Þjóðviljinn - 20.01.1962, Blaðsíða 3
29 af 32 í timavinnu
eða ákvœðisvinnu
Fyrirbærið Eyjólfur Konráð
Jónsson bregður ekki vana
1 sínum. í 4ra dálka fyrirsögn
1 í Mogganum í gær varð hann
, að segja ósatt. Þar segir:
..Kommúnistar einir vilja að
gengið sé að öllum kröfum
verkfræðinga". Auðvitað veit
Eyjólfur Konráð að þessi orð
< hans eru staðleya.
Hitt er margframtekin stað-
reynd: fulltrúar Alþýðubanda-
lagsins í bæjarstjórn Reykja-
víkur vildu þegar f upphafi
verkfræðingadeilunnar s.l. vor
að reynt yrði að ná samning-
um við verkfræðingana, — og
myndi það hafa orðið bænum
hagstæðara að ganga eitthvað
til móts við kröfur verlc-
fræðinganna þá heldur en að
þurfa nú að borga eftir tíma-
vinnutaxta þeirra eða borga
einkafyrirtækjum álag á
vinnu verkfræðinganna.
Borgarstjóri lét á sér
skilja að hann teldi að verk-
fræðingum bæri hærri laun
en þeir höfðu, Hversvegna í
ósköpunum reyndi hann þá
ekki að semja við þá?
Nei, í þess stað þverskall-
aðist hann gegn því að samn-
ingar væru reyndir. Afleið-.
ingar urðu þær að af 32 verk-'
fræðingum sem unnu hjá
bænum fyrir verkfallið vinna
nú 29 samkvæmt tímavinnu-’
taxta eða ákvæðistaxta, sem|
er bænum miklu óhagstæðara. |
En hugsjón borgarstjóra hef-j
ur verið framkvæmd: bærinn,
skal borga einkaframtakinu
prósentur af allri vinnu verk-’
fræðinga sem unnin er fyrir |
bæinn.
Sautján nýir félagar gengu í Sósíal-
istafélag Akraness á aðalfundinum
Glæsilegt félagsheimili teídð í notkun á árinu
Munur á hæsta og lægsta
tilboði 5 millj. 300 þús.
Síðastliöinn mánudag var haldinn aðalfundur Sósíal-
istafélags Akraness. Var hann haldinn í hintnn glæsi-
legu nýju húsakynnum félagsins, félagsheimilinu Rein,
og gengu 17 nýir meöHmir í félagið á fundinum. For-
maður félagsins var endurkjörinn Ársæll Valdemarsson,
— Ingi R. Helgason mætti á fundinum og ræddi stjórn-
málaviðhorfið og undirbúning bæjarstjórnarkosninganna.
í upphafi fundEirins voru inn-
tökubeiðnir frá 17 manns bornar
upp og samþykktar í einu hljóði.
Höfðu iþá á árinu gengið í félagið
20 félagar. Formaður bauð þá
velkomna og flutti því næjt
skýrslu fráfarandi stjórnar. Þar
bar hæst bygging félagsheimilis-
ins og starfræksla þess, sumar-
ferðalag og málfundastarfsemi.
Formaður flutti þakkir öllum
iþeim, sem hönd hefðu lagt á
plóginn, en með hinu mikla átaki
hefðu sósíalistar á Akranesi
skapað sér virðingu og álit.
Gjaldkeri, Þórður Valdemarsson
las reikninga félagsins, sem sam-
þykktir voru samhljóða.
Félagsheimilið Rein
Halldór Backman formaður fé-
lagsheimilisstjórnar hafði fram-
sögu um byggingu félagsheimilis-
ins og starfrækslu þess fyrsta ár-
ið og í framtíðinni. Benti hann
á, að um leið og sósíalistar á
Það mœtti vera hér minni
rigning og meira sólskin
Bandarískir unglingar á íslandi:
Fréttamenn voru í fyrradag
kynntir fyrir þrem bandarískum
ungmennum, sem dveljast hér
árlangt á vegum íslenzku þjóð-
kirkjunnar í skiptum fyrir 9 ís-
lenzk ungmenni, er dveljast í
Bandaríkjunum árlangt.
