Þjóðviljinn - 08.11.1962, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 08.11.1962, Blaðsíða 1
Fimmtudagur 8. nóvember 1962 — 27. árgangur — 244. tölublað. Salurinn í gömlu Iðnó fœr brótt nýfan svip \Læknadeilan skapar\ alvarlegt ástand ! ! Engar horfur virðast á lausn læknadeilunnar á næstunni en hún hefur þegar orsakað mikla truflun og erfiðleika á starfsemi margra deilda Landsspítalans og fleiri sjúkrahúsa og er ljóst að vandræðaástand skapast innan fárra daga, ef ekki verður ráðin nein bót á læknaskortinum. Þjóðviljinn átti í gær tal við nokkra yfirlækna á sjúkrahúsum þeim þar sem læknar hafa horfið frá störfum vcgna Iæknaðeil- unnar og innti þá frétta af því, hvaða áhrif læknaskort- urinn hefði haft á starfsemi þeirra. Haukur Kristjánsson yfir- læknir slysavarðstofunnar sagði, að tekizt hefði að anna því allra nauðsynleg- asta, enda verið óvenju lít- ið um slys að undanförnu, hefði orðið að bægja fólki frá, sem ckki hefði átt brýnustu erindi. Ástandið yrði þó ófært til lengdar og sérstaklcga væri erfitt með Frumsýningargestir, sem við- staddir verða fyrstu sýningu Leikfélags Keykjavíkur á leik- árinu n.k. sunnudagskvöld, muno sjá salinn í gömlu Iðnó í nýjum búningi. Undanfarnar vikur hef- ur verið unnið að gagngerðum breytingum og endurbótum á áhorfendasalnum í leikhúsinu: svalir hafa verið stækkaðar til muna þannig að nú rúmast þar 55 sæti. I sal (og reyndar hús- inu öllu) verða sett upp ný og rýmri sæti og verða öftustu bekkimir á upphækkuðum pöll- um en sætaraðir ekki látnar standast á. þannig að eftir breytingarnar verður tryggt að allir leikhúsgestir sjái það sem fram fer á sviðinu Sæti verða nú alls f.vrir 230 74 færri en áður voru í Tðnó. Leikfélag Reykjavíkur tekur verulegan hluta af miklum kostnaði við breytingamar á sínar herðar. borgarsjóður hefur einnig veitt félaginu styrk til þess ama og ioks kostar eigandi hússins hiuta af breytingum. Uopdrætti að brevtineum gerði Finar Sveins- son húsameistari bæjarins. Gunnar H. Guðmundsson hús- gagnaarkitekt teiknaði nýju stól- ana í húsið Stálhúseögn smiðaði og áklæði er frá Álafossi. — Frá frumsýnioeunni n.k sunnudag er nánar skýrt á 12. síðu. en þessi mynd var tekin í Tðnó í gærdag Þá var bar enn allt á tíá on tundri salargó’fið bakið vinnu- pöilum gömlum stólum leik- tiömnm o.s.frv. (Ljósm. 'Þjóðv A.K.) LÍÚ að mfssa tökin Fyrsti báturinn hefur síldveiðar Mendela dæmdur PRETORIA 7/11. — Einn helzti leiðtogi samtaka Afríkumanna í Suður-Afríku, Nelson Mendela. var í dag dæmdur i fimm ára fangelsi. Honum var sérstaklega gefið að sök að hafa skipulagt og staðið fyrir verkfalli blökku- manna vrrið 1961. Sandgerði, Húsavík, Reykjavík 7/11 — Undanfarið hefur gætt vaxandi óróa meðal útgerðarmanna vegna banns LÍÚ við því, að þeir geri báta sína út á síldveiðar. Víst er, að margir þeirra vilja hafa bann þetta að engu, og nú lítur út fyrir, að LÍÚ sé að missa á þeim tökin. Einn bátur er þegar kom- inn af stað og fleiri munu á eftir koma. Einn liðurinn í viðleitni LÍÚ til að rýra kjör sjómanna hefur verið að banna útgerðarmönnum eð gera út báta sína til síldveiða, líka á jjeim stöðum. þar sem samningar eru í fullu gildi. Hver sá útgerðarmaður. sem bannið brýtur. á yfir höfði sér fjárhags- legar refsiaðgerðir. Þessi kúgun Lltí hefur undanfarið valdið vaxandi óánægju og óróa með- al útgerðarmanna, sem missa spón úr aski sínum, því að und- anfarin ár hefur verið góð síld- veiði um þennan tíma. Nú virðist margt benda til þess, að útgerð- armenn séu að hrista af sér pen- ingasteinbitstak LÍÚ-valdsins. og síldveiðarnar séu að hefjast. í fyrrakvöld fór fyrsti bát- urinn út á síldvciðarnar. Það var Jón Oddsson frá Sand- gerði (áður Hjálmar frá Nes- Friðsamleg sambúð byggist á gagnkvæmum tilslökunum, segir Krástjoff / Kreml sjá síðu @ kaupstað). Þetta er 80 tonna bátur, eigendur Jónas Jónas- son og Sigurður Bjarnason sem jafnframt er skipstjóri. Þeir eru ekki í LÍÚ. í Sand- gcrði eru samningar í gildi, þeir sömu og í fyrra. Stutt varð fyrsta sjófcrðin hjá Jóni Oddssyni því að vont veður gerði og gat hann ekki leitað síldar og kom því inn aftur í fyrrinótt. En með þessu er ísinn brot- inn, og má búast við, að fleiri fari nú að dæmi Jónasar og Sigurðar Fregoir frá Húsavík herma, að tveir bátar þaðan hafi ætlað að leggja upp í gærkvöld til síld- veiða fyrir Suðurlandi. Eru það Helgi Flóventsson. sem verður gerður út frá Keflavík, og Nátt- fari, sem verður gerður út frá Akranesi. Sjómenn á Húsavík, sem ráðnir eru á sunnanbáta hafa verið kaliaðir til skips og bú- ast nú óðum til ferðar H-F-H. vaktir. Gæti enginn maður haldið það út til lengdar að vera stöðugt á næturvakt. Kristinn Björnsson, yfir- læknir sjúkrahússins Hvita- bandsins sagði, að brottför svæfingarlæknisins hefði haft áhrif á alla starfsemi sjúkrahússins. Væri aðeins hægt að kveðja sérfræðing til aðstoðar í alvarlegustu tilfellum. Gísli Fr. Petersen yfir- læknir röntgcndeildar Land- spítalans sagði, að lækna- slsorturinn á þeirri deild kæmi fyrst og fremst niður á þjónustu við sjúklinga ut- an Landspítalans en hún hefur verið mjög mikil. Sagði hann ennfremur að yfirlæknarnir við Landspit- alann myndu koma saman til fundar siðar í vikunni til þess að ræða, hvað hægt væri að gera til að ráða bót á því vandræða ástandi, sem skapazt hefði. Pétur Jakobsson yfiriækn- ir fæðingardeildarinnar kvað starfsemi dcildarinnar ganga með eðlilegum hætti, enda yrðu fæðingar ekki stöðvaðar. Fæðingardeildin hefur þá sérstöðu, að þar er enn starfandi einn aðstoðar- lækniir auk yfirlæknis og kandidata. Niels Dungal prófessor yfirmaður rannsóknarstofu Ifáskólans kvað læknaskort- inn hafa ákaflcga slæm á- hrif á starfsemi rannsóknar- stofnunarinnar. Aðcins væri hægt að leysa af höndum nauðsynlegustu rannsóknir og verkefni söfnuðust fyrir auk þess sem ýms vísSnda- leg verkefni yrðu að sitja á hakanum. Hann kvaðst ekki hafa kvatt sér til aðstoðar sérfræðinga enn sem komið væri enda væru fyrirmæli um að það mætti ekki gera nema í brýnustu nauðsyn. Óskar