Þjóðviljinn - 27.01.1962, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 27.01.1962, Qupperneq 3
Ríkisábyrgðinni var skilað aftur Sviðsmynd úr „Lénharði tógeta". Lénharður fógeti fer sigurför um Suðurland Sunnudaginn 21. jan. sýndi TJ.M.F. Biskupstungna sjón- leikinn Lénharð fógeta eftir Einar Kvaran í samkomuhús- inu í Hveragerði fyrir troð- fuilu húsi. Það var 7. sýning- in í Árnessýslu, og auk þess hefur hann einu sinni verið sýndur austan Þjórsár. Að þess- um 8 sýningum hafa verið seldir 2044 aðgöngumiðar eða yfir hálft þriðja hundrað að meðaltali að hverri sýningu, og sýnir það, hve almenningur hefur mikinn áhuga fyrir að sjá þennan leik, sem gerður er út af einum glæsilegasta þætti í sjálfstæðisbaráttu íslenzkrar þjóðar undanfarnar aldir. Hér verður leikur þessi ekki gagnrýndur í einstökum atrið- um og allra sízt farið að benda á einstaka galla í gerð verks- ins, veik tök einstakra leik- ara eða veilur sem maður þyk- ist sjá í leikstjórn. Þess eins ber að geta, þegar líða tekur sjálfsagt að lokum þessara sýn- inga, að með þeim hafa ung- mennafélagar í Biskupstungum unnið mikið afrek undir for- ustu eins félagans, sem aflað hefur sér nokkurs lærdóms í viðkomandi fræðum. Það hef- ur hvergi verið til sptarað að leggja mikla vinnu og einbeitt- an vilja að gera hvern hlut sem bezt úr garði. Sumir hlutir voru þar svo vel og eðlilega gerðir sem bezt verður á kos- ið. Undirritaður hefur oft áð- ur séð Lénharð fógeta en hef- ur aldrei fellt sig betur við Eystein í Mörk en að þessu sinni, en hann var leikinn af Sigurði Erlendssyni á Vatns- leysu Það var sannur íslenzk- ur bóndasonur, þrunginn af ó- stýrilátum krafti til líkama og sálar. Það er gott til þess að vita, hve héraðsbúar hafa kunnað aö meta þet.ta verk og mætti vera örvun fyrir ungu mennina í Tungum að taka annað verkefni þegar einu er lokið. Hveragerði 25 jan. 1962. G. Ben. Svarið lubbum B-listcns! I svokölluðu „Verkamanna- blaði“ 2. tbl., sem atvinnurek- endur gefa út í nafni B-listans í Dagsbrún birtust ein óþvera- legustu skrif sem sést hafa hér á prenti. Þar er tekinn fyrir einn verkamaður við höfnina og reynt að rægja hann við fé- laga sína og rægja hann við atvinnurekendur. Vesalingur sá er greinina skrifar felur sig á bak við dulnefni. Verkamaðurinn hefur beðið Þjóðviljann fyrir eftirfarandi: ,,f tilefni af grein í Verka- mannablaðinu þar sem undirrit- aður er áfelldur fyrir að hafa unnið hjá Sambandi íslenzkra samvinnufélaga eftir hádegi á laugardögum, eftir að laugar- dagsdeilan hófst við höfnina 1. okt. sl., vil ég biðja blaðið fyr- ir eftirfarandi yfirlýsingu verk- stjóra Skipadeildar SÍS: „Að gefnu tilefni skal það vottað að hr. Guðmundur Ás- geirsson, Heiðargerði 29 vann síðast hjá Sambandi ísl. sam- vinnufélaga 7. ágúst 1961. Reykjavík 26/1 1962 Sigurgrímur Grímsson verkstjóri.“ Eins og yfirlýsing þessi ber með sér er tilefni greinarinnar í Verkamannablaðinu rakin ó- sannindi. Fyrst er búin til lýgi, svo er hnoðað grein utan um lygina, enda árangurinn eftir IþVí. Það er .mikið og óverð- skuldað lof að mér skuli í grein þessari vera líkt við Lumumba, þjóðhetju kongósku þjóðarinn- ar, manninn sem lét líf sitt fyrir skoðanir sínar og vonir. Það mun aldrei henda þá sem standa að B-listanum í Dags- brún og „Verkamannablaðinu“ . að hætta lífi sínu fyrir skoðan- | ir, því þær eru þeim eins og vara á sölutorgi, enda hafa þeir aldrei komið fram öðj-u vísi