Þjóðviljinn - 31.10.1962, Blaðsíða 6
g SÍÐA
Þ J OÐ VIL.TINN
Miðvikudagur 31. október 1962
• Dönsku blöð segja frá miklum atburði í leik-
listarlífi Dana: Konunglega leikhúsið hefur
frumsýnt nýjan söngleik „Teenagerlove“ (það
er enska og útleggst ,,Unglingaástir“). Höfund-
ur leiksins er ungt leikskáld, Ernst Bruun Ol-
sen, og Finn Savery samdi tónlistina. Danskir
gagnrýnendur eru yfir sig hrifnir, leikhús-
Ormagryfja
sýningar-
mennsku
stjórar frá öðrum Norðurlöndum og víðar að
streyma til Kaupmannahafnar og bjóða í sýn-
ingarréttinn.
• Danska blaðið Information birtir grein um
leikinn undir fyrirsögninni „Krabbamein lýð-
ræðisins“. Það munar um minna. Um hvað
f jallar þetta verk?
Billy Jack er voldugur dæg-
urlagasöngvari og stjarna í
skemmtanaiðnaðinum: ég er sá
sem syngur sig inn í herbergi
táninganna, segir hann. Billy
þessi er af snauðu fólki kom-
inn, veit manna bezt hvað
frægðin kostar og er alltaf
reiðubúinn til að kasta af sér
rómantásku brosi sýningar-
mennskunnar og ryðja and-
stæðingum úr vegi meö öllum
hugsanlegum ráðum.
Textahöfundur Billy, Tommy,
er ölkær yfirstéttardrengur.
Hann semur allskonar þvætt-
ing í fólkið af því að „það
vill þetta“ og af því hann hef-
ur sjálfur gefizt upp fyrir til-
verunni. Hinsvegar er Billy
fullur af illum þrótti, honum
dettur aldrei í hug að gefast
upp — og þarafleiðandi hlýtur
hann að sigra í þeim átökum
sem fram undan eru milli þess-
ara manna. Þó hlýtur hann að
hlýða á miskunnarlausan spá-
dóm sem Tommy slengir fram-
an í hann: „Mín ætt hefur ver-
ið að úrkynjast í marga ætt-
liði — þín ætt mun rotna upp
i einum lið“.
Tommy stendur betur að vígi
í byrjun. Hann hefur náð tang-
arhaldi á Vivi, dóttur plast-
kóngsins Smiths (sem veitir
Tommy þá viðurkenningu að
hann sé sá spilltasti náungi sem
hún hefur hitt). Vivi þessi
syngur ágætan söng þar sem
hún krefst þess að fá höfuð
fólksins borið inn á fati. Þetta
samband sitt við Vivi og millj.
ætlar Tommy að nota til
þess að verða forstjóri í eigin
kvikmyndaveri; þar ætlar
hann að nota Billy sem topp-
stjörnu, en henda honum síðan
begar hann er orðinn gam-
all.
En málið er ekki svo ein-
falt. Plastkóngurinn á mikiu
fleira sameiginlegt með Billy
en Tommy, hann er líka af
snauðu fólki, og hann þekkir
hina djúpu reiði sem lifir und-
ir sléttu yfirborð hins venju-
lega manns, og skilur mætavel
að hinn venjulegi maður getur
orðið hættulegur ef hann er
ekki forheimskaður kerfis-
bundið („forheimskun er a|S.
vísu leiðinlegt orð, en það er
gott vina í milli“ segir hann).
Og Billy Jack tekst að sann-
færa Smith um það, hve ómiss-
andi hann sé fyrir allt kerfið:
„Þið iðjuhöldar hafið þörf fyr-
ir forheimskað fólk, — við
sköpum það.“ Því þegar show-
mennirnir, skemmtanaiðnaður-
inn hefiir unnið sitt hlutverk.
Bodil Kjer leikur Maggi, konu Billy, og vann einn af sínum
stærstu Iciksigruna skömmu fyrir 25 ára Icikafmæli sitt.
þá er fólkið eins og það á að
vera — spennt fyrir vagn iðn-
aðarins í „uppspenntri, kaup-
þyrstri, afkastamikilli ófrjó-
semi“-. Og Billy, sem túttenútt-
ar vafasamar vísur, jarmar um
slátrarasveininn sem var hans
,þp^yo^v4,n,ur á þjóðvegi lífsins,
emjar um mömmu, mömmu og
lætur hringja klukkum til sex-
söngva — hann ber auðvitað
sigur úr býtum í baráttunni
um hylli plastmilljónanna
En sigrar krefjast fóma. Og
það ér kona Billys, Maggi, sem
hlýtur að faragt, Hún hefur
fylgzt með í þessari furðulegu
hringekju, en innst inni er
hún óspillt og hefur varðveitt
margt gott frá þeim gömlu
dögum þegar hún mætti ást
sinni í reiðhjólakjallara. Hún
er sú eina af leikpersónum sem
hefur varðveitt hæfileikann til
að vera manneskja, elska. Og
það er traðkað á henni. Ásta-
fundinum í kjallaranum á
Norðurbrú er breytt í glans-
númer við rósarunn í kvik-
myndinni „The Billy Jack
Story“. Og Billy stígur yfir lík
hennar til Vivi plastkonungs-
dóttur. Maggi verður eiturlyfj-
um að bráð.
