Þjóðviljinn - 27.01.1962, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 27.01.1962, Blaðsíða 5
XvX-X'- ' : v • '• flilll Fyrir 2003 árum var innreið Kleópötru í Róm íaffnaS með há- tíðahöldum og gleðisýn- ingum; En þessi mynd er bara úr eftirlíking- unni: 400 millj. króna- kvilcmyndinni „Cleó- patra“. \'ÍA «í . v:ý; P|v,:: KsgWSSSSK? jgggssggg Aflaverðmœtí Breta á Islandsmiðum vex í skýrslu, sem samband brezkra togaracigenda hefur gcfid út, segir að verðmæti afla af íslandsmiðum, hafi aukizt urn 500.000 sterlingspund, (um 60 Ný lesverk- efni barna Jónas Guðjónsson: — ÉG LES OG LITA. Rík- isútgáfa námsbóka. Ríki.sútgáfa námsbóka hefur nýlega sent frá sér 32 æfinga- blöð í lestri fyrir byrjendur eftir Jónas Guðjónsson. Á hverju biaði er 6-10 lína texti ásamt mynd, sem börnin eiga að lita. Textinn er byggður á sömu stafaröð og „Gagn og gaman“, enda munu æfingablöðin eink- u.m ætluð sem aukaverkefni ' með þeirri bók. Jónas hefur hér sneitt hjá samhljóðasambönd- um, og er það mikill kostur. Nokkur orð með tvöföldu sam- hljóði koma fyrir í textanum og er það sennilega óh.iá- kvæmilegt. Þessi orð eru yfir- leitt vel valin, en mannanöfnin óþarflega mörg og ónefnið Lulla blátt áfram óbolandi (þar var völ á nafninu Lísa). Það er ærið vandaverk að semja eðli- legan texta handa byrjendum í lestri, þar sem velja verður eingöngu 1-6 stafa orð með tilteknum hljóðasamböndum. — Þetta hefur Jónasi tekizt mjög vel, textinn er eins þjáll og kostur er innan þessara tak- marka. Hinar ágætu myndir Haildórs Péturssonar auka gildi æfingablaðanna, þó hefði ég kosið að blöðin væru. í nokkru stærra broti, svo hægt hefði verið að gera ramma í kring. Þá hefði líka verið gott að hafa með tvö kartonspjöld í þeim tilgangi að hefta blöðin saman í bók að lestri loknum. Það er bakkarvert framtak af ríkisútgáfunni að au.ka bað fátæklega safn kennslugagna byrjunariestrarkennslu, sem við eigum við að búa, og er ekki að efa, að svona vel unnu verki verður tekið tveim hönd- um af iestrarkennurum. Mér bvður í grun, að Jónas eigi ýmislegt fleira efni í fórum sínum, sem kæmi öðrum iestr- arkennurum að góðum notum. Ég vil því skora á ríkisútgáf- una og Jónas að láta ekki hér staðar numið. Þorsteinn Sigurðsson. millj. ísl króna) þrátt fyiir; 12 milna landhelgina árið 1961. Veiðiferðum hinna 224 úthafs- togara þeirra á íslandsmið, fjölg- aði um 72 og heildarverðmæti ís- laitdsaflans jókst í 10 milljón sterlingspund. Heildarútkoman á hrezkum fiskiðnaði, var samt ekki eins góð árið 1961 og árið áður, en aflaverðmæti síðastliðins árs fór niður í 20.8 milljón stpd Þetta er kennt óhagstæðu veð- urfari og togaraverkfallinu í Grimsby. Aulotar ft 9 MONTREAL 25/1 — Evrópska flugsambandið, flutti á þriðja árs- fjórðungi í fyrra, 31% meiri varning og 9,1%( fleiri farþega. en á sama tíma árið áður. Þetta er samkvæmt upplýsingum Al- þjóða flugmálastofnunarinnar. Alls voru 3.786,600 : fluttir á evrópskum flugleiðum mánuðina júlí, ágúst og sept. 13 aðildarríki IATA voru þar að verki, þeirra á meðal SAS. Magn fluttrar vöru á þessum flugleið- um jókst upp í 43,510 tonn, póst- flutningar jukust upp í 6,619 tonn, eða um 8,2%,. Þessar tölur ná ekki yfir inn- anlandsflug í viðkomandi lönd- um, en samkvæmt IATA, sýna þær þróun flugsamgangna á þessu svæði. Forsœtisráð- herraskipti DAR-ES-SALAM 22/1 — Julius Nyereri forsætisráðherra Tang- anjika, yngsta sjálfstæða ríkisins í Afríku, hefur látið af embætti. Við embætti forsætisráðherra tekur Rashidi Kawawa, sem sagður er vinstri sinnaður og mun ákveðnari í því að tryggja óskorað fullveldi landsins. Ó- óánægja með stefnu Nyereri hef- ur farið vaxandi undanfarið, og hefur hann þótt lítt framsækinn. Ndolo 21/1 — Líkur eru fyrir því að Hammarskjöld, framkvæmda- stjóri Sameinuðu þjóðanna, hafi verið á lífi nokkra stund eftir að flugvél hans hrapaði til jarðar í grennd við Ndola í Norður- Rhodesíu í september sl. Sjjáifsmorð í ' V.