Þjóðviljinn - 15.10.1961, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 15.10.1961, Blaðsíða 7
pioowil Útgefandl: Samelningarflokkur alþýðu — , Sósíalistaflokkurinn. — Ritstjórar: Magnús Kjartansson (áb.), Magnús Torfi Ólafsson, Sigurður Guðmundsson. — Fréttaritstjórar: ívar H. Jónsson, Jón Bjarnason. — Auglýsingastjóri: Guðgeir Magnússon. — Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðust. 19. Sími 17-500 (5 línur). Áskriftarverð kr. 50,00 á mán. — Lausasöluverð kr. 3.00. Prentsmiðja Þjóðviljans h.f. Umbotaflokkur eða aftur- haldshækja? fjegar Tíminn er tekinn á nýjan leik að birta leiðara þess efnis, að lausn allra þjóðfélagsvandamála á íslandi felist í útrýmingu „kommúnismans11 og eflingu hins eina sanna umbótaflokks Framsóknarflokksins, verður ekki hjá því komizt að minna á, að þessi eini sanni „umbótaflokkur" hefur hvað eftir annað í sögu sinni verið á valdi svartasta afturhalds landsins og þátttabandi í hinum verstu afturhaldsverkum, sem unnin 'hafa verið í íslenzkum stjórnmálum, í innilegu bandalagi við auðklíkur Sjálfstæðisflokksins. Og Fram- sóknarflokkurinn hefur hvað eftir annað orðið að bjarga lífi sínu og áliti með því að leggja til hliðar aðalforystumenn flokksins, sem orðnir voru svo al- ræmdir af afturhaldssemi að fylgið hefði hrunið af flokknum ef hann hefði þurft að draslast með þá í for- ystunni áfram. Allur þorrinn af flokksmönnum Framsóknarflokksins og fylgjendum vill að flokkurinn sé heiðarlegur vinstri flokkur og umbótaflokkur. Þess vegna hefur því verið fagnað um allt land þegar Framsóknarflokkur- inn hefur tekið heiðarlega vinstri afstöðu í þjóðmál- unum Framsóknarmenn, sem undanfarið hafa gengið til samstarfs við frjálslynd og róttæk öfl innan verka- lýðshreyfingarinnar, og einnig í baráttunni gegn her- náminu. eru furðu lostnir yfir skrifum Tímans, þar sem ekki er annað sjáanlegt en verið sé að undirbúa eina afturhaldsveltuna enn, verið að betla um að fá að skreiðast í nýtt þjóðstjórnarflet með „viðreisnar- flokkunum," og afsökunin á að vera gamalkunn, sefa- sýkisöskrin um kommúnistahættu og Moskvu. • Auðséð er á blöðum ríkisstjórnarinnar að þau fagna ^ mjög þessu afturhaldskasti Tímans og vænta sér af því nýs bandamanns í ,,viðreisnar“-pólitík sinni, og alveg sérstaklega virðist Morgunblaðið telja stuðnings að vænta frá afturhaldssömustu foringjum Framsókn- arflokksins við þau skuggalegu áform ríkisstjórnarinn- ar að innlima ísland sem valdalausan hrepp í stórveldi auðhringanna í Vestur-Evrópu. En hætt er við að aft- urhaldsmönnunum í forystu Framsóknarflokksins reyn- ist erfitt að draga flokkinn allan og fylgjendur hans með sér í íhaldsdilkinn. Kynni svo að fara að flokkur- inn teldi enn einu sinni brýna mauðsyn að losa sig fremur við þá forystumenn, sem orðnir eru svo gegn- sósa af íhaldssemi, að þeir hyggjast nú með hræsnis- vígorðum um ,vestræna samvinnu' misnota trúnað þess fólks, sem heldur sig vera að kjósa frjálslyndan um- bótaflokk þar sem Framsóknarflokkurinn er, en ekki að senda á þing knippi af hækjum handa svartasta aft- urhaldi landsins að styðjast við. Afmælisgjöfin ]Vfú fer að styttast að afmæli Þjóðviljans, og er nú ” hver dagur og ekki sízt helgar, tækifæri til að yinna fyrir happdrættið og gefa