Áður hafði hún reynt að
gera uppreisn gegn Billy Jack,
talað sannleikann um hann ino
á segulband og sent til blaða.
En það hafði ekki mikil áhrif.
Sá sem hreyfir við Billy Jack,
móðgar sjálft kerfið og stimpl-
ar sjálfan sig kommúnista. Og
Billy bjargar málinu við með
hjartnæmum blaðamannafundi:
kannske var Maggi kommún-
isti? Og hann syngur: „ef við
segjum dippedippedútt við
heiminn, þá segir hann dippe-
dippedútt við okkur“ .........m
«>-
Leikurinn er fullur af nöpru
háði, grimmri ádeilu, blöð
segja að skemmtanaiðnaðinurti
sé hér með sagt stríð á hend-
ur. Information segir: „Hvað
eru skækjur líkamans í sam-
anburði við skækjur andans?
Hvað er pólitískur heilaþvottur
í samanburði við shówforstjóra?
Hvað er pólitíkuí heilaþvottur
í samanburði við heilaþvott
verzlunarmennskunnar? ......
Lýðræði gerir ráð fyrir hugs-
ándi borgurum, ekki sljóum
sauðum. Þessi einfalda for-
senda nýtur lítillar hylli meðal
stjórnmálamanna — við þurf-
um því rithöfunda til að benda
svo á hana að menn svíði í
augun.“ áb.
Heiftúðug valda-
streita á kirkju-
þinginu í Rém
Um þessar mundir sitja kirkjuhöfðingjar
kaþólskra manna á rökstólum suður í páfagarði.
Þar er eflaust mikið rætt um auðmýkt hjartans
og eilífan sálufrið. En bak við kristilegt hjal
guðsmannanna má þó greina annað viðfangs-
efni: það er valdabaráttan milli frjálslyndra og
beirra íhaldssömu.
Þegar Jóhannes páfi XXIII.
kom til valda fyrir fjórum ár-
um, var almennt -álitið, að
kardinálarnir hefðu náð sam-
komulagi um hann, vegna þess
að þeir teldu að hann yrði af-
skiptalitill og hygði ekki á
neinar breytingar, en eftirléti
kúríunni, stjórn páfagarðs, að
ráða fram úr málum. En Jó-
hannes páfi heíur ekki látið
sér nægja að vera aðeins topp-
fígúra, og kunnugir telja, að
um aldir hafi ekki verið fitj-
að upp á jafnmörgum nýmæl-
um, bæði í innri málum ka-
þólsku Kirkjunnar og afstöðu
bennar út á við.
Páfinn heldur því fram, að
Guð eigi frumkvæðið að
kirkjuþinginu, sem nú situr,
og hafi harin sent sér þessa
skipun í guðdómlegri vitrun.
Verkefni þingsins á að vera að
breyta kirkjuskipun kaþólskra
til samræmis við kröfur nú-
tímans. Páfinn hefur sjálfur
notað hugtakið „reformation"
(þýðir hvort tveggja: umbæt-
ur almennt og siðabót mótmæl-
anda), en slíkt orðaval hefði
einhvern tíma geta fengið hár-
in til að rísa á krúnurökuðum
hausurn. ■
Fasismi í páfagarði
Baráttan ' innan káþóls'ku'
kirkjunnar stendur milli
þeirra, sem telja kirkjuna ei-
lífa og óumbreytanlega, og
hinna, sem halda því fram, að
svolítil breyting stöku sinnum
þurfi ekki að vera svo fjanda-
leg. Einn helzti andstæðingur
páfa í kirkjulegum efnum er
Ottaviani kardínáli, hinn á-
hrifamikli leiðtogi kúríunnar.
Hann þykir með afbrigðum í-
haldssamur, og fyrir nokkrum
mánuðum skoraði hann á trú-
bræður sína á Italíu að styðja
nýfasista í kosningum. And-
stæðumar innan kaþólsku
kirkjunnar komu einnig glöggt
í ljós í verkföllunum á Spáni
nú á dögunum; Ottaviani og
aðrir afturhaldsseggir kaþólskra
lýstu stuðningi sínum við
Franco einræðisherra en frjáls-
lyndir snerust á móti.
