Þjóðviljinn - 28.06.1962, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 28.06.1962, Blaðsíða 3
Falsanir LIU manna Gerðardómslögin afnema allan rétt sjó- en nú að heí-'a síldveiðar íyrir manna til ákvarðana um kjör sín þvert ofan í yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar á Alþingi í vetur. Það er ordinn fastur liður í herferðum stúlrútgerðarvaldsins á hendur sjómannastéttinni að senda frá sér blekkjandi yfirlýs- ingar um málsatriði, og stendur ekki á Morgunblaðinu að taka undir þann söng. Ein slík yfir- lýsing birtist í laugardagsblaði Morgunblaðsins, og sver hún sig mjög í ætt við yfirlýsingu FlB í vetiir um afnám hvíldar- tíma togaraháseta og lakari kjör þeirra. Petrosjan Framhald af 12. síðu. Petrosjan var ákaft fagnað eft- Ir sigurinn. Sagði hann, að þetta refði verið erFðasta skákkeppni, sem hann hefði tekið Jiátt í og han.n hefði einungis sigrað vegna þess, að hann er 15 árum yngri en Keres. Hann vildi engu spá um einvígið við Botvinnik og sagði að þeir hefðu ekki teflt saman í 7 ár. Hins vegar taldi hann, að Botvinnik 'hefði aldrei Verið betri en nú. Tigran Petrosjan er 33 ára að aldri, fæddur í armenska sovétlý''veldinu 17. júní 1929. Hann hefur verið í fremstu röð sovézkra skákmeistra sl. áratug. Hlaut stórmeistaratitil 1952 og tók árið eftir iþátt í öðru áskor- endamótinu, er haldið var í Ziirich, og náði þar 5. sæti af 15 þátttakendum. Hefur hann síð- an teflt á öllum áskorendamót- um. Varð í 3.—7. sæti í Amster- dam 1956 af 10 þátttakendum og í þriðja sæti á mótinu í Júgóslavíu 1959, en iþá voru kepp- endur 8 eins og nú. Á þessu tímabili hefur Petrosjan jafnan Verið í efstu sætum á skákmeist- aramótum Sovétríkjanna, þegar hann hefur tekið ibátt í þeim, og vann titilinn Skákmeistari Sov- étríkjanna árið 1959. Þá hefur ■Þessi yfirlýsing LlÚ-stjórnar- innar er einhliða og hlutdræg túlliun á kröfum stórútgerðar- valdsins um lakari kjör sjó- manna á síldveiðum. Þar er gripið ofan í tölur og þeim hag- Cætt eftir því sem henta þykir. Rangfærslur yfirlýsingarinnar eru stórfurðulegar. T.d. er sagt, að mönnum við veiðar hafi fækk- að undanfarið vegna hinnar nýju veiðitækni (kraftblakkar- Innar) og hafi það hækkað tekj- ur sjómanna. Allir sem til þekkja vita að þetta er ekki rétt. Fækkun manna á bátunum er í sambandi við að tekin var upp hringnót í stað herpinótar á síld- veiðunum, — og sú þróun hefur vdrið að gerast síðasta aldar- fjórðung. Þetta hafði ekki í för með sér aukin útgjöld fyrir út- gerðina og er hér farið með vís- vitandi blekkingar. LlÚ stjórnin heldur því fram, að síðustu samningar hafi verið gérðir 1958 og hafi hin nýja veiðitækni þá ekki verið komin til sijgunnar. Enn er hér beitt blekkingum. Síðustu samningar voni gerðir 1959. Þá voru hin stóru síldarleitartæki komin í fjölmörg skip. T ry ggingarkostnaði létt af útgerðinni Það er að vísu rétt, að hin nýju síldarleitartæki og veiði- útbúnaður hefur aukið stofn- kostnað útgerðarinnar. En þar á móti koma önnur atriði, sem einnig ber að líta á. Veiði hef- úr stóraukizt hjá skipum með þennan útbúnað, en það hefur [ för með sér betri afkomuhorf- ur útgerðarinnar, þSft kjörum sjómanna