Þjóðviljinn - 22.07.1961, Blaðsíða 2
g) — ÞJÖÐVlLj'ÍN^ — Laugardaglir 22. julí 1961
SamelningarfSokkur alþýðu
« Sósíalistoflokkurinn
Flokksskrifstofur í Tjarnargötu 20
Skriístofa miðstjórnar opin daglega virka
daga kl. 10—12 og 1—7 nema laugardaga
kl. 10—12. — Sími 17512.
Veif ekki ftægri höndln
hvað sá vinstri gerir
Morgunblaðið heldur enn á-
fram í gær skrifum sínum um'
vegaviiinuverkfallið og fæðis-
peningana. Eyðir það miklu
rúmi í að þvæla um málið en
lfliðrar sér algerlega hjá því
að gera grein fyiir aðalatrið-
inu, þ.e. því, hvers vegna Ing-
ólfur Jónsson vega- og brú-
armálaráðherra neitar að leyfa
vegamálastjóra að semja um
sömU fæðispeninga við vega-
gerðarmenn og Ingólfur Jóns-
son símamálaráðherra leyfði
póst- og símamálai-áðherra að
semja um við símamenn. Sjö-
unda grein samningsins við
Landsímann hljóðar svo orð-
rétt:
„Landssíminn leggui- sínum
mönnum, sem vinna fjarri
Séra Eiríkur
J. Eiríksson
fimmtugur
Séra Eiríkur í ræðustóli á síð-
asta landsmóti IJMFÍ að Laug-
um í sumar.
I dag er séra Eiríkur J. Ei- j
TÍksson þjóðgarðsvörður fimm-
tugur. Séra Eiríkur er fæddur
22. júlí 1911 í Vestmannaeyj-
um af sunnlenzkum foreldrum.
Hann lauk stúdentsprófi 1932
og guðfræðiprófi 1935. Stund-
aðþ Framhaldsnám í Sviss og
hefur Síðan Stundað kennslu-
.störf og gegnt prestþjónustu
að mestu á Núpi við Dýrafjörð.
Séra Eiríkur hefur ritað i
iblöð og tímarit og gegnt rit-
.stjórastörfum við Skinfaxa
og Lindina. Hann hefur verið
.sambandsstjóri UMFÍ síðan
1938 en var áður tvö ár vara-
sambandsstjóri- Einnig var
‘hann formaður Prestafélags
Vestfjarða um nokkur ár.
Af sérstökum ástæðum verð-
ur afmæliskveðja til séra Ei-
rika að bíða birtingar til
morguns.
heimilum sínum, til tjöld,
skúra, eða annað húsnæði svo
og bedda og dýnur, matariilát
og tæki til upphitunai' og lýs-
ingar svo sem venja er til, sér
um mataraðdrætti og mat-
reiðslu og "reiðir þeim kr. 30,
00 á dag fyrir efnið í ihatinn.
Mati-eiðslustarf annast maður
eða kona, sem er vel hæf og
vön matreiðslu. Þegar þessu
verður ekki við 'komið, fá síma-
lagningamen.n greiddan eðlileg-
an fæðis- og gistikostnað gegn
kviltiin gistihússeiganda eða
matsala. Þegar símalagninga-
menn eru sendir út til vinnu og
komast ekki í mat eins og
venjulega og verða að hafa
mat með sér, en dveljast
he'ma að nótturmi, skulu þeir
fá greidda fæðispeninga kr.
30,00 þegar um einn matmáls-
tíma er að ræða og ekki er
unnið fram yfir kvöldmatar-
tíma, en kr. 58,00, ef báðir
matmálstímar falla. inn í vinnu-
tímann vegna yfirvinnu. Þó
getur, þegar sérstaklega stend-
ur á, svo sem .við fjrr:rvara-
lausa útserdingu og þegar mat-
sala er í grennd við vinuustað-
inn komið til mála að greið'.i
eðli’egan matarkostnað gegn
kvittun niatsala, enda ha.fi
verkstjóri tal:ð það réttmætt
eftir kringumstæðum."
