Þjóðviljinn - 10.05.1962, Blaðsíða 6
i
pJÖÐVItllNN
Ctntuidli BkMtislnisrflokkmr slkfffa — ■ðgfallitatiokkBrtim. — KitatJórui
Hwnði KJ»rt*n»ion (áb.). Mamði Torfl Ólsfsson. SlsurBur OuBmunðsson. —
Mttsrttstjórsr: ívsr H. Jónsson, Jðn Bjarnason. — AuRlýslngastJórl: OuBscU
Kasmlsson. — Rltstjóm, afsrslBsla, auElýslnsar. DrsntsmlBJa: SkólarBrBust. 1*.
: 17-800 (8 linur). AakrlltanrerB kr. 85.00 & m&n. — LausasfiluvsrB kr. 3.00.
PrsntaasJBJa ÞjóBrlUans bX
Mál er að linni
f^að er óhugnanleg mynd af stjórnarfarinu, sem nú blasir
við hverjum íslendingi er sjá vill og hugsa: Annairsvegar
óstjórn, scm er að Ieiða til stöðvnnar atvinnulífsins, — hins-
vegar kaupkúgun, sern er að leiða fátækt og eignamissi eða
skcfjalausan vinnuþrældóm yfir allt launafólk.
rpogarafloti Iandsins hefur allur Iegið bundinn vikum saman
og ekkert útlit virðist um samninga. Greinilegt er að það
þarf hugsandi, ábyrga ríkisstjóm til þess að leysa vandamál
togaraútgerðarinnar. En núverandi „viðreisnar”-stjórn vii'ðist
engan áhuga hafa á því. Þingflokkur Alþýðubandalagsins hafði
lagt fram frumvarp á Alþingi, sem sýndi hvernig hægt var
að leysa vandamálin á kostnað auðhringa, banka og með
nokkrum sparnaði hins opinbera. En valdaklíkan í landinu
sinnir engu. — Hve lengl ætlar almenningur að þola þessum
ábyrgðarlausu, úrræðalausu valdhöfum að sitja I valdastól?
— Það er tækifæri að segja þeim til syndanna, hræða þá og
fordæma í kosningunum, sem í hönd fara.
lárnsmiðjurnar eru stöðvaðar. Valdaklíka Vinnuveitendasam-
bandsins hefur stöðvað þær að undirlagi miðstjórnar Sjálf-
stæðisflokksins. Það er vitað að nú sem fyrr tekur Sjálfstæð-
flokkurinn ákvarðanir um aðgerðirnar gegn almenningi í
launamálunum. Og Alþýðuflokkurinn er orðinn slíkur ræfill
að beygja sig í duftiö fyrir stöðvunar- og kaupkúgunar-ákvörð-
unum „stóra íhaldsins".
^Jíldarvertiðin er í voða. Sildarvílrksmiðjur bíða aðgerða járn-
smiða. — Jámsmiðjumar vilja semja, — voru búnar að
ikomast að samkomuTagi — en valdaklíka Sjálfstæðisflokksins
og Vinnuvcitendasambandsins sviptu járniðnaðarmeistarana
frelsi til að semja! Verkfræðingar, Iæknar, kénnarar, — allir
fá kauphækkun, — en verkamenn og iðnaðarmenn á að kúga,
— það er boðorð Sjálfstæðisflokksins! — Er ekki mál að linni
fylgi almennings við slíkan flokk?
Oíldarlöndun í Faxaflóa er í öngþveiti. Það er hægt að selja
^ næga síld úr landi. Lönd sósíalismans vilja kaupa. En
„viðreisnar“-stjómin bannar. Það má ekki haga verzlun Is-
lendinga þannig að við getum keypt af þeim löndum, sem
vilja kaupa okkar afurðir. — Heldur skal henda síldinni eða
stöðva löndun. — Slíkt er ofstæki úrræðaleysingjanna.