Ekki er gott að spá neinu
um það, hvort frjálslyndari
arminum með Jóhannes páfa í
fararbroddi tekst að ná yfir-
höndirini á kirkjuþinginu og
koma fram breytingum í and-
stöðu við íhaldsmennina. En
víst þykir að þingið verði ekki
jafn fádæma afturhaldssamt og
seinasta þing 1870, en aðal-
samþykkt þess var hatröm for-
dæming á hvers konar frjáls-
lyndi og margbrotin sönnun
um óskeikulleik páfa.
Bandaríkin á undan
Engin þjóð hefur nokkru
sinni eytt jafn miklu fé á frið-
artímum til hernaðarútgjalda
og Bandaríkin gerðu á fjár-
hagsári þvi sem lauk 1. júlí sl.
Útgjöld til hernaðar urðu
það ár 51 milljarður dollara,
þ. e. 58% af samanlögðum rík-
isútgjöldum og tíundi hluti
af þjóðartekjum Bandaríkja-
manna.
Moldvörnuæði / US
Fjáraflamenn í Bandanxj uii-
um, sem séð hafa sér leik á
borði að græða á hræðslu al-
mennings við kjarnorkustríð,
hafa fengið nóg að gera sein-
ustu daga. Mikil skelfing hefur
gripið um sig um öll Banda-
ríkin við ofbeldisaðgerðir USA
gegn Kúbu, og hafa menn þús-
undum saman pantað kjarn-
orkuheld neðanjarðarbyrgi fyr-
i.r sig og fjölskylduna. Fyrir-
tæki sem annast slíka þjónustu
íynr nokkur þúsund dollara
greiðslu, hafa sprottið upp eins
og gorkúlur um öll Bandarík-
in seinustu tvö árin. Síðast
liðna daga hafa skrifstofur
svokallaðra Borgaravarna ver-
ið umsetnar af fólki og mesta
ringulreið skapazt, þegar þús-
undir manna vildu fá að vita,
hvernig skynsamlegast væri að
hegða sér, ef kjarnorkustyrjöld
brytist út.
Samt sem áður er áætlað að
eyða í Bandaríkjunum 10 millj-
örðum dollara meira til hern-
aðar á þessu fjárhagsári en
því fyrra. — Bandarísk efna-
hagsmál eru öll í óvissu um
þessar mundir, en eitt er þó
unnt að reiða sig á, ritar Nora
Belof í brezka blaðið Observer,
sem sé það að hernaðarútgjöld
munu halda áfram að aukast.
Bandaríska kaupsýslublaðið
US News & World Repost segir
fyrir nokkru, að meðan Sovét-
ríkin séu að þreytast á víg-
búnaðarkapphlaupinu. séu
Bandaríkin langt á undan og
haldi forskotinu léttilega.
Hundaœði í
Amsterdom
Fyrir skömmu lézt þrettán ára
piltur í Amsterdam úr hunda-
æði. Fleiri sýktust af hinni
hræðilegu veiki en þeim var
bjargað.
Frönsk æska er kærulaus og sljó
Unglingadálciöarann BiIIy leikur Henning Morirí-e sv ncistar ,ií
honum. Hcr er hann ásamt dægurlagastelpunni Duddi sem
Gerda Schmidt leikur.
iieiðar, ungir mcnn cru sjald-
^æft fyrirbrigði nú á dögum í
Frakklandi. Stjórnmálaáhugi er
furðulega lítill. Hinsvegar eru
borgaralegar dyggðir í háveg-
um hafðar. Frönsk æska virð-
st vera ánægð, kærulaus —
og sljó.
Þetta er niðurstaða rann-
sóknar, sem fram fór á vegum
franskrar stofunar, er hefur
paó verkefm að kynna sei
skoðanir almennings. Þúsundir
æskumanna af báðum kynjum
á aldrinum 16 til 24 ára voru
spurðir sömu spurninganna.
Rúmur helmingur þeirra sagð-
ist aldrei hafa rætt um stjórn-
mál við nokkurn mann. Og að-
eins tæplega þriðji hver ung-
lingur gat nefnt þrjá núver-
andi ráðherra með nöínum.
Oll voru þau spurð, hvort
þéim fyndist, að lækka bæri
aldursmark kosningaréttar nið-
ur í 18 ára aldur. 68% svöruðu
neitandi.
Almenn ánægja virtist ríkj-
andi með ástandið í Frakk-
landi. Eitt prósent óskaði eftir
að mega búa í Sovétrikjunum
— og bandarískir lifnaðarhætt-
ir virtust ekki heldur hafa sér-
stakt aðdráttarafí.
58% þeirra scm -spurðir voru
töldu sjálfsagt, að fullkomið
frjálsræði ríkti í' samskipum
kynjanna. En samt sem áður
fordæmdu ekki færri en 83%
harðlega, að ungar. konur ættu
mök við karlmenn, áður en
þær giftu sig.