Þjóðviljinn - 14.10.1962, Page 12
Menn voru spenntir og há-
tíðlegir í Háskólabiói á föstu-
daginn. Það var ekki nema
eðlilegt: þeir voru komnir til
að vera viðstaddir frumsýn-
ingu íslenzkrar kvikmyndar.
Hvernig hafði þessi fyrsta al-
varlega tilraun til að gera
slíka kvikmynd tekizt?
Guðlaugur Rósinkranz flutti
ávarp. Hann þakkaði öllum
sem hlut áttu að máli, en
hann talaði mikið um fjár-
mál og bankamál þar eð
myndin þyrfti að borga sig.
Það er vafasamt að þetta hafi
haft skeínmtileg áhrif á sýn-
ingargesti, einhvernveginn er
það óviðfeldið að menning og
víxlar,skuli tengd svo traust-
um bÖndum.
Svo/hófst sýningin.
Skáffisaga Indriða G. Þor-
steinssonar var mjög vinsæl,
við lásUm hfima víst öll.
Kannske var j'sÉð vegna þess
að aðalsöguhetjurnar þau
Ragnqr bílstjóri og Guðríður
Faxeri'' éru bÖrn þrátt fyrir
allt — oft "‘-hátíðleg böm,
einkum þó í ástinni eins og
við íslendingar erum Víst
gjamsto, en sem sagt börn,
tiltölulega vamarlaus gagn-
vart þvl umhverfi sem hefur
allt í einu risið í kring um
þau án þess að þau eigi þar
nokkum hlut að máli. Og
hvað var líklegra til að vekja
samúðarfullan áhuga en ein-
mitt þetta barnlega ráðleysi,
vamarleysi? í bókinni tókst
höfundi að skapa andrúms-
loft, það var í henni spenna
og kraftur sem studdist við
andstæður milli hins hreina
og upprunalega og hins
spillta og falska: ást Ragnars,
vinátta þeirra Guðmundar og
svo landið á bak við okkur,
Skagfirðingurinn í sálinni.
Hinsvegar: borgin, köld, vor-
laus, fjandsamleg og svo auð-
vitað amríkanar, Völlurinn. í
þessari bók var mikið af
trega hins góða sveitamanns.
Hefur höfundum kvikmynd-
arinnar tekizt að varðveita
þessa eiginleika bókarinnar?
Fyrri hluti myndarinnar er
' betri en sá síðari. Þar koma
þessar andstæður sem áður
greinir frá allvel fram; ýmis-
legt er þar vel gert, vel til
fundið. This is T.F.K. —
Keflavíkurútvarpið fylgir
söguhetjunum lævíslega við
hvert fótmál, blandar sér inn
í samræður vina og elskenda.
Myndavélin sýnir glögg-
skyggni þegar hún horfir á
eftir bifreið Ragnars sem
hverfur inn í miskunnarlaus-
an gaddavír Keflavíkurflug-
vallar. Það var líka gott að
fá fyllikallana (Bessa Bjarna-
son og Plosa Ólafsson) —
þeir eru gott dæmi um það
sem sveitadrengur og hesta-
vinur hlýtur að hafa fyrir
augum þegar hann ekur um
hinn nýja vettvang sinn, —
enda andvarpar hann dapur-
lega. Hisvegar er svo hlýlegt
tal tveggja vina, mikill og
góður fögnuður þegar Gógó
fagnar Ragnari með glað-
værð, eldhússvuntu, kaffi og
pönnukökum rétt eins og þau
væru alltaf tvö ein í heim-
inum og við íslendingar einir
á okkar landi.
En í síðari hlutanum tekst
höfundum myndarinnar síður
upp. Það er að vísu talað mik-
ið um þann Skagafjörð þar
sem við eigum í raun og
veru öll heima. En nú hefur
góðum hugmyndum- fækkað
hjá leikstjóra, það er of lengi
og fjörlaust spilað á sama
strenginn og tilfinningasemin
felur sig á bak við næsta
stein. í þessu andrúmslofti
koma gallamir betur í Ijós.