■ffbúðahúsabyggingar eru að stöðvast. Níðingsskapur „viðreisn-
ar“-stjórnarinnar, gagnvart þeim alþýðumönnum, sem
leggja á sig ótrúlegt erfiði við að koma þaki yfir höfuð sér,
birtist í vægðarlausum álögum á byggingarefni og litlum og lé-
legum lánum til bygginganna, sem vart duga fyrir gjöldum
til ríkisins af byggingarefninu. Afleiðingin er að sumir eru
að missa íbúðirnar sínar, aðrir gefast upp við að reyna. Áríð
1957 var byrjað á byggingu 898 íbúða í Reykjavík. Þá ríkti
bjartsýni hjá alþýðu. Árið 1961 var byrjað á aðeins 391 íbúð.
Skuggi „viðreisnar“-voðans hafði færzt yfir hugi manna. —
7jVÍðrei$nar“-stjórnin hefur með efnahagslegum kúgunarráðstöf-
unum sínum svift menn hinu ráunverulega írelsi til að byggja
yfir sig. — Er ekki mál að þessari kúgun linni? Það emhægt
að stöðvá'fi&na méð'því að greiða atkvæði ngegn jstjórnar-
flokkunum og með Alþýðubandalaginu. Það er málið, sem
þeir herrar skilja.
^ ðeins á cinu sviði sýnir þessi duglausa og urræðalausa
ríkisstjóm dugnað og framtak. Það dr í kaupkúguninni,
og þar umhverfist dugleysið, sem er að drepa atvinnulífið í
ofstæki, sem hvorki hikar við stjórnarskrárbrot né níðings-
skap gagnvart fátækasta fólkinu og þeim, sem þræla mest.
★
17,n nú er greinilegt að þolinmæði almennings er á þrotum.
Hin stórfenglega kröfuganga og útifundur 1. maí sýndu hug
fólksins í Reykjavík. Einhugur járniðnaðarmanna er táknrænt
fyrir ástandið í verkalýðsstéttinni. . . . Ólgan vex á öllum
vinnustöðum. Samtök starfsmanna hins opinbera fylkja æ
ákveðnar liði gegn kaupkúguninni, — ibúast til að feta í
fótspor kennaranna. Krafa almennings er: Burt með þetta
stjdrnarfar! Burt með úrræðaleysið og kaupkúgunina! Kveðum
afturhaldsstjórnina niður I kosningunum! Launþegar! Sækjum
með harðfygli í heodur valdaklíkunni það, sem hún hefur
rænt af fjölskyldum okkar á undanförnum árum!
“GUÐMUNDUR VIGFÚSSON:1
Undanbragðalaus framkvœmd hitaveitu-
dœtlunarinndr
Á undanförnum kjörtímabil-
um bæjarstjórnar Reykjavíkur
hefur Sósíalistaflokkurinn og
Alþýðubandalagið jafnan beitt
sér fyrir auknum framkvæmd-
um hitaveitunnar. Það var t.d.
fyrir atbeina sósíalista og Ai-
þýðubandalagsmanna að hita-
veitan fékkst lcks lögð í Hiíð-
arnar og Túnin, enda þótt
meirihluti bæjarstjórnar reyndi
að tregðast við svo iengi sem
fært þóttj.
Fulltrúar Alþýðubandalagsins
í bæjarstjórn hafa í mörg ár
beitt ‘sér fyrir lagningu hita-
veitu í Laugarneshverfi, eitt
af elztu hverfunum sem verið
hefur án hitaveitu, þrátt fyrir
mikið heitt vatn í hverfinu
sjálfu. Það er fyrst nú, þegar
barátta Alþýðubandalagsmanna
fyrir hitaveitu í alla Reykjavík
hefur borið þann árangur, að
öll borgarstjórnin hefur sam-
þykkt framkvæmdaáætlun um
lagningu hitaveitu í öll skipu-
lögð borgarhverfi, sem Laugar-
neshverfið loks fær sína hita-
veitu.
Alþýðubandalagsmenn i borg-
arstjórn munu beita öllum á-
hrifum sínum til að tryggja
að hitaveituáætlunin verði ekki
aðeins kosningaáætlun, sem
lögð verði á hilluna að meira
eða minna leyti að þeim lokn-
um, heldur raunveruíeg fram-
kvæmdaáætlun sem hrundið
verði áfram á nsestu 3-4 ár-
um. Þeir munu krefjast þess
að hitaveituáætlunin sé framkv.
undanbragðalaust og leitast
verði við að stytta fram-
kvæmdatímann ef unnt er. Er
hér um mikið hagsmunamál að
ræða fyrir allan þann fjölda
borgarbúa sem mátt hefur bíða
eftir hitaveitu í nær tvo ára-
tugi, eingöngu vegna aðgei’ðar-
leysís ig skammsýni ráðandi
meirihluta í borgarstjórn.