blaðimu með þeim hætti myndarlega afmælisgjöf. Fyrirkomulag happ- drættisins að þessu sinni hefur orðið vinsælt, með fjóra möguleika á bílvinningi og auk þess aukavinn- inga sem þegar er búið að draga um. Vegna þeirra á- forma sem mú eru gerð um stórbættan vélakost prent- smiðju Þjóðviljans og bætt skilyrði til útgáfu fjöl- breyttara og betra og fallegra blaðs, er mikils þörf. ísíenzk alþýða hefur aldrei brugðízt Þjóðviljanum, og mun enn lyfta blaði sínu með þessu nýja ótaki. ■' - ■' •• •• • •• | Verkaniadurinri V«. | * . V:' Hálidahöldio 1. niaí Ijiil- tneun og vcl Ifcppnuð ra c- < z - a- B mSSáím M '-♦VK - ureyn Q w \ Elzfa bíaS róftœks verkalýSs hér á landí Þorsteinn Jónatansson. Akureyri hefur löngum, með réttu eða röngu, verið talin borgaralegasti bær á íslandi. En samtök verkamanna eiga sér har einnig langa sögu. Þar var stofnað elzta verkamanna- félag landsins og Verkamaður- inn, málgagn vinnandi fólks á Akureyri hefur senn kqmið út í 44 ár og er því elzta blaðið sem flutt hefur málstað verka- manna hér á landi. Því hlut- verki sínu hefur Verkamaður- inn alltaf verið trúr, en hann hefur verið lítið blað. fátækt, og bví ekki ævinlega fjölbreytt- ur né uppl'fgandi. Nú hefur hann stækkað, breytt um svip og fjölbrevtni í efni aukizt. Tveir ungir menn hafa nú tek- ið við ritstjórn hans, þeir Þor- steinn Jónatansson, sem í nokk- ■ ® Mákvæmt hlntteysi 1 ■ ■ Hlutleysisreglur útvarpsins • eru sem kunnugt er einkenni- ! legar og misjafnlega vandlega E haldnar. Stundum er þeim þó ■ framfylgt af stakri nákvæmni. : ■ Þannig ætluðu forráðamenn ■ Sjómannafélags Reykjavíkur 5 í fyrradag að koma auglýs- ■ ingu 1 útvarpið þar sem j Slysavarnafélaginu var þakk- : að fyrir að efna til nám- ■ skeiðs um meðferð gúmbjörg- E unarbáta og skorað á sjó- 5 menn að taka Þátt í því. ■ Auglýsingaskrifstofan neitaði 5 að taka auglýsinguna á þeim ■ forsendum að bannað væri að 5 þakka mönnum og skora á 5 menn í ríkisútvarpnu. Var þá • leitað til æðri valdamanna ■ með sama árangri. Þannig gætir útvarpið ýtr- ■ asta hlutleysis um það hvort E sjómenn eiei að læra meðferð E björgunarbáta eða ekki. • 88 nauðungarapp- j i boð í tveim thl. Lögblrtingabl. Af Lögbirtingarblaðinu má nokkuð ráða um efnahagsaf- komu fólks á hverjum tima. f fyrri viku komu út 100. og 101. tbl. þessa árgangs og í fyrra blaðinu voru auglýst 44 nauðungaruppboð i Reykjavik og 3 utan Reykja- víkur og í því síðara 41 upp- boð í Reykjavík. í Morgunblaðinu lesum við daglega aftur á móti hve all- ir landsmenn séu ánægðir með viðreisnina. ur ár hefur verið varaformað- ur Verkamannafélags Akureyr- arkaupstaðar og starfsmaður verkalýðsfélaganna og starfað við Verkamanninn síðan 1956. Hinn ritstjórinn er Hjalti Krist- geirsson, sem hefur fyrir skömmu lokið hagfræðiprófi við háskólann í Búdapest. í gömlu, og vafalítið fom- frægu, húsi við Hafnarstræti á Akureyri er aðsetur Verka- mannsins, og þar hittum við ritstjórana, þá Þorstein og Hjalta. Ritstjórnarskrifstofan er ekki nema að litlu leyti bú- in eftir nýjustu tízku, en það hve gaman er að hitta unga menn sem nýbyrjaðir eru á miklu verkefni vegur þar meir en á móti. — Verkamaðurinn hefur heldur en ekki skipt um svip hjá ykkur þykir mér. — Já, við héldum upp á 1. maí sl. vor