væri ekki breytt. Fullyrða má, að um 18 ára skeið hafi aldrei verið álitlegra skip með þessari ný'justu tækrn. Tryggingarkostnaður veiðar- færa lækkar gífurlega, þegar veiðarfærin eru dregin beint inn á skipið en ekki nóta- bát. Á þennan hátt munu sparast yfir 30 þús. I^rónur á skip á sumarvertíð. Einnig sparast viðhald og endurnýj- un nótabáts og mun það nema 25—30 þús. kr. Með gengislögunum frá þvi í ágúst í fyrra var ákveðið að greiða vátryggingarkostn- að skipanna af útflutnings- gjaldi á sjávarafla. Þetta gjald dr tekið af óskiptum afla og eru sjómenn þannig látnir standa undir vátrygg- ingarkostnaði bátanna, á- samt útvegsmönnum, en það þýðir í reynd lækkað afla- verð til sjómanna en uppbæt- ur til útgerðarmanna. Enginn grundvöllur Allt ber þannig að sama brunni, — það var engi\i grund- völlur fyrir því að rýra hluta- skipti sjómanna, enda voru út- gerðarmenn víða á landinu greinilega ófúsir að hhta stjórn LÍÚ eins og sjá má af fjárkúg- unaraðgerðum stjórnarinnar. Og þrátt fyrir þær voru 13 staðir á landinu með óuppsagða samn- inga, en þriðjungur síldarflot- ans er gerður út frá þessum stöðum. Þar við bætist, að yfirmenn á öllum sí'.darflotanum eru enn með gildandi samninga að því er bezt vdrður vitað. Þvert á orð og eiða S.l. vetur voru sett lög á Al- þingi um gerðardóm til ákvörð- únar aflaverðs. Þá var því há- tíðlega lýst yfir á Alþingi, að sjómenn hefðu eftir sem áður fullan rétt og aðstöðu til samn- inga um kjaramál sín. Með gerð- ardómslögunum er sá réttur líka tekinn af sjómönnum og fluttur yfir á hendur aðila, sem jafnan hafa reynzt andstæðir hagsmun- um launþega. Meða gerðardómslögunum er ríkisstjórnin að svipta verkalýðs- samtökin þeim lýðræðislega rétti, sem þau hafa haft til ákvörðun- ar um kaup og kjör meðlima sinna. Verkalýðshreyfingin verð- ur að snúast til varnar þessum helgasta rétti sínum. Fyrirfram ákveðinn stuðningur Augljóst er af framkomu LlÚ-klíkunnar, að hún hefur all- an samningstímann talið sér vísa liðveizlu rikisstjórnarinnar, ella hefði hún ekki sýnt slíka óbil- girni í samningunum. Þegar LÍÚ var svo að missa stjórn á þess- ari herferð sinni á hendur sjo-*”*®! mönum, voru í skyndi gerðir út á fund Emils Jónssonar tveir .,toppar“ LÍÚ ásamt vesælum krata. til að vitja liðveizlunnar. Og ekki stóð á sjávarútvegsmála- ráðherra að beita „harkalegrí aðferðum" en hingað til hafa þekkzt gagnvart sjómannasam- tökunum, svo notuð séu orð Jóns Sigurðssonar. Ákvæði bráða- birgðalaganna um áframhaldandi „samninga” milli sjómanna og útvegsmanna eru hrein sýndar- mennska eins og málum er hátt- að. Samninganefnd sjómanna mun hafa fjallað um áfjurnefnda yfirlýsingu LlÚ og verða henni væntanlega gerð nánari skil af nefndarinnar hálfu. Byggingarsamvinnufélag barna- kennara lilkynnir: Fyrir dyrum standa eigendaskipti að fokheldu raðhúsi fé- lagsmanns við Álftamýri hér í bæ. Félagsmena, sem hafa kynnu hug á að neyta forkaupsréttar, gefi sig fram við skrifstofu félagsms fyrir 5. júlí. STEINÞÓR GUÐMUNDSSON. Hjarðarhaga 26 — Sími 16871. Tilkynning Nr. 8/1962. Verðlagsnefnd hefur ákveðið, að verð hverrar seldrar vinnu- stundar hjá pípulagningamönum megi hæst