Þjóðviljinn - 17.10.1961, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 17.10.1961, Blaðsíða 5
p> S ' SS A t 'V* De Gaulle reynir aS spEPe fyrir samntngum um Berlín WASHINGTON 15/10 — Fundi háttsettra embættismanna frá vcsturveldunum fjórum sem halda átti í I.ondon í þessari viku liefur orðið að fresta vegna and- stöðu frönsku stjórnarinnar. Á fundinum átti að ræða Berlínar- málið. Frá þessu var skýrt opinber- lega í Washington á sunnudag. Á laugardag hafði bandaríska utan- ríkisráðuneytið láta hafa það eft- ir sér að samkomulag hefði náðst milli stjórnar vesturveldanna að fundurinn yrði haldinn í London nú í vikunni og væri aðeins eft- ir að ganga frá smáatriðum, eins og t. d. hvenær fundurinn skyldi hefjast. En síðdegis á sunnudag skýrðu embættismenn Bandaríkiastjórn- ar frá því að hætta hefði orðið við fundinn vegna andstöðu frönsku stjórnarinnar. De Gaulle forseti hefur í seinni tíð hvað eftir annað lagzt gegn því. að vestuiveldin taki upp samningaviðræður við Sovétrík- in um Berlínarmálið og friðar- samninga við Þýzkaland. WASHINGTON 15/10 — Helzta niðurstaða lofitvarnaaefingar sem lialdin var í Bandaríkjunum um helgina er sii að bandaríski flug- herinn geti ekki varizt árásum sem gerðar væru með sprengju- þotum, búr.um eldflaugavopnum. Þrír drepnir, 8 særðir í Orpn ALGEIRSBOHG 15/10 — A. m. k. þrír menn biðu bana en átta særðust í átökum milli evfópskra landnema og Serkja í Oran í Al- sír um helgina. Öeirðir urðu einnig í Algeirsborg og línubraut stöðvaði-st vegna þess að raftaug- in slitnaði í sprengingu. Á sunnudagskvöld var -sett út- göngubann í Oran frá kl. 20 í stað 23 sem verið hefur. Á sunnudagsmorgun ruddust þrír Serkir inn í veitingahús í Algeirsborg og skutu úr skamm- byssum á gestina, særðust þrír' Árásarmönnunum var veitt eftir- för og voru tveir þeirra drepnir, sá þriðji handsamaður. Æfingin var sú mesta sem haldin hefur verið vestra og var æfingasvæðið allt meginland Norður-Ameríku. Farþegaflug á áætlunarleiðum lá að mestu niðri meðan á æfingunni stóð. Sprengjuþoturnar komust le:ðar sinrar Geysilegur fjöldi af sprengju- þotum var látinn fljúga að til- teknum skotmörkum. en orustju- þotur áttu að stöðva ferðir þeirra. Það tókst þó ekki og komust sprengjuþoturnar nærri því alveg jrfir mörkin og hefðu þær verið búnar eldflaugavopn- um myndu þau hafa hæft ná- kvæmlega í mark. Þurfa miklu öflugri þotur For.ngjar flughersins segja að Bandaríkjamenn muni þurfa á að halda miklu hraðfleygari og langfleygari orustuþotum en þeir eiga nú, ef þeir eiga að geta gert sér vonir um að stöðva hinar nýju so.vézku sprengjuþotur sem búnar eru eldflaugum og taldar eru mun hættulegri vopn en full- komnustu flugvélar Bandaríkj- anna. ® ^ LEOPOLDVILLE 15/10 — Stjórn ] Kóngó hefur lýst andstöðu sinni við vopnahlé það sem gæzlulið SÞ hefur samið við Tshombe í Katanga. Adúla forsætisráðherra sagði við fulltrúa SÞ í Leopoldvillu Svíann Sture Linner, á sunnudag að vopnahléssamningurinn styrkti aðstöðu Tshombes í Katangá. Adúla lét í ljós sár vonbrigði og áhyggjur út af samningnum og sagði að Kongóstjórn áskildi .sér rétt til að binda endi á að- skilnað Katanga frá öðrum hlut- um Kongós með öllum tiltækum ráðum. Linner og aðstoðarmaður hans sem ræddu í tvær klukkustundir við Adúla vildu ekkert segja um viðræðurnar. Talsmaður SÞ’ í Leopoldville ■sagði að enda þótt ekki væri á það minnzt í vopnahléssamningn- um myndi ekki haggað við þeirri ákvörðun SÞ að senda heim alla erlenda málaliða í her Katanga- fylkis. bi j ■ r r | ■ l •* Fyrir skömmu var frá því sagt hér á síðunni að S H013KV1 ð SSll^ll I0SO verið væri að draga