Þjóðviljinn - 22.07.1961, Blaðsíða 9
4) — ÓSKASTUNDIN
Laugardagur 22. júli 1961 — 7. árgangur — 23. iölublaíl.
SEPPI OG KISA
Framhald af 3. síðu.
ti! að þvo hann. Hún
néri honum svo fast við
brettið að seppi bað
hana að vera ekki svona
harðhenta, hún gæti
flækt saman á honum
Jappirnar. Þegar búið
var að þvo seppa skreið
kisa upp í balann og
seppi fór að þvo hana.
en var svo harðhentur.
að hún bað hann að
nudda sig ekki svona,
hann mundi nudda gat á
belginn á sér. Svo undu
þau hvort annað. ,.Og nú
skulum við þurrka okk-
ur“, sagði kisa. Þau
settust upp á þvotta-
snúru. ,.Fyrst hengir þú
mig upp á snúruna og
þegar þú ert búinn að
því þá stekk ég niður og
hengi þig upp“, sagði
kisa við seppa. Seppi tók
kisu og hengdi hana á
snúruna eins og hann
væri að hengja út þvott.
Þau þurftu engar klemm-
ur þvi þau héngu föst á
snúrunni á klónum.
Þegar seppi var búinn
að hengja kisu upp stökk
hún niður og hengdi
seppa upp.
Og þarna héngu þau
bæði tvö og sólin skein
á þap. ,.Það er sólskin“,
sagði seppi, ,.þá verðum
við enga stund að
þorna“. En hann var
varla búinn að sleppa
orðinu Jiegar fór að
rigna. JKomin rigning'.“
hrópuðu seppi og kisa.
,,Þvotturinn okkar blotn-
ar. Við verðum að taka
hann inn“. Þau stukku
bæði niður af snúrunni
og skutust inn i skjól.
..Rignir ennþá?“ spurði
kisa. ..Það er stytt upp“,
sagði seppi og það var
hverju orði sannara. Það
var komið sólskin. ,,Þá
hengjum við þvottinn út
aftur“, sagði kisa. Og
þau fóru og hengdu sig
aftur á snúruna; fyrst
hengdi seppi kisu upp,
svo stökk hún niður og
hengdi seppa upp. Og
sem þau héngu þarna á
snúrunni rétt eins og
þvottur fóru þau að tala
um það, hvað þvotturinn
þeirra mundi nú verða
fljótur að þorna fyrst
aftur væri komið sól-
skin. En þá fór aftur að
rigna. ',.Það er komin
rigning. Þvotturinn okk-
ar blotnar!“ hrópuðu þau
bæði í einu og hlupu í
skjól. Svo kom aftur sól-
skin og þau hengdu sig
út á snúruna, og enn
kom rigning og þau
hlupu í skjól, og svo
aftur sólskin, þá hengdu
þau sig aftur út, og
svona gekk það fram á
kvöld. Þá voru þau bæði
orðin skrauíþurr. ,.Þvott-
urinn okkar er þornað-
ur“ sögðu þau. „nú
skulum við láta hann í
körfu.“
Og þau skriðu niður
í körfu, en þá voru þau
orðin svo syfjuð, að þau
sofnuðu og sváfu vært í
körfunni langt fram á
morgun.
(Þýtt «r tékknesku).
S K R í T L A
Lítil stúlka sagði við
ömmu sína: ,.Það ■ er
skrítið, amma, að þú
segir á kvöldin, að ég sé
of lítil til að vera á fót-
um, en á morgnanna að
ég sé of stór til að liggja
í rúminu'*.
S K I P — Kæra Óskastund! — Ég þakka þér fyrir
allar skemmtilegu stundirnar. Ég sendi þér mynd
af skipi, sem ég teiknaði sjálfur. IMér þætti gaman
að sjá myndina mina í Óskastundinni. — Kær
kveðja. — Stefán Grímssen.
