Þjóðviljinn - 30.10.1962, Side 4
4 SÍÐA
sitt af hverju
★ Astralska sundkonan
Dawn Fraser, heimsmethafi og
olympíusigTirvegari, bætti
heimsmet sitt í 100 m. skrið-
sundi s.l. Iaugardag. Hún
synti á 59.9 sek, og er fyrsta
konan sem syndir þessa vega-
lengd undir einni mínútu.
Gamla metið hennar var
60.0 sek. Nýja metið var sett
á áströlsku samveldismóti i
sundi.
-fr Spænska knattspyrnulið-
ið heimskunna, „Real Madrid”
tapaði fyrir „Valladolid” sl.
sunnudag. Þetta var leikur í
spænsku deildakeppninni, og
fór hann fram á velli Vallad-
olid. Forráðamenn Real Madr-
Id hafa þar með fengið enn
eina sönnun þess að ekki er
allt með felldu með þetta
fræga stjörnu-Iið, sem tapaði
Evrópubikarnum í fyrstu um-
ferð í ár. Real Madrid er
ennþá efst i I. deild á Spáni
með 10 stig, en „Atletico” i
Madrid hefur sama stiga-
fjölda. Barcelona er með 9
stig.
ic Kappaksturskeppnin
heimsfræga sem kennd er við
Monte Carlo fer næst frarr
19.—22. janúar 1963. Bretar.
munu enn sem fyrr eigaflesta
akstursmenn í keppninni. 341
bíll tekur þátt í þessum æsi-
lega kappakstri. Þar af eru
100 frá Bretlandi, 89 frá
Frakklandi, 30 frá Þýzka-
landi, 25 frá Svíþjóð, 25 frá
Noregi, 20 frá Hollandi, 15
frá Danmörku, 10 frá Spáni,
10 frá Portúgal, 8 frá Pól-
landi, 8 frá Sviss og 5 frá
Monaco. Keppnin hefst á 8
stöðum eins og i fyrra. Þeir
eru Stokkhólmur, Glasgow,
Aþena, Lissabon, Frankfurt.
Varsjá, París og Monaco.
★ Landsleikir i knattspyrnu
um helgina. Svíþjóð—Dan-
mörk 4:2, Ungverjaland— i
Austurríki 2:0, Tékkóslóva- |
kía—Pólland 2:1 i
★ Charlie Chaplin, kvik-
myndaleikarinn, milljónerinn
og bamakarlinn heimskunni,
er mikill áhugamaður um
knattspymu. Hann hefur alla
tíð iðkað knattspyrnu, og j
þakkar íþróttinni góða heilsu i
sina og lífsþrótt. Nú hefur
Chaplin keypt Iandsvæði í
Lausanne í Sviss, og ætlar að
láta útbúa þar á eigin kostn-
að knattspymuvelli fyrir ung- j
linga.
liTrtDtrn.TTVv
Þriðjudagur 30. október 1962
Cr leiknum milli lslandsmeistaranna Fram og IR í fyrrakvöld.
r
Fram vann IR og mætir
Skovbakken ósigrað
Handkna.ttleiksmeistaramót Reykjavíkur hélt
áfram á sunnudagskvöldið. Áðalleikur kvöldsins
var á milli Fram og ÍR en mörgum lék hugur á
að sjá hvemig Fram myndi takast upp gegn ÍR-
ingum því Fram er nú senn á fömm til Dan-
merkur til þátttöku í Evrópubikarkeppninni.
Leiknum lauk með yfirburða-
sigri Fram 23:13. Framarar
- höfðu leikinn allan tímann í
hendi sér og náðu strax í upp- ■
hafi góðri forustu (5:1). Um
miðjan hólfleikinn var staðan
8:2 en í leikhléi 14:7.
Síðari hálfleikur var jafnari
enda drógu Framarar úr hrað-
anum, sem þeir þó hefðu ekki
átt að gera, því hvað er betri
æfing en einmitt svona leikur.
Nei, það á aldrei að slá af og
sízt af öllu undir þeim kring-
umstæðum sem Framarar búa
við um þessar mundir. Ekki ,
veitir af góðri æfingu og miklu
úthaldi því Ieikurinn gegn
Skovbakken getur einmitt unn-
izt á því hvort liðið sé betur
búið undir endasprettinn.
Mörk Fram settu þeir Sig-
urður 6, Guðjón 5, Ingólfur 4,
Erlingur 3, Hilmar 3, Ágúst og
Karl 1 mark hvor.
Mörk ÍR: Gunnlaugur 5, Her-
mann 4, Gylfi 3, Þórður 1.
Magnús V. Pétursson dæmdi
leikinn.
Ármann — KR 10:4 (5:1)
Það var virkilega gaman að
sjá Ármannsliðið leika, því
þeir leika létt, hratt og af mik-
ilii innlifun. KR-ingar eru aft-
ur á móti ekki svipur hjá sjón
undanfarinna ára, eru seinir á
knöttinn, þungir og leika þar
af leiðandi fremur gróflega.
Enda fór svo að Ármenningar
höfðu yfirhöndina allan leikinn
og sigruðu með yfirburðum
10:4. Ármenningamir byrjuðu
með leiftursókn og áður en KR-
ingamir komust á bláð höfðu
þeir sett 4 mörk. Bergur Ad-
ólfsson setti eina mark KR í
fyrri hálfleik en Lúðvik Lúð-
víksson sétti 5. mark Ármanns
rétt fyrir leikhléið. Hans og
Lúðvík setja síðan hvor sitt
markið í upphafi síðari hálf-
leiks og var þá staðan 7:1.
