Þjóðviljinn - 12.12.1962, Page 12
4
Eftir fjóra daga verður
dregið um fjórða auka-
vinning 1 Skyndihapp-
drætti Þjóðviljans og er
það Veritas saumavél. Að-
eins dregið úr seldum mið-
um. I dag er skrifstofa
happdrættisins á Þórsgötu
1 opin frá kl. 10 til 12 og
1 til 7. Símar 22396 og
19113. Þessi númer hafa
komið upp á fyrri auka-
vinningum: 4042, 68353 og
76162 og eru menn beðnir
um að huga að þeim i
blokkum sínum.
»
n
Miðvikudagur 12. desember 1962 — 27. árgangur — 273. tölublað.
!
I
einstæðramæira, ekkna og fleiríbótaþega
Deilda-
Stjórnarflokkarnir, S.jálf*
stæðisflokkurinn og Alþýðu-
flokkurinn, felldu í gær á Al-
þingi að einstæðar mæður,
ekkjur og nokkrir fleiri
flokkar bótaþega almanna-
trygginganna fengju hækk-
un um 7% á bótum sínum
frá 1. júlí 1962. Var það
breytingartillaga frá Alfreð
15. deild Selás og Smálönd w'
49% ^
5. deild Norðurmýri N
40%
14 deild Herskálakampur
35% N
9. deiid Klcppsholt
34%
1 deiid Vesturbær
31%
3. deild Skerjafjörður og
Grímstaðaholt 32%
4. deild b Skuggahverfi
30%
7. deild Rauðarárholt
30%
8. deild a Teigarnir
29%
4. deild a Þingholtin
28%
13. deild Blesugróf
25%
11. deild Smáíbúðahverfi
vestanm. 24%
10. deild b Vogamir
23%
6. deild Hlíðamar
22%
2. deild Melarnir, Skjólin
og Seltjarnarnes 21%
8. deild b Lækirnir
21%
10. deild a Heimarnir
19%
12. deild Sogamýrin og
Gerðin 12%
Ofangerð skrá sýnir stöðu .
dcildanna hér í bænum og |
hvernig skil standa ti!
happdrættis blaðsins.
Það veltur á ýmsu i þess- ^
ari keppni næstu daga og tq
verður spennandi og fróð- h
legt að sjá hvemig endar ^
á Þorláksmessu.
á Isafírði
ISAFIRÐI 10/12 — A Iaugar-
daginn var opnuð ný verzlun
hér á Mjallargötu 5. Að verzlun-
inni standa félögin Sjálfsbjörg og
Berklavöm á ísafirði.
Félögin keyptu húseignina á
Mjallargötu 5 í sumar og hyggj-
ast reka bar í sameiningu auk
verzlunarinnar, vinnustofu fyrir
fatlað fólk á staðnum og auk
þess verður í húsinu íbúð fram-
kvæmdastjóra. Húsið er gamalt,
tveggja hæða og um 200 fer-
metrar, því fylgir 830 fermetra
eignarlóð.
í verzluninni verða aðallega
seldar vörur frá Reykjalundi og
Múlalundi og svo að sjálfsögðu
frá hinni nýju vinnustofu. Verzl-
unin hefur umboð á Isafirði fyrir
bessar vörur og auk þess tekur
hún við umboði vöruhappdrættis
SÍBS.
Við opnunina skýrði Maríus
Helgason umdæmisstjóri svo frá,
að fyrirtæki þetta sé hið fyrsta,
sem þessi tvö samtök reka sam-
eiginlega, en Sjálfsbjörg hefur
rekið vinnustofu á Isafirði síðan
árið 1959.
1 stjórn fyrirtækisins eru 6
men, 3 frá hvoru félagi og skipt-
ast þau á um formann og ritara
sitt hvort árið.
Formaður nú er Júlíus Helga-
son frá Berklavörn og ritari Ingi-
björg Magnúsdóttir frá Sjálfs-
björg. Aðrir í stjóm eru Bjarni
Guðmundsson, Bergþóra Eggerts-
dóttir, Guðmundur Helgi Guð-
mundsson og Guðni Ásmundsson.
