Þjóðviljinn - 15.07.1961, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 15.07.1961, Blaðsíða 11
Laugardagur 15. júlí 1961 — ÞJÓÐVILJINN — Cif Úfvansið 1 dag ér laujjardagíir 15. júlí. 1 Tungi í hásuðtf li); l5-.4p.' Arúeg- isHáíIæði kl. > 7.58. .-ísíðdegishá- flæði kl. 20.18. 1 Næturvarzla vikuna 9.—15. júlí er í Reykjavíkurapóteki sími 11760. fJIysavarðstofan er opln ailan aöl- hrhringinn. — Læknavörður LuR fer & narnt itaO ltl. 18 til 8, »1011 1-60-30 Bóbasafn Dagsbrúnar Freyjugötu 27 er oplð föstudaga kl. 8—10 e.h. bg laugardaga og sunnudaga kl. 4—7 e.h. CTVARriÐ 1 DAGs ÍJtvarpið á morgun: 12.55 Óskialög sjúklinga. 14.30 1 umferðinni (Gestur Þorgrímsson). 14.40 Laugao-dagslögin. 16.30 Veð- urfregnir. 18.30 Tónleikar. 18.55 Tilkynningar. 19.20 Veðurfr. 20.00 Leikfangabúðin — ballettsvíta eft- ir Rossini-Respighi. — RIAS-sin- fóníuhljómsveitin leikur Ference Fricsay stj. 20.35 Upplestur: Svala Hennesdóttir les kafla úr bókinni Leyndarmál Lúkasar eftir I. Sil- bne í þýðingu Jóns Óskars. 21.05 Einleikur á píanó: Halina Czerny- Btefanska leikur verk eftir Chop- ín. 21.25 Leikrit: Gleðilegir end- urfundir cftir Dorothy Turnock. Þýðandi: Hulda Valtýsdóttir. Leik- Btjóri: Þorsteinn Ö. Stephensen. 22.10 Danslög. 24.00 Dagskrárlok. Hallgrimskirkja: Mcssa kl. 11. Séra Jakob Einars- son. ferðir Brúarfoss fór frá Keflavik i gærkvöld til N. Y, Dettifoss fór frá N.Y. í gær til R- víkur. Fjallfoss fór frá Vestmannaeyjum í gærkvöld til London, Hull, Rotterdam og Hamborgar. Goðafoss er i Rvík. Gullfoss kom til K-hafnar 13. þ. m. frá Leith. Lagarfoss fór frá Rvík kl. 5 i morgun til Keflavík- ur. Reylijafoss kom til Hamborg- ar 13. þ.m. ifer þaðan til Rotter- dam og Rvíkur. Selfoss er í R- vik. Tröllafoss fór frá Rvík 13. þ.m. til Ventspils, Kotka, Lcnin- grad og Gdynia. Tungufoss er í Rvík. Hvassafell er í On- •tKTTJW ega. Arnarfell er í Archangelsk. Jökul- fell fór 13. þ.m. frá N. Y. áleiðis til R- víkur. Dísarfell fór í gær frá Akranesi til Austur- og Norður- landshafna. Litlafell losar á Norðurlandshöfnum. Helgafell fer væntanlega á morgun frá Vent- spils til Gdansk og Rostock. Hamrafell kemur á hádegi 17. þ. m., til Seyðisfjarðar, er væntan- legt til Rvikur 21. þ.m. Gullfaxi fer til Glas- gow og K-hafnar kl. 8 i dag. Væntanlegur aftur til Rvikur kl. kvöld. Flugvélin fer til Glasgow og K-hafnar kl. 8 í fyrra- málið. Skýfaxi fer til Oslóar, K- hafnar og 'Hamborgar kl. 10 i dag. Væntanlegur aftur til Rvik- ur kl. 17.30 á morgun. Innanlands- flug: í dag er áætlað að fljúga til Akureyrar 2 ferðir, Egilsstaða, Húsav kur, ísafjiarðar, Sauðárkr., 22.30 Skógasands og Vestmannaeyja 2 ferðir. Á morgun er áætlað að fljúga til Akureyrar 2 ferðir Fag- urhólsmýrar, Hornafjarðar, Isa- fjarðar og Vestmannaeyja. Loftleiðir h.f. Leifur Eiríksson er væntanlegur frá Hamborg, K-höfn og Gauta- borg kl. 22. Fer til N. Y. kl. 23.30. —. Hekla fer frá Rvik —T kl. 18 í dag til Norð- i urlanda. Esja er á Austfj. á suðurleið. Herjólfur er í Rvík. Þyrill er á Norðurlandshöfnum. Skjaldbreið er í Rvík. Herðubreið er á Austfjörðum á norðurleið. Jón Trausti fer frá Vestmanna- eyjum kl. 22 í kvöld til Rvíkur. Bústaðaprestalcall: Messa kl. 11 í Laugarneskirkju. Séra Gunnar Árniason, Dómkirkjan: Messa kl. 11, prestur séra Óskar J, Þorláksson. Fríkirkjan: Messa kl. 2 e.h. Séra Þorsteinn Björnsson. Þann 13. júlí voru gefin saman í hjónaband ungfrú Margrét Guð- mundsdóttir Reykjavík og Ey- vindur Eiríksson stud. philol. frá Isafirði. \ Trúlofanir AUGLÝSIÐ í ÞJÓÐVILJANUM Giftsnqar Húsmæðrafélag KeykjariUur fer í skemmtiferð þriðjudaginn 18. júlí klukkan 8 frá Borgartúni 7. Upplýsingar í simum 14442, 15530 og 15232. Genglsskráning Sölugengl 1 sterlingspund 106.42 1 