Biskupinn yfir íslandi herra
Sigurbjörn Einarsson og Ólafur
Skúlason, æskulýðsfulltrúi Þjóð-
kirkjunnar, skýrðu frá því að
Þjóðkirkjan væri aðili að al-
þjóðlegum kirkjulegum samtök-
um er stuðluðu að kynnum ungs
fólks af ýmsum þjóðernum.
1 júlímánuði 1961 fóru 9 ís-
lenzkir unglingar, á aldrinum
16—18 ára, til Bandaríkjanna (7
frá Reykjavík, 1 frá Akureyri
og 1 frá Keflavík) og hingað
komu þrír bandarískir unglingar
er dvelja í Reykjavík, Keflavík
og Hafnarfirði. Bandarísku ung-
lingarnir eru nú búnir að dvelja
hér i hálft ár og eru þegar farn-
ir að bjarga sér í íslenzku. Þeir
eru hér í skóla og eiga íslenzka
kjöríoreldra, sem bera ábyrgð á
þeim sem sínum eigin bömum
og láta þau hafa frítt fæði, hús-
hæði og vasapeninga.
Margaret Weidler, er býr í
Keflavíkj sagði að sér fyndist
að tungumál væru betur kennd
hér en í Bandaríkjunum, en
reikningur lakar.
Nicholas Hörmann, sem er frá
H.awaii, hafði aldrei séð snjó og
er hann fór í fyrsta skipti á
skauta, var hann einn á Tjörn-
inni. Hann er í menntaskólan-
um og lærir þar í fyrsta skipti
latínu. Hann sagði að samband
nemanda og kennara væri miklu
nánara í heimalandi sínu, en hér
þekkti hann engan kennara per-
sónu.lega.
JDavid (Seaiy kunni vel við sig
í Flensborgarskóla. Hann fór á
skíði um jólin og fanrist skrítið
að karlmenn og kvenfólk skyldu
sofa saman í einum sal í Skíða-
skálanum.
öll eru þau ánægð með dvöl-
ina hér. Þau vi’du gjarnan hafa
minni rigningu og meiri . sól.
Guðsþjónustur fannst þeim vera
hátíðlegri hér en heima, en fó)k-
ið feimið að ta.la u.m krist’n-
dóm. Einnig er safnaðar’u'f miklu
fjöibreyttara í Bandaríkjunum
en hér.
AE íslenzku unglingunum í
Bandaríkjunum er allt, gott að
frétta, þeir hafa skrifað heim og
Framhald á 11. síðu.
Akranesi hefðu með byggingu fé-
lagsheimilisins' stórbætt aðstöðu
sína til félagslegra og pólitískra
starfa, hefði Rein komið í góðar
þarfir fyrir önnur félög á staðn-
um og orðið eftirlætis skemmti-
staður unga fólksins. Þakkaði
Halldór einnig öllum er hlut áttu
að byggingu og starfrækslu heim-
ilisins,
Ásgerður Gísladóttir gjaldgeri
félagsheimilisstjórnar gat ekki
mætt á fundinum, en Ingi R.
Helgason, sem hafði endurskóðað
reikninga félagsheimilisins las þá
í hennar fjarveru og skýrði.
Reikningamir sýndu, að félags-
heimilið. bygging bess og starf-
ræksla. byggist á fórnfúsu sjálf-
boðaliðsstarfi. Rekstursreikningur
svndi um 20% hagnað af veltu.
Óskaði Ingi fundarmönnum til
hamingiu með þessa millón krónu
eign sba á bezta stað í bænum,
sem félaginu hefði áskotnazt á
einu ári. og sýndi hvað býr í
sósíalistum. ef samtaka er tekið
á. — Reikningarnir voru síðan
samþykktir í einu hljóði.
