Þjóðviljinn - 16.11.1962, Page 5
▼
Föstudagur 16. nóvember 1962
ÞJÓÐVILJINN
’a stjómarvöltfín samþykk)
W
að gera Island að kafbátastöð
ÞINGSJÁ ÞJÓÐVILJANS
• Bjarni Benediktsson, dómsmálaráðherra gat
þá athyglisverðu yfirlýsingu á fundi neðri deild-
ar í gær, þegar rætt var um almannavarnir, að
hernaðarleg þýðing íslands í hugsanlegri styrj-
öld lægi fyrst og fremst í þeirri aðstöðu, sem hér
er unnt að hafa fyrir kafbáta.
• Þessi yfirlýsing ráðherrans staðfestir ótvírætt
það, sem Þjóðviljinn hefur áður haldið fram, að
bandaríski herinn búi sig nu undir það að koma
sér upp kafbátastöð í Hvalfirði.
• Þá gerðust ennfrem-
ur þau einstæðu tíðindi á
sama fundi, að Guðmundur
í. Guðmundsson, utanrík-
isráðherra . flutti breyting-
artillögu við rökstudda dag-
skrá Hannibals Valdimars-
sonar vegna frumvarps rík-
isstjórnarinnar um almanna-
varnir. Er breytingartillag-
an fólgin í því, að niður
verði felld úr rökstuddu
dagskránni eftirfarandi rök-
stuðningur fyrir brottflutn-
ingi hernámsliðsins: „ ...
samkvæmt skýlausri sam-
þykkt Alþingis frá 28 marz
1956, sem enn er í fullu
gildi ...“
• Með þessari breyting-
artillögu hyggjast stjórnar-
flokkarnir nú knýja fram
samþykkt á forml. st.efnu-
breytingu af hálfu Alþing-
is í þessu efni.
Guðmundur í. Guðmundssor
utanríkísráðherra kvaðst ekki
mundu ræða efni frumvarpsins.
hins vegar
viidi hann
’era athuga.
-emdir við
rökstuddu
dagskrána
Uit) fyrri hl.
hennar væri
baff að segia
^ð hann væri
ðsammála
beim álykt-
unum. sem þar væru dregnar.
t síðari hluta hennar væri þvi
hins vegar ranglega haldið fram
að ályktun Alþingis frá 28
.marz 1956 væri enn < gildi
Hann teldi þetta ekki rétt og
yrði að koma fram ný ályktun
Alþingis þar að lútandi. For-
sendumar fyrir ályktun Al-
■’þingis 1956 hefðui fallið. ; burt
bá um haustið. enda hafi það
komið í ljós. að þingmenn Al-
þýðubandalagsins hafi borið
fram tillögur um brottflutning
hersins á undanförnum þingum
Hann bæri því fram breyting-
artillögu bess efnis. að niður
yrðu felld úr rökstuddu dag-
skránni orðin . . ..samkvæmt
skýlausri ályktun Alþingis frá
28. marz 1956. sem enn er f
gildi”. þar sem vikið væri að
brottflutningi hernámsliðsins.
B.iarni Benediktsson, dóms-
málaráðherra tók þvi næst til
máls og hélt áfram ræðu sinni
frá síðasta fundi deiidarinnar
um þetta mál.
-> þá hafði
nn endað á
vf að segja
' aðgerðir
mdaríkia-
"’tina gagn.
">rt Kúbu
;->nuðu að
fla bæri á
-’nasta vaðið
neð það, hvort
stvriöld brytist út. Sagði Bjami
að fyrir siðari heimsstyrjöld
hefði Einar Olgeirsson verið
talsmaður þess, að hlutleysi
væri einskis vert. Sýnilegt væri.
að ísland hefði nú mun meiri
hemaðarþýðingu en þá. Þá
ræddi Bjami um staðsetningu
flugvéla. sem búnar væru kjam-
crkuvoDnum. á Keflavíkurflug-
velli. Þá sagði B.jarni enn-
fremur. að þýðing fslands í
hugsanlegri styrjöld yrði fyrst
og fremst sem kafbátastöð, þar
sem hernaðarieg þýðing þeirra
hefði mjÖE aukizt. Frá stöð
héðan væri unnt að stöðva all-
ar sÍEÍingar suður og vestur af
fslandi oe gerði þetta hernaðar-
þýðinEu kafbátastöðva hér mjög
mikia.
Lúðvík Jósefsson < Alþýðu-
bandalag’) kvað ástæðu til þess
að láta • ljósi sérstaka undr-
un vfir málf’utningi forsvars-
manna bessa frumvarps Dóms.
málaráðherra flytti ræður das
eftir dag en varaðist að minn-
ast á efnis-
leg atriði
‘-’áfsins Ræð
ur hans sner.
ust einkum
um gagnleysi
hlutleysis-
stofnunnar.
nnnhaf síð-
t: 's+i 1 stvriald
’r alheims.
Vftrntrij'jnicmo
05 b«cc b^t+nr o<* vp»ri
bos? s?ætt lata
ntvarrji^ fHrtrp fpnenr frácperv.ÍT
p.r bessum ræðum ráðherrans
Hins ve°ar fengiu menn ákúrur
frá dómsmálaráðherra. ef
minnzt væri á efnisatriði frum-
varpsins og álitsgerðir þær sem
því fylgdu. — Tilgangurinn með
frumvarpinu væri augljóslega
allt annar en látið væri í veðri
vaka. Þegar dómsmálaráðherr-
ann væri spurður, hvað hann
hyggðist fyrir um framkvæmd-
ir, kynni hann engin svör við
því og væri þó ár liðið frá
þvi' að frumvarpið kom. fyrst
fram og ýmiss konar undirbún-
ir.gur hafinn í þessu máli. Það
væri augljóst mál út frá efnis-
legu mati á þessu frumvarpi,
aö ekki gæti verið um miklar
ráðstafanir að ræða til bjargar,
ef þéttbýlasti hluti landsins yrði
fyrir kjarnorkuárás. Það komi
beinlínis fram í frumvarpinu,
að aðalhættusvæðið væri hér.
í grennd við herstöðina, en þrátt
fyrir það neitar dómsmálaráð- !
hcrra því, að það sé herstöðin, !
sem fyrst og fremst skapar
hættuna. Hann talar um hern-
aðarþýðingu iandsins. En til
hvers er þá verið að tala um
að flytja fólk einmitt burt af
bessu svæði kringum herstöð-
ina? Og það er einnig tilgangs-
iaust að halda bví fram, að það
séu flugvellir út af fyrir sig,
sem geti skapað árásarhættu.
Það er fyrst og fremst sá út- j
búnaður sem breytir flugvöll- j
unum í herstöðvar. vopna-
seymslur. mælitæki og mann-
virki. Það gildir t. d. um Hval-
fiörð. Það eru mannvirkin. sem
bar eru og þær mælingar sem
búið er að gera. sem gera hann
að hugsanlegri herstöð eins og
berlega kemur fram í álitsgerð
Hóltermanns hérshöfðméjá og
beinlínis 'er gert ráð fyrir þar
Það ræður líka úrslitum um
það að hættusvæðin eru suÖt
vestanlands. Þá minnti Lúðvík
ráðherrann á, að honum færist
manna sízt að tala um svikin
loforð i þessum umræðum. Það
fcefði einmitt verið hann, sem
22. marz 1949 gaf hátíðlega út
það loforð, að hér yrði aldrei
ber né herstöðvar á friðartím-
um. Fullyrðingar ráðherrans
ijm. að samþykkt Alþingis frá
28. marz 1956 um brottflutn-
Framhald á 3. siðu.
fðntiiieiital
Hinír eftirsóttu býzku hjólbarðar
— Endingargóðir
Ávallt til í öllum stærðum, nýjar
sendingar koma með hverri skipsferð.
CONTINENTAL hjólbarðar fást aðeins
hjá okkur
Önnumst allar hjólharðaviðgerðir með
fullkomnum iækjum.
Sendum um allt land.
Gúmmivinnustofan
Skipholtí 35 — Reykjavík — Sími 18955.