Jafnframt hindrunarlausri
framkvæmd hitaveituáætlunar-
innar er nauðsynlegt að
í: ygg.ja endurskoðun hennar
jafnharðan og lagningu hennar
miöar áfram. Þessi endurskoð-
un þarf að fara fram með til-
bti til • nýrra vidhorfa, sem
skapast við aukningu hitaveit-
unnar cg þeirrar reynslu sem
af rékstri hennar íæst. .
í þeirri áætlunargei'ð þarf áð
taka tillit til nýrra hverfa er
byggjast á framkvæmdatíma-
bilinu og athuga hvort ekki
Nauðsynlegt er að hraða sem
mesta borunum eftir hcitu
vatni í borgarlandinu sjált'u og
ódýrastur og á að geta komið
næsta nágremii. Sá varmi sem
með því fæst er tvímælalaust
fyrst í gagnið, þótt oft hafi
verið á því misbrestur fyrir
handvömm og skeytingarleysi
meirifilutans. Ekkert annað er
viðunandi en að það vatn sem
fæst með borunum í borgar-
landinu sé nýtt án tafar.
Til öryggis og vegna fram-
tíðarstækkunar borgarinnar er
óhjákvæmilegt að tryggja
Rcykjavík aðstöðu til jarðhita-
virkjunaur í Henglinuin eða
Krísuvfk. Að þessu þarf að
vinda bráðan bug og hefja und-
irbúningsrannsóknir í því skyni.
'X-.S - A
Öflun nýrra hitarétt-
inda fyrir Reykjavík
'.ígj, ' ''
Árum saman hafa fulltrúar Alþýðubanðalagsins i bæjarsíjórn beitt sér fyrir lagningu hitaveitu í
Laugarneshverfi, þdr sem mikið heitt vatn er í hverfinu sjálfu. Nú er loksins að komast hitaveita i
Laugarneshverfi. Myndin var tekin í fyrradag af vinnu við gröft fyrir hitaveituleiðsium í Laugar-
neshverfi. — (Ljósm. Þjóðv. A.K.)
sé heppilegt að leggja í þau
hitaveitu um leið og götur eru
lagðar og hverfin byggjast.
Þá er nauðsynlegt að leggja
éherzlu á, að hefja vísindalega
rannsóknarstarfsemi á sviði
hitaveitumála, í því skyni að
sá varmi, sem fyrir hendi er,
nýtist sem bezt og að veitu-
kerfi og mannvirki svari bezt
tilgangi sínum. Til þess að
framkvæma þetta þarf að sjá
hiíaveitunni fyrir nægum starfs-
kröftum sérmenntaðara manna,
Þetta hefur gjörsamlega verið
vanrækt af stjórnendum hita-
veitunnar og borgarstjómar-
meirihlutinn ekki skilið þýð-
ingu 'þessa.
Hér má aldrei framar skapast
það ástand fyrir skammsýni og
ódugnað borgaryfirvalda, að
stór hluti íbúa Reykjavíkur
hafi ekki hitaveitu og verði ár-
um eða áratugum saman að
nota dýrt erlent brcnnslucfni
til upphitunar húsa sinna.
Jafnhliða þessum hitaveitu-
framkvæmdum og undirbúningi
nýrra er nauðsynlegt að athuga
í tíma kerfi gömlu hitaveit-
unnar innanbæjar og endur-
bæta þar sem nauðsyn ber til.
Einnig þarf að athuga og
endurbæta aðfærsluæðina til
‘borgarinnar og vinda bráðan
bug að því að lagfæra kaflann
frá Elliðaárstöðinni til borgar-
innái’. Þetta er skilyrði þess að
hægt sé að flytja þann aukna
varma, sem vinna á í Elliðaár-
stöðinni.
