Þjóðviljinn - 24.02.1962, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 24.02.1962, Blaðsíða 4
TJtvarpsannállinn er nú viku á eítir áætlun, og valda því tru'Oanir á samgöngum milli Þjóðviljans og Skúla á Ljót- unrjarstöðum. Vonandi verður veðráttan á góu samskiptum blaðsins og útvarpsgagnrýn- andans hagstæðari en á síð- ustu og verstu dögum þorra. Sunnudagsmessan var fiutt af hinum aldna klerki Elli- heimilisins, séra Sigurbirni Á. Gíslasyni. í prédikun sinni dvaldi hann einkum við að rekja endurminningar sínar og segja frá viðskiptum sínum við guð og menn á langri ævi. Það sem vakti athygli mína og raunar furðu, var það að svo háaldraður maður og auk þess mjög handgenginn guði, skuli ekki enn hafa getað losað sig við kala og gremju í garð mótgangsmanna sinna frá löngu liðnum árum, sem sennilega erJ nú flestir komn- ir undir græna torfu. GóSur er hver genginn Eftir hádegið flutti Hannes Jónsson erindi um Thomas Moore, enskan mannvin og draumóramann fró fimmfándu öld, sem að lokum missti höf- uð sitt fyrir kóngs sfns mekt. En minnisstæðastur hefur máður þessi orðið fyrir hug-- mýndir sínar um fyrirmyndar- ríkið, eða velferðarþjóðfélag- ið, og er það í raun og veru hréinn kommúnismi. En svo ástsæll hefur þeSsi maður orðið, að allir hafa viljað heiðra minningu hans og tjá honum hollustu. Kat- ólskir hafa tekið hann í dýrð- lingatölu. lútherskir hafa 'sýnt h'onum lotningu, komm- únistar trúa á hann og íhaids- menn dá hann, og er hið síð- astnefnda þó næstum eins og þjóðsaga. En þó, svóna heíur það víst ævinlega gengið. Dauðir menn. og sérstaklega löngu dauðir, eru ekki hættu- legig og það ér jafnan talið hættulaust að lofa þeim að njóta sannmælis. í rauninni er Hannes Jóns- son ágætur fyrirlesari. Frá- sögn hans streymir fram, með jöfnum hraða eins og vatn úr krana, sem skrúfað heíur ver- ið frá. Svo hættir hann, þegar efnið er tæmt, alveg eins og vatnið hættir að renna þegar skrúfað er fyrir kranann. úfvarpsannáll Lands-próf Um kvöldið las Jónas Árna- son upp nokkra skemmtilega kafla úr bók sinni, Tebiö í blökkina. Rauhar fjölluðu þeir um fyllirí að mestu leyti, og h'tur út fyrir að söguhetjunni hafi þótt allgott í stauDÍnu, en það var allt Spánai-vínun- u.m að kenna. Þátturinn SDurt og spjallað var með leiðinlegra móti, enda fiallaði hann um hið ó- skemmtilega viðfangsefni, landspróf. Mættust þar ann- ars vegar Biarni Vilhjálms- son. formaður landsprófs- nefndar, þéttur fyrír og þybb- inn og tiltölulega ánægður með þetta fyrirbæri og vii'tist víia nokkui’nveginn hvað hann vödi, en hi.ns vegar þrír fyrr- verandi og tilvonandi lands- prcfsþrevtendur, óánægðir með fvrirtækið. en á hinn bóginn nokkuð óráðnir i því hvað þeir vildu að við tæki. En þrátt fyrir það, verður ekki annað sagt en að hinir ungu menn hafi staðið vel . fyrir sínu máli og af fy.llstu prúðmennsku, og vitaniega má segjaríiið sama um íyrir- svarsm.ann. landsprófsins. , Ekki skal ég ræða þetta mál frekar að si.nni, en vil aðeins undirstrika það sem raunar kom. fram.- í. þessum orðræð- um, að hvað sem annars má um landsprófið segja; hefur það auðveldað u.nglingum dréifbýlisins inngöngu í æðri menntasCrffnanir stórmikið frá því sem áður var. ' TEB! Einn réttláfur Á mánudagskvöldið talaði Magni Guðmundsson hágfræð- ingur um dagihn og véginn, eklci áheyróega en þó slysa- lau.st. Tilkynnti hann þegar í • öndverðu að aðeins tvö mál væru á dagskrá, húsnæðismól Reykjavíkur og efnahagsmál. Eflaust héfur sá hluti ræðu hans er fjallaði um hið fyrr- nefnda dagskrárefni haft ýms- ar góðar og þarflegar bending- ar inni að