Myndin er of dauf, lang-
dregin. Gott dæmi eru hinar
löngu bílferðir með miklu af
íslenzku landslagi. Ög löng-
um þögnum sem nokkur bros
eða alvarleg augnatillit
megna ekki að lifga upp. Við
sögðum mikið af landslagi —
vissulega á landið að taka
þátt f myndinni, en höfundi
hefur ekki tekizt að fella það
inn í myndina á sannfærandi
hátt; stundum finnst manni
það sé einfaldlega verið að
sýna útlendingum ísland svo
þeir láti til leiðast að skreppa
hingað upp. Kvikmyndavélin
er of hreyfingarlítil og skeyt-
ingin fjörlítil — það vantar
myndrænan hraða, spennu.
Kannske þurfti að stytta
myndina um svo sem kortér?
Og einhvern veginn vantar
þann sannfærandi sameining-
arkraft sem einn getur tryggt
bókmenntaverki verðuga túlk-
tm á tjaldinu.
Margt af þessum göllum
skrifum við á reikning leik-
stjórnar og handrits. Hinsveg-
ar verðum við auðvitað einn-
ig að taka tillit til reynslu-
skorts margra aðstandenda
myndarinnar. Og það er aug-
Ijóst að margir gallar hennar
eiga rætur sínar að rekja til
þess sparnaðar sem menn
voru bersýnilega neyddir til
að viðhafa: Það hefur senni-
lega ekki verið hægt að taka
upp aftur ýmislegt sem betur
mátti fara. Myndin var gerð
á afskaplega skömmum tíma.
En leikendur stóðu sig vel.
Sérkennilegt, svipbrigðaríkt
andlit Kristbjargar Kjeld
nýtur sín vel á tjaldinu; leik-
stjórnin leggur á hana marg-
ar raunir eins og til dæmis
hinar 'löngu, einhliða ástar-
senur, — en hún sleppur heil
úr þeim leik. Gunnar Éyjólfs-
son gerir líka margt gott.
Bæði túlka þau vel umkomu-
leysi okkar. En jafnbeztur er
líklega Róbert Arnfinnsson.
Og enginn þarf að kvarta
yfir smærri hlutverkum, öðru
nær. Þessir leikarar eiga skil-
inn betri díalog, betri aðstæð-
ur. Brynjólfur Jóhannesson
talaði í ávarpi sínu um það,
að nú stígur íslenzk leiklist
sín fyrstu spor á nýjum vett-
vangi, og máske er þessi
staðreynd jákvæðasta fram-
lag þessarar myndar til
menningarlífs okkar.
Og þá eru íslendingar sem
sagt teknir til við kvik-
myndagerð. Fyrsta íslenzka
kvikmyndin hefur verið gerð
sem ekki er stikkfrí fyrir
gagnrýni. Það er gott og á-
nægjulegt. Og við skulum sjá
myndina, deila um hana. Við
þurfum að safna reynslu á
þessu sviði, ala upp fólk, búa
okkur rækilega undir næstu
spor. Árni Bergmann.
Á sviðl Háskólabíós að lokinni frumsýningu í fyrrakvöld. Þarna sjást flestir leikenda, ásamt
höfundi skáldsögunnar. Frá vinstri: Róbert Arnfinnsson, Nína Sveinsdóttir, Kristbjörg Kjeld,
Herdís Þorvaldsdóttir, Haraldur Björnsson, FIosi Ólafsson. Lengst til hægri er Indriöi G. Þor-
steinsson og skyggir hann á leikarana Baldvin Halldórsson og Klemenz Jónss. (Ljm. Þjv. A.K.)
Þama eru þeir þrír saman sem mcstan þátt áttu í gerð
kvikmyndarinnar „79 af stöðinni”: Guðlaugur Rósinkranz höf-
undur tökurits, Indriði G. Þorsteinsson höfundur sögunnar og
Erik Balling leikstjóri.
