Þjóðviljinn - 16.11.1962, Blaðsíða 1
Föstudagur 16. nóvember 1962 — 27. árgangur — 251. [tölublað.
Helgafell hefur gefið út
nýja og mjög glæsilega
bók um Ásgrím Jónsson.
— Sjá 12. síðu
S
I
Dómsmála-
ráðherra
á Alþingi:
Kafhátastöð á Islandi hefur
vaxandi hernaðarþýðingu
Bjarni Benediktsson,
dómsmálaráðh., gaf þá
merku yfirlýsingu á
Alþingi í gær, að hern-
aðarleg þýðing íslands
í hugsanlegri styrjöld,
væri fyrst og fremst í
sambandi við kafbáta-
stöðvar hér á landi.
Eins og kunnugt er hef-
ur Þjóðviljinn áður bent
á það, að bandaríski her-
inn væri að búa sig undir
að koma hér upp slíkum
stöðvum, en þessu hafa ís-
lenzk stjórnarvöld jafnan
neitað harðlega. Yfirlýs-
ing dómsmálaráðherra á
Alþingi í gær gefur ótví-
ræða bendingu í þá átt,
hve haldgóðar fyrri yfir-
lýsingar ríkisstjórnarinn-
ar muni vera í þessu máli.
Þá er og vert að minna
á þær upplýsingar, sem
fyrir skömmu komu fram
í erlendum blöðum og
Þjóðviljinn sagði frá, að
herstöðvar Bandaríkja-
manna meðal annars hér
á landi, eigi að gera kaf-
I
„J
eldflaugum með kjarn- ^
orkuhleðslu á skotmörk
sín í öðrum löndum. Þetta
miðunarkerfi, ssm hinir
bandarísku kafbátar not-
ast við, eykur að sjálf-
sögðu gífurlega á þá
hættu, sem af herstöðvun-
um stafar.
Á 5. síðu blaðsins er
nánar sagt frá um-
mælum dómsmálaráð-
herra og umræðum á
Alþingi í gær.
Eigo crtvinnurekendur
að hofq úrslitaóhrif
innan Alþýðusambandsins?
Engum dylst að atvinnurekendasamtökin á íslandi eru beinn
aðili að dómi þeim sem kveðinn var upp i Félagsdómi um innri
mál Alþýðusambands íslands. Niðurstaðan valt
á einu atkvæði — atkvæði Einars Baldvins
Guðmundssonar hæstaréttarlögrmianns, sem er
formaður í einhverju stærsta atvinnurekenda-
félagi landsins, Eimskipafélagi íslands. Sú stað-
reynd ein ætti að nægja til þess að gera dóminn
að hreinni markleysu, sem enginn verklýðssinni
getur sætt sig við, hvergi í nálægu landi myndi
_____ það hugsanlegt að stóratvinnurekandi gæti haft
úrslitaatkvæði um innri mál verkiýðssamtakanna.
Það gefur auga leið að atvinnurekendur hlutast ekki til um
innri mál alþýðusamtakanna af áhuga á gengi þeirra eðá vegná
þess að þeim sé annt um hagsmuni verzlunarmanna; verzlunar-
fólk finnur það bezt þegar það á í samningum um kaup og kjör
hver er hin raunverulega afstaða atvinnurekenda. En ástæðan
til þess að stóratvinnurekendur þykjast bera Verzlunarmanna-
sambandið fyrir brjósti er sú að þar gegna enn sem komið er
forustu menn sem alls ekki eiga heima í verklýðsfélögum, og
slíka menn á nú að reyna að styrkja til áhrifa í sjálfum heild-
arsamtökum verkalýðsins.
Formaður Landssambands íslenzkra verzlunarmanná, Sverrir
Hermannsson, var til skamms tíma framkvæmdastjóri Vísis,
annars aðalmálgagns stóratvinnurekenda og heild-
sala. Hann er nú hluthafi í Eldborg h.f.. tekur
þátt í að gera út samnefnt skip, er hluthafi og
framkvæmdastjóri i útgerðarfélögunum Ögri b.f.
og Hrimni h.f. og starfrækti í sumar sem fram-
kvæmdastjóri og leigutaki söltunarstöðina Ými á
Siglufirði. Sverrir Hermannsson er semsé í hópi
umsvifameiri atvinnurekenda á íslandi.
H. Garðarsson, formaður Verzlunarmannáfélags
Reykjavíkur, er ritstjóri blaðsins Frost, sem gef-
ið er út af Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna, stærstu
atvinnurekendasamtökum á íslandi. Hann hefur
hreina atvinnurekendaafstöðu til allra málefna
verklýðssamtakanna.
Eigi einn stóratvinnurekandi að geta dæmt þessa
starfsbræður sína inn í Alþýðusamband íslands,
er eins gott að Félagsdómur dæmi næst Vinnu-
veitendasamband íslands inn í verklýðssamtökin í heilu lagL
• Sjómenn reyndu að leysa síldveiðideiluna á
hinum langa samningafundi í fyrrinótt með því að
bjóða samninga um skiptaprósentu sem þýðir tals-
verða kjaraskerðingu, en samningar strönduðu enn
sem fyrr á óbilgirni og þvermóðsku útgerðarmann-
anna.
• Vísir kallar það í gær „vísvitandi skemmdar-
verk“ að stöðva síldveiðiflotann. Það er þungur
dómur um Landssamband íslenzkra útvegsmanna,
sem heldur flotanum enn í höfn með kröfu um
mikla kjaraskerðingu sjómanna.
Vitað er að frá því að AL-a-
nessamningarnir voru gerðir hafa
útgerðarmenn verið að bjóða
Akraneskjör á ýmsum stöðum,
einnig stöðum sem heyra undir
hina sameiginlegu samninga. Má
ólíklegt teljast að það hafi far-
ið fram hjá samninganefnd út-
vegsmanna, og líklegt að útgerð-
armenn hafi verið að reyna að
smeygja sér úr klípunni á þenn-
an hátt.
★ Buðu fyrst háðungarboð
Á fundinum í fyrrinótt var
lengi vel ekki um nein tilboð
að ræða frá útgerðarmönnum.
Undir morguninn kom tilboð frá
þeim um 32.5% — 35.5%, eftir
stærðarflokkum. Það er sama og
gcrðardómurinn skammtaði á
minnstu skipunum, en 2% fy.ir
neðan gerðardómskjörin á
stærstu skipunum. Þetta er eina
breytingin sem útgerðarmenn
hafa boðið um kjörin á nokkr-
um hluta bátanna frá 31. okt.
Samninganefnd sjómanna taldi
þetta háðungartilboð. þar .em
væri gert á sama tfma og út-
^erðarmenn væru á ýmsum stöð-
um að bjóða Akranessamninga.
Tilkynnti samninganefndin sátta-
semjara að þetta tilboð útgerð-
armanna yrði látið ganga til
þeirra sem í deilunni standa, og
mundi þá sjálfsagt koma í blöð-
um.
Þegar útgerðarmönnum barst
sú vitneskja, að staða þeirra
yrði gerð heyrum kunn, kom
up mikill ótti í herbúðum þeirra,
og brá svo við að einu kortéri
seinna barst annað tilboð frá
útgerðarmönnum, sem beir
nefndu „algert lokatilboð“. Áttu
það að vera Akraneskjör sem
eru 36—38.5%, en eru þó el'ki
samhljóða Akraneskjörum hvað
snertir yfirlýsingu um manna-
fiölda á skipunum.
★ Sjómenn reyna að leysa
málið
Samninganefnd sjómanna hef-
ur frá upphafi samningaumleit-
ananna verið að freista þess að
ná samkomulagi með því að
bjóða fram hreyfingar á samn-
ingunum, enda þótt hún hafi
jafnframt mótmælt kjaraskerð-
ingarkröfu útgerðarmanna sem
órökstuddri og ósanngjamri.
Þessum tilraunum sjómanna að
firra vandræðum og koma flot-
anum af stað hafa útgerðarmenn
mætt með óbilgirni og þver-
móðsku.
Á fundinum í fyrrinótt, að
fengnu síðara tilboði útgerðar-
manna, gaf samningancl'nd sjó-
manna kost á samningum sem
miðuðust við skiptaprósentuna
37% á bátum yfir 130 tonn (12
Framhald á 12. síðu.
Reynt að svskjast
að sddarsjósnönnum
Um eyrun hans má eflaust spauga
af og til.
In vonarglampi \ vinstra auga
veit á SKIL
I dag, föstudag er skiladagur
á Happdrætti Þjóðviljans og
er skrifstofan á Þórsgötu 1
opin frá kl. 10 árdegfis til kl.
10 síðdegis og tekið á móti
skilum allan þann tíma.
Við viljum þakka mörgum,
góðum félaga fyrir skilning
á fjármálaástandi blaðsins og
hversu fljótt þeir hafa sinnt
kalli okkar.
En betur má ef duga skal.
Hver skil í smáu og stóru eri
ómetanleg aðstoð þessa tlaga
þegar skuldir falla í gjald-
daga vegna breytingarkostn-
aðar blaðsins.
Leggjumst á eitt að gera
þennan dag að stórum degi.
títgerðarmenn reyna nú með
ýmsu móti að narra sjómenn til
að rjúfa samþykktir félaga og
samstöðu í síldveiðideilunni, og
er ástæða til að vara sjómcnn
við slíku framferði og biðja fá
að hafa gott samband við samn-
inganefnd sjómanna og félög
sín.
Hér í Reykjavík er verið að
útbúa eitt af skipum útgerðar
Einars Guðfinnssonar í Bolung-
arvík. Var áhöfnin kölluð til
skips í fyrradag til að vinna við
skipið. í gær lét útgerðarmaður-
inn svo skipstjórann ganga með
plagg milli skipverja og fara
fram á að þeir skrifuðu undir að
með þeirra samþykki verði hafn-
ar síldveiðar upp á Akraneskjör
og væntanlega samninga. Sagði
skipstjórinn að útgerðarmaðurinn
hafi náð samkomulagi við verka-
lýðsfélagið á staðnum, í Bolung-
arvík um þetta!
Það upplýstist í málinu í gær
og er staðfest með skeyti að ekki
sé um neitt samkomulag að ræða
milli hlutaðeigandi útgerðar-
manns og verkalýðsfélagsins á
staðnum um kjör á síldveiðun-
um. Þannig er í þessu tilfelli
reynt að blekkja sjómenn til að
hefja veiðar á upplognum for-
sendum. Sjómennimir leituðu
hins vegar til samninganefndar
sjómannasamtakanna til að afla
sér réttra upplýsinga um málið,
og er það að sjálfsögðu hin rétta
og drengilega leið gagnvart fé-
lögum sínum og samtökum, öðr-
um til fyrirmyndar.
Beittu járnkörl-
um til björgunar
1 gærkvöld varð allharður á-
rckstur hjá Baldurshaga við
Rauðavatn. Vörubifreiðarstjóri
slasaðist, en þó ekki Iífshættu-
lcga.
Þetta vildi þannig til, að tveir
\'örubílar voru að koma ofan af
Sandskeiði sömu erinda. Hjá
Baldurshaga stöðvaði bílstjórinn,
sem á undan var, bifreið sína
fyrir utan veginn til að hafa tal
af hinum bílstjóranum. Sá seinni
stanzaði svo við hlið hins fyrri.
Bar þá að þriðja vörubílinn.
Stjómandi hans hemlaði og ætl-
aði að stöðva bílinn, en hart
snjólag var á veginum og hálka
nikil, og rann bifreiðin undir
hægra pallhom bílsins, sem á
veginum stóð. Við áreksturinn
klesstist húsið aftur og festist
bifreiðarstjórinn undir stýrinu.
Bílstjórarnir, sem fyrir voru,
brugðu hart við að koma starfs-
bróður sínum til aðstoðar. Þurftu
þeir að nota meitla til að brjóta
upp húsið og jámkarla til að
losa brakið frá hinum aðþrengda
manni, en þeim tókst þó að Iosa
hann. Bar þá að bíl með tal-
stöð og kallaði hann á hjálp.
Hinn slasaði bílstjóri var fluttur
á Slysavarðstofuna og síðan á
Landakotsspítala. Síðast þegar
fréttist voru meiðsli ekki full-
könnuð, en ristarbrotinn mun
hann vera.
■*