Formaður Berklavamar á Isa-
firði er Maríus Helgason og for-
maður Sjálfsbjargar er Ingibjörg
Magnúsdóttir.
H.Ó.
Gíslasyni lækni og Karli
Kristjánssyni, sem efrideild-
arþingmenn stjórnarflokk-
anna felldu, og hefði ekk'
nema einn þeirra þurft að
veita þessu réttlætismáli lið,
því breytingartillagan var
felld með eins atkvæðis mun,
8 atkvæðum gegn 7.
Þetta gerðist við 3. umræðu
í efri deiid um stjórnarfrumvarp
til breytinga á almannatrygging-
arlögunum, en þar er ákvæði um
að ellilífeyrir og örorkubætur
hækki um 7% frá 1. júlí 1962,
en hins vegar engar aðrar bæt-
ur!
Alfreð Gíslaso.n átaldi þetta
og færði rök að sanngimi og
réttmæti tiliögu þeirra Karls, en
í henni var lagt til. að auk
þeirra bóta sem frumvarpið
fjallar um skuli makabætur,
barnalífeyrir, mæðralaun, fæð-
ingarstyrkur ekkjubætur og
ekkjulífeyrir einnig hækka um
sjö af hundraði En við það
var ekki komandi. Og stjórnar-
flokkarnir höfðu eins atkvæðis
meirihluta við’átinn til að fella
þetta sanngirnismál.
Frumvarpið var afgreitt sem
lög með samhljóða atkvæðum.
Ingvar Jónasson og Gunnar Egilson æfa Duo fyrir klarínettu og
fiðlu eftir Gunnar Berg.
eiscar musica
\ma i
laráiherra Hitlers
refst hárra eftirlauna!
*
LONDON 11/12 — Mikill urgur
er í brezkum blöðum yfir því
að Skybolt-eldflaug sú sem
Bandaríkjamenn höfðu lofað
Bretum að þeir gætu tekið í
notkun í sprengjuþotum sínum
árið 1965 í síðasta lagi verður
sennilega aldrei nothæf. McNam-
ara, landvamaráðheyra Banda-
rikiímna, sem kominn er til Bret-
lands, hefur upplýst að allar
tilraunir með eldílaugina hafi
mistekizt hingað til og gefið í
skyn að hætt verði við smíði
hennar. Allt til þessa hefur ver-
ið látið í veðri vaka að tilraun-
imar hafi gengið að óskum.
Nýjar rannsóknir sem gerðar
hafa verið víða um heim, m. a.
í Englandi, Ceylon og Mið-
Agíu, hafa enn staðfest sam-
hengið milli sígarettureykinga
og krabbameins í lungum.
Manndauði af völdum lungna-
krabba er að jafnaði tíu sinn-
um meiri meðal reykinga-
manna en annarra og getur
orðið allt að 30 sinnum meiri
meðal þeirra sem reykja hálf-
an annan sígarettupakka á
dag eða meira heldur en hinna
sem ekki reykja, segir Alþjóða-
heilbrigðisstofnunin WHO.
Á dómsmálaráðherra Hitlers,
Franz Schegclberger, rétt á að
fá eftirlaun, sem nema rúm-
lega 400 þús. ísl. krónum á árí?
Schegelberger hvikar ekki frá
þessari kröfu sinni, en fylkis-
stjórninni í Slésvík-Holseta-
Iandi finnst ekki, að hann hafi
unnið til siíkra eftirlauna.
Dómstóll bandamanna í
Niirnberg dæmdi Schegelberger
í ævilangt fangelsi fyrir stríðs-
glæpi og glæpi gegn mannkyn-
inu við réttarhöldin árið 1947.
Hann var látinn laus 1951
vegna heilsubrests og var loks
náðaður 1957. Honum voru ný-
lega dæmd eftirlaun við mála-
ferli í Slésvík, en fylkisstjóm-
in, hefur áfrýað málinu til æðri
dómstóls.