Stjórnarkosning
Fór því næst fram stjórnar-
kosning og urðu nokkrar brevt-
ingar í forustuliðinu með tilliti
til nýrra starfskrafta, sem félag-
inu höfðu bætzt. (
Stíórn félagsins skipa nú þess-
ir félagar:
Ársæll Valdemarsson, formað-
nr. Halldór Backman, varaform.,
Sigurður Guðmundsson, ritari,
PáU Jóhannsson. gialdkeri, Árni
Tnsimundarson. meðstjórnandi og
Hafsteinn Sigurbiöi’nsson til vara.
Félagsheimilisstjórn skipa þess-
ir rnenn:.....téíiMÚ'kt »
Ha'tdór Backman, formaður,
Þórður Valdemarsson. Ásgerður
O’Uadóttir. Unnur Leifsdóttir.
Ouðmundur Pálmason og Einar
Kristiáhs«r>n til vara..
Fndurskoðendur voru kosnir
HaUdór Þorsteinsson og Knútur
Gunnarsson.
Stjórnmálaástandið
Að lokum var rætt um stjórn-
málaástandið og bæjarstjórnar-
kosningarnar. Urðu um þau mál
miklar og fjörugar umræður, sem
t stóðu til að ganga 2 um nóttina.
. Kom þar f ram áhugi og sóknar-
‘hugur sósíalista á Akranesi.
A síðasta borgarráðsfundi var
samþykkt að taka tilboði Svein-
bjarnar Sigurðssonar bygginga-
meistara í byggingu tveggja fjöl-
býlishúsa við Álftamýri 38—44
og 46—52. Verða þetta fjögurra
hæða blokkir með alls 64 íbúð-
um, 48 þriggja herbergja og 16
tveggja herbergja.
Bygging húsanna var boðin út
á tvennan hátt, sagði Valgarð
Briem forstjóri Innkaupastofn-
unar Reykjavíkur í viðtali við
Þjóðviljann í gær. Annars veg-
ar tilboð miðuð við að skila
íbúðunum fullbúnum 15. desem-
ber 1962. Hins vegar við að skila
íbúðunum fullbúnum 15. marz
1963. 7 tilboð bárust miðuð við
fyrri skilmálana en 10 við þá
síðari.
Tilboð Sveinbjarnar var miðað
við síðari skilmálana og var það
lægst af þeim tilboðum. Hljóð-
aði það upp á 16 millj. og 600
þús. krónur. Næst var tilboð frá
Brú h.f., 17 millj. 552 þús. kr. og
þá tilboð frá Ingimari Haralds-
syni, 17 millj. og 600 þús. kr.
Hæsta tilboð í bessum flokki var
21 millj. og 900 þús. kr. Lægsta
tilb. í fyrra fl. var frá Brú hf., 17
millj. og 552 þús. kr. eða sama
upphæð og tilboð fyrirtækisins
í seinna flokknum. Ingimar Har-
aldsson bauð 17 millj. 705 þús.
kr. í þessum flokki og Böðvar
Bjarnason 17 millj. 952 þús. kr.
(bauð 17 milli. 806 þús. kr í
seinni flokknum). Hæsta tilboð í
þessum flokki var 22 millj. 240
þús. krónur. Sveinbjörn gerði
ekki tilboð í fyrri flokknum. Eitt
Nýtt heimsmet
MOSKVU 19/1 — Sovézki skauta-
hlauparinn Evgeni Grisin, hljóp
500 metrana í gær á 39,8 sek.
í sömu keppni, sem fór fram
í borginni Alma Ata í Sovétlýð-
veldinu Kirghisistan, setti Irina
Yegarova nýtt heimsmet í 500
metra skautahlaupi kvenna, hljóp
vegalengdina á 45,3 sek.
tilboð barst, sem var lægra en
tilboð Sveinbjarnar, en það var
byggt á misreikningi og var tek-
ið aftur.