Seldar 220.000 t n. af frystri síld
hér sé um að ræða stórauknar ^
síldarsölur á markaði sem þýð-
ingarmikið er að íslendingar
haldi
Komust niður
SÖLUMIÐSTÖÐ hraðfrysti-
húsanna hefur gengið frá sölu-
samningum á 20.000 tonnum af
hraðfrystri síld, en það samsvar-
ar að magni til um 220.000 tunn-
um af síld. Um er að ræða sölu
á bæði stórsíld og smásíld auk
verulegs magns af hraðfrystum
síldarflökum.
DEIL0ÆFUNDIR
■ff Deildafundir (aðalfundir) á
-jf mánudagskvöld. Áríðandi
-&• mál á dagskrá.
Sósíalistafélag Reykjavíkur.
AF ÞESSU MAGNI fara 8,700
tonn til Austur-Evrópu og 9,600
tonn til Vestur-Evrópu auk 1.900
tonna af frystum síldarflökum. í
fréttatilkynningu Sölumiðstöðv-
arinnar er ekki getið nánar um
lönd þau, sem samið hefur verið
við.
SH VINNUR að frekari sölum
á frystri síld og eru allgóðar
horfur á að takast megi að selja
enn meira magn.
í TILKYNNINGUNNI er það
tekið fram að afar áríðandi sé
að uppfyllt verði ákvæði um
afgreiðslu fyrir áramót, þar sem
MEÐAN síldarútvegsnefnd
þumbast við að selja Svíum úr-
kastssíldina á Siglufirði hefur
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
gert samninga um sölu á miklu
magni af hraðfrystri síld til
landa Austur- og Vcstur-Evrópu.
Að magni til samsvarar það því
að síldarútvegsnefnd hefði selt
220.000 tunnur af saltsíld. Búast
iná við meiri tíðindum frá SII
á næstunni.
á Skaga
AKRANESI 13/: yt-
ið í gær komu 3 gu-
görpunum, sem g leið
hingað niður á Skaga. peir voru
mjög slappir að sjá og einn
draghaltur. Hinir tveir, sem gáf-
ust upp voru komnir hingað áð-
ur og voru á Hótel Akranes.
—GMJ.
Sunnudagur 14. október 1962 — 27. árgangur — 223. tölublað
Fyrsta bankaútíbúio
opnað # Vesturbæ
• Búnaðarbanki íslands
varð fyrstur banka til að
opna útibú í Vesturbæn-
um. Bankaútibúið er að
Vesturgötu 52 og tók til
starfa í gær.
Þetta’er þriðja útibúið, sem
Búnaðarbankinn setur á fót hér
í Reykjavík: Austurbæjarútibú-
ið var opnað fyrir allmörgum
árum að Laugavegi 114, en
skemmra er síðan miðbæjarúti-
búið tók til starfa að Lauga-
vegi 3. í ráði er svo að opna
síðar útibú í bændahöllinni við
Hagatorg.
Starfsmenn í vesturbæjarúti-
búi verða fyrst um sinn tveir:
Helga Kristinsdóttir fulltrúi og
SKAR SSG A
SLAGÆMRNAR
Ungur maður gerði tilraun til
sjálfsmorðs vestur í bæ í gær.
Lögreglan var kvödd á vettvang
og kom í Ijós að maðurinn liafði
skorið sig á púlsinn og var hann
fluttur á Slysavarðstofuna.
Þetta gerðist á heimili móður
piltsins, og reyndist hann vera
undir áhrifum einhverja lyfja,
sennilega stórs skammts af
svefnlyfjum.
Böðvar Magnússon gjaldkeri.
Magnús Jónsson bankastjóri
sagði, er hann sýndi blaða-
mönnum bankaútibúið í gær, að
það ætti að geta bætt þjónustu
bankans við viðskiptavini sína
og létt af aðalbankanum, en
starfssemi hans stóreykst með
ári hverju.
Hefja séknina
kL 9 árdegis
Neytendasamtökin eru að hefja
sókn til öflunar nýrra meðlima
og sú sókn hefst kl. 9 árdegis
í dag. Verða nýir félagar skráð-
ir í símum 19722, 15659 og 36042.
Árgjaldið er kr. 45 og innifalið
í því Neytendablaðið, sem nú
kemur út í stærra broti en áöur
og fjölbreyttara að efni, einnig
eiga félagar rétt til lögfræðilegra
upplýsinga og aðstoðar vegna
kaupa á vörum og þjónustu.
