Þjóðviljinn - 02.11.1962, Qupperneq 9

Þjóðviljinn - 02.11.1962, Qupperneq 9
ÞJÓÐVILJINN Lesefni sem varðar hvern alþýðumann Nærri tvo áratugi hefur tímarit Alþýðusam- bands íslands, Vinnan, komið út. Og þó bláþræðir séu á útgáfu hennar á þessu tímabili, hefur Vinn- an að geyma marga dýrmæta heimild um verka- lvðshreyfinguna á íslandi. og er ómissandi les- efni hverjum þeim sem fylgjast vill með verka- lýðshreyfingu landsins. Föstudagur 2. nóvember 1962 - Ný3a heftið af Vinnunni, timariti Alþýðusambands Is- lands, hefst á athyglisverðu Viðtali sem ritstjórinn, Hanni- bal Valdimarsson, hefur haft við einn af elztu togarasjó- mönnunum sem enn eru í etarfi, Þorvald Magnússon á Ingólfi Amarsyni. frorvaldur hefur verið hvorki meira né minna en 53 ár á sjónum og varð 68 ára í sumar. Maður 6em á þá starfsreynslu að baki í sjósókn á íslandi hefur frá mörgu að segja, gaman væri að það yrði með einhverjum hætti skrifað saman í heila bók. Undir lok viðtalsins ræðir Þorvaldur vandamál allra sjó- manna, sem stunda sjóinn fram á elliár: Hvað erfitt er að fara þá í land og finna vinnu við sitt hæfi. Að sjálfsögðu ætti þjóðfélagið að búa svo að 68 ára sjómanni eftir 53 ára sjó- sókn að hann þyrfti ekki að hafa starfsáhyggjur úr þvi. Þorvaldur segir frá að hann hafi ekki fengið neitt að gera f togaraverkfallinu í sumar, nema nokkrar nætur sem hann var vaktmaður1 i Jóni Þorláks- syni. „En ég játa það, að okk- ur sem verið hafa áratugum saman á sjónum og erum farn- Ir að eldast, hentar ekki hvaða verkamannavlnna sem er í landi. Og þá eru aðrir teknir fram yfir okkur“. Búinn að gjalda Torfalögin Og Hannibal lýkur viðtali sínu á þessa leið, sem gæti ver- ið þörf áminning til þeirra, sem nú sjá ofsjónum yfir sjó- mannakaupinu og heimta að sjómannakjörin séu rýrð: „Að 6kilnaði spyr ég Þorvald beint. Hvað heldurðu nú að þú end- ist lengi á sjónum úr þessu? Og svar hans er: Það er auðvitað allt undir heilsunni komið. En helzt þyrfti ég að endast að minnsta kosti í tvö ár enn. Eg hef keypt tveggja herbergja íbúð, ágæta ibúð fyrir okkur gömlu hjónin. En afborganirnar eru svo stifar að ég held henni ekki nema ég hafi góða at- vinnu næstu tvö árin. Og ég á erfitt með að bugsa mér að stunda erfiðisvinnu í landi. Xak- ist þetta nær herþjónustan á bafinu yfir 55 ár og þá finnst mér að ég sé búinn að gjalda Torfalögin. Og Hannibal bætir við þetta svar togarasjómannsins: „Og þá veit maður það, að svona e>" sjómennska á fslandi örugg leið til auðsældar og ríkidæm- is að reglusamur maður og sparsamur á eftir 53 ára þjón- ustu á sjónum á hættu að missa tveggja herbergja íbúð- ina sína, ef heilsan skyldi bila á næstu tveimur árum. Það eru vissulega til aðrar leiðir auðveldari til auðsöfnunar". Víðsvegar að úr verka- lýðsbaráttunni Að öðru leyti einnig er veru- legur hluti þessa myndarlega Vinnuheftis helgaður sjómönn- um og baráttu þeirra. Þar er ýtarl. grein um togaraverkfall- ið og árásina á vökulögin. önn- heitír „Eúaleg árás á kjör síld- veiðisjömanna“, og má segja að þar sé rætt um dagsins mál, því sú árás stendur enn yfir, Landssamband íslenzkra út- vegsmanna stöðvar enn allan síldarflotann með ósvífinni kjaraskerðingarkröfu. f grein Vinnunnar er rakin forsaga málsins í sumar og aðdragand- inn að gerðardómnum og bar- áttan um hann. Kjarabaráttu verkafólks og iðnaðarmanna í landinu er lýst í greinunum „Verkfall járniðn- aðarmanna“ og Baráttu hinna lægst launuðu lauk með sigri“. Loks er þáttur sem gerir þetta Vinnuhefti ómissandi miklum fjölda manna í land- ir.u, en það eru Kaupgjaldstið- indi. Þar eru birt í smáatriðum ákvæði launasamninga. eins og þau eru nú eftir sumarið og geta menn í hinum ýmsu at- vinnustéttum flett þar upp hvert kaup þeim ber, sam- kvæmt gildandi samningum, og frafeðzt um kaup annarra starfs- stétta. Þama er einnig birt fiskverðið eins og það var á- kveðið af yfirdómi verðlagsráðs sjávarútvegsins í janúar sl. Heftinu lýkur á stefnuyfirlýs- ingu miðstjómar Alþýðusam- bands, fslands, er birt var nú t september og varðar framtíð- arverkefnin. Nauðsynlegt heimildarrit Ekki þarf • annað en lesa þessa upptalningu til að sannfærast um að hver sem fylgjast vill með þróun verkalýðsmála og verka- lýðshreyfingunni á fslandi, hefur margan fróðleik að sækja í tímarit Alþýðusambandsins, og svo hefur oftast verið í þá tæpa tvo áratugi sem tíma- ritið hefur komið