og tunn-
ur. Hæstur var Víðir IL, Garði,
með 77Ó5 m og t, annar í röð-
inni er Ólafur Magnússon, Ak-
ureyri, með 7314, þriðja Heið-
rún, Bolungarvík, með 7163,
fjórði Guðmundur Þórðarson
|Reykjavik, með 6307, fimmta
Guðbjörg, Ólafsfirði, með 6191
og sjötti Haraldúr, Akranesi
með 6107.
skip, sem veitt, hafa yfir 1200
mál og tunnur.
Skip: Mál og' tunnur
Ágúst Guðm. Vogum 3855
Akraborg Akureyri 2454
Akurey Hornafirði 1556
Anna Siglufirði 4021
Arnfirðingur H Reykjavík 3358
Árni Geir Keflavík 5428
Árni Þorkelsson Keflavík 3370
Arnkell Hellissandi 1378
Ársæll Sigurðss. Hafanrf. 3060
Áskell Grenivík 4410
Auðunn Hafnarfirði 2607
Baldur Dalvík 3757
Baldvin Þorvaldss. Dalvík 2297
Bergur Vestmannaeyjum 1786
Bergvík Keflavík 4081
Bjarmi Ðalvík 4258
Bjarnarey Vopnafirði 1764
Björg Eskifi'rði 2626
Björgvin Dalvík 1795
Blíðfari Grafarnesi 1686
Búðafell Búðakauptúni 1405
Guðm. Þórðarson Rvík 6307
Böðvar Akranesi 2462:
Dalaröst. Neskaupstað 227(>
Dofri Patreksfirði 3902:
Einar Hálfdáns Bolungav. 4488-
Einir Eskifirði 2163
Eldborg Hafnarfirði 5015»
Gldey Keflavík 4200
Faxavík Keflavík 2177
Fram Hafnarfirði 2850
Fjarðaklettur Hafnarfirði 2990
Freyja Garði 1604
Friðbert Guðm. Suðureyri 1231
FróðakJettur Hafnarfirði 1511
Garðar Rauðuvík 1628-
Geir Keflavík 1753
Gissur hvíti Hornafirði 1524
Gjafar Vestmannaeyjum 5560-
Glófaxi Neskaupstað 1371
Gnýfari Grafarnesi 3145-
Grundfirðingur II Grn. 2758
Guðbjörg ísafirði 4652:
Guðbjörg Sandgerði 3027
Guðbjörg Ólafsfirði 6191
Framh. á 10. síðu
tn.
(3;427) Hér fer á eftir skrá yfir þau