Þjóðviljinn - 02.11.1962, Page 3
ÞJÓÐVILJINN
SÍÐA 3
Föstudagur 2. nóvember 1962
Sovétríkin enn fyrst
Geimskipi skotiðtil Marz,
verður 7 mánuði á leiðinni
MOSKVU 1/11 — Enn einu sinni hafa sovézkir
vísindamenn rutt brautina í geimrannsóknum: í
dag var skotið á loft frá Sovétríkjunum nýju
geimskipi og er því ætlað að fara til Marz, sem
er næst jörðu af ytri plánetunum. Ferðin mun
taka rúma sjö mánuði, en mælitæki geimskips-
ins, sem fengið hefur nafnið Marz I., munu gera
athuganir á hinni löngu leið og senda upplýsing-
ar til jarðar.
Burðareldflauginni, sem er af
nýrri og bættri gerð, var fyrst
skotið á braut umhverfis jörðu,
en síðan var geimskipinu skotið
á braut sína áleiðis til Marz.
Þetta er sama aðferð og notuð
var þegar Sovétríkin sendu geim-
skip sitt til Venusar í febrúar 1
fyrra, enda sparast með þessum
hætti orka og eldsneyti, en að-
f erðin kref st geysilegrar ná-
kvæmni, ef geimfarið á að kom-
ast á rétta braut.
Fór á rétta braut
Marz I. verður á föstudags-
morgun klukkan sex eftir ís-
lenzkum tíma kominn 237.000
kílómetra frá jörðu og verður
þá staddur yfir punktinum 37
gráður vesturlengdar og 48 gráð-
ur norðurbreiddar. Bráðabirgða-
mælingar sem gerðar hafa verið
á braut hans og útreikningar
samkvæmt þeim hafa leitt í ljós
að hann hefur farið á braut sem
nálgast mjög þá sem honum var
ætlað.
Sendir myndir frá Marz
Geimfarið, sem vegur 893,5
kíló (Venusarfarið sovézka var
um 600 kíló), hefur meðferðis
margháttaðan útbúnað til vís-
indaathuguna, en einnig ljós-
myndatæki og er ætlunin að
senda myndir til jarðar bæði
meðan geimfarið er á leiðinni
Borgarstférnin
Framhald af 12. síðu
mundar yrði af þessum sökum
vísað frá en borgarstjórn sam-
þykkti að fela borgarstjóra og
borgarráði að fylgjast með því,
að Reykvíkingar yrðu látnir
njóta jafnréttis á þessu sviði við
aðra landsmenn.
Guðmundur Vigfússon benti á,
að ríkislögreglunni væri sam-
kvæmt frumvarpinu ætlað sér-
stakt hlutverk og væri þvi ekki
hægt að reikna framlag ríkisins
til hennar sem endurgreiðslu á
löggæzlukostnaði til Reykjavík-
ur. Afstaða borgarstjóra og borg-
arstjórnarmeirihlutans sýndi, að
þessir aðilar létu sig flokkshags-
muni meiru varða en hagsmuni
Reykvíkinga, enda hefði ekki
komið fram í tillögu borgar-
stjóra neinn frambærilegur rök-
stuðningur fyrir frávisun tillögu
hans.
Kristján Benediktsson kvaðst
telja tillögu Guðmundar óraun-
hæfa en viðurkenndi þó, að
samkvæmt frumvarpi ríkisstjóm-
arinnar myndi hlutur Reykvík-
inga vera fyrir borð borinn.
Guðmundur Vigfússon skoraði
enn á borgarfulltrúana að standa
saman í þessu máli um að verja
hagsmuni tfeykjavíkur og lagði
áherzlu á það hættulega fordæmi
sem samþykkt þessa ákvæðis
myndi skapa.
Að umræðum loknum var frá-
vísunartillaga borgarstjóra sam-
þykkt að vjðhöfðu nafnakalli
með tólf atkvæðum gegn þrem
og greiddu borgarfulltrúar Al-
þýðubandalágsins einir atkvæði
gegn henni. Fulltrúar hinna
flokkanna sameinuðust allir um
að bregðast málstað Reykvík-
inga.
til plánetunnar og þó einkum af
henni sjálfri og munu vísinda-
menn bíða í miikilli eftirvænt-: unum og erfiðum athugunarskil-
ingu eftir þeim.