Schegelberger var í þjónustu
ríkisins, er nazistar brutust til
valda árið 1933. Hann var þá
orðinn ráðuneytisstjóri í dóms-
málaráðuneytinu og var þann-
ig kominn upp í efstu þrep
metorðastigans í Weimariýö-
veMinu. Hann var um skeið
dómsmálaráðherra í Þriðja rfk-
inu.
Undirréttur í Slésvík komst
að þeirri niöurstöðu, sem víða
hefur vakið miMa undrun og
gremju, að Schegelberger hafi
ekki verið ljóst, hvað hann var
að gera. Hann hafí efcki skilið,
að þátttaka hans í glæpaverk-
um nazista væri vítaverð. Auk
þess hafi hann verið að reyna
að koma í veg fyrir, að ástand-
ið versnaði enn frekar. Á þess-
um forsendum voru honum
dæmd eftirlatm.
í yfirréttinum hefur verjandi
fylkisstjórnarinnar haldið því
fram, að lögfræðingum hafi
borið sérstök skylda til að neita
að starfa í þjónustu Hitlers.
Hann fullyrðir einnig, að Sche-
gelberger hafi séð í gegnum
fingur við nazistana, er þeir
frömdu mörg sín verstu glæpa-
verk, og hann hafi átt þátt í að
ákveða það, sem nefnt var „hin
endanlega lausn gyðingavanda-
málsins". Schegelberger samdi
frumdrög að lögum um sérstök
refsiákvæði, sem stefnt var
gegn Pólverjum, og alræmd
voru hin glæpsamlegu lög hans,
sem kennd voru við nóttina og
þokuna (Nacht und Nebelbest-
immimg). Hvað eftir annað
hafði hann afskipti af réttar-
höldum með þedm afleiðingum,
að fómarlömbin lentu beint í
höndum á morðingjum Gesta-
po.
Sannað er, að Schegelberger
var í slíku dálæti hjá Hitler,
að hann hlaut 100.000 ríkis-
mörk í gjöf frá Foringjanum
persónulega. Búizt er við, að
yfirrétturinn úrskurði eftir
nokkra daga, hvort ráðherrann
fyrrverandi teljist eiga rétt á
eftirlaunum fyrir vel unnin
störf í þágu þýzkra yfirvalda.
I kvölcl heldur Musica Nova
fyrstu tónleika sína á þessu
starfsári. Tónleikarnir verða
haldnir á Hótel Borg og hefjast
klukkan 21.30.
Á r' dsskránni eru m.a. verk
eftir ivö dönsk tónskáld. Seren-
| ade fyrir fiðlu, selló og píanó
eftir Jan Maegaard sem Einar
&. Sveinbjömsson, Einar, Vigfús-
son og Atli Heimir Sveinsson
leika. Duo fyrir klarínettu og
fiðlu eftir Gunnar Berg, leikin
af Gunnari Egilssyni og Ingvari
Jónassyni. Ekki hefur áður verið
flutt verk eftir þennan höfund
hér á landi.
Þá er sónata fyrir hörpu eftir
Paul Hindemith; hún verður
leikin af bandaríska hörpuleikar-
anum Jude Mollenhauer Webst-
er.
Næst eru Afstæður I og II fyr-
ir fiðlu, og píanó eftir Leif Þór-
arinsson, leiknar af Bimi Ólafs-
syni, Einari Vigfússyni og Þor-
keli Sigurbjömssyni. Verk þetta
var frumflutt í New York og
flutt nokkru seinna í Kaup-
mannahöfn, en þetta verður
fi’umflutningur hér á landi.
Þrjú sönglög eftir Fjölni Stef-
ánsson eru síðust á efnisskránni.
Lög þessi voru samin árið 1958
við ljóð úr Tímanum og vatn-
Lokið verksmiðju-
r
byggingu í Olafsv.
