Þjóðviljinn - 20.12.1962, Page 1
!
Fimmtudagur 20. desember 1962 — 27. árgangur — 279. tölublað.
Lífskjarabót Gylfa
í janúar 1959 var tímakaup
Dagsbrúnarmanns kr. 23.86 á
klukkustund. Þá kostaði
pakkinn af hrísgrjónum kr.
4.05, eða rúmlcga 10 mínútna
vinnu.
Nú er almennt tímakaup
Dagsbrúnarverkamanns kr.
24.40. Ilrísgrjónapakkinn er
hins vegar kominn upp í kr.
7.10. Hann kostar