Skurðirnir á Marz
Marz er sem áður segir sú
reikistjama sem er jörðinni næst
af þeim sem lengra er frá sól-
inni og hún hefur verið könn-
uö betur frá jörðu en nokkur
önnur pláneta. Þó býr hún yfir
n.orgum leyndarmálum, sem nú
er von til að upplýst verði.
Það má fyrst nefna „skurði“
þá á Marz sem fyrst var tekið
eftir árið 1877 og ýmsum get-
um hefur verið leitt að af hverju
stafi. Sumir hafa talið þá sjón-
blekkingu eina sem stafi af trufl-
yrðum, en aðrir telja að „skurð-
imir“ séu raunvemlegir, þótt
engin fullnægjandi skýring hafi
fengizt á fyrirbærinu.
Líf á Marz?
Á seinni árum hafa æ fleiri
visindamenn hallazt að því að á
Marz kunni að vera fmmstætt
líf. Gufuhvolfið er að vísu þunnt
og kuldinn mikill, en líf þróast
einnig á jörðinni við hin erfið-
ustu skilyrði. E.t.v. mun hið nýja
sovézka gervitungl veita nánari
vitneskju um þetta forvitnislega
atriði.
Eftir viðræður Castro og U Þant
Hafnbann sett á aftur,
njósnaflug hafið á ný
NEW YORK og WASHINGTON 1/11 — Frá dögun í
morgun hófst aftur hafnbann Bandaríkjanna á Kúbu og
um leið flug njósnaflugvéla þeirra yfir eyna. Tilkynning
um þetta var gefin út örfáum mínútum áður en Ú Þant,
riýkominn til New York frá Havana, þar sem hann hafði
rætt við Castro forsætisráðherra, skýrði blaðamönnum
frá því að hann byggist við tað- á morgun myndi lokið
niðurtöku sovézku flugskeytastöðvanna á Kúbu.
Þegar U Þant kom til New
York frá Havana sagði hann að
viðræður hans við Castro hefðu
verið árangursríkar. Hann skýrði
blaðamönnum frá því að unnið
væri að því að taka flugskeyta-
stöðvarnar niður og að skot-
pallarnir myndu verða sendir
til Sovétríkjanna þegar að nið-
urtökunni væri lokið.
Árangursríkar viðræður
Ú Þant komst m.a. svo að
orði: Ég kem heim frá Havana
eftir árangursríkar viðræður við
leiðtoga Kúbu. Þessar viðræður
fóru fram í fullu samræmi við
bréf mitt til- Castros försætis-
ráðherra og samkomulag varð
um að SÞ ætti að halda áfram
að eiga hlut að friðsamlegri
lausn deilunnar. Meðan ég dvald-
ist í Havana var mér skýrt frá
því að byrjað væri á að taka
niður flugskeytin og stöðvar
þeirra og að þvi verki myndi
iokið á föstudag. Þau munu
síðan send til So.vétríkjanna og
er nú unnið að því að semja
um með hvaða hætti það skuli
gerast.
Erfiðir samningar?
Bandaríkjastjóm afsakar þá
aðgerð sína að setja hafnbann-
ið á aftur, enda þótt byrjað sé
að leggja niður þær stöðvar sem
voru upphaflegt tilefni þess, með
þvi að viðræður þeirra Castros
og Ú Þants hafi gengið verr en
hún hafi búizt við. Af yfirlýs-
ingu Ú Þants sjálfs verður þó
ekki annað ráðið en að viðræð-
umar hafi gengið að óskum.
Talsmenn Bandaríkjastjórnar
segj að Ijóst sé að erfiðir
samningar séu framundan áður
en samkomulag geti tekizt um
friðsamlega lausn deilunnar, og
því hafi verið nauðsynlegt að
setja hafnbannið á. aftur til að
neyða Kúbumenn til eftirgefni.
Bandaríkjamenn burt
Það er haft fyrir satt að
Castro hafi sagt Ú Þant að sov-
étstjómin hefði ekki haft sam-
ráð við stjóm Kúbu þégar hún
bauðst til að leysa Kúbudeiluna
með því að flytja burt flug-
skeyti sín gegn því að Banda-
ríkin ábyrgðust að ekki yrði gerð
árás á Kúbu. Castro er sagður
hafa ítrekað við Ú Þant að
Kúbustjóm geti ekki horfið frá
þeim skilyrðum sem Castro setti
í ræðu sinni á sunnudaginn fyr-
ir samkomulagi við Bandaríkin,
en það helzta þeirra er að Banda
ríkjamenn leggi niður flotastöð
sína í Guantanamo á Kúbu og
hverfi allir burt frá eynni.