halda, bæði frá VIKAN 4. TIL II. FEBRÚAR tæknilegu og hagfræðilegu sjónai'miði, þótt það sé mér of fjarlægt til að fá þar nokk- uð til 'mála lagt. Síðari hluti ræðunnar fjall- aði svo um Efnahagsbandalag- ið margnefnda, og kom þá upp úr kafinu. að ræðumaður, sem annars virtist vera í hópi stjórnarliðsins, lýsti sig alger- lega andvígan inngöngu ís- lands í betta bandalag. Gefur þessi yfirlýsing vonir um að í Sódóma stjórnarherbúðanna, kunní enn að leynast nokkrar réttlátar sálir. Færði ræðu- maður mcrg rök skoðu.n sinni til stuðnings og vakti meðal annars athygli á að fyrirvarar vegna sérstöðu íslands mvndu vgrða lítiJs virði í fram- kvæmd. því bá yrði auðvelt að sniðganga. Að endingu varaði hann svo eindregið við því að rasa um ráð fram í þessu máli. því það myndi geta orð- ið til. þess að öfgaöfl í land- inu færðust í apkana. og mun hann sennilega með slíkum ummælum hafa viliað kaupa sér friðþægingu hjá harðsvír- uðustu. formæiendum aðildar að bahdalaginu. er annars kynnu að hafa litið svo á, að hann væri að ganga í þjónustu austræns málstaðar. Erindi Selmu Jónsdóttur heyrði ég ekki að þessu sinni, en vafalaust hefur það veriþ fróðlegt. Góð visa er ekki auSorf Á þriðjudagskvöldið flutti Eiríkur Sigurbergsson enn eitt af Afríkuerindum sínum, og fjallaði þetta um Senegal. Ei- ríkur er heldur í framför, eða manni finnst það að minnsta kosti, ef til vill er það af því að hann er farinn að verða manni kunnugri og hann venst vel, enda þótt lestur hans virðist vera leiðinlegur í fyrstu, ög frásögn hans er einnig því betri sem lcngra líður á efnið fram. Á kvöldvökunni kom enn einn þáttur úr Vestfjarðaför þeirra Stefáns og Jóns Sigur- bjömssonar. Og nú var rætt við Hákon í Haga. Gamli mað- urinn var í sólskinsskap!i hló mikið og sagði sögur af draug- um, uppvakningum en einkum þó af galdramönnum. Sjólfur sagöist hann vera af galdra- mönnum kominn 'og kann nokkuð fyrir sér. Þá flutti Rósberg Snædal af- bragðs gott erindi um vísna- gerð og las upp nokkrar vísur, af betra taginu. eða nánar til tekið vísur, sem hann taldi vera nokkurn veginn full- komnar. ■ Benti hann meðal annai-s á, sem allir raunar vita er eitt- • hvað hafa fengizt við að hnoða saman vísu, að það er engan veginn eins auðvelt né íljótunnið og ætla mætti að koma saman . nokkurn .veginn lýtalausri vísu. þannig að hún segi allt sem segja á og ekk- ert þar fram yfir, eða með öðru.m orðum hitti fullkomlega í mark. Og það er meira að segja tiltölulega sjaldgæft að heyra vísur sem teljast mega lýtalausar og fulikomin smíði. Kvennamál í þættinum íslenzkt mál kom Ásgeir Blöndal Magnús- son inn á mjög nýstárlegt við- fangsefni. Hann ræddi sem sé um þahn mun er hann taldi’ vera . ' ó , málfari karla ,yog kvenna. En aílt ér þetta ó- rannsakað mál, sagði Ásgeir, en mvndi eflaust verða girni- legt til fróðleiks, ef fannsak- að yrði, því maður finnur það svona með sjálfum sér, eftir að manni hefdr verið bent- á, að hér mun vera úm talsverð- an mun að ræöa. enda benti Ásgeir á ýmislegt þessu til sönnunar. Málfar ungs fólks þekki ég að vísu. mjög lítið, en ég held að meðal roskins fólks, þar sem ég þekki til, standi kon- u.r yfirleitt körlum framar um gott tungutak. A fjmmtudagskvöld ríoru flutt erindi um erfðafræði og Svartadauða. <■ Þetta var lokaerindi .Sturlu Friðrikssonar um erfðafræðina ogi fjallaði um stökkbreyting- ar, og sjáum við nú hylla und- ir þann möguleika að maður- inn geti með hjálp vísindanna íarið að ráska með erfðalög- málið og framleiða nýjar gerðir lífvera. þetta getu.r orð- ið gott og blessaói hvað varð- ar dýr og