með því að gefa Verkamanninn út í nýju formi. Þá varð hann 8 síður og hefur komið þannig út reglulega einu sinni í viku. Jafnframt voru gerðar ýmsar breytingar á blaðinu, m.a. er hann fyrsta islenzka fréttablaðið sem kom út með litprentuðum haus. Fjölbreytni í efnisvali var auk- in við stækkunina og ráðnir tveir ritstjórar að blaðinu, en fram að þeim tíma eða í meir en 40 ár hefur ritstjórn blaðs- ins verið íhlaupaverk sem menn hafa unnið jafn.framt öðrum störfum. — Hvað er Verkamaðurinn annars gamall? — Fyrsta blaðið kom út 14. nóv. 1918. Blaðið stofnuðu nokkrir félagar úr Verka- mannafélagi Akureyrar og var það gefið út sem málgagn verkamanna á Akureyri. — Hve margir og hverjir hafa verið ritstjórar Verka- mannsins? Fyrsti ritstjóri var Halldór Friðjónsson, bróðir Sigurjóns Friðjónssonar skálds, síðan hafa verið þessir ritstjórar: Erlingur Friðjónsson, Einar Ol- geirsson, Steingrimur Aðal- steinsson, Þóroddur Guðmunds- son, Jakob Ámason, Rósberg Snædal, Þórir Daníelsson og Björn Jónsson. — Og ætlið þið svo að gera Verkamanninn að miklu Akur- eyrarblaði? — Að sjálfsögðu, en við hyggjumst þó fyrst og fremst gera Verkamanninn að sérstöku málgagni sósíalista og Alþýðu- bandalagsins í Norðurlands- kjördæmi eystya. Hann mup því fjalla um málefni kjördæm- isins en ekki Akureyrar ein- ungis; við munum leggja meg- ináherzlu á mál kjördæmisins, auk almenns efnis. — Og hefur útbreiðslan auk- izt við breytinguna? — Já, útbreiðslan hefur aUk- izt allverulega frá því • -brevt- ingin var gerð, en þó álítum við að hún þurfi enn að auk- ast til muna til þess að" blað- ið standi sem bezt fjáihágs- lega og til þess að það geti orðið þannig úr garði gert að það uppfylli sem mesþ óskir kaupendanna. Auðvitað þarf ennfremur það að við reyn- umst starfi okkar vaxnir, pn úr því verður reynslan aö skera, segja þeir og brosá.. — Og nú ætlið þið váfa- laust að auka fréttirnar þegar blaðið hefur stækkað? — Já, Verkámaðurinn hefuj' frá upphafi nær eíng’o’riguóýef- ið stjórnmálablað, en nú verð- ur lögð áherzla á að gerá bíað- ið einnig ábyggilegt fréttablað fyrir Norðurland. Með því móti verður fengur að blaðinu fyr- ir þá sem vilja fylgjast með málefnum þessá landshluta', T.d. þá sem fluttír 'érú1 búrt én vilja fá fregnir úr heímábýggð sinni. .j-i% — Verkamaðurinn er, .orðinn nokkuð gamall. í h.ettunnL — Já, hann. kom<:.íyrst- út 1918 og er Verkarpaðurinn því elzta málgagn hinnar róttæku verkalýðshceyfingar .',.sem enn er gefið út,,og hefur komið nokkurnveginnjreglulega út frá upphafi. ;!S,; • :: : , Það er mín skoðun,. heldur Þorsteinn ,, áfr.am, , að flokki Hjalvi Kristgeirsson okkar sé mikil nauðsyn að kjördæmablöðin þlómgist og dafni, því enda -þótt Þjóðvilj- inn sé okkar aðalmálgagn, og hljóti alltaf að verða, þá get- ur hann ekki, hversu vel sem hann er 'úr garði gerður gert einstökum málefnum einstakra byggðarlaga úti um land sömu skiLog á að vera hægt í kjör- dærnablöðunum. Stærsta hlut- verk kjördæmabláðanna hlýt- ur því að' verða að fylla upp í þau skörð sem eitt landsblað hefur alls ekki færi á að gera, auk þess er þáli geta flutt af greinum, skemmtun og fróð- leik. — Er eitthvað af kaupend- um utan kjördæmisins? — Já, þó við sníðum útgáf- una fyrst og fremst fyrir