Bandaríkjadollar 38.10 1 Kanadadollar 36.74 100 danskar krónur 546.80 100 norskar krónur 531.50 100 sænskar krónur 736.95 100 Finnsk mörk 11.86 100 N. fr. franki 776.60 100 svissneskir frankar 882.90 100 Gyllini 1.060.35 100 tékkneskar kr. 528.45 100 Vestur-þýzkt mark 957.35 1000 Lirur 61.39 100 austurrískir sch. 147.28 100 pesetar 63.50 100 Belg. franki 76.37 Félagsheimilí ÆFR Komið og drekkið káffi í fé- lagsheimili ÆFR. Alltaf nýjar, heimabakaðar kökur á boð- stólum. Komið og rabbið sam- an um nýjustu atburði. Fé- lagsheimilið er opið alla daga frá 3.30—5.30 og 8.30—11.30. Styrktarsjóður ekkna og munað- arlausra barna ís’.enzkra lækna. Minningarspjöld sjóðsins fást i Reykjavíkurapóteki, skrifstofu borgarlæknis, Heilsuverndarstöð- inni, skrifstofu læknafélagsins Brautarholti 22 og í Hafnarfjarð- ar apóteki. Minnlngarkort klrkjubygglnga- sjóðs Langholtssóknar fást á eft- irtöldum stöðum: Kamb°vegi 38, Goðheiinum 3, Alfheimum Sð; Efstasundi 69, Langholtsvegi 163, Bókabúð KRON Bankastræti. , Lóðrétt: 1 jurt 6 dökkur 8 sk.st. 9 forn- nefni 10 mann 11 gæta 13 goð 14 straumur 17 líkamshlutann. Lárétt: 1 þannig 2 sk.st. 3 við á 4 samhlj. 5 for 6 raki 7 rödd 12 hv Idi 13 kvennafn 15 ending 16 til. Hafið szmband við Mjóstræti Áríðandi er að allir sem hafa undir höndum undir- skriftalista í söfnun Samtaka hernámsandstæðinga hafi sam- band við skrifstofuna, Mjó- stræti 3, annarri hæð, Skrif- stofan er opin daglega kl. 9 til 19, símar 2-36-47 og 2-47-01. Áfrnœli Margery Allingham: Vofa fellur frá 74. DAGUR. urra vafninga. „Sem Vasari, ■ á ég við“. ,,Ég, æ, nei. elskan mín. Ekki sem Vasari.“ Max brosti. Hann líktist mest ,apa með lírukassa í þessu skrautvesti, fannst Campion. „Mér íinnst ég íremur vera listvinur — eins og Lorenzo de Medici skul- um við segja. Já, Lorenzo de Medici“. Hann hló og fóikið í kring var farið að fylgjast með og sleppti sjálft sínum skemmti- legu og eðlilegu umtalsefn- um. „Og samt kemst þorparinn upp með þetta“, umlaði í Fyvie gamla um leið og hann bar að þar sem Campion stóð. ,,Ég skil þetta ekki. Mér sýnist vera ugglíiP í mýrinni". Max hélt áfram að tala við Irúna með rniklu handapati en lægra og ógreinilegra fyrir nærstadda en áður. En þá var kominn þar að ungur, ieimnislegur maður, sem hafði bætzt í hópinn. Þetta var Urqu- art, sá sem gert hafði tréskurð- armyndirnar, og Max gaf að honum mikinn gaum. Meðan Campion beið eftir því að komast ,að var hann að horfa á útlendingslegan mann og reyndi að gera sér' grein fyrir honum. Hann var smávaxinn, skringi- lega ' til fara, leiðinlega eða hlægjlega upp með sér eftir því hvernig litiQ var á, og samt var enginn maður í öllum saln- um sem hafði fengizt til að móðga hann. Samt hafði hann myrt tvo menn á hinum þrem- ur mánuðum, annan ,að óyfir- lögðu ráði í brjálsemiskenndu reiðikasti, en konuna með kaldri rólegri yfirvegun og talsverðum undirbúningi. Og honum hafði tekizt að hreinsa sig af hvortveggja. Það virt- ist vera fjarstæða, eftir því sem á stóð, en var engu að síð- ur satt. Herra Campion fór að at- huga með sjálfum sér hvort nokkur leið væri að koma fram hefndum. Hann þóttist komast að raun um að hin stærsta hindrun fyrir því -að taka á sig blóðhefnd væri hin rót- gróna trú á það að það væri ábyrgðarhluti að drepa mann, en hvað slíkan þorpara sem Max snerti hiaut sú mótbára að víkja fyrir vissunni um nauðsyn þess að vikja slíkum manni úr vegi. Við þetta bætt- ist óttinn við að komast undir mannahendur, en hann vék einnig fyrir vissunni um að þetta hlýti aÖ takast vel. Hið þriðjA vandamál var það hvernig framkvæma skyldi verkið. Þegar Campion fór að hug- leiða að nýju morðið á Dacre, fannst honum líklegast að það hve vel morðingjanum tókst að fela glæpinn, mundi