Þetto. hefur Ingólfur Jóns-
son fallizt á til handa síma-
mönnum. Nú stoða ráðherrann
engin undanbrögð lengur. Ætl-
ar hann að samlþykkja sömu
ákvæði " samningum við vega-
gerðarmenn? Eðr>, unir hann
þeim ekki sama hlutskiptis og
símamönnum? Hver er orsök-
ir,? Þ\í ætti Morgunblaðið að
svara.
Samtökin „Frjáls menning“, sem liafa starfa ð hér rúm fimm ár, hafa efnt til happdrættis
til slyrktar starfsemi sinni. Vinningurinn er fo khelt einbýlishús, teiknað af Gísla Halldórssyni,
og er verðmæti hússins áætlað 300 þúsuml krónur, en, það er 128 ferm að stærð á einni hæð
(sjá mynd). — Happdrættismiðinn kostar hundrað krónur, dregið verður 27. desember. Eig-
andinn getur síðan ráðið þv.i hvar húsið verður reist. — „Frjáls menning" hyggst nota ágóð-
ann af hi.ppdrætlinu til að bjóða liingað til lan.ds þekktum erlendum ræðumönmmi og fyrir-
lesurum halda ráðstefnur og umræðufundi og koma á menningartengslum við hin nýfrjálsu
ríki í Afríku e.g Asíu, m,a. bjóða hingað til náms í læknisfræði einum eða fleiri stúdentum
frá Afríku. — Umboðsmenn fyrir happdrættið eru 17 liér í Beykjavík og á 15 stöðum úti
á landi.
Fjöldcmcrð Frakka í Túttis
Framhald af 1. síðu.
gengi vel baráttan á þessum
slóðum. Hersveitir okkar halda
áfram sókninni þrátt fyrir kröft-
uga skothríð Frakka, sagði hann.
Túniska fréttastofan segir að
franskar flugvélar hafi gert
loftárásir á stöðvar og mann-
virki Túnismanna í Sahara, og
að 30 franskir skriðdrekar og
fallbyssubílar hafi verið notaðir
til árása á Túnismenn á þessum
v'gstöðvum. Fjöldi óbreyttra
borgara þefur látið lífið í þess-
um árásum á Sahar.a-svæðinu,
segir í fréttinni. Túnismenn
náðu í kvöld yfirráðum yfir
endastöð olíuleiðslunnar frá
Edjsle úr höndum Frakka.
Allsherjar árás
Túnisútvarpið sagði i kvöld,
að franski herinn hefði byrjað
árásir gegn Túnis á öllum víg-
stöðvum. í kvöld hefðu götu-
bardagar aukizt til muna í bæn-
um Bizerte eftir að franskar
flugvélar hefðu dreift flugmið-
um með áskorun til fólksins um
að gefast upp.
Upplýsingaráðuneytið í Túnis
skýrði frá því í kvöld, að þrjú
frönsk herskip væru á leið um
skurðinn sem liggur til Bizerte-
flotastöðvarinnar. í tilkynningu
ráðune.vtisins segir ennframur
að eftir að Frakkar hafi* gert
harðar loftárásir á bæinn. hafi
franskar fallhlífahersveitir ráð-
ist á bæinn frá mörgum stöðum.
Beittu Frakkar mjög skriðdrek-
um í árásunum, en í kvöld héldu
Túnismenn öllum stöðvum sín-
um. Hætt er við að drepsóttir
breiðist úf í bænum, þar sem
vatnsleiðslur hafa rofnað, svo
og rafmagns- og gasleiðslur.
Talsmaður franska utanríkis-
ráðuneytisins sagði í dag, að
Frakkar hefðu um 6000 manna
lið í Bizerte og um 1500 tækni-
íræðinga. Frakkar halda stöð-
ugt áfram að auka liðið. Stórt
herfylki, sem nýlega var flutt
frá Alsír til Frakklands verður
flutt til Bizerte á morgun, og í
dag fóru fjórar stórar herflutn-
ingaflugvélar með hermenn frá
Frakklandi til Bizerte.
