Þjóðviljinn - 23.09.1962, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 23.09.1962, Blaðsíða 1
Alþýðublaðið í vandræðum Ákallar LÍÚ um hjálp í gerðardómsmálinu TRÉSMI6IR KJÓSAÁ NNG ASf f DAG Kosning fulltrúa Trésmiða- félags Reykjavíkur á Al- þýðusambandsþing heldur á- fram i dag í skrifstofu fé- i lagsins að Laufásvegi 8. Kos- i ið er frá kl. 10—12 f.h. og kl. 1—10. eh A-listi borinn fram af stjórn og trúnaðarmannaráði félagsins, er skipaður þess- Um mönnum: Aðalfulltrúar: Jón Snorri Þorleifsson Sturla II. Sæmundsson Benedikt Davíðsson J Ásbjarn Pálsson Lórens R. Kristvinsson Hallvarður Guðlaugsson. (i Varafulltrúar. f Guðm. H. Sigmundsson Jörgen Berndsen (( Marvin Hallmundsson é Helgi Þorkelsson f Kristján B. Eiríksson Kristján Guðmundsson 5 i TRÉSMIÐIR! Fylkið ykkur um lista stjórnar og trúnað- I armannaráðs, A-Iistann, og sýnið með því samstöðu ykkar í um hagsmunamál félagsins. J A-listinn hefur kosninga- J skrifstofu í Aðalstræti 12, f sími 19240. Alþýðublaðið birtir í gær furðulegan ramnia- uppslátt á forsíðu og ber hann fyrirsögnina „LÍÚ neitar Alþýðublaðinu um upplýsingar“. Tilefni þessarar „neitunar“ LÍÚ er það, að Alþýðublaðið fór fram á upplýsingar „frá fyrstu hendi“ til að túlka skilning LÍÚ á gerðardómslögunum! — En ekki virðist hafa hvarflað að blaðinu að fá upp- lýsingar frá fyrstu hendi um túlkun Alþýðusam- bandsins á lögunum, — ekki einu sinni Sjómanna- sambandsins! Ekki birtir blaðið held- ur yfirlýsingu þá, sem Alþýðusambandið sendi út í gær af þessu tileíni. Sýnir fréttin betur hina algeru undirgefni þess við LÍÚ-valdið. Alþýðuflokksforingjarnir eru orðnir alvarlega hræddir um í- tök sín í sjómannasamtökunum,- vegna algerrar þjónustusemi Emils Jónssonar, gerðardóms- ráðherra, við LÍÚ-valdið og FormaSur Alþýðuflokksins — Lét lækka ltjör sjómanna, af því að málið var „fyrst og fremst klúður vegna fádæma málsmeð- ferðar af hálfu útvegsmanna“. (Alþbl. í gær). aumlegrar frammistöðu Jóns Sigurðssonar, formanns Sjó- mannasambandsins, sem lagði blessun sína yfir gerðardóminn með því að taka þátt í störfum hans. Nú á að reyna að breiða yfir þetta samspil með því að segja, að LÍÚ neiti Alþýðublaðinu „um upplýsingar" og framkvæmda- stjóri LÍÚ látinn vitna um það, að „Aiþýðublaðið hafi ekki ver- ið svo vinveitt útgerðarmönnum í málinu“! En þá tekst ekki bet- ur til en svo, að Alþýðublaðið er auðmjúklegast að fara þess á leit við framkvæmdastjórann að fá að túlka málstað LÍÚ. En það hvarflar ekki að því að reyna að túlka málstað sjó- manna, heldur tekur það ein- dregna afstöðu gegn þeim, eins og Þjóðviljinn efur áður skýrt frá. Til að lækka sjómanna- kjörin, — ekki til að bjarga síldveiðunum Sjónarspil eins og það, sem Al. þýðublaðið er nú að leika blekkir að sjálfsögðu engan. Það segist vera méð gerðardómslög- unum, en á móti gerðardómn- um. Emil Jónsson gaf út gerð- dómslög sín eftir beinni Framhald á 12. síðu. Frá fornleifagreftri í Grænlandi 'í elzta lagi Þjódhildarkirkjugarðs lá meðal annars rumur einn, 190 sm á lengd, og nefndu grafmenn hann Magnús, þ.e. hinn mikla. Því miður lá enginn silfurskjöldur á brjósti lians með nafninu Leifur Eiríksson. Beinagrindurnar eru margar mjög illa farnar enda oðnar um 900 ára eða eldri. Við Ihliðina á Magn- úsi liggur náungi, sem hefur nær ^algjörlega runnið saman við jarðveginn. (Ljósm. Björn Þorsteinsson). Sjá grein á opnu Uppreisnarmenn í Buenos Aires i 1 J i . ■ i 1 i BUENOS AIRES 22 9. I nótt héldu skriðdrckasveitir argen- tínsku uppreisnarmannanna inn i Buenos Aires og settust um stjórnarbygginguna en Guido forseti flúði þaðan til bústaðar síns í útborginni OIvios. Flot- inn scm hingað til hefur haldið tryggö við fcrsetann neitar nú að styðja hann lengur. Flotamálaráðuneytið tilkýnnti í dag að Guido hefði sagt a£ sér en sú fullyrðing hefur verið borin til baka af stuðnings- mönnum forsetans. Flotamála- ráðuneytið hefur nú beðizt lausn- ar og segir í yfirlýsingu bess að Guido forseti beri ábyrgðina á ringulreiðinni í íandinu. Jafn- i'ramt var tilkynnt að tveir aí foringjum uppreisnarmknna hafi þegið boð í'áðuneytisins um að korna saman ti! fundar til að endurskipa stjórnina. Hinsvegar mún Ongania aðalforystumaður uppreisnarmanna hafa neitað að taka þátt í stjórnármyndun flota- málaráðuneytisms. Guido forseti hefur vikiö mörg- um æðstu yfirmönnum hersins úr stöðurn sínum, þar á meðal landvarnaráðherranum. Er tal- ið, að þar með hafi aðstaðá forsetans enn versnað. Hann hefur látið undan 'meginkröfu upprei-snarmanna og jafnframt misst traust þess hluta hersins sem stutt hafði hann fram að því. Allar líkur benda til þess að Guido og stjórn hans verði nú að hrökklast frá völdum. enda hafa þrír ráðherrar þegar sagt af sér. STOKKHÓLMI 22 9. Einn Sví- anna níu sem komust 1 ifs af ei' flugvél þeirra var skotin nið- ur í Katanga, var hættulega særð- ur. Maður þessi lézt i gær á sjúkrahúsinu í Kabalo.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.