Ú Þant heldur áfram
viðræðum
1 dag hélt Ú Þant áfram við-
ræðum sínum við deiluaðila og
ræddi nú við fulltrúa, Sovét-,
ríkjanna og Bandaríkjanna, þá
Kúsnetsoff og Stevenson. Búizt
er við að Raul Roa, utanríkis-
... • flfft -«H—AO •
ráðherra Kúbu, komi til New
York alveg á næstunni og mun
hann þá taka við forystu sendi-
neíndar Kúbu hjá SÞ og halda
áfram samningaviðræðum við
Ú Þant.
Mikojan í New York
Anastas Mikojan, aðstoðarfor-
sætisráðherra Sovétríkjanna,
kom í kvöld til New York á leið
til Havana. Hann heldur áfram
til Havana á morgun, en búizt
er við að hann ræði áður við
Ú Þant.
Nóhelsverðlmm
tll Sovétríkjanna
'JP'ngum sem fylgzt hefur með
þróun eðlisvísinda siðustu
áratugina mun hafa komið á
óvart. að Konunglega vís-
indaakademían sænska skyldi
veita sovézka eðlisfræðingn-
um Lev Davídovitsj Landau
nóbelsverðlaunin að þessu
sinni, en margir munu þeir
vera sem telja að honum
hefði borið sú viðurkenning
öllu fyrr. Landau, sem nú
er rúmlega fimmtugur að
aldri. hefur verið í fremstu
röð vísindamanna heimsins
síðustu tuttugu árin og rúm-
lega það þó. Bandaríska
vikuritið TIME komst svo að
orði fyrir fjórum árum að
„á hvaða skrá sem væri um
snjöllustu vísindamenn heims
myndi verða að taka með
nafn Lev Landaus". Og
frægð hans nær lengra aftur
í tímann, enda var hann
sæmdur Stalínverðlaununum
þegar árið 1946.
Hér verða vísindastörf hans
að sjálfsögðu ekki rakin;
það eitt nægir að hann hef-
ur gert merkar uppgötvanir
í mörgum greinum eðlisvís-
indanna og birt fjölda rita um
athuganir sinar og niðurstðð-
AÐ GERAST?
Prófcssor Lev Davídovitsj Landau.
ur og hafa mörg þeirra verið
þýdd á önnur mál og vakið
athygli vísindamanna um all-
an heim. Eins og oft vill vera
um mikla vísindamenn var
Landau ákaflega bráðþroska
og lauk prófi í eðlisfræði við
háskólann í Leníngrad árið
1927 aðeins 19 ára gamall.
Eftir framhaldsnám réðst
hann 1937 til hinnar frægu
eðlisvisindastofnunar i
Moskvu sem eðlisfræðingur-
inn S. I. Vaviloff hafði stofn-
að fimm árum áður í Lenín-
grad en flutt til höfuðborgar-
innar skömmu síðar. Þar
hefur hann starfað siðan, en
annars komið víða við og átt
mikinn þátt i menntun og
bjálfun hinnar nýju kynslóð-
ar sovézkra vísindamanna.
Rannsóknir hans hafa aðal-
lega beinzt að ástandi efnis-
ins við mjög há og mjög lág
hitastig, en þær hafa leitt
hann inn á ýmis önnur svið
eðlisvísinda. meðal annarra
kjameðlisfræði og geim-
geisla. Fyrsta ritgerð hans
sem nefnd er í uppsláttar-
bókum fjallaði um fljótandi
helium.
Eðlisfræðistofnun Landaus í
Moskvu er „senni'lega sú
bezta af sínu tagi í heimin-
um“, er haft eftir brezka vis-
indamanninum Kurt Men-
delssohn. „Á sumum sviðum
kjarneðlis- og öreindavísinda
rfendur hún vafalaust fram-
ar öllum öðrum“, bætti hann
við. Enginn þarf að furða sig
á því. þar sem sovézkir vís-
'idamenn hafa sannað um-
''“iminum svo að engum blöð-
"m verður lengur um það
"ett að þeir standa engum
að baki i þekkingarle't
mannsandans. og framar öðr-
um á þeim sviðum sem mestu
máli munu skipta í íramtið-
inni, í kjarneðlis- og geim-
visindum, en einmitt á þeim
sviðum hefur prófessor Lartd-
au lagt fram drjúgan skerf.