-Berlín BERLÍN — Sjálfsmorð eru hvergi tíðari í heiminum en* í Vestur-Berlín. Árið 1959 voru þar framin 35,5 sjálfsmorð mið- að við hverja 100.000 íbúa. sam- kvæmt opinberum skýrslum. Ár- ið 1960 hækkaði þessi tala upp í 38,5. Samkvæmt skýrslu Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) er Austur-Þýzkaland með næsthæstu sjálfsmorðstöl- una, eða 28,4. Þar næst koma Japan og Ungverjaland með 25,7 og Austurríki með 24,8. ■K H J LAGOS 25/1 •— Fundur æðstu manna Afríkuríkja, en hann sitja ríkisleiðtogar frá 21 Afríkuríki, hófst í Lagos, höfuðborg Nígeríu, í dag. I setningarræðu sinni sagði dr. Nhamid Azikiwe, einn at- kvæð'amesti stjórnmálamaður Nigeríu, að íbúar Afríku geti, með því að sýna umburðarlyndi og samstöðu, orðið leiðarljós fyr- ir nýfrjálsar þjóðir annarra heimsálfa. ALGEIRSBORG 26/1 — Síðustu dagana hafa hermenn og lög- regluþjónar kannað persónuskil- riki 21.000 manna, og síðustu tvo dagana hafa 30.000 mantns verið yfirheyrðir í Alsír. í dag voru 11 menn teknir höndum, en 14 í gær. Þá voru framkvæmdar 31 húsrannsókn og 4584 bílar rann- sakaðir. í dag lauk verkfalli strætis- vagnastjóra með sigri þeirra. Yf- irvöldin urðu við kröfu um að veita þeim vopnaða vernd. Eru nú 160 hermenn á verði í stræt- isvögnunum á 13 leiðum í Al- geirsborg. En samtímis hófust önnur verkföll í Algeirsbo.rg og annars- staðar í Alsír. M.a. hófu fanga- verðir verkfall til þess að leggja áherzlu á bá kröfu sina að fá að bera vopn bæði í vinnutíma og utan hans. Einnig' krefjast þeir þess, að pólitískir fangar verði settir í sérstakar fangabúð- ir. S. 1. nótt snrungu siö plast- sprengjur í Algeirsborg. Tveir Evrópumenn stálu fjórum byss- um í vopnageymslu í Algeirs- borg. Skólastjóri við múhameðs- trúarskóla í Algeirsborg var myrtur í morgun. í dag skutu Evrópumenn, sem sátu í tveim bílum, úr vélbyss- um á hóp Serkja. Fjórir Serkir biðu bana og átta særðust. Evr- ópsk kona var myrt í Oran og önnur slasaðist. maður var skotinn til bana í Constantin og Serki myrtur og rændur í grennd við Algeirsborg. í Paris er tilkynnt, að komið verði upp herdómstólum. þannig að hægt sé að dæma i máli hand- tekinna fasista úr OAS-samtök- unum innan 30 daga frá hand- töku. Ferð til HolmenkolEen og til skíðaiðkana í Noregi Hið fræga Holmenkollenmót verður haldið dagana 3.—4. marz og í tilefni af því efnir Ferða- skrifstofan Lönd og leiðir h.f. til skíðaferðar til Noregs í næsta mánuði. Haldið verður héðan 24. febrúar með flugvél FÍ og dval- ið á skíðahóteli í nágrenni Osló- borgar þá vikuna og er þátttak- endum gefinn frjáls tími til æf- | inga við góð skilyrðí, en um helgina verður dvalið' við Holm- enkollen. Á mánudag verðúr far- ið til Oslóar og dvalið Þar til miðvikudagsins 7. marz, en þá verður flogið aftur heim. rv Skrifstofumaður Loftleiðir óska a‘ö ráða til sín ungan skrifstofu- mann frá næstu mánaðamótum til starfa í end- urskoðunardeild félagsins í Reykjavík. Bókhalds- og málakunnátta áskilin. Umsóknareyðublöð fást í afgreiðslu félagsins, Lækjargötu 2 og aðalskrifstofunni, Reykjanes- braut 6, Tom Mboya, formaður hinnar afrísku þjóðfylkingar í Kenya, kvæntist 20. þ.m. ungfrú Pamelu Odete, þarlcnzkn þingmannsdóttur. Athöfnin fór fram í rómversk-kaþólskri kirkju í Nairobi. Myndin er af brúðhjónunum skömmu eftír vígsluna. OFTIEIDIR Laugardagur 27. janúar 1962 — ÞJÖÐVILJINN —

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.