Verðtilboðin eru miðuð við að
skila öllu sameiginlegu í húsun-
um fullfrágengnu en íbúðunum
sjálfum ómáluðum. Áætlað er að
heildarkostnaðarverð stærri í-
búðanna verði um 390 þúsund
krónur en minni íbúðanna tæp
300 þúsund. Þar af er áætlað að
stærri íbúðirnar muni kosta 320
þúsund eins og verktaki skilar
þeim en fullnaðarfrágangur kosti
um 70 þúsund krónur.
Valgarð sagði að lokum, að eft-
ir væri að ganga formlega frái
samningum við Sveinbjörn en
það yrði gert á næstunni. Myndi
verktaki fljótlega fara að hefja
undirbúning að bvggingu hús-
anna en framkvæmdir úti myndu
þó ekki hefjast fyrr en seint í
marz.
Ætla að byggja
sambýlishús í
tilreuneskyni
Fyrir síðasta borgarráðsfundi
lá umsókn frá íslenzkum að-
alverktökum um lóð við Kapla-
skjólsveg undir 6 sambýlishús.
Þjóðviljinn sneri sér til fram-
kvæmdarstjóra félagsins, Thórs
Ó. Thór, og spurðist fyrir um
það, hvort félagið hyggðist nú
fara að snúa sér að bygginga-
framkvæmdum hér í bænum.
Sagði framkvæmdastjórinn að svo
væri ekki. Félagið ætlaði aðeins
að byggja þessi sambýlishús í til-
raunaskyni til þess að reyna
nýja byggingaraðferðir, er ættu
að geta minnkað byggingakostn-
að til mikilla muna frá því sem
nú er. Kvaðst hann ekki geta
gefið nánari upplýsingar um þess-
ar fyrirhuguðu byggingafram-
kvæmdir að svo komnu máli en
blöðunum myndu látnar í té upp-
lýsingar um þessar nýjungar sem
félagið hefur á prjónunum, þeg-
ar lóðirnar væru fengnar.
Geng-
islækkun
Fátt er jafn hverfult í ver-
öldinni og gengi íslenzku
krónunnar. Hún hefur verið
moluð og sörguð í sundur æ
ofan í æ; lengi vel var það
siður að klípa úr henni mis-
stóra bita á svo sem tíu ára
fresti, en nú eru stjórnar-
völdin farin að gera þetta ár-
lega, og kannski kemur senn
að því að ráðamennirnir
skrái gengið oft á dag eins og
gert var í Þýzkalandi eftir
heimsstyrjöldina fyrri. En
þótt íslenzk króna sé möluð
mélinu smærra, er þó annað
gengi á fslandi sem rýrnar
ennþá hraðar — það er gengi
þeirra manna sem afturhalds-
flökkarnir bjóða fram í Dags-
brún. Við höfum séð það á
úndanförnum árum hvernig
þeir hafa skoppað fram á
sjónarsviðið eins og vel fægð-
ir og kringlóttir gullpeningar,
og gildi þéirra hefur veriff
skráð í hámarki. en yfirleitti
hefur gengið rýrnað um 100%
í einum kosningum, þánnig
að ekki hefur verið unnt að
bjóða upp á þá framar. Það
er aðeins úrvalspeningur á
borð við Jón Hjálmarsson sem
getur þraukað í 2—3 ár, en
nú er gengi hans einnig þrot-
ið að fullu. Og sá er einnig
munurinn á krónunum og
frambjóðendum atvinnurek-
enda í Dagsbrún, að krónun-
um fjölgar þó jafnóðum og
þær smækka. en alltaf verð-
ur erfiðara og erfiðara að
finna nýja frambjóðendur.
Nýjasti frambjóðandi geng-
islækkunarmanna í Dagsbrún
heitir Björn Jónsson. Hann
kennir sig réttilega við Mann-
skaðahól. — Austri.
ib., t
Laugardagur 20. janúar 1962 — ÞJÓÐVILJINN
(í