vera, sem hér segir: Dagv. Eftirv. Næturv. Sveinar .... kr. 47.65 kr. 74.10 kr. 89.60 Aðstoðarmenn .. .. .... — 39.95 — 58.45 — 71.30 Verkamenn .... — 39.25 — 57.45 — 70.10 Verkstjórar .. .. — 52.40 — 81.50 — 98.55 Söluskattur er innifalinn í verðinu og skal vinna, sem er undanþegin söluskatti, vera ódýrari sem því nemur. Reykjavík, 27. júní 1962. VERÐLAGSSTJÓRINN hann og jafnan verið í fremstu röð á þeim alþjóðaskákmótum, sem hann hefur tekið þátt í Petrosjan er mjög öruggur og 'varfærinn skákmaður og tapar sialdnar skák en flestir aðrir nú- lifandi skákmeistarar en gerir ihins vegar mjög mörg jafntefli. Verður vissulega gaman að fylgi- ast með einvígi þeirra Botvinn- iks þegar þar að kemur. SKIPAUTGCRÐ RÍKISINS SKJALDBREIÐ vestur um land til Akureyrar hinn 3. júlí n.k. Vörumóttaka í dag til Húna- flóa- og Skagafjarðarhafna og Ólafsfjarðar. Farseðlar seldir á mánudag. Skipstjárar og stýrimenn hafa gömlu samningana Eins og skýrt er frá á öðrum stað í blaðinu hefur stjórn F.F. S.l. harðlega mótmælt bráða- birgðalögum ríkisstjórnarinnar og neitað að tilnefna þriðjung úr manni í gerðardóminn. Jafnframt vekur stjórnin athygli á því að deilan um síldveiðikjörin sé yfir- mönnum óviðkomandi; gömlu samningarnir séu enn í fullu gildi gagnvart þeim. LlÚ hafði þann hátt á að það sendi Farmanna og fiskimanna- sambandinu uppsögnina á samn- ingum við yfirmenn en ekki ein- stökum félögum. 16. júní sl. mót- mæltu skipstjóra- og stýrimanna- félögin Vísir á Suðurnesjiun og Kári í Ilafnarfirði þessari aðferð og töldu hana ólöglega með öllu; einstök félög væru óbundin af bréfinu til F.F.S.l. og því væru gönj'.u samningarnir í fullu gildi. Lögfræðingar sem rannsakað hafa málið telja þetta sjónarmið örugglega rétt, og verður eflaust fjallað um það af Félagsdómi áður en lýkur. Yfirmenn á bátum þeim sem hafa farið á veiðar frá Suður- nesjum undanfarna daga hafa yfirleitt neitað að láta skrá sig upp á „væntanlega samninga" og halda fast við rétt sinn til að fá greitt samkvæmt gömlu samn- ingunum. Áœtlun ms. Dronntng Alexandrine september - desember 1962 Frá Kaupmannahöfn 7/9. 24/9. 12 10. 31 10. 19/11. 7/12. Frá Reykjavík 15/9. 3/10. 23 10. 10/11. 29/11. 17 12. Skipið kemur við í Færeyjum í báðum leiðum Skipaafgreiðsla JES ZIMSEN. Tilkynning |l Nr. 7/1962. Verðiagsnefnd hefur ákveðið eftirfarandi hámarksverð á selda vinnu hjá rafvirkjum: I. Verkstæðisvinna og viðgerðir: Dagv. Eftirv. Næturv. Sveinar ........... kr. 47.95 kr. 74.75 kr. 90.05 Sveinar m/framhaldsprófi og verkstjórar ..... — 52.75 — 82.25 — 99.05 Verkstjórar m/framhalds- prófi ............. — 57.55 — 89.70 —108.05 Söluskattur er innifalinn í verðinu og skal vinna, sem er undanþegin söluskatti, vera ódýrari, sem því nemur. II. Vinna við raflagnir: Dagv. Eftirv. Næturv. Sveinar kr. 44.40 kr. 69.30 kr. 83.50 Sveinar m/framhaldsprófi og verkstjórar — 48.85 — 76.25 — 91.85 Verkstjófar m/framhaids* prófi ! — ' 53.30 — 83.15 — 100.20 í _ > J . * Reykjavík, 27. júní 1962, / ‘ * *****■'■ VERÐLAGSSTJÖRINN. Ctvp ‘íefcbtdifinó-i - '1- !L í-í.Uúm - / Fimmtudagur 28 júní 1962 — ÞJÓÐVILJINN — (31

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.