• Túnisbúar ákveðnir
Bourguiba Túnisforseti hafn-
aði í dag úrslitaskilyrði frá
Frökkum um að Túnisbúar
skyldu þegar í stað hafa sig í
brott frá Bizerte og nágrenni.
Hann tilkynnti jafnframt .að
Túnis myndi taka við hjálp er-
lendis frá. í ræðu. sem hann
hé]t á útifundi í Túnisborg,
kvaðst hann hafa gefið Túnis-
hernum í Bizerte fyrirskipun um
að berjast til þrautar gegn
morðárásum Frakka.
í ræðu sinni sagði Bourguiba,
að Frakkar hefðu nú afhjúpað
bá fyrirætlun slna, að ætla að
vinna Túnis undir yfirráð sín
að nýju. Bourguiba sagði að
Túnis hefði borizt boð um hjálp
frá Libyu og Alsír. Þjóðfrelsis-
hreyfing Alsírbúa hefði tjáð
vilja sinn til að berjast hlið við
hlið með Túnisbúum. Ambassa-
dorar Túnis um allan heim hafa
fengið fyrirmæli um að skrá
sjálfboðaliða til baráttunnar um
Bierte. Tito Júgóslavíuforseti og
Saud Arabíukóngur hafa báðir
sent Bourguiba boðskap þar sem
þeir tjá stuðning sinn við málr
stað Túnisbúa.
Bourguiba hefur sent Hamm-
arskjöld skeyti og farið þess á
leit, að Túnis fái að kalla heim
þá hermenn sína sem eru í þjón-
ustu Sameinuðu þjóðanna í
Kongó, þar sem öryggi Túnis og
fullveldi sé nú ógnað.
Öryggisráðsfundur
Kæra Túnis á hendur Frakk-
landi fyrir atferli þeirra síðar-
nefndu í Bizerte vaf teKin fyrir
á fundi Öryggisráðs S.Þ. í kvöld.
Slim, fulltrúi Túnis, lagði fram
eftirfarandi þrjár tillögur:
1. Frakkar hætti árásaraðgerð-
um sínum þegar í stað.
2. Sameinuðu þjóðirnar veiti
þá hjálp sem nauðsynleg kann
að vera til að stöðva árásarað-
gerðir Frakka.
3. Sameinuðu þjóðirnar veiti
nauðsynlega aðstoð til að rýma
Bizerte-flotastöðina. Nauðsynlegt
er að pllir franskir hermenn
hverfi þaðan, ella stafar af
henni stöðug ófriðarhætta.
Miklar umræður urðu í ráð-
inu um málið, og tók enginn full-
trúi málstað Frakka. Morosov,
fulltrúi Sovétrík.ianna, benti á
að Bizerte-herstöðin væri her-
stöð Atlanzhafsbandalagsins, og
það sýndi bezt að NATO væri
heint gegn sjálfstæði; Afríku-
þjóðanna.
I
V8 S £©n
Þórður
sjóari
Um borð í Joya var ástndið orðið alvarlegt. Hóias
réð ekki lengur við það að halda skipinu upp í vind-
inn og skipstjórinn, (Blaskó, var enm á valdi Jacks
í lestinni. Að lokiun sá Jack fram á, að fengju þeir
á dekkinu ekiki hjálp frá einhverjum, sem eitthvað
kynni fyrir sér í siglingalistinni, þá myndi skipið
sökkva. Hann sleppti því Blaskó og harn klifraði
upp. Sjórinn skvettist niður um opin lestaropin og
Blaskó átti örðugt með að standa á fótunum í storm-
inum. Bjöi'gunar-báturinn hafði losnað og kastaðist
fram og aftur um þilfarið. Að lokum náði Blaskó
stýi-ishúsinu, þar sem Hóras ihéíkk enn á stýrinu.