Jafnaðist nú leikurinn og skor-
uðu liðin á vixl til leiksloka
en „yfirbyrðir, ^rmanns^ leEndu
sér ekki.
Mörk Ármanns settu þeir
Hörður 3, Ámi 3, Lúðvík 2,
Hans og Sveinbjöm 1 mark
hvor.
Mörk KR: Bergur 2, Reynir
og Heins 1 mark hvor.
Pétur Bjamason dæmdi leik-
inn.
Þróttur — Valur 10:10 (3:5)
Fremur var hann daufur
leikurinn á milli Þróttar og
Vals þó svo að hann hefði ver-
ið mjög jafn allan tímann.
Þróttur skoraðl fyrst en Vals-
menn jðfnuðu um hæl. Þannig
gekk það þar til staðan var
3:3 en þá settu Valsmemn tvð
mörk fyrir leikhléið. Þróttarar
jöfnuðu strax eftir leikhlé óg
komust marki yfir. En Vals-
menn jöfnuðu 6:6. Þróttarar
settu því næst þrjú mörk í
röð 9:6 en Valsmenn söxuðu
jafnt og þétt á forskotið og
Framhald á 8. síðu.
Hlífðarhjálmar
fyrir skíðamenn
Skíðasamband Kanada hef-
ur ákveðið að fyrirskipa notk-
un hlífðarhjálma fyrir alla
þátttakendur í mieiriháttar
skíðastökkkeppnum.
Þá hafa Kanadamenn sent
tilmæli til skíðastökknefndar
Alþjóða-skíðasambandsins með
tilmælum um að hjálmar skuli
notaðir á öllum alþjóðlegum
stökkmótum.
Daglegar ferðir
í Skíðaskálann
Það er komið gott skíðafærf
uppi á Hellisheiði. Skíðáráð
Reykjavíkur gengst fyrir ferð-
um í Hveradali í dag, þriðju-
dag, og á miðvikudag og
fimmtudag. Verða tvær ferðir
alla dagana — kl. 1 og kl. 7 s.d.
Brekkan við skíðaskálann
verður upplýst, og skíðalyftan
verður í gangi. Lagt verður af
stað úr bænum frá BSR í bíl-
um Guðmundar Jónassonar.
Svavar Karisson er manna ramastur að afli
og leiðbeinandi hjá ÍR. Hér snarar hann 123
kílógrömmum upp fyrir höfuðið.
Verði mótsgrein
hér á landi á ný
LYFTINGAR
Þeir eru byrjaðir að æfa lyftingar í ÍR, í fyrra-
kvöld voru um 20 knálegir piltar við æfingar í
ÍR-húsinu með hin ýmsu kraftatól í höndunum.
Vöðvar hnykluðust og menn snöruðu allt að
120 kílóum upp fyrir höfuð sér. ÍR-ingar stefna
að því að gera lyftingar að keppnisgrein hér.
Það hefur lengst af verið
hljótt um þessa íþrótt hér á
landi, og þó má segja að
þetta sé gömul þjóðaríþrótt
hjá okkur iðkuð frá alda öðli.
Lyftingar hafa t. d. frá önd-
verðu verið iðkaðar í íslenzk-
um verstöðvum um allt land.
Menn spreyttu sig á því að
taka upp þunga steina, sem
gjama voru skýrðir nöfnum
í samræmi við þyngdina (Am-
lóði, Hálfsterkur, Fullsterkur
o. s. frv) til þess að mönnum
hlypi kapp í kinn í aflraun-
inni. Víða eru þessi svokölluðu
„tök“ til inni í landi, og er
þar að sjálfsögðu frægast
Grettistak, kennt við Gretti
Ásmundsson.
Margur hóglífismaðurinn
furðar sig á því að menn
skuli nenna því að vera að
^streitast við að lyfta þessum
'málmstöngum upp fyrix hof-
uðið. En þeir sem byrja að
æfa lyftingar hætta því ó-
gjarna. Þetta er nefnilega
bráðskemmtileg íþrótt, og
ekki þarf að efast um holl-
ustuna, sé hún ekki iðkuð af
ofurkappi.
Hjá ÍR æfa menn annars-
vegar til að styrkja vöðva-
kerfið alhliða og eru notuð
léttari lóð við þær æfingar og
hins vegar eru kraftajötnar
sem æfa með keppni fyrir
augum. ÍR-ingar munu æfa
lyftingar reglulega þrisvar í
viku framvegis.
Eftir áhuganum í fyrra-
kvöld að dæma má búast við
því að ekki líði á löngu þar
til efnt verður til kappmóts
í lyftingum hér á landi, enda
er það takmarkið. Margir
piltanna hafa æft alllengi,
enda þótt reglulegar lyftinga-
æfingar hafi ekki verið á veg-
um íþróttafélaganna.
Þetta verður þó ekki fyrsta
lyftingakeppin á íslandi. í ár-
dögum íþróttahreyfingarinn-
ar var keppt í lyftingum hér.
Við höfum a. m. k. heimild
um að keppt var I lyftingum
á Leikmóti ungmennafélaga
íslands á aldarafmæli Jóns
Sigurðssonar 17. júní 1911. Sá
sem þá bar sigur úr býtum
var Jón Ásbjömsson (fyrrv
hæstaréttardómari). Hann
lyfti 301 pundi, og er það vei
af sér vikið. Annar var hinn
kunni glimukappi Halldór
Hansen (sfðar læknir). Hann
lyfti 296 pundum.
•. V '• V.<
GuOmundur Sigurðsson er aðeins 16 ára. Hér
er hann með rúm 90 kg á lofti, og munu fáir
jafnaldrar hans ieika það eftir.