Þjóðviljinn - 17.10.1961, Side 1
MOSKVA 16/10 — Sovétmenn
skutu margra þrepa eldílaug út
á Kyrrahaf s.l. sunnudag. Eld-
flauginni var skotig 12.000 km.
vegalengd. Fór hún nákvæmlega
fyrirfram reiknaða braut og hitti
í skotmark mei'l mikilli ná-
kvæmni, segir Tass-fréttastofan»
® MikEar
brevtingcr
ákveðnar í
mœ!i Þjóð-
viljans
Unnið er nú að því
j að stórbæta vélakost
I Prentsmiðju Þjóðvilj-
j ans, jafnframt því sem
blaðið verði stækkað
r. til mikilla muna og
jsí aðstaða ritstjórnarinn-
ar bætt. Hefur verið
ákveðið að kaupa nýja
j -prentvél — rotation-
, | vél — ennfremur fyr-
j irsagnaietursvél og
■
j setningarvél. Þessar
j breytingar gera það
j kleift að stækka Þjóð-
j viljann, og er áformað
j að stækkunin nemi
um það bil þriðjungi,
j þannig að Þjóðviljinn
\ verði á nýjan Ieik
j annað stærsta blaðið
| á íslandi.
j Framkvæmdir þess-
! ar eru tengdar aldar-
j f jórðungsafmæli blaðs-
j ins, og eiga þær að
I koma til framkvæmda
I snemma á næsta ári.
j En til þess að svo megi
j verða þarf blaðið að
j njóta stuðnings les-
j enda sinna í ríkara
j mæli en nokkru sinni
I fyrr.
■
■
■
Það hefur lengi verið brýn
: þörf að bæta aðstöðu Þjóðvilj-
• nns. ekki sízt eftir að öll önn-
j ur dagblöð í landinu hafa
• fengið stóraukinn vélakost og
• bætta aðstöðu á öllum svið-
um. Hefur verið að þessu
málið unnið um iangt skeið af
miðstjórn og framkvæmda-
nefnd Sósíalistaflokksins og
ýmsar leiðir kannaðar, m.a.
kaup á nýjum húsakynnum
eða nýbygging. En að lokum
var ákveðið að blaðið yrði á-
fram á Skólavörðustíg 19, nýj-
um vélakosti yrði komið þar
fyrir og húsnæðið endurbætt.
Ný prentvél
Mesta veilan í prentsmiðj-
unni hefur verið prentvélin.
Hún er meira en hálfrar ald-
ar gömul og skilar oft mjög
slæmu verki, eins og lesend-
um Þjóðviljans er bezt kunn-
ugt. Auk þess ágerast nú
mjög alvarlegar bilanir og er
útgáfa Þjóðviljans í beinni
hættu meðan svo er ástatt.
f stað þessarar úreltu véiar
hefur verið ákveðið að kaupa
rotationvél, sem nú er í eigu
Arbetartidningen í Gautaborg.
Vél þessi er þýzk, framleidd
1935, en var ekki tekin í
notkun fyrr en eftir stríð er
hún var keypt til Svíþjóðar.
Þar hefur hún verið tiltölulega
lítið notuð miðað við aíkasta-
getu, þannig að hún er óslit-
in með öllu og hinn bezti
gripur.
Síðustærðin í þessari vél er
allmiklu stærri en síðustærð
Þjóðviljans, þannig að tólf
síðna blað í hinu nýja broti
verður um það bil þriðjungi
stærra en Þjóðviljinn nú.
Hægt verður að prenta einn
lit auk svarta litsins, og raun-
ar væri síðar hægt að bæta
fleiri litum við með sérstökum
útbúnaði, ef ástæða þætti til.
Vél þessi er ekki stærri en
svo að unnt er að koma henni
fyrir í kjallaranum á Skóla-
vörðustíg 19, bar sem Prent-
smiðja Þjóðviljans er nú, með
þviý að grafa gólfið nokkuð
niður, og réð það úrslitum um
að hægt var að notast áfram
við sömu húsakynni.
Setning og umbrot Þjóðvilj-
ans verður hinsvegar flutt
upp á miðhæðina, og hefur
litla prentsmiðjan sem þar var
áður verið flutt burt fyrir
nokkru. Jafnframt hafa verið
gerðar ráðstafanir til þess að "
kaupa fyrirsagnaletursvél, sem
Þjóðviljann hefur skort til-
finnanlega, en slík vél er skil-
yrði fyrir því að unnt sé að
hafa útlit blaðs fjölbreytilegt
og smekklegt. Þá hafa einnig
verið fest kaup á nýrri setj-
aravél, auk þess sem annar
tæknilegur útbúnaður verður
endurnýjaður.
Breyting á
husakynnum
Að sjálfsögðu þarf að gera
verulegar breytingar á húsa-
kynnum á Skólavörðustíg 19,
bæði í sambandi við þessar
framkvæmdir í prentsmiðju
blaðsins og t.'l þess að bæta
starfsskiiyrði ritstjórnarinn-
ar. Jafnframt mun ritstjórn-
in að sjálfsögðu leggja á ráð-
in um það hvernig efni
biaðsins verði gert sem bezt
og fjölbreytilegast í sam-
ræmi við hina nýju tækni-
legu möguleika.
Á valdi /es-
endanna
Þjóðviljinn á kost á
greiðslufresti á hluta af and-
virði hinna nýju véla og góð-
um skilmálum. Engu að síður
kosta þessar umfangsmiklu
endurbætur að sjálfsögðu
geysimikið fé nú þegar.
Því eru allar framkvæmdir
háðar því að lesendur Þjóð-
viljans leggi sig alla fram til
þess að tryggja þessar óhjá-
kvæmilegu breytingar með
eins skjótum liætti og verða
má. Happdrætti Þjóðviljans
er ein mikilvægasta leiðin til
þess að tryggja blaðinu næg-
ar tekjur til þess að standa
straum af breytingunum.
Einnig stendur nú yfir söfn-
un á auknu hlutafé í Prent-
smiðju Þjóðviljans. Og enn
verður le'tað til vina blaðs-
ins eftir öðrum leiðum.
Treystir Þjóðviljinn því að
lesendurnir veiti honum sem
öflugastan stuðning, nú eins
Framhald á 10. síðu.