geysistóra flotakví frá Eystrá- salti til Svartahafs. Hér sést hin mikla flotakví á leiðinni, en hún er 250 metra á lengd og 60 meira breið, smíðuð í Leníngrad, en ætiuð í nýja skipasmíðastöð við Svartahaf. Stúlka úr eirmi „friðarsveit" USA olli uppnámi í igenu GAGOS 15/10 — Á mótmælafundi sem nígerískir stúden- ar héldu hér í dag var samþykkt ályktun þar sem kraf- izt var að sú af hinum svonefndu ,,friðarsveitum“ Kenne- dys Bandaríkjaforscta sem til Nígeríu var send verði þegar rekin úr landinu, og segi Nígería upp öllum samn- ingum við Bandaríkin um aðstoð bandarískra sjálfboða- liða. Tilefni þessarar samþykktar er bréfspjald sem stúlka úr „friðar- sveitinni" hafði skrifað heim til Bandaríkjanna. Stúlkan, Margery Michelmore, hafði týnt bréf- spjaldinu á leið til pósthússins og komst það í hendur nígerískra stúdenta og voru skrif stúlkunnar birt í blöðunum í Nígeríu á sunnudag undir stórum fyrirsögn- um. Hinir ungu Bandaríkjamenn eru á stuttum námskeiðum við háskólann í Ibadan áður en þeir halda út á landsbyggðina. Móðgandi ummæli Stúlkan hafði skrifað heim til sín að enginn þátttakendanna í „friðarsveitinni" hefði haft hug- mynd um hvað þeirra beið í Níg- eríu. Lifnaðarhættir fólksins væru frumstæðir, bæði í borg og sveit. Allir nema við búa á göt- unum, segir hún, verzla á götun- um og ganga erinda sinna á göt- unum. Tilskrifinu lýkur á þess- um orðum: Ég vona, að þeir byrji ekki á sömu Lúmúmbalát- unum og í fyrra. Önnur Afríkuríki vöruð við í samþykkt stúdentanna er skoráð á Nígeríustjórn að vara stjórnir annarra Afríkuríkja við hættunni af því að hleypa bandarískum „friðarsveitum“ inn Ráðstefna Areba nm olínmál ALEXANDRÍU 16/10 — Þriðja ráðstefna Arabaríkjanna um olíumál hefst hér í dag og mun standa út vikuna. Mættir eru full- trúar frá öllum arabísku olíu- ríkjunum og munu þe.r ræða sameiginleg hagsmunamál, fyrst og fremst um aukinn hluta af gróða olíufélaganna svo og auk- in afskipti af stjórn þeirra. í lönd sín. „Friðarliðarnir" eru kallaðir njósnarar og agentar heimsvaldasinna. Það hefur ekki tekizt að hafa upp á ungfrú Michelmore síðan á laugardag, en talsmaður banda- ríska sendiráðsing í Lagos sagði að hún hefði beðizt afsökunar á skrifum sínum og látið í Ijós ósk um að fá að halda áfram starfi í „friðarsveitinni11. New York 16/10 — Fulltrúi Kanada í stjórnmálanefnd aHs- herjarþings Sameinuðu þjóð- anna lagði í dag fram tiliögu, iþar sem ályktað er að allir heimsbúar séu uggandi vegna hinnar auknu geislunnar er stafar af atómsprengingum. Það eru 22 ríki sem standa að til- lögunni. Umferíarslys Framhald af 3. síðu. undan bílnum og varð undir honum. er hann valt á hvolf of- an í skurðinn. Vildi það henni til lífs, að mikil for var í skurð- inum og því mjúkt undir. Fólk bar einnig fljótt að og hjálpaði það t.'l þess að lyfta bílnum það upp, að hægt var að draga stúlkuna undan honum áður en vatn stíflaðist upp í skurðinum. í bifreiðinni voru alls 7 manns, 3 karlar og 4 konur. Bifreiðar- stjórinn og annar maður til meiddust nokkuð á fótum, en stúlkurnar sluppu að mestu ó- meiddar en fengu taugaáfall. Stúlkan, er varð undir b.freið- inni varð þó eftir á slysavarð- stofunni og var talið, að hún hefði brákazt á fæti. Þýzkam berstöðvBm mótmæ Æfingar vesturþýzkra hersveita í Wales " á Bretlandi liafa mælzt illa fyrir þar í landi og hal'a verið haldnir margir fundir til að mótmæla þessari fyrstu innrás þýzkra hermanna í Bretland. Einnig var farin mótmælaganga og er myndin tekin á fundi sem haldinn var áður en hún hófst. Þriðjudagur 17. október 1961 — ÞJÖÐVILJINN —

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.