■ItstWrl Vllbors Daobiartidóttir - útosfsndl bJdBvllJlna
★ ★ ★ ★
J. Capck:
DM ÞAÐ HVERNIG
SEPPI OG KISA
ÞVOÐU GÓLFIÐ
★ ★ ★ ★
Þetta var þegar seppi
og kisa bjuggu ennþá
saman; þau áttu heima í
dáiitlu húsi út við skóg-
inn og langaði til að
gera allt eins og stóra
íólkið. En það gátu þau
nú ekki alltént, því þau
voru með litlar og ó-
hönduglegar loppur og á
loppunum höfðu þau ekki
fingur eins og íólkið
heldur dálitla þófa og á
þeim voru klær. Og þess-
vegna gátu þau ekki gert
allt eins og lólkið, og
þau gengu heldur ekki i
skóla af því að skóli er
ekki fyrir dýrin, onei,
ekki aldeilis. Hvað hald-
ið þið? Hann er bara,
fyrir börn.
Svo það vildi nú líta
misjafnlega út þarna t
íbúðinni þeirra. Sumt
gerðu þau vel og sumt
ekki, og stundum var
lika dálítið subbulegt hjá
Framhald á 2. síðu.
Búðu til tuskumottu
Athugaðu vel þessa mynd. Svona
mottu getur þú hæglega búið til. Efn-
ið i hana kostar ekkert. Hún er gerð
úr tuskum. Gömul íöt safnast oft
fyrir á heimilum og þú getur áreið-
anlega fengið nóg efni I mottuna.
Það gerir ekkert til þó tuskurnar séu
allavega litar og úr ólíkum efnum.
Klipptu þær í renglur og saumaðu
saman í þrjár lengjur, sem þú fléttar
úr eins langa fléttu og þér íinnst
mátulegt, síðan formar þú mottuna og:
saumar saman. Þú getur haft hana.
kringlótta eða ferkantaða eins og sýnt.
er hérna á teikningunni.
Nylonsokkar eru tilvalið efni í mott-
una. Það er fallegt að lita þá í sama
lit alla, gjarnan einhverjum skærurrit
lit.
Síðustu forvöð að sækja um
námskeið drengja í Reykholti
Frá júnibyrjun hafa starfað í
Reykhptti þrjú drengjanámskeið
og hið fjórða, sem er fyrir
stúlkur stendur nú yfir. Öll
þessi námskeið hafa ver-
ið fullsótt og hafa margir
orðið írá að hverfa. Þess vegna
varð það að ráði; að efnt yrði
til aukanámskeiðs fyrir drengi
Islandsmót í
handknattleik
Hið érlega Islandsmót í
handicnattleik karla úti hefst
í Hafnaifii’ði í dag (laugardag)
klukkan 3 á Hörðuvöllum. Eru
það 5 félög sem taka þátt 1
mótinu: Víkingur, Ármann,
FH, ÍR og Fiam.
Fyrstu leikirnir j mótir.u
verða: Víkingui1—FH og ÍR—
Ármann, og fara þeir fram
í dag.
■ Á morgun fara fram tveir
leikir: Frram—Víkingur og FH
—Ármann og liefjast þeir einn-
ig klukkan 3.
v^íÍáfþór óuvMumm
Z4fiutofaéa.-f'7r'm Sóni.'11970
k INNHEIMTA 5
Í.Ö<JFJ?Æ€>ASrÖJ?F
1 I í
er hefst 24. þ.m.
Reynslan af starfseminni í
sumar hefur verið mjög góð,
bæði er staðurinn hinn ákjós-
anlegasti hvað við kemur mann-
virkjum og náttúrugæðum og
einnig hefur starfsskráin reynzt
mjög vel við hæfi hinna fjöl-
mörgu unglinga, þar sem reynt
er að finna viðfangsefni við
hæfi hvers einstaklings og þeim
Þá má gera íáð fyiir að
mikil eftirvænting verði í sam-
bandi við leik KR og Akur-
eyrar sem fiam fer á Akui'-
eyii á sunnudag. Þegar þsssi
Iið léku saman í fyria sinnið
endaðj leikurhm 6:3 fyiir KR.
Þá vai- vörn ÍBA opin og tókst
Þórólfi að smjúga þar í gegn,
en gera má ráð fyrir, að Ak-
ureyringar séu búnii- að þétta
vörn sína og KR-ingar hafi
ekki eirs gi-eiðan aðgang að
marki þeiri'a og í fyria sinnið.
Á Akianesi fer fiam leik-
ur í fyrstu deild milli Akra-
skipt niður í hópa eftir aldri og
þroska.