en sem ómerkilegir sann-! færingarsjálfsalar. | Við greinarhöfund vildi ég segja þetta: skamma stund verð- ur hönd höggi fegin. í grein- inni kemur fram kviknakinn atvinnurógur, þar sem einn maður er tekinn út úr hópi fé- laga sinna og rakkaður misk- unnarlaust niður af upplognu tilefni. Slíkt athæfi ber ekki góðum málstað vitni og varðar við lög. Að endingu skora ég á Dags- brúnarmenn að Ijá ekki þeim mönnum atkvæði sitt í kosn- ingunum í dag og á morgun, sem berir verða að slíku at- hæfi. Guðmundur Ásgeirsson Heiðargerði 29.“ Fjármálaráðuneytið hefur skýrt svo frá að ríkissjóður bíði ekki hnekki af ævintýri S.II. í Hol- landi., vegna þess að Sölumiðstöð Uraðfrystihúsanna hafi skilað aft- ur ríkisábyrgð þeirri sem sam- þykkt var á sínum tíma vegna fyrirhugaðra framkvænrda í Hol- Iandi. Tapið af þessum fram- kvæmdum, sem nú er hætt við, mun nema milljónum króna, og þótt það Iendi ekki beint á rík- issjóði mun almenningur í land- inu auðvitað verða að borga það eftir öðrum leiðum. Yfirlýsing fjármálaráðuneytis- ins um málið er á þessa leið: „I grein í dagblaðinu Þjóðvilj- anum í gær er gefið í skyn, að ! ríkissjóður „tapi milljónum“ • á : ríkisábyrgð, sem veitt hafi verið : Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna samkvæmt .heimild í 22. gr. fjár- laga 1960 til að reisa hraðfrysti- stöð f Hollandi. Ot af þessu tek- ur ráðuneytið fram, að þetta hefur eigi við nein rök að styðj- ast! Hinn 28. febrúar 1961 var Sölumiðstöðinni veitt ríkisábyrgð á láni að fjárhæð 250 þús. doll- ara, sem fyrirhugað var að taka hjá Export-Import bankanum í Washington. Nam það í ísl. kr. kr. 9'f, millj. með þáverandi gengi. Fyrir þessari ábyrgð setti Sölumiðstöðin að kröfu fjármála- • Tóíiverk eítir Karl 0. Suaólfsson í brezka sjónvð?pinu Fyrir skömmu var sýnd í brezka sjónvarpinu íslenzk þjóðsaga „Áslaug í hörpunni“ með samnefndu kórverki eft- ir Karl O. Runólfsson sem uppistöðu i leiknum, en lesið var kvæði um sama efni eftir Jóhannes úr Kötlum. — (Frá Tónlistarfélagi íslands). B-listapiltar á hálum is Þar sem kosningar í Dags- brún eru að hefjast langar mig til að biðja Þjóðviljann fyrir þessar línur. Ég hef jafnan fylgzt með framboðum B-listapiltanna í fé- laginu og þeim árlegu „kosn- ingaloforðum“ sem þeir eru látnir flytja frá húsbændum sínum og oft undrazt hvað þeir dirfast að bióða okkur Dags- brúnarmönnum af því tagi, þegar um 'það er að ræða að níða niður forustu félagsins. Ekki sízt rak mig í rogastanz þegar farið var að gera að umtalsefni ,.framkvæmdir“ í- haldsins við byggingu verka- mannahúss við höfnina, en þar fóru beir út á hálan ís, því ég hef fylgzt vel með beim íhalds- framkvæmdum í mörg ár. Er það í fáum orðum sagt, að ef þeir herrar sem bænum stjórna hefðu ekki verið reknir áfram af Dagsbrúnarstjórninni og fulltrúum okkar í bæjar- stjórn fil þess að hefja bygg- ingu á nýju húsi — auk þess sem peningar eru sóttir til verkamanna til að fuúgera það —. 'þá væri gamla skýlið með öllum þeim ,.