Þegar Sovétríkin skutu
fyrsta spútnik sínum á
loft fyrir rúmum fimm ár-
um, urðu það viðbrogð
margra á vesturlöndum við
þessari óræku sönnun fyrir
yfirburðum sovézkra vísinda
að halda því fram að þetta
afrek væri fyxst og fremst
að þakka því, að Sovétríkin
hefðu notið aðstoðar þýzkra
vísindamanna. Þær raddir eru
löngu hljóðnaðar og nú hafa
menn það heldur fyrir satt,
sem forseti alþjóðlega geim-
ferðasambandsins, Andrew G.
Haley, sagði: „Rússar höfðu
ekki eins mikil not af Þjóð-
verjum og við“. Þess vegna
gegnir það furðu hve fáir
sovézkir visindamenn hafa
hlotið nóbelsverðlaunin til
þessa, en veiting þeirra til
handa Landau nú er e.t.v.
vottur þess að hin sænska út-
hlutunarnefnd sé hætt að
einblína í vesturátt. Landau
er aðeins fimmti sovézki vís-
indamaðurinn sem nóbelsverð-
laun hlýtur, en yfir 50 banda-
rískir vísindamenn (sem að
vísu eru margir hverjir komn-
ir úr öðrum löndum) hafa
fengið þau. Þetta er fáránlegt
hlutfalj og segir enda i þeirri
grein TIME sm áður var
vitnað í að sérfræðingar á
vesturlöndum telji litla hugg-
un * ^ví, þegar þeir virða
fyrir sér hinar stórstígu
framfarir í sovézkum vísind-
fjaer framfarir eru fyrst og
^ fremst að þakka þeirri
megináherzlu sem í Sovétrikj-
unum er lögð á náttúrtrvis-
indin bæði í skólum og'dag-
legu lífi. f Sovétríkjunum út-
skrifast nú árlega u.þ.b.
þrisvar sinnum fleiri verk-
fræðingar og aðrir háskóla-
menntaðir tæknifræðingar en
' Bandaríkjunum. Nær tveir
þriðju af þeim tveim millj-
ónum ungra manna og
kvenna sem í Sovétrikjunum
leggj,a fyrir sig langskólanám
steína Því að ná prófi í
einhverri grein náttúruvis-
mda. Sovézkir stúdentar eru
taldir hafa að baki tveggja
ara lengra nám í greinum
nattúruvísinda en jafnaldrar
peirra i Bandaríkjunum; þeir
hafa^ lesið stærðfræði í tíu
ár. líffræði í sex, eðlisfræði í
flmm og efnafræði í fjögur.
Jafnvel leikföng sovézkra
barna eru við það miðuð að
ýek;ja áhuga þeirra á nátt-
uruvísindum og skerpa at-
hyglisgáfu þeirra. Sovézkir
vismdamenn. hvort sem þeir
starfa ag rannsóknum eða
'eggja fyrir sig hið mikilvæga
starf ^ að miðla uppvaxandi
kynslóð af þekkingu sinni, eru
í hávegum hafðir. Segja má
að þeir gegni stöðu æðsta
presta hinna fornu trúarsam-
félaga, enda hafa vísindin tek-
ið sæti trúarbragðanna í
hinu sovézka þjóðfélagi.
J Tthlutun nóbelsverðlaun-
anna til Levs Landau að
þessu sinni vekur athygli á
hinni miklu og öru þróun sem
orðið hefur í sovézkum vís-
indum hin síðari ár. Hún gef-
ur einnig ástæðu til að rifja
upp ummælj hins kunna
bandaríska vísindamanns
Normans Wieners, frumkvöð-
uls kybemetíkurinnar, fyrir
fimm árum: „Þegar ég er
verulega svartsýnn. þá geri
ég mér í hugarlund að eftir
fimm ár verði Rússar komnir
á undan okkur á öllum svið-
um. En þegar ég horfi björt-
um augum fram á veg, þá
held ég að það kunni að taka
þá tiu ár.“ ás.
i