Norð- urlandskjördæmi eystra þá eru kaupendur dreifðir um allt land, einkum eru það gamlir Akureyringar í Reykjavík, og lausasala hefur verið nokkur i Reykjavík. Stækkunin hefur kveikt nýjan og vaxandi áhuga fyrir Verkamanninum hvar- vetna í kjördæminu. J.B. Þegar ríkisstjórn rænin rofsiar úr tems Undanfarnar vikur hafa mál- gögn og málpípur auðvaldsins hér á landi ýmist hamazt í brjálæðiskenndu ofstæki gegn verkalýðshreyfingunni og hót- að henni öllu illu, eða þá barmað sér sáran og sagt að atvinnuvegirnir væru á heljar- þröminni og verkafólk mætti ekki gera neinar kaupkröfur þvi þá færi allt úr skorðum. Annar var söngurinn í Morgunblaðinu málgagni stór kaupmanna Qg heildsala fyrir tæpum þrem árum. ■ En þess skulu menn minnast að þá var verkamannakaupið um það bil 5% hærra heldur en það er nú. auk þess sem verð- lag var þá nærri 20% lægra. Þá sagði Morgunblaðið að at- vinnuvegirnir gætu staðið und- ir hærra kaupi, og, það bein- línis hvatti verkafólk til þess að láta ekki kjöldraga sig. En síðan hafa mörg vötn runnið til sjávar og sitthvað gerzt í verkalýðsmálum og ís- lenzkum stjórnmálum almennt, sem vert er að hafa í huga. Snemma árs 1950 voru samningar atvinnurekenda og verkafólks ógiltir og kaup laun- þega lækkað um 13,5%. En atvinnurekendaíhaldinu þótti þetta ekki nóg. Með efna- hagsráðstöfunum ríkisstjórnar- innar í marz 1960 var efna- hagskerfinu umbylt, þannig að stóreignamönnum og bröskur- um var hyglað stórlega á kosn- að starfandi fólks og þeim veitt ýmiss konar sérréttindi. Og af- leiðing þessarar nýju efnahags- málastefnu lét ekki á sér standa. Ofsalegt dýrtíðarflóð flæddi yf- ir landið þar sem allt hækkaði, — nema kaupið, enda er talið að kjör verkalýðsins hafi rýrn- að við þessar ráðstafanir um 25%. í vor og sumar rétti verka- lýðshreyfingin að nokkru leyti kjör meðlima sinna í verkföll- unum eins og kunnugt er og er óþarfi að rekja það nánar. í þeim verkföllum sannaðist að- atvinnurekendur höfðu logið til um fjárhag fyrirtækja sinna, og virtust þeir í lok verkfallsins ekki vera í neinum erfiðleikum með að greiða hið nýja kaup! Einkennandi í verkföllunum var hin sterka eining innan flestra hinna stærri verkalýðs- félaga og hin rnikla samúð sem fólk um iand allt hafði með verkafólkinu í stéttaátökunum, þrátt fvrir sleitulausan áróður hjá öskurapaliði ihaldsins! Fnrvstumenn auðvaldsins urðu hamslausir af bræði yf- ir úrslitum verkfallanna. Mál- flutningur Morgunblaðsins varð harla ruglingskenndur og mótsagnakenndur. Fyrir verk- föllin hafði það haldið því fram að atvinnulífið þyldi alls enga kauphækkun. — í verk- föllunum snéri það svo við blaðinu og sagði að atvinnulíf- ið gæti vel borið 6% kaup hækkun og 4% seinna. — Og eftir verkföllin skellti aftur- haldsstjórnin á 13% gengis- lækkun með bráðabirgðalögum, sem hæpið er að hafi haft þingmeirihluta, að hætti geggj- aðra einræðisherra og rændi með því öllu er verkalýðurinn hafði unnið í verkföllunum og meiru en því og braut um leið það loforð sitt að hafa engin afskipti af samningum verka- fólks og atvinnurekenda. Með þessari nýju gengisfell- ingu er nýrri verðbólguöldu skellt yfir þjóðina. En verð- bólgu- og g.jaldeyrisbraskarar græða og stóratvinnurekendur og stórkaupmenn sem eiga mikla vörulagera