KR sigraði
KR sigraði Akureyri i undan-
úrslitum bikarkeppninnar á
Melavellinum í gær með 3:0.
KR-ingar skoruðu öll mörkin
snemma í fyrri hálfleik. Leikur-
inn var tilþrifalítill af beggja
hálfu. •
Ckkert samkomuiag
am mlámmwS3
Enn stendur á því, að verð-
lagsráð sjávarafurða hafi ákveð-
Dagsbrún
Framhald af 1. síðu.
Akureyrarkaupstaðar, Hlíf í
Hafnarfirði o. f 1.).
Þá minnti Guðmundur J. á að
tveimur dögum fyrir kosningar
til Alþýðusambandsþings hefði
einn ráðherra ríkisstjórnarinnar
lýst yfir að hægt væri að hækka
kaup Dagsbrúnarmanna. Nú
fengi hann brátt að standa við
þá yfirlýsingu í verki.
Allir sem til máls tóku lýstu
þeirri skoðun sinni að Dags-
brúnarmenn yrðu að segja upp
samningum. En verkfallsbrjót-
urinn Jóhann Sigurðsson hældist
jafnframt yfir því að Dagsbrún
færi halloka fyrir rikisstjórn-
inni: ríkisstjórnin væri mikil-
virkari í því að ræna kaupinu
aftur en Dagsbrún að hækka
það, og sýndi þetta hve Dags-
brúnarstjórnin væri léleg en rík-
isstjórnin góð! Auk þess stóö
hann fjórum sinnum upp til að
endurtaka sömu Moggalýgina
um Alþýðusambandið — þótt
allir vissu að mannherfan var
að ljúga.
Sigurður Guðnason gat loks
ekki orða bundizt heldur mælti
nokkur orð til fundarins, á þessa
leið:
Mikið lán er það fyrir Dags-
brún að hafa ekki haft í sínum
hópi ráðandi menn eins og Jó-
hann Sigurðsson. Dagsbrún hef-
ur alltaf brotið ísinn í kjarabar-
áttunni, þrátt fyrir skepnuslcap
og lygar Jóhanns Sigurðssonar,
sem er viðurkenndur andlegur
sóði. Dagsbrún mun halda virð-
ingu sinni þótt svona menn
komi inn í félagið, og það verð-
ur enn stolt Dagsbrúnar að
brjóta ísinn, að vera sóknarsveit
islenzkra verkalýðssamtaka.
ið verð á haustsíldinni, enda
þóít ætlazt sé til að verðákvörð-
un liggi fyrir áður en haustsíld-
arvertíð er talin hefjast, eða 1.
október.
Mun ekkert samkomulag hafa
náðst enn £ verðlagsráði um
haustverðið, og verður næsti
fundur ekki fyrr en á morgun,
mánudag.
Ekki hefur verið boðaður
fundur samninganefnda sjó-
manna og útgerðarmanna um
helgina, en málið er nú í hönd-
um sáttasemjara.
l§38Sðl I bálf-
reistri HalS-
grímskirkju
/ í dag klukkan ellefu f.h.
J fer í fyrsta sinn fram guðs-
I þjónusta i kirkjuskipi Hall-
t grímskirkju sem er að rísa
/ á Skólavörðuholti, innan múr-
J anna sem risnir eru.
« 1 sumar hefur verið unnið
L við kirkjubygginguna og er
/ búið að sprengja og grafa
I fyrir leiðslum hitakerfis í
í alla kirkjuna. steypa undir-
t stöður súlna og steypa undir.
/ gólf Næsti áfangi er að gera /
1 undirstöðu forkirkju sem J
t verður innsti hluti turn- ^
4 byggingarinnar Búið er að í
steypa veggi upp móts við /
efri brún glugga. >
Innan þessara múra fer \
fram guðsþjónustan sem átti i
að vera klukkan 11 í dag i ■'
hinum fullgerða hluta kirki-
unnar Séra Jakob .Tónsso"
prédikar en sungnir verðr
sálmar eftir Hallgrim Péturs
son.