Ýmsir fremstu íþróttamenn
þjóðarinnar hafa dvalizt með
drengjunum við æfingar og hef-
ur- það gefið hina beztu raun.
f ráði er að gera kvikmynd
af síðasta námskeiðinu og síðar
verður ef til vill efnt til sýn-
ingarferðar með hana og hún
sýnd í. skólum.
Nú eru síðustu forvöð að
Sækja um aðgang að síðasta
námskeiðinu. og eru umsóknir
afgreiddar á skrifstofu ÍSÍ
Grundarstig 2b Rvk., simi
14955.
ness og Hafnarfjarðar, og
hafa Akumesingar þar meiri
sigurmöguleika. Auk þess fara
fram á Akranesi tveir leikir
i yngri flokkunum, milli Fram
og ÍA í 3. flokki og 5. flokki
og er þar um landsmót að
ræða.
Á mánudaginn leikur svo
Fram við Val í fyrstu deild og
hefur Fram þá leikið 3 leiki
á einni viku! Er ekki gott að
spá lim þau úrslit, hvorugt
liðið hefur „bnllierað" að und-
anförnu.
KR - IBA og IA - IBH keppa á
morgun, Fram -Valur mánudag
---- Laugardagur 22. júl'i 1961 — ÞJÓÐVILJINN — (9>
Lyngby vann Þrótt 3 o§ 0
Dönsku drengirnir, sem eru
hér í boði Vals, léku við Þrótt
á fimmtudagskvöldið á Mela-
vellinum og sigruðu þá með
þrem mörkum gegn engu.
Danimir voru meira í sókn
allan leikinn og var sigur þeirra
verðskuldaður. Þeir léku betri
knattspyrnu og var samleikur
þeirra oft mjög góður. Aftur
á móti var leikur Þróttar mjög
slakur og enduðu flestar send-
ingar þeirra hjá mótherja.
Danimir settu eitt mark í
fyrri hálfleik en það var skalla-
skot af markteig, illverjandi fyr-
ir Þórð.
Annað markið kom snemma í
síðari hálfleik og var upphaf
þess aukaspyrna er dæmd var á
Þrótt. Þróttarvörnin hugðist
leika Danina rangstæða með því
að hlaupa fram. rétt áður en
spyrnan skyldi framkvæmd. en
þeir voru of seinir, hlupu ekki
fyrr en búið var að spyrna og
skildu Danina eftir óvaldaða og
réttstæða á vítateig og skoraði
hægri útherji Lingby auðveld-
lega. 3. markið settu Danir
er langt var liðið á síðari hálf-
leik en það setti v. útherji, eft-
ir að Þórður, markvörður Þrótt—
ar. var nýbúinn að verja hörku-
skot. Hann sló knöttinn til v.
útherja, sem skoraði, enda hafðí.
Þórður ekki náð jafnvæginu aft-
ur.
f lið Þróttar vantaði fjóræ
leikmenn, sem eru erlendis.
Tveir nýir leikmenn léku meS>
liðinu. H.
Úrslit í 2.
deild á
sunnudag
Á sunnudag fer fram á Laug—
ardalsvellinum úrslitaleikurinn
í annarri deild. Þar eigast við
Isafjörður og Keflavík. Þessi
lið hafa unnið sitt. hvorn riðil.
Má gera ráð fyrir að hér verði
skemmt’.Iegur leikur og tví—
sýnn, og getur orðið erfitt að
segja til um úrslitin. Senni-
lega mun Keflavík eftir leikinu.
við þrótt um daginn tahn lík-
. legri til sigurs, þó allt getí
gerzt.
r
Islandsmet hjá
Meistaramót íslands í frjáls-
um íþróttiun hélt áfram í gær-
kvöld o.g bar þar helzt til tíð-
inda að Valbjörn Þorláksson
bætti enn íslandsmet sitt í
stangarstökki úr 4.47 í 4.50.
Vilhjálmur Einarsson stökk
15,44 i þrístökki.
Valbirni, 4,50
Helztu úrslit:
110 m grhl: Ingólfur Her-
mannsson IBA 16,1
100 m hl.: Valbjöin Þorláks-
soni 11,3
Kringlukast: Þorsteinn Löv&
48,56
Framhald á 10. siðu.