Þjóðviljinn - 18.07.1962, Blaðsíða 10
r
i. s. í.
K. S. !.
LANDSLIÐ
keppa á Laugarcfalsvellinum í kvöld
og heíst leikurinn kl. 8.30 — Dómari: Valur Benediktsson. — Verð aðgöngumiða: Stúkusæti
':r. 30.00 — Stæði kr. 20.00 — Barnamiðar kr. 5 00.
KOMIÐ OG SJÁJÐ 22 BEZTU KNATTSPYRNUMENN
ISLANDS. — Knattspyrnusamband íslands.
LANDSLIÐ
Ráf herror tsknir að sverja
Framhald af 1. síðu.
þeirra eru efnislega samhljóða
skeytum NTB fréttastoiunnar
itorsku, sem hefur sínar upplýs-
ingar frá Rauter, og einnig
dönsku fréttastofunnar Ritzaus
Bureau, sem fékk sínar heimild-
or frá AEP fréttastofunni, en hin
sícast taida er að nokkru. í eigu
íranska rfkisins og því hálfopin-
ber. Yfirlýsing AP fréttastof-
v.nnar um að Adenauer hafi ekki
vikið að Islandi í ræðu sinni er
'því harla léttvæg gagnvart þess-
tim heimildum. Þess ber einnig
að gæta, að oft mun koma fyrir
að ræðumenn víkja að vild frá
binum opinberu útdráttum, sem
írétta:toíurnar fá í hendur af
ræðttm þeirra.
• Stefnt að
aukaaðild
Sforgunblaðið birtir einnig við-
tal við Ólaf Thors, forsætisráð-
iherra, um þetta mál. Þar er ekki
víkið einu orði, að ummælum
Adenauers, en að sjálfsögðu hefði
íorsætisráöherranum borið skylda
til þess að bera þau til baka,
hafi þau ekki. við rök að styðj-
ast. Forsætisráðherra telur fulla
aðild ekki koma til greina nú, en
segir síðan: . . . „um aukaaðild
liggur enn ekki skýrt fyrir
ihverjar skuldbindingarnar eru“.
(þ.e. við inngöngu í EBE). Aí
þessu verður því helzt ráðið, að
áform ríkisstjórnarinnar sé að
tengja íslanci Efnahagsbandalag-
inu. með aukaaðiid, en í sáttmála
banda'agsins er skýrt tekið íram,
að það sé aðeins fyrsta spor í
átt til fullrar samciningar. En á
þessu sti.gi máloins heldur rik-
isstjcrnin því vitanlega fram, að
full aðild k;mi ekki til greina!
(Man nú nokkur yfirlýsingar
þernámsílokkanna við inngöng-
una í Atlanzhafsbandalagið, að
íherseta hér á friðartímum kæmi
ekki til greina?).
• Ilreinskilnir
við erlenda
valdhafa
Ríkisstjórnin hefur eins og
kunnugt er verið í stöðugu makki
við forráðamenn EBE í lengri
tíma. Þeir Gylfi Þ. Gíslason og
Gunnar Thoroddsen fóru til við-
ræðu við Bonn-stjórnina á s.l.
ári. Gylfi heíur einnig heimsótt
París og Róm í sömu erinda-
gjörðum ásamt meðreiðarsvein-
um; I síðustu utanför sinni ræddi
Gylfi svo við ráðherra í Hol-
landi, Belgíu. og Luxemburg og
lauk yfirreið sinni með því að
fara aftur til Bcnn til viðræðna
við Ludwig Erhard. Og enda þótt
ríkisstjórnin hafi ekki sótt form-
lega um aðild að Efnahagsbanda-
laginu, leynir sér ekki, að stefna
þennar er sú. Þetta hafa ráðhcrr-
arnir látið uppi við forráðamenn
Efnahagsbandalagsins. Þeir hafa
skilið viðræðurnar við íslenzku
ráöherrana á þann veg, að ís-
Jenzka ríkisstjórnin hefði ákveð-
ið afl sækja um aðild að Efna-
hagsbandalaginu, strax og samið
hefur vcrið um inngöngu Dret-
lands, enda kemur þetta gleggst
fram í ummælum Adcnauers
kanzlara.