jurtir, en gæti ef til vill brugöizt til beggja vona, þegar þar að kemur að farið verði að framleiða nýj- ar manngerðir. Stu.rla hefur verið írekar leiöinlegur lesari, en samt vel nothæfur á svona vísindalegt efni., en tæplega skapaður fyr- ir flutning á listrænu efni. Ólafur Bjarnason læknir lauk við að ræða um Svarta- dauða og fjallaði nú u’m plág- urnar, þær er gengu yfir Is- land á fimmtándu öld. Var eri.ndi hans dálítið fróðlegt og öllu betur flutt en hið fyrra. Fréft skal vera frétt Á föstudagskvöld komu þeir Björgvin og Tómas með þátt- inn Efst á baugi, samkvæmt áætlun. Ég heyrði hann að vísu. ekki allan, en það sem ég heyi'ði var með skaplegra móti, og hafði venju fremur á sér fréttasnið en lítil sem engin tilraun höfð uppi í þá átt að pota ákveðnum skoðun- u.m upp á hlustendur. Von- andi -fer þeim nú senn að skil.jast það, að það er ekki í verka'hring fréttamanna að halda að hlustendu.m persónu- legum skoðunum þess er frétt- ina segir,- og má þar einu gilda hvort fréttin er frum- samin eða þýdd. Frétt ó skjl- yrðisl'aust- að vera hlutlaus frásögn um þann' atburð serh J húp fjallar um, og fréttamað- urinn á að láta þeim sem fréttinni þlýða. eða hana lesa, eftir að draga af hénni álykt- anir. Ljóðaþátturinn var að þessu sinni helgaður Bólu-Hjálmari, og las Snorri, Sigfússon u.pp ljóðin. Þeir sefn góðum og gömlum Ijóðum unna munu taka þakksamlega þessum Ijóðaþáttum útvarpsins, og sá sem þetta ritar er, eða vill tel.ia sig. þeirra á meðal. Útvarpssagan, Seiður Sat- úrnusar, var og lesin þetta kvöld. Hún er hörkuspennandi og lesarinn er að verða sög- unni svo samgróinn, að flutn- ingur hans má nú orðið telj- ast góður, enda um mikla framför að ræða frá því er hann ■ hóf lestyr nn. Laugardagsleikritið, . Allah heitir' hundrað nöfnum, hlýddi ég ekki, en líklega hefur það verið nokkuð gott, og kanri'ég því ekki fleiri tíðindi að herma frá -útvarpi þessarar viku. effir SKÚLA GUÐJONSSON frá Ljófunnarstöðum Hjá okkur öllum þróast í munninum bakteríutegund, sem breytir’ sykri eða sykruðum fæðutegundum í sýru. Þessar bakteríur þrífast bezt í óhrein- fndum. á tönnunum . eða .milli þeirra. Sýran, sem þær mynda, vinnur auðveldlega á glerungn- um, og að sjálisögðu þeim mun hraðar, því meirí sem sykur- efnin eru, og því lengur sem akferíurnar sem tennumar þau eru í munninum. Hættast er öllum skorum. bg ójöfnum á tönnunum óg s snertiflötum þeirra, þar sem: fæðuleifarnar ná helzt að festast. Skemindin hefst með því, að yfirborð glerungsins leysist upp og verður gljúpt, líkt og krít, Um leið verður það hrjúft, svo áð óhreinindin festast enn meir en fyrr, og flýtir það fyrir á- framhaldi skemmdarinnar. Sýr- an étur sig svo dýpra og dýpra inn í glerunginn, unz hún nær inn í tannbeinið. Þegar glerung- urinn hefur þannig rofnað, eiga aðrar bakteríur greiðan aðgang að tannbeininu fyrir innan. Tannbeinið hefur enga vörn gegn bakteríum, og verður oft- ast hröð eyðilegging á því. Ef ekki er gert við skemmdina í tæka tíð, brjóta bakteríurnar sér leið inn í taug tannarinnar og valda þar verk og bólgu. Eftir taugi.nni komast þær svo ’ eítir rótinn.i og inn í kjálka- beinið sjálft, Þá er oft ókleift að bjarga tönninni, og verður að fjarlægja hana. í heilbrigðum munni eru allar tennur til staðar, og mynda þær óslitinn og reglu- legan boga. Þær liggja þá þétt saman og veifa ■ hver annarri stuðninig, svo að síður er hætta á að matarleifar festist milli þeirra og valdi þar skemmd- Framhald á 10. síðu. [4) — ÞJÓÐVILJINN -- Laugai'dagur 24. febrúar 1962 .

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.