Þjóðviljinn - 26.10.1962, Side 1
Sovétríkin hvetja Indverja
\
og Kínverja tíl samninga
Sjá síðu 0
Misjofnor undirtektir við mólamiðlun Ú Þants:
Sovétríkin fús til að hætta vopnasendingum,
Bandaríkin eru ófús að aflétta hafnbanninu
* Almennur borgara-
fundur um Kúbu
verður í Háskólabíói
kl. 14 n.k. sunnudag.
* Á fundinum mun
Magnús Kjartansson,
ritstjóri Þjóðviljans,
flytja erindi um bylt-
inguna á Kúbu, en
hann dvaldist þar
fimm vikur í sumar.
* Þá verður sýnd á
fundinum ný litmynd
um byltinguna á
Kúbu, frábær mynd
gerð af hinum heims-
kunna sovézka kvik-
myndastjóra Karmen.
* Sósíalistafélag
Reykjavíkur boðar til
fundarins, en aðgang-
ur er ókeypis og öllum
heimill.
öllum ber saman um, að æska landsins stendur einhuga að baki byltingarinnar á Kúbu. Myndin
er tekin af fagnandi mannfjölda í Havana.
Hleyptu þó sovézku skipi
tí/ Kúbu án leitur í því
MOSKVU og NEW YORK 25/10. Tilmæli Ú Þants,
framkvæmdastjóra SÞ, til stjórna Sovétríkjanna
og Bandaríkjanna, um að gera ráðstafanir til að
forðast árekstra sem gætu leitt til heimsstyrjald-
ar hafa fengið misjafnar undirtektir:
• Krústjoff, forsætisráðherra Sovétríkjanna, lýsti
sig strax reiðubúinn til að stöðva vopnasending-
ar til Kúbu, meðan reynt væri að miðla málum, en
• Kennedy, forseti Bandaríkjanna, hefur reynzt
ófús til að aflétta hafnbanninu í tvær-þrjár vik-
ur, eins og Ú Þant hafði farið fram á.
Svar Krústjoffs við tilmælum
tJ Þants barst til aðalstöðva SÞ
í N.Y. skömmu áður en öryggis-
ráðið kom aftur saman á fund kl.
20 í kvöld eftir xslenzkum tíma.
Fundur þess í gær stóð langt
fram á nótt og það' var þá sem
Ú Þánt skýrði frá orðsendingum
sínum til leiðtoga Sovétríkjanna
og Bandaríkjanna.
Krústjoff tók vel í tilmæli
framkvæmdastjórans, en þau
hafði hann sent að beiðni 45
hlutlausra ríkja í SÞ, og sagði
að sovétstjómin væri fús til að
hætta öllum vopnasendingum til
Kúbu, ef Bandaríkin afléttu
haínbanni sínu. Sovétstjómin á-
litur Kúbudeiluna stórhættulega,
segir Krústjoff, og Sameinuðu
þjóðimar verða þegar að skerast
í leikinn.
Kennedy ófús að
slaka nokkuð til
Stevenson, fulltrúi Bandarikj-
anna hjá SÞ, tilkynnti öryggis-
ráðinu svar Kennedys þegar
það kom saman. Kennedy minn-
ist í svari sínu ekki orði á þá
tillögu Ú Þants að Bandaríkin
aflétti hafnbanni sínu ' á Kúbu
í tvær-þrjár vikur, meðan reynt
verður að finna lausn á deil-
unni, en segir aðeins að eina
lausn deilunnar felist í því að
lagðar verði niður þíier flug-
stöðvar, sem Bandaríkjastjóm
salcar Sövétríkin um að hafa
komið upp á Kúbu. Kennedy
segist hins vegar vera fús til að
hefja undirbúningsviðræður við
Ú Þant um málið.
Skömmu eftir að svar Kenne-
dys hafði verið kunngert, sögðu
embættismenn Bandaríkjastjóm-
ar að hafnbanninu á Kúbu
myndi haldið áfram.
Ekki leitað í sovézku
skipi á leið til Kúbu
Hins vegar hefur Bandaríkja-
stjóm þegar heykzt á að fram-
kvæma þá hótun sína að stöðva
hvert skip sem er á leið til
Kúbu og gera í því leit. Sovézkt
olíuskip á leið þangað fékk í
gær að fara leiðar sinnar án
þess að leit væri gerð í því, eins
og segir frá á 3. síðu.
Hernámsliðið brott
án tafar!
Þingflokkur Alþýðubandalagsins ákvað í gær
að leggja fyrir Alþingi tillögu til þingsályktun-
ar um tafarlausan brottflutning Bandaríkja-
hers af landinu vegna þess ástands, sem skap-
azt hefur á sviði alþjóðamála undanfarna
daga. Alfreð Gíslason og Einar Olgeirsson
munu flytja þessa tillögu fyrir hönd þingflokks-
ins, og fer hún hér á eftir:
„Með sérstöku tilliti til þess ískyggilega á-
stands, sem skapast hefir í heimsmálum, síð-
an Bandaríkin hófu hernaðaraðgerðir á Kar-
ibahafi og með tilliti til þess, að þær aðgerðir
geta áður en varir leitt til þess, að Bandaríkin
lendi í stórveldastyrjöld, telur Alþingi hersetu
Bandaríkjamanna á íslandi orðna svo hæt'tu-
lega lífsöryggi íslenzku þjóðarinnar og tilveru
allri, að þegar í stað verði að grípa til þeirra
gagnráðstafana, sem helzt duga.
Alþingi ályktar því að fela ríkisstjórninni
að gera tafarlausí eftirfarandi ráðstafanir:
• 1. Að tilkynna ríkisstjórn Bandaríkja Norður-
Ameríku, að Alþingi íslendinga krefjist þess,
að allur herafli Bandaríkjanna á íslandi verði
tafarlaust fluttur burt úr landinu.
• 2. Að lýsa síðan yfir því gagnvart öðrum
þjóðum að ísland muni ekki veita neinum
styrjaldaraðila aðstöðu í landinu og því sé heit-
ið á öll ríki að virða hlutleysi þess og friðhelgi.
%
i