• Ríkisstjórnin
teflir málstað
íslands í hættu
Þessi aístaða ríkisstjórnarinn-
ar er mjög hættuleg lyrir Island
og getur stórspillt fyrir öllum
samningum um venjuleg við-
skiptatengsl við Efnahagsbanda-
lagið. Forráðamenn bandalagsins
stefna að sem víðtækustu efna-
hagslegu og pólitísku valdi þess
í framtíðinni, og þeir munu ekki
hika við að notfæra sér veik-
leika íslenzkra ráðamanna til
þess að ná þeim tökum einnig
hér. Allir eru sammála um, að
hér. Allir eru sammála um, aö
okkur ber að fylgjast með þróun
markaðsmála landanna í Vestur-
Evrópu og hafa við þau scm bezt
viðskiptatengsl. En íslendingar
vilja ckki kaupa þau svo dýru
verði, að fórna fyrir þau sjálf-
stæði sínu og tilverurétti.
Ríkisstjóninni var í Iófa lagið
að óska eftir umræðum um við-
skiptasamning við Efnahags-
bandalagið á sama hátt og
sænska stjórnin hcl'ur gert og
kanna þannig, hvaða kjörum
væri unnt að ná. En með stefnu
sinni hcfur ríkisstjórnin torveld-
að mjög þcssa leið, ef ekki lck-
að ihenni 'alveg, icins og bent er á
hér að ofan. Hún heíur rétt for-
ráðamönnum Efnahagsbandalags-
ins litla fingurinn. Ef íslcnding-
ár vilja bjarga málstað sínum, er
því óhjákvæmilegt að svipta nú-
verandi valdhafa því umboði,
sem þeir nú hafa til að stjórna
málum landsins. Það ber þjóð-
inni að gera í næstu Alþingis-
kosninguin.
Afvopnunin
Framhald af 7. síðu.
vestrænum áhrifum. Ekki sagði
Krústjoff hvort eða hvenær
Sovétríkin myndu hefja til-
raunir með kjarnorkuvopn sem
svar við bandarísku tilraunun-
um; hann sagði: „Við getum
ekki annað en hugsað um ráð-
stafanir til að efla varnarmátt
Sovétríkjanna cg sótíalistísku
ríkjanna".
Krúsljoíf endurtók fyrri til-
lcgur Sovétríkjanna um af-
vopnun, sem hann taldi fram-
kvæmanlega á fjórum árum, og
ræddi ýtarlega um þann auð
sem endalok vígbúnaðarkapp-
hlaupsins færðu þjóðunum þeim
til betra lífs. Hann minntist
ennfremur á orð Russells, sem
hvatti vestræna stjórnmála-
menn til að lýsa því yfir að
þeir vildu heldur sigur komm-
únismans en kjarnorkustyrjöld,
og austræna stjórnmálamenn
til að lýsa því yfir að þeir vildu
heldur kapítalisma en styrjöld.
Við lýsum því yfir, sagði
Krústjofí í þessu sambandi, að
það er ekki okkar stefna að
hefja styrjöld í nafni sigurs
kommúnismans.
Fulltrúar hafa skipt sér í
nefndi.r: mu.n ein ræða um
tæknileg vandamál afvopnunar,
önnur um efnahagsleg vanda-
mál hennar, hin þriðja um
sjálfstæði þjóða og afvopnun,
hin fjórða um siðferðileg, lög-
fræðileg cg menningarleg
vandamál tengd afvopnun. Ráð-
stefnunni lýkur þann 14. júlí.
Árni.
Gert er ráð fyrir, að þýzka
sæsíimaskipið „Neptun“ leggi úr
höfn í Þýzkalandi 23. ágúst n.k.
og hefji lagningu sæsímans frá
Nýfundnaiandi 2. september,
Fyrst tíl Grænlands og svo það-
an til Vestmannaeyja, og Ijúki
verkinu í !ok septemibermánaðar,
Trésmiðaíélag
Reykjavíkur
Áríðandi félagsfundur verður í Breiðfirð-
ingabúð í kvöld kl. 8.30.
Fundarefni:
Auglýsing kauptaxta.
STJÓRNIN.
Háteigshverfi
Nýr útsölustaður Þjóðviljans í biðskýlinu við
Háaleitisbraut. ,
• i*l • •
mn
■nL:
Sennilega heíur margur bridge-
spilarinn orðið var við það, að
í keppni þar sem spi’.in
eru geíin fyrirfram, koma oft
fyrir spil með óvenju mikilli
skiptingu. Síðasta heimsmeist-
arakeppni í tvímenning var
enginn eftirbátur hvað það
snerti. Eftirfarandi spil er frá
opna ílokknum.