vera ein af þessum sorglegu tilviljun- um sem hafa meiri eftirköst en búast má við í byrjun. Hafi nokkur byrjandi á glæpaferli sýnt hugrekki, þá var það Max. Árásin í myrkrinu hafði tekizt svo vel sem unnt var, og enginn minnsti grunur fall- ið opinberlega á vegandann. Hið næsta glæpaverk Fust- ians, morðið á frú Potter, hafði verið vandlega undirbú- ið, miskunnariaust og hiklaust, og Campion fann og skildi að enda þótt allur sá undirbún- ingur hefði lýst talsverðri leikni, o,g jafnvel snilli, mátti hið sama eða engu síðra, segja um ýms önnur málefni, sem Max hafði haft með höndum. í sjálfu sér þurfti ekki annað en að þessi maður . legði út á glæpabrautina, þá hlaut allt að koma í hendi, jafn sýnt og honum var um hvað sem vandasamt var — einnig brögð og klæki. Campion hnyklaði brýrnar. ,j ■ ’rvuiin Hver vissi nema roðin kæmi • ú;>7 ••• ''. C'.. * í -i'í ' -T næst að honum, harin gat ekki hrundið þessu úr hug'a sér. Hann hrökk upp af þessum hugleiðingum og tók eftir því urn leið, að Max var hættur að tala við húsfreyjuna. Hann gekk til hans. Fustian tók honum með miklum íagnaðarlátum. „Blessaður vertu.' uinlaði hanri. „Blessaður vertu. aldrei hef ég komizt í aðra eins þröng! Hér er hvorki svig- rúm til að hreyfa sig' né tala. Hvað eigum við annars hér að gera innan um þessa líka hjörð af fávitum?“ Hann talaði virigjarnlega og nægilega hátt til þéss að þeir sem næstir stóðu mættu heýra, og litu menn til hans illilega eða með fyrirlitningu eftir því hvernig hver var skapi farinn. Og hann tróð sér gegnum þröngina. Herra Campion fékk sér vínblöndu en Max bað um sjerrý, og fékk það eftir dálitla bið og vandkvæði. Hann var í skínandi skapi, tal- aði og kinkaði kolli til allra með mestu hæversku, hvort sem hann þekkti menn eða ekki. Herra Campion sýndist sem öllum eða flestum væri lít- ið um bennan rnann. Vina- og fagnaðarlætin voru í þann veginn að verða að fíflalátum, og einstaka maður h-ló upp i opið geði á honurn. Hann stóð með glasið í hend- inni, háleitur og horfði á hóp- inn eins og. hattn vsefi að skoða hann í smásiá, þegar Bee Birch, sem hafði það sér- staka verk innan málaralistar- innar ,að mála kraftajötna, kom til hans með eld í aug- um og vikurit í hendinni. Hún var falleg í rauðbrúna kjólnum með púffermunum og með hatt í stíl við sjómanns- hatt yfir mjúku gráu hári. Það fóru miklar sögur af þess- ari herskáu konu, og allar þessar hefðarfrúr, sem höfðu hana í heimboðum, voru jafn- an með hitann i haldinu meðan hún stóð við, því allir vissu að hún lét ekkert ósagt af því sem henni datt í hug. Hún réðst að Max eins og ránfugl á flugi og fékk hon- um blaðið. „Fustian, hafið þér skrifað þennan ósóma?“ Campion, sem var í sjálf- heldu inni á barnum, og Max líka, sá að blaðið var r.ýút- komið eintak af Lif og mepxi^- ir, og að greinin hét Málaji’ar list og ruddaskapur, eftir Max Fustian. Auk þess var mynd af honum, mjög dökk og til- gerðarleg. Það leit út fyrir að úr þessu ætlaði að verða heldur leiðin- legt atvik, en það hjaðnaði niður því Max lét ekkert á sig fá. „Kæra ungfrú Birch“, sagði hann, „það mundi sannarlega gleðja mig.“ Og áður en nqkk- ur viðstaddur feng'i ráðrúm til að átta sig á því hvað hann var að fara, hafði hann fs.rið ofan í vasann á þessu gi-QSs- aralega vesti sinu og tekið þar upp afarstóran lindar- penna, og með honum setti hann upphafsstafi sína á myndina, og rétti svo konunni blaðið með örlitilli hneigingu. Ungfrú Birch missti full- komlega málið, svo hneyksluð varð hún, en Max þreif um handlegg Campions og tókst að troðast gegn með hann í eftirdragi án þess að svo. liti 'út sem hann væri að flýta sér að sleppa. ..Við verðum að tala sam-

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.