græða. Með gengisfellingunni var auð- mannastéttin að framkvæma árás sína gegn starfandi fólki og beitti í því skyni fyrir sig rikisstjórninni, og þeirri árás verður að svara. Hvernig getur rikisstjómin ætlazt til þess að verkamenn og verkakonur sem vinna 48 stundir á viku geti unað kjör- um sínum? E.t.v. hugsa stjórn- arráðsherramir ekkert út í það, þvi þeir skammta sjálf- um sér önnur laun og meiri! Hvernig á námsfólk sem vinnur 3 til 4 mánuði á ári að komast af með góðu móti? Auðvaldsherrarnir hafa ekki á- huga á því að bæta kjör þess fólks, því að þeirra börn eru ekki annað en „pabba-krútt“ sem eiga hægan aðgang að arð- ránssjóðum foreldranna og auðmýkjandi betlistyrkjum A- bandalagsins! Hvernig eiga iðnnemar, sem hafa aðeins 4—600 króna viku- kaup að una kjörum sinum? Þeirra hlutskipti er aðeins hlutskipti þrælsins sem starfar eingöngu til þess að skapa öðr- um auð og gróða! Hversu lengi ætla verkakon- ur að una því að fá ekki sömu laun fj'rir vinnu sína og karl- menn? Atvinnurekendum þykir náttúrlega gott að hafa kon- •una sem nokkurs konar lægri- stéttar vinnuafl. en allir sem til þess þekkja verða að við- urkenna að í mörgum tilfell- um eru konur s:zt afkastaminni við störf sín en karlmenn! Allir hljóta að sjá að laun- in verða að^hækka, og því er ekki hægt að mótmæla með neinum rökum. Eða hvert á að renna ágóði hins stóraukna aflamagns og hið hækkaða verðlag á útflutningsafurðun- um? Hvernig stendur á því að lóðir eru keyptar fyrir millj- ónir króna á sama tíma og verkafólki er sagt að ekki sé hægt að greiða því hærri laun? Hvemig stendur á því að fiskútflytjendur safna stór- felldum fúlgum í bönkum er- lendis þegar þjóðinni er talin trú um að nauðsynlegt sé að fella gengið svo sjávarútvegur- irin geti borið sig? Hvernig stendur á því að r'kissjóður sóar milljónum króna í Axel í Rafha á sama tíma og fólki er sagt að ríkis- sjóður sé á heljarþröm og þess vegna verði fólk að sýna fórn- fýsi? Kjör verkafólksins verður að bæta og það á kostnað hins spillta stjórnkerfis og stórat- vinnurekenda. Það hefur aldrei þótt til of mikils mælzt þó þjófar og ræningjar væru látnir skila því sem þeir stela. Þar sem rikisstjórnin hefur stolið kaupi verkafólks og lýst sig fúsa til að ræna rétti þess og neitar að skila aftur ráns- fengnum, verður að neyða hana til þess. Ef verkalýðshreyfingin held- ur sér vakandi mun endanlega sannast að hún er sterkasta þjóðfélagsaflið, Qg þeir sem ætla sér að stjórna gegn henni eru að taka s:na eigin gröf. G.J.G. Á þriðjudaginn byrjar Hafnarfjarðarbíó sýningar á pólsku kvikmyndinni „Aska og gimstcinar“, mynd sem talin hefur verið í hópi alb'eztu kvikmynda sem gerðar hafa verið á síðustu árum og sýnd víðsvegar um heim hvarvetna við mjög mikla aðsókn, t.d. var hún sýnd svo vikum og mánuðum skipti í Kaupmannahöfn. Leikstjórinn, Jerzy Andrzejewski, er hinn sami og stjórnaði gerð myndarinnar ,,Kanal“.(Jarðgangnanna) sem Hafnarfjarðarbíó sýndi .cinnig á sínnm tíma. ' -■: Hér, á síðiUinm sjást aðaileikendurnir í „Öskn og gim- steinum' . Zbigniew Oybulski og 'Bwá löujaieHfckái'"' ■-■-■■ rnmm. £) — ÞJÖÐVILJINN — Sunnudagur 15. október 1961 Sunnudagur 15. október 1961 — ÞJÖÐVILJINN (1

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.