S: í)
H: Á-K-D-10-9-8-3
T: ekkert
L: Á-K-6-5-4
S: D-7-5-3
H: ekkert
T: D-10-6-5-4
L: G-10-8-3
S: Á-K-8
H: 2
T: Á-K-G-9-8-7-3-2
L: 9
S: G-10-6-4-2
H: G-7-6-5-4
T: ekkert
L: D-7-2
Bandaríkjamennirnir Jordan og
R binson héldu. á a-v spilunum
gegn Holldendingunum Keiser-
Kokkes. Þar gengu sagnir eftir-
farandi:
Vestur
pass
pass
pass
Norður
2 tíglar
6 hjörtu
pass
Austur
5 tíglar
dobl.
Suður
5 hjörtu
pass
Au.stur spilaði út spaðakóng og
síðan spaðaás. Norður trompaði
og átti. restina. N-s fengu því
1210, sem var afbragðsskor.
Bezti árangur á a-v línuna var
hins vegar hjá Bandaríkja-
mönnunum Feldesman og Mil-
es. Við þeirra borð gengu
sagnir þannig:
Vestur
pass
7 tíglar
pass
Norður
2 tíglar
dobl
Austur
5 tíglar
pass
Suður
pass
pass
Feldesman (vestur) hélt að
hann væri að dreyma, þegar
hann heyrði fyrstu sagnumferð-
ina og dreymandi sagði hann
7 tígla. Suður tók sér góðan
u.mhugsunartima áður en hann
lét út. Síðan spilaði hann út
eina spili.nu., sem gat gefið al-
slemmuna — spaðagosanum.
Sagnhafi drap heima og tók
nokkrum si.nnum trcmp, sv.ona
til þess að íu.llvissa sig um, að
hann og félagi hans hefðu átt
13 tromp í upphafi. Síðan tók
hann spaðaásinn og spaðasvín-
inguna. Laufam'an fór niður í
spaðadrottninguna og spilið var
u.nni.ð. A-v fengu 1630, sem var
náttúrlega toppskorin á þá línu.
Öryggismá! sjémcnna
Framhald af 4. síðu.
mannaskólans MEIRA en um-
hugsunarefni. Brjóstviti manna
ber ég virðingu fyrir og eðlis-
lægir hæfileikar í ákveðnar átt-
ir geta verið stórkostlega hríf-
andi. En slíkar guðsgjafir ættu
vissulega að fullkomnast við
raunhæfa, vísindalega þekkingu,
og er ég skipaskoðunarstjóra
fyllilega sammála um allt það,
er hann segir í sambandi við
áhrif þekkingar skipstjórnar-
manna til eflingar meðfæddum
hæfileikum þeirra.
Hér skal nú látið staðar num-
ið. Mér þykir að sumu leyti
heldur fyrir því að vera e. t. v.
að hrella jafn ágætan mann.og
skipaskoðunarstjóra nú í há-
sumarblíðunni með athuga-
semdum mínum að nokkru
varðandi virðulegt embætti
hans. En það er nú oft þannig,
að hafi manni á annað borð
orðið það á að segja A, verður
maður einnig að segja B — og
stundum meira. Ég bið hann
án tilefnis að líta nú sem í
fyrra skiptið á hugleiðingar
mínar um þessi mál sem vilja
til þátttöku í vekjandi umræð-
um og gagnlegum aðgerðum til
úrbóta. Þetta slysavarnamál
laðar ekki til hlédrægni. En
þótt það sé rætt hér allmjög í
spurnarformi, ætlast ég engan
veginn til mín vegna, að skipa-
skoðunarstjóri svari þeim frek-
ar en honum sjálfum sýnist,
enda sumum spurninganna alls
ekki sérstaklega beint til hans.
Hi.tt er aðalatriði þessa máls,
að GERT SÉ það, sem GERA
ÞARF, og vil ég treysta honum
til þess að eiga þar góðan hlut
í æskilegri lausn mála. Til þess
ihefur hann bæði þekkingu og
valda-aðstöðu. Góðvilja hans
efast ég ekki um.
Reykjavík, 12. júlí 1962.
Baldvin Þ. Kristjánsson.
Mk'ic'
KHflKI
M
110)
— ÞJÖÐVILJTNN — Miðvikudagur 18. júlí 1962