Þjóðviljinn - 23.09.1962, Side 9
Eg skal
verða
góður meistari
er að aðaláhugamál Listons séu
slagsmál og þjófnaður. Og svo
mikið er víst, að fyrsta meist-
aratitilinn í hnefaleikum vann
hann í fangelsi er hann var að
taka út hegningu. Átján ára
gamall var hann ákærður fyrir
þjófnað og rán og fékk fyrir
það 5 ára fangelsisvist í ríkis-
fangeí'sinu í Missouri, „og þar
fékk ég í fyrsta sinn almenni-
legan mat,“ sagði hann alvar-
legur í blaðaviðtali.
Fangelsispresturinn reyndi að
kenna honum að lesa og skrifa,
en það mistókst. Liston hafði
ekki gaman af neinu nema
æfa hnefaleik og það fékk hann.
Svo fór þó að hann fór að
hugsa alvarlega um framtíð
sína og lífið, og kom hann sér
svo vel í fangelsinu að hann
var látinn laus eftir tvö ár.
Þegar hann kom út lagði
hann stund 'á hnefateika og
gerðist atvinnumaður í þeirri
íþrótt. Hann tók saman við
mann, sem hafði fengið dóma
26 sinnum, sem þjálfara og
leiðsögumann.
Hallaðist nú heldur á ógæfu-
hliðina fyrir Liston og 1956
fékk hann 9 mánaða dóm fyrir
árás á Jögreglumann. Eftir þá
innisetu byrjaði hann fyrir al-
vöru að laga framkomu sína
og helga sig hnefaleikunum.
Hann gerðist sigursæll og vann
hvern leikinn af öðrum svo að
menn urðu smeykir við hann
og vildu ekki berjast við hann.
Áður en þetta skeði lenti hann
aftur í hópi glæpamanna, sem
vafaiaust hafa ætlað að nota
sér Liston. Þessir herrar sitja
nú í fangelsi og eiga eftir að
dúsa þar lengi, enda var einn
þeirra nefndur „Keisari undir-
heimanna”.
Við yfirheyrslur í málum
þessum sagði Liston, að hann
hefði ekki haft hugmynd um
framferði manna þessara, hann
hefði ekki kunnað að lesa. Gegn
því að gefa fyrirheit um það
að „vera nú góður” í framtíð-
inni var honum sleppt.
í júní í fyrra var hann samt
ákærður, en hann meðgekk ekk-
ert og var sleppt.
Og nú stendur hann við það
takmark sem hefur verið
draumur hans í mörg ár að fá
að berjast um heimsmeistara-
titilinn í hnefaleikum, og hann
er ekki í vafa um það hver
verður meistarinn.
Flúði að heiman
Því má bæta hér við að List-
on er einn af 25 systkinum,
fæddur í maí 1932. Faðir hans
vann eins og þræll á bómullar-
ekrum og var mjög strangur
við börn sín. Þennan aga hefur
Liston ekki þolað og þegar hann
var 13 ára strauk hann að
heiman af ótta við refsingar
föður síns. Hann ílentist í mið-
ur góðu hverfi í St. Louis og
óx þar upp, varð mikill vexti
og sterkur, og allir voru hrædd-
ir við hann sem ekki voru vin-
ir hans. Þetta hefur ekki verið
góður undirbúningur undir
framtíð hans og þess vegna hef-
ur hann ekki haft gott orð á
sér sem borgari.
Slæ Patterson út í
fjórðu lotu
Fréttamaður frá sænska í-
þrótlablaðinu hefur nýlega átt
viðtal við Liston og er að
uokkru stuðzt við þá grein og
viðtal í því sem að framan
greinir, en sjálft samtalið milli
Listons og blaðamannsins var
á þessa leið:
Spumingunni um þaA hvern-
ig leikurinn mundi fara svarar
Sonny:
— Auðvitað vinn ég! Getið
þér virkilega látið yður detta
annað í hug?
Hann beið ekki eftir svari,
en hélt áfram: Víst er Patter-
son góður hnefaleikari. Yfir-
leitt mjög góður hnefaleika-
maður. En ég er betri! Ég er
beztur í heiminum!
Allt í lagi, Sonny, þú slærð
Floyd út og verður heimsmeist-
ari, og hvað skeður svo?
Þá mæti ég hverjum sem er.
Ég vinn alla!
Líka Ingimar Johannsson?
Jájá, og í sannleika sagt vildi
ég helzt mæta Ingimar, þegar
ég hef slegið Pattérson út. Og
mér væri meir en sama þó það
yrði í Svíþjóð, aðeins ef ég fæ
það vel borgað.
Þegar við förum aftur að
tala um leikinn við Floyd. bað-
ar Sonny út höndunum og seg-
ir: Það eina sem þarf er dómari
sem getur talið upp að 10.