Það má fui'ðulegt heita að
hitaveitan skuli hafa látið und-
ir höfuð leggjast allan tímann
frá stofnun, að hefja upplýs-
inga- og Ieiðbeiningastarfsemi
í því skyni að notendum nýt-
ist heita vatnið betur. Þetta
þarf að gera án taíar, enda
getur framkvæmd slíkrar starf-
semi orðið mikið fjárhagsatriði
fyrir borgarbúa, sparað þeim
verulegan hitakostnað.
Hér hafa verið rakin þau
atriði, sem Alþýðubandalagið
leggur mesta áherzlu á í hita-
veitumálum Reykjavíkurborgar.
Ótalið er þó em af grundvail-
aratriðum þess að hitaveitan sé
sem hagkvæmast fyrirtæki fyr-
ir borgina og íbúa hennar, og
sem Alþýðuþandalagsmenn í
boi’garstjóm hafa að undan-
förnu beitt sér fyrir við mikla
andstöðu Geirs Hallgrímssonar
borgarstjóra, sem íulltnía gróða-
sjónarmiða og peningavalds.
En það er, að borgarstjóri
gæti þess, eftir því sem fram-
ast er unnt, að framkvæmdafé
hitaveitunnar sé jafnan fengið
með sem hagkvæmustum kjör-
um.
Þetta er mjög mikilvægt.
Háir vextir á lánsfé til hita-
veitunnar leiða af sér hækk-
andi framkvæmdakostnað fyrir-
tækisíns og dýrari afnotagjöld
fyrir almenning í borginni.
'Hitaveita Reykjavíkur er þjóð-
hagslega séð eitt bezta og hag-
kvæmasta fyrirtæki sem hér
hefur verið stofnað til. Aukn-
ing hennar og framkvæmdir
eiga ekki að berast uppi af
vaxtaokri venjulegrar útiána-
starfsemi á viðreisnartímum,
heldur útvegun fjármagns með
mun lægri vöxtum og sem hag-
kvæmustum kjörum. Þetta er
sjónarmið Alþýðubandalagsins.
Það sjónarmið hlýtur að njóta
viðurkenningar og stuðnings
allra Reykvíkinga, sem ekki eru
fyrirfram blindaðir af gróða-
sjónarmiðum vaxtaokurs og
auðhyggju.
Furðuleqt að
ekki vera aðili
Þjóðviljanum hefur borizt
eftirfarandi áskorun til ís-
lenzkra stjórnarvalda frá Fé-
lagi háskólastúdenta í Frakk-
landi:
V <»»"**-- |
Mersningar- og visindasamband
Sameinuðu þjóðanna (UNE-
SCO) var stofnað þegar upp
úr síðustu heimsstyrjöld.
Nauðsyn slíkrar hreyfingar
var þá sérstaklega aðkallandi
til uppbyggingar og varð-
veizlu friðar í heiminum, enda
litið svo á, að ein. meginorsök
stríðs lægi einmitt í vanþekk-
ingn þjóða á milli. Tilgang-
ur sambandsins er því að
efla og auka þekkingu á
mcnriingu og siðum þjóða. í
þessu skyni hefur UNESCO
þegar unnið roerkilegt starf
©g nægir að benda á eftir-
farandi:
★
A sviði vísinda og tækni hefur
UNESCO efnt til víðtækra
rannsókna, bæði til lands og
sjávar, á náttúruauðævum
vauefnaðra og tæknisnauðra
þjóða, stutt ranrsóknir í
sanibandi við aíþjóðajarðeðl-
isfræðiárið, skipuiagt vísinda.
þing, lagt á ráðin um upp-
setningu og skipulagningu
sjónvarpsstöðva, utvegað vís-
indarit og áhöld, látið byggja
rannsóknarstofnanir.
★
Á sviði lista og bókmennta
hefur UNESCO beitt sér fyrir
Iistkynningu, útgáfu og þýð-
ingum merkra fornrita og
varðveizlu fornmenja frá
eyðileggingu eða glötun, eins
og t.d. í Nílardal í sambandi
við byggingu vantsvirkjunar
í Efri-Assouan.