þægindum“ er það hefur að bjóða enn tal- ið fullboðlegt fyrir reykvíska hafnarverkamenn, þó húsið sé hátt á fimmtugsaldri. Þetta er aðeins brot af þeirri málefnafátækt sem þjáir ves- lings B-listapiltana, að þeir skyldu fara að gera þetta að kosningamáli, en hæ.fir mjög vel þeirri fylkingu sem saman- stendur af pólitískum glæfra- mönnum eða rykföllnum utan- gáttamönnum sem enga hug- mynd hafa um neitt málefni verkamanna á hverjum tíma. Þetta bið ég félaga mína í Ðagsbrún að hafa hugfast og þjappa sér fast saman um A- listann í þessum kosningum. Da gsbrúnarmaður. Það vilja þeir „Dagsbrún á að halda sig utan við pólitísk átök“ segir ein stærsta fyrirsögnin í Morgunblaðinu í gær. Þann- ig er aðalmálgagn Sjálfstæðis- flokksins nú orðið ópólitískt, og frambjóðendur þess hafa eúgan áhuga á stjórnmálum. Ekki virðist matið á gengi Sjálfstæðisflokksins vera efni- legt fyrst pólitískt hlutleysi á nú að vera helzta haldreipið. En raunar felst miklu meira í þessari kenningu. Það voru pólitisk átök þegar gengið var lækkað tvívegis á einu ári, og því mega Dagsbrúnarmenn ekki skipta sér af afleiðingum þess. Það voru pólitisk átök þegar kaupið var lækkað með valdboði af núverandi stjórn- arflokkum snemma árs 1959, og því mega verklýðsfélögin ekki beita sér fyrir hækkuðu kaupi. Það var pólitísk ráð- stöfun þegar Alþingi bannaði það að verðlagsuppbót væri ráðuneytisins sem tryggingu 1,- veðrétt í fasteignum, sem metnar voru á rúmlega 20 rnillj. króna. Úr framangreindri lántöku varð I ekkert og hefur ábyrgðaryfirlýs- | ingu ríkissjóðs nú verið skilað aftur til ráðuneytisins, ásamt yf- ^ irlý’singu frá bankanum um að ^ engar skuldbindingar hafi stofn- azt samkvæmt lánssamningnum. 26. janúar 1962“ Bæjarstjórnar- I meirihlutinn í Eyjum flosnar upp Vestmannaeyjum, 24/1 — Á bæj- arstjórnarfundi 19. þ.m. var sam- þykkt með atkvæðum íhaldsins og krata að veita bæjarstjóra heimild til að selja Daníel Guð- mundssyni bílstjóra og Magnúsr Magnússyni Helgafellsbraut 15 kúabú bæjarins að Dölum með öllu sem búinu fylgir þar með afnot af Dalajörðinni og þeim löndum, sem kaupstaðurinn hef- ur keypt búinu til handa. Sölu- verð er tvær milljónir króna er greiðast með skuldabréfi til 25 ára. Vextir eru 6%. Afhending búsins fer fram 1. maí n.k. Þar. með hefur bæjarstjórnarmeiri- hlutinn flosnað upp frá búskap vegna viðreisnaraðgerðanna fyrst- ur allra bænda hér í Eyjum. 16 bílstjércr hlutu viðurkenningu Scmvinnutr. fSAFJÖRÐUR 23/1 — Sl. sunnu-' dag efndu Samvinnutryggingar til kvikmyndasýningar hér á ísafirði. Sýnd var sænsk mynd með íslenzku tali um akstur á hálku og teiknimynd um Sam- vinnutryggingar. Baldvin Þ. Kristjánsson flutti erindi um- fyrirtækið, en síðan voru verð- laun afhent þeim ísfirzkum bif- reiðastjórum sem ekki hefur hlekkzt á sl. 5—10 ár. 11 bíi- stjórar hlutu viðurkenningu fyr- ir 5 ára slysalausan akstur og 5< þar af tveir bræður, hlutu 10 ára viðurkenningu. Fjölmenni var við athöfn þessa, sem Jó- hann P. Bjarnason kaupfélags- stjóri setti, en verðlaun afhenti Hörður Jakobsson gjaldkeri. greidd á kaup hversu mjög ■sem dýrtíðin magnaðist, og því eiga verkamenn nú mögl- unarlaust að sætta sig við j það að vörur og þjónustá j hafa hækkað um nær þriðj- ung á tveimur árum. Það er einnig pólitísk aðgerð þegar verklýðsfélögin hafa nú snú- ið sér til ríkisstjórnarinnar og farið fram á verðlækkan- ir og aðrar kjarabætur með opinberum aðgerðum, og þvt eiga alþýðusamtökin þegar í stað að hætta þvílikri ósvinnu. Samtök atviniiurekenda hafa nú um langt skeið látið flokka sína annast fyrir sig allar aðgerðir í kjaramálum, og síðan segir aðalmálgagn þeirra að verkamenn megi ekki skipta sér af pólitík. Slíkt er auðsjáanlega krafa um að Dagsbrún segi sig úr þjóðfélaginu. — Austri. Laugardagur 27. janúar 1962 — ÞJÖÐVILJINN — X

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.