út, og mundi það efni eitt vel þess vert að menn verðu 50 krónum í á- skriftargjald að Vinnunni. Ósmekkleg auglýsing Auk efnis sem beint varðar verkalýðshreyfinguna flytur Vinnan . talsvert af almennu efni og er það misjafnt eins og gengur. Mér þykir lítíl prýði að langri grein um Loftleiðir i þessu síðasta hefti, í upphöfn- um hallelúja auglýsingastíl sem gerir hverja grein alveg óþolandi fyrir alla nema eig- endur og auglýsingastjóra hlut- aðeigandi fyrirtækis. Við um- hugsun má öllum ljóst verða að Loftleiðir eru bara venju- legt gróðabrallsfyrirtæki, sem býr til þjóðsögu um „vinsæld- ir“ með áróðursfroðu og pen- ingaaustri í auglýsingar. Ekki væri óeðlilegt þó einhverjum lesendum Vinnunnar kæmi i hug við þennan lofgerðar lest- ur hin lítilmannlega framkoma flugfélaganna í Dagsbrúnar- verkfallinu í fyrrasumar, hyst- erískar upphrópanir Sigurðar Magnússonar og annarra um að hinar hóflegu launakröfur nokkurra starfsmanna væru að eyðileggja það sem hann og aðrir (!) hefðu byggt upp svo fagurlega. Þó var um upp- hæð að ræða sem svo til engu munaði f tugmilljónarekstri fyrirtækisins. En flugfélögin virðast hafa bandarískar fyrir- myndir bæði að afstöðu til kauphækkana og áróðurs, ogs áróðrinum er troðið inn á furðulegustu stöðum, meira að segja hefur tekizt að útbia gamalt og virðulegt bamablaö með áróðurstuggu annars flug- félagsins svo að með ólíkindum má telja. Ferðasaga og fleira En þetta var óþarflega lang- ur útúrdúr um leiðinlegt efni. Lítum á fleira. Sigurður Run- ólfsson. einn þeirra er Alþýðu- sambandið hefur sent á 1. maí hátíðahöld sósialistísku land- anna, skrifar um för til Sov- étríkjanna. Þar er ýmislegt fróðlegt, en slxkar ferðaskýrsl- ur þurfa helzt að vera fersk- ari og persónulegri. Ekki kann ég við að stafsetja Tbilisi eða Tiflis BiIIice og Sotzí Sotzy en raunar er furðuleg ringulreið á stafsetningu rússneskra nafna. Greinar eru f heftinu um heimsókn prófessors Ragnars Frisch og heimboð fulltrúa Al- þýðusambandanna frá hinum Nórðurlöndunum. Margar myndir eru f heftinu að vanda og smágreinar. -------------------- SlÐA g Regluleg útkoma En eitt verður að lagast: Vinnan þarf að koma reglulega út. Þau tvö hefti sem komin eru á þessu ári, eru að vísu tölusett 1.—3 og 4—7., en heft- in eru samt ekki nema tvö nú í nóvemberbyrjun og sumt efnið í fyrra heftinu bar þess greini- leg merki að það hafði verið alltof lengi á leiðinni. Heildar- samtök verkalýðshreyfingarinn- ar á íslandi hljóta að geta haldið úti vönduðu mánaðariti, enda mun auðveldara að út- breiða rit sem kemur oft og reglulega út. Verkalýðshreyf- ingin er örðin það fjölmenn og öflug að hún má ekki gugna á því verkefni, að gefa tíma- rit sitt út með þelm myndar- brag, sem samtökurium hæfir. — SG. reisa sér hús Bolungarvík — í febrúar 1962 stofnuðu 20 smábátaeigendur hér í Bolungarvík félag með sér og hlaut það nafnið Árvakur. Strax í vor hóf félagið smíði 440 fer- metra húss, sem 14 félagsmenn eru eigendur að. Með smíði þessa húss hefur verið stigið stórt spor til eflingar smábátaútgerðar hér í Bolungarvík. Þess má geta, að í sumar skap- aði útgerð smábátaeigenda stanz- lausa atvinnu í frystihúsinu hér á staðnum. Framkvæmdastjóri byggingar- innar er Elías Ketilsson. sem jafnframt er einn af eigendum. 156 nemendur Bolungarvík — Báma- og ung- lingaskólinn í Bolungarvík var settur 1. október sl. 1 skólanum eru 156 nemendur. 15 fleiri en á síðasta skólaári. Smábátaeigendur í Bolungarvík NYTT B LAO BETRA B LAO LEGGJUMST Á EITT AÐ GERA ÞETTA KLEIFT - B9FREIÐ EFTIR VALI ALLT AÐ 160.000.00 kr. 160.000.00 kr. 2. Góðhestur m. hnakk og beizli 25.000 3. Sófasett frá Húsgagnaverzlun Austurbæjar ............. 17.000 4. Segulband, Nordmende .... 11.000 5. —7. Ferðaviðtæki, Nordmende 3x4.400 13.200 8.—10. Ferðaviðtæki, Nord- mendð 3x3.600 10.800 DREGIÐ VERÐ- UR 23. DES. — LAND-ROVER er góður bíll og svipar um margí til þarfasta þjónsins. Hinsvegar vill Happdrætti Þjóðviljans koma með þá skipulagsbreytingu, að tilvonandi vinnings- hafi eigi kost á að velja sér bíl af öllum þeim mörgu gerðum sem bílamarkaðurinn býður upp á í dag. Á næst- unni verður kynntur hér hver bíllinn á fætur öðrum. Er þar margur góður gripur á ferðinni. Sérstaka athygli mun það vekja, að fyrsti vinningur mun hækka að verðmæti frá kr. 123.000 til kr. 160.000. t

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.