Ólafsvík 6/12 — Lokið er endur-
byggingu Fiski- og síldarmjöls-
verksmiðjunnar hér í Ólafsvík
og voru vélar og tæki reynd í
dag.
Verksmiðjan hefur verið end-
í
!
Þessi nútner blutu liæztu vinningana í 12. flokki Happ-
drætfSs Hásbóla ísfands. — VinningaskríUn er á 9. síðu.
Nr. 47992 kr. 1j000.98!)
30479 kr. 260J
43624 kr. 199J
i
urbyggð á sama stað og hún var
fyrir brunann í júní 1961.
Hefur afkastageta verksmiðj-
unnar verið aukin til muna, og
á hún nú að geta brætt 12 —
1500 mál 6Íldar á sólarhring.
Einnig hefur þróarpláss verið
stækkað mjög og tekur nú 10
þús. mál. Lýsisgeymir hefur ver-
ið byggður, sem tekur 340 tonn
og annar, sem tekur 540 tonn,
verður tekinn í notkun bráðlega.
Búizt er við, að verksmiðjan geti
unnið með fullum afköstum eftir
helgina. Vélsmiðjan Héðinn ann-
aðist niðursetningu véla, raflagn-
ir Tómas Guðmundsson rafvirkja-
meistari Ólafsvík og Böðvar
Bjarnason trésmíðameistari sá um
tréverk.
Eigandi verksmiðjunnar er
henni samnefnt hlutafélag. Verk-
smiðjustjðri er Þorsteinn Ár-
sælsson. E.V.
i w@y
inu eftir Stein Steinarr. Þau
voru frumflutt hjá ISCM í Vín
árið 1961, síðan á menningar-
viku hernámsandstæðinga og
loks á norrænu tónlistarhátíðinni
i Kaupmannahöfn í haust
Musica Nova hefur ýmislegt
annað á prjónunum. Á annan
jóladag verður gengizt fyrir
flutningi óperunnar Amahl og
næturgestirnir eftir Giancarlo
Menotti í Tjarnarbæ.
í lok febrúar verða aðrir tón-
leikar og þeir þriðju seinni
partinn í apríl. Á tónleikum
þessum verða m.a. flutt verk eft-
ir Atla Heimi Sveinsson, sem
hann nefnir Hlyni og Haustlitir
eftir Þorkel Sigurbjömsson. Af
erlendum tónskáldum má nefna
Bela Bartok, Anton Webern og
Bo Nilson.
Kœfa veldur
matareitrun
1 Iok síðustu vilcu veiktúst
að því er vitað er 13 manns
með einkenni um matareitrun.
Enginn veiktist þó hættulega.
Grunur féll strax á kæfu,
sem keypt var , verzluninni
„Ásgeir“, Langholtsvegi 174
hér í borg, og búin var til
þar í byrjun vikunnar. Var
sala á henni stöðvuð þegar á
laugardag, og sýnishom tekin
til rannsóknar. Kæfan hefur
ekki verið til sölu í öðrum
vérzlunum.
Við rannsóknina hafa nú
fundist í kæfunni sýklar, sem
valda matareitrun og nefndir
eru stafgerlar (staphylococcus
aureus). Matareitrunin orsak-
ast af sérstöku eiturefni, sem
sýklarnir framleiða, e£ þeir
komast í matvæli. Hins vegar
er hér ekki um smitun að
ræða frá manni til manns.
Ekki er vitað um neinn,
sem veikst hefur síðan salan
var stöðvuð.
Þeir, sem enn kunna að
eiga kæfu, sem keypt var í
framan greindri verzlun frá
miðvikudegi til laugardags í
síðustu viku, eru hér með
varaðir við að neyta hennar.
Athugun leiddi í ljós, að
framleiðsluháttum kæfunnar
var í þetta sinn ábótavant, og
verður framleiðsla ekki leyfð
á ný, fyrr en ráðin hefur ver-
ið bót á þeim ágöllum.
(Frá borgarlækni).