Þú vilt nota sérstaka hanzka,
sem þeir Floyd-menn ekki vilja
samþykkja, hvað segir þú um
það?
Mig varðar ekkert um það
Framhaid á 10. síðu.
Sonny Liston er 212 pund að
þyngd en Patterson „aðeins” 190,
svo Liston ætti að hafa þar
nokkurt „forskot”. Aðalkostir
Pattersons þegar til orustunnar
kemur eru taldir, að hann hafi
betri fótahreyfingar, og að hann
hefur keppt í lægri flokkum og
keppt lengur en Liston. Liston
er talinn hafa hægari hreyf-
ingar en högg hans eru snögg
og þung.
íþróttaritstjóri New .York
Times dáðist að höggkrafti List-
ons. Annars er stíll hans hinn
venjulegi nokkuð uppreistur
með vinstri hönd og fót fram.
Stíll Pattersons er nokkuð
annar, og hann hefur sinn eig-
in stíl þar sem hann er með
báða fætur jafnframarlega, með
skrokkinn beygðan fram og hef-
ur andlit sitt bak beggja hanzk-
anna. Þannig er hann talinn
betur undir sókn búinn með
hvorri hendinni sem er.
Drengjameistaramót íslands
1962 fór fram á Akureyri dag-
ana 1.—2. september. Þátttaka
varð góð á mörgum greinum
og árangur sömuleiðis. Mesti
afreksmaður mótsins var Kjart-
an Guðjónsson, KR, sem sigr-
aði í fimm greinum og varð
annar í þeirri sjöttu.
100 metra hlaup:
Þátttakendur voru 16. ís-
landsmeistari varð Skafti Þor-
grímsson, ÍR.
Skafti Þorgrímsson, ÍR 11,6
Höskusdur Þrásnss., HSÞ 11,7
Skúli Sigfússon, ÍR, 11,8
200 metra grindahlaup:
Þátttakendur voru 5. íslands-
meistari varð Kjartan Guð-
jónsson, KR.
Kjartan Guðjónsson, KR 27,1
Skúli Sigfússon, ÍR 29,5
Rcynir Hjartarson, ÍBA, 29,7
800 metra lilaup:
Þátttakendur voru 4. íslands-
meistari varð Ingimundur Ingi-
mundarson, HSS.
Ingim. Ingimimdarson, 2.20.6
Einar Haraldsson, ÍBA 2.21.7
Baldvin Kristjánsson 2.21.9
Hástökk:
Þátttakendur voru 14. ís-
landsmeistari varð Sigurður
Ingólfsson, Á.
Sig. Ingólfsson, Á. 1.70
Sólb. Jóliannesson, UMSE 1,65
Jón Iijartansson, Á. 1.65
Kúluvarp:
Á þriðjudaginn kemur fer
fram hnefaleikakeppni í Banda-
ríkjunum sem vekur mikla at-
hygli, en það er viðureign þeirra
Floyd Pattersons og Sonny List-
ons, en sem kunnugt er þá er
það Patterson sem á að verja
titilinn í þungavigt.
Um keppni þessa er mikið
rætt og ritað í blöðurn, og víst
er það að keppni í þungavigt í
hnefaleikum atvinnumanna
vekur athvgli um allan heim
þar sem íþróttir eru stundaðar,
og þá sérstaklega hnefaleikar.
Þeir hafa nú báðir hætt hin-
um hörðu æfingum sínum fyrir
nokkrum dögum og hafa þeir
tilkynnt að þeir séu í góðri
þjálfun, og ýmsir halda því
fram að þetta verði „allra tíma”
bezti Jeikur. Aðrir eru ekki
þeirrar skoðunar og telja að
það sé auglýsingaforellan gamla
sem fylgir öllum slíkum leikj-
um.
Þátttakendur voru 10. ís-
landsme'stari varð Kjartan
Guðjónsson, KR
Kjartan Guðjónsson, KR, 16.18
Guðm. Guðmundsson, 13,75
Þorv. Benediktsson, 13,37
Framhald á 10. síðu.
Verðlaunaafliending í spjótkasti: Ingi Árnason, iBA, er varð
annar, sigurvegarinn Kjartan Guðjónsson, KR og Gestur Þor-
steinsson, UMSS. — (Ljósm. Þjóðv.).
vonda og góða
í sumum blöðum hefur mátt
sjá leik þennan nefndan leik-
inn milli þess „vonda og þess
góða”. Þetta ber að skilja á
þann hátt að Patterson er tal-
inn sérlega drengilegur maður
í allri framkomu sinni og vin-
sæll sem góður borgari.
Það verður ekki sagt um List-
on sem hefur 19 sinnum lent i
höndum lögreglunnar, en sagt
Leikur milli hins
Drengjameist -
aramót íslands
j«
Sunnudagur 23. september 1962 — ÞJÓÐVILJINN — (Q