Þ. Þórðarson yfir- læknir Bæjarspitaláns sagði að starfsemi þar gengi eftir öllum vonum, þegar miðað væri við það, að svo mikla starfskrafta vantaði að sjúkrahúsinu. Þrátt fyrir ítrekaðar til- raunir tókst blaðinu ekki að ná tali af fleiri yfirlæknum við deildir Landspítalans þar sem þeir voru svo önn- um kafnir að þeir máttu ckki vera að því að sinna ónauðsynlegum símakvaðn- ingum. Allt að 95 klukku- stunda vinnuvika 29 fóstrum eytt í Svíþjóð vegna thalidomids STOKKHÓLMI 7/11. — Sænsku heilbrigðisstjórninni bárust tutt- ugu umsóknir um fóstureyðingar vegna þess að hætta var á að bömin fæddust vansköpuð af því að mæður þeirra höfðu neytt thalidomids meðan þær gengu með þau. Orðið var við öllum umsóknunum. Laun aðstoðaryfirlæknis, sem tók 10 gæzluvaktir, voru í síð- asta mánuði kr. 13.209,50 eða kr. 16.903,40, ef viðkomandi var jafnframt dósent við læknadeild- ina. Vinna, sem lá á bak við þessi laun, ásamt bindingu í starfi, nam 83—95 klukkustund- um á viku, þannig að greiðsla á klst. verður um 44 kr. Frá þessu er m.a. skýrt £ at- hugasemd, sem stjórn Lækna- félags Reykjavíkur sendi frá sér 1 gær vegna fréttatilkynningar ríkisstjómarinnar sl. mánudag, en þar var birt tölulegt yfirlit um launagreiðslur úr ríkissjóði til fastráðinna sjúkrahússlækna. Þjóðviljinn taldi ekld ástæðu til að birta „frétta“-tilkynningu ríkisstjómarinnar og þessvegna verða athugasemdir Læknafélags- stjórnarinnar heldur ekki birtar hér. Þess skal aðeins getið, til viðbótar því sem að ofan grein- ir, að læknamir telja upplýsing- ar ríkisstjórnartilkynningar- innar mjög einhliða og næsta óskiljanlegar fyrir þá, sem ekki gerþekkja málið. Tilkynningin geti auðveldlega valdið misskiln- ingi. Kínverjar ítreka enn samningaboð Magnús Tómasson, nítján ára menntaskólapillur sýnir í Bogasalnum þessa dagana. Eins og áður var getið hér í blaðinu cru myndir hans allmargar af þeim víkur- húsum og bátum sem marg- ir íslenzkir listamenn hafa haft æskuást á. Magnús er í fimmta bekk mennta- skólans nú, en ætlar að hespa skólann af og ekki hugsa um annað en mynd- Iist upp frá því. Hingað til hefur hann haft alltof nauman tíma til að gefa sig að henni. Myndin sýn- ir Magnús við elna þeirra mynda sinna sem hann sjálfur hcfur msetur i. PEKING 7/11. — Sjú Enlæ, for- sætisráðherra Kína, hcfur cnn ritað Nehru, forsætisráðherra Indlands, bréf og ítrekar hann fyrri tilboð Kínverja um samn- ingaviðræður til að finna frið- samlega Iausn á landamæradcil- unni. Hann hafnar þeim skilyrðum indversku stjómarinnar fyrir slíkum viðræðum, að hersveitir beggja hörfi til stöðva þeirra sem þær höfðu fyrir 8. septem- ber s.l., en endurtekur tilboð um að hersveitir beggja hörfi 2J km frá hinni svokölluðu „eftirlits- línu“, eins og hún var dregin 7. nóvember 1959. Þetta tilboð, segir Sjú Enlæ, sýnir að Kín- verja reyna ekki að notfæra sér þá landvinninga sem eru afleið- ing þeirrar gagnsóknar sem þeir neyddust til að hefja í sjálfs- varnarskyni.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.