★
í uppeldis- og æskulýðsmálum
hefur UNESCO gengizt fyrir
æskulýðsmótum, kennara- og
menntaskiptum og veitt auk
þess námsstyrki. Sömuleiðis
útvegar sambandið fræðslu-
kvikmyndir til skóla. Þá hef-
ísland skuli
að UNESCO
ur það komið upp listasöfn-
um, bókasöfnum, náttúru-
gripasöfnum og meðal annars
látið reisa nýja vísindadeild
við háskólann í Ankara, þar
sein enn vantaði slíka deild.
Loks lætur UNESCO tii sín
taka ýmis mál varðandi lög
og rétt og hlutast til um, að
ahnennra mannréttinda sé
gætt án tillits til kynstofns,
kynja, tungu ' eða trúar-
bragða.
★
Meðlimaríki Menningar- og vís-
indasambands S.Þ. eru nú
uni 90, þar af allar Evrópu-
þjóðir nema þrjár: ísland,
írland og Portúgal. Fjárfram-
Iag þjóða fer eftir liöfðatölu
og afkomu hvers ríkis. Auk
þess leggja stórþjóðirnar til
sérframlög við brýn verkefni.
Þarf ekki að taka fram, að
inirsnstu og vancfnuðustu rík-
in njóta tiltölulega mestrar
aðstoðar. '
Aðsetur UNESCO er París,
þar sem sambandinu hafa
verið reist stórgiæsileg húsa-
kynni. Vinna þar að staöaldri
rúmlega þúsund manns af
öilu þjóðerni. Flest aðildar-
ríkin haf-a fastafulltrúa, en
önnui- sendiráðsfuiltrúa.
★
Engum getur dulizt, að hér er
uin að ræða merkasta menn-
ingarsamband, sem nokkurn
tíina hefur verið stofnað til i
heiminum. Því er það ekki
einungis siðferðileg skylda
fslands sem forns menningar-
lands að taka þátt í starf-
semi þessara samtaka, heldur
yrði því einnig að því hag-
ur.
★
F.Í.H.F., sem hefur haft sér-
stöðu til að kynna sér þessi
mál í París, lýsir þvi yfir
furðu sinni, að íslendingar
Framhald á 10. síðu.
HEILBRIGÐISMÁL
1. Tannvemd barna og unglinga
**Ú
Alþýðubandalagið leggur áhewlu ó, að tfmjlækr^aþjónusta
borgarinnar verði hið allra íyrsta hafin á ný og hún nái til
allra barna á skólaskýldualdri. Enlifremur verði stefnt að því,
að böm á aldrinum 3—7 ára svo og unglingar til 19 ára ald-
urs eigi kost á að njóta tannlæknaþjónustu á vegum Reykja-
víkurborgar.
2. Betra er heilt en gróið
Markvisst heilsuverndarstarf þanf að stórauka í Reykja-
vik. Fullírúar Álþýðubandalagsins beita sér að staðaldri fyr-
ir því, að starfsemi heilsuvemdarstöðvarinnar verði aukin.
Nýjum greinum heilsuvemdar þarf að bæta þar við, og má
.þar nefna sjónvemd, heyrnarhjálp, vinnuvernd og geðvernd
fullorðinna.
3. Aðstoð við aldrað fólk
Gamalmenni hafa frá upphafi verið hornrekur ráðamanna
borgarinnar. Alþýðubandalagið krefst- þess, að velferðarmáium
aldraðs fólks verði nú og framvegis fuilur sómi sýndur í verki.
Einkum skal áherzla lögð á eftirfarandi atriði:
a) Byggður verði árlega hæfilegur fjöldi íbúða, sem að stærð
og öllum útbúnaði hæfi þövfum aldraðs folks og, fpú ,því ætl-
aðar. .tsds. "
b) Gömiu fólki veiði látin í té náuðsyni.eg aðstoð til þefss •
að það geti sem lengst búið í heimahúsum og .-þurfi ekki að '•
vistast á stofnunum. Þessi hjálp skal skipulögð og fela í sér
eftirlit með gamalmennum og umönnun eftir því sem þurfa
þykir í hverju einstöku tilfelli.
c) Komið verði á fót vinnumiðlun handa öldmðu fólki, og
skal hún verða fastur liður f félagsmálastarfsemi borgarinnar.
Skal stefnt að því að sérhver aldraður borgari eigi kost á
starfi í samræmi við starfsorku síná.
d) Sérstök deild Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur skal ann-
ast heilsuvernd gamals fólks.
4. Rorgarsjúkrahús
Unnið skal að byggingu Borgarsjúkrahússins í samræmi við
samþykkt, er gerð var í bæjarstjórn Reykjavíkur 4. maí 1961
að frumkvæði fulltrúa Alþýðubandalagsins, en þar er svo
ákveðið, að 1. áfanga byggingarinnar með 185 sjúkrarúmum
verði lokið fyrir árs’.ok 1964. Fulltrúar Alþýðuibandalagsins
vilja fylgja því fast eftir, að ekki verði horfið frá ákvæðum
þessarar samþykktar eftir kosningar.
Sérstök geðveikradeild verði starfrækt í Borgarsjúkrahúsinu
þegar frá upphafi, svo sem nú tíðkast í erlendum sjúkra-
húsum 100 rúma eða stærri.
5. Slysavarðstofur
Stefnt skal að því, að slysavarðstofur .verði reknar í sam-
bandi við öll stærri sjúkrahús í borginni.
gert í áæflun um byggingarstarfsemi borgarinnar, að unnt
verði á næstu fáum árum að leggja niður íbúðir Höfðaborgar
og annað heilsuspillandi húsnæði í eigu borgarinnar.
9. Eftirlit með matvælum
Aukið verði eftirlic með geymslu og annarri meðferð mat-
væla og strangar kröfur gerðar um gæði hverskonar matvöru,
sem höfð er á boðstólum. Skal þess gætt sem vandlegast, að
settum reglum um þetta efni sé hlýtt.
6. Læknaþjónusta
Borgarstjóro skal heita áhrifum sinum til þess áð gerðar
verði nauðsynlegar umbætur á tilhögun læknaþjónustu í
Reykjavík og hún færð til samræmis við kröfur tímans og
stærð borgarinnar. Verði haft fullt samráð við læknasamtökin
um þær breytingar.
7. Eftirlit með heilsuspillandi íhúðum
Þar til öllu óhæfa og heilsuspillandi húsnæði hefur verið
útrýmt skal haft árlegt efirlit með íbúðum í herskálum, skúr-
um, kjöllurom og á háaloftum í samræmi við 34. grein heil-
brigðissamþykktarinnar. Skal sérstök áherzla lögð á fram-
kvæmd þess ákvæðis greinarinnar að krefjast viðgerða á íbúð-
um, sem ábótavant or.
8. Útrýming heilsuspillandi íhúða
í eigu Reykjavíkurborgar er allmikið af heilsuspillandi íbúð-
um, sem leigðar eru fátæku og hiisvilltu fólki. Þessa óhæfu
verður að uppræta sem allra íyrst. Þvi skal svo ráð fyrir
10.
11
■* .tínmi í£U|ifá 6s ' f irt uöfe *i3- — ,g'ia rilz
Opnum .Srárennslúm verði tafarjavtst útrýrpt, ,r.
L* Almenningsnáðhúsum verði fjölgað. Ekkert nýtt al-
menningsnáðhús hefur verið tekið í notkun ánim saman þrátt
fyrir öra stækkun borgarinnar.
12.
Borgarstjómin stuðli að eflingu á skipulagðri aðstoð við
Öryrkja til sjálfsbjargar.
*: [í x; w w wnmm
13.
'• Aukið verði eftirlit með heilbrigðisháttum og aðbúnaði
á vinnustöðum og ríkt eftir því gengið að gildandi ákvæðum
laga og reglugerða um þetta efni sé framfylgt.
14.
Hið ódæma mikla göturyk, sem íbúar Reykjavíkur verða
áð þola hvenær sem þornar á steini, er brýnt heiltorigðislegt
vandamál, Þess vegna skal þegar leita bráðabirgðaúrræða
til að hefta göturykið, unz allar götur í borginni hafa verið
malbikaðar eða steinsteyptar og gangstéttir lagðar.
g) — ÞJÓÐVILJINN — Fimmtudagur 10. maí 1962
Fimmtudagur 10. maí 1962 — ÞJÓÐVILJINN — (7