SIÐA 5
Otgefandi: Samelningarflokkui alþýðu — Sóslatlstaflokk-
urinn. —
Kitstjórar: Magnús Kjartansson. Magnús Torfi ölafsson,
Sigurður Guðmundssot) (áb.l
Fréttaritstjórar: tvar H -Jónsson Jón Bjamason.
Ritstjóm afgreiðsla. auglýsingar prentsmiðia: Skólavörðustlg 19.
Sími 17-500 (5 línur) Askriftarverð kr 65.00 á mánuði.
Trúiö þeim
aldrei!
j^osningaþing stendur yfir, og umhugsunin um
þá andartakssstund sem kjósendur dveljast
einir með kjörseðli sínum næsta sumar mótar
framkomu pólitíkusanna í hverju máli. Þannig
eru hernámsflokkarnir nú að grafa sér skot-
grafir kringum Efnahagsbandalagsmálið og vona
að í þeim geti þeir varizt með nokkru öryggi
þar til kosningar eru afstaðnar og þeir hljóta
frelsi á nýjan leik. Stjórnarflokkarnir sem fyr-
ir ári höfðu þá afstöðu að íslendingar ættu að
gerast fullir aðilar að Efnahagsbandalaginu og
það sem allra fyrst, lýsa nú yfir því að full að-
ild komi ekki til mála. en rétt sé að gefa auka-
aðild sérstakan gaum, þótt að vísu sé ólióst enn
hvort hún henti okkur. Og Framsóknarflokkur-
inn sem fyrir ári kvað fulla aðild álitamál en
aukaaðild sjálfsagða og hafði forustumenn sína
á stöðugum levnifundum með stjórnarflokkun-
um, lýsir nú yfir bví að hvorugt komi til greina.
Upp úr þessum skoígröfum munu svardaearnir
síðan rísa sem varnarmúrar og hækka allt fram
á kosningadag.
J^áta landsmenn þessa aðferð blekkja sig einu
sinni enn; eru menn ekki farnir að læra af
reynzlunni? Stórfelldustu svardagar sem blas-
að hafa við íslendingum voru reistir af hernáms-
flokkunum 1949. Þá fóru Bjarni Benediktsson,
Eysteinn Jónsson og Emil Jónsson saman til
Bandaríkjanna og sfaðfestu eftir heimkomuna
í mjög hátíðlegu þingskiali að aldrei skyldi til
þess koma að hér á landi dveldist erlendur her
á friðartímum. Þeir birtu einnig yfirlýsingu frá
sjálfum utanríkisráðherra Bandaríkjanna þar
sem hann hét því sem baktryggingu að þessi sér-
staða fslands skyldi virt um aldur og ævi. Aldrei
hefur verið svarið heitar á íslandi. og aldrei
hefur verið meiri ástæða til að trúa eiðstafnum,
en allir vita nú að það ár var siðferði þessara
stjórnmálamanna svo háttað að drengskapurinn
var orðinn að kosningabrellu. Eða muna menn
ekki reiði stjórnarflokkanna fyrir síðustu kosn-
ingar þegar Þjóðviljinn bar upp á þá að þeir
myndu skerða 12 mílna landhelgi fslendinga
þegar að kosningum loknum? Þeir byggðu um
sig múr heilagrar vandlætingar yfir því að nokk-
ur íslendingur skyldi ætla samlöndum sínum
þvílík óheilindi, en þegar kosningarnar voru af-
staðnar og næsti kjördagur í langri fiarlægð var
vandlætingunni sökkt niður á hafsbotn ásamt
rétti íslendinga.
það er frumatriði í íslenzkum stjórnmálum að
trúa aldrei neinum svardaga frá ráðamönn-
um hernámsflokkanna. Þeir hegða sér aðeins
sómasamlega meðan þeir eru hræddir við kjós-
endur. Þeir eru skelfdir nú, og eina öryggi lands-
manna er í T~"ri' fólcri* að óttinn verði ekki minni
hplriirr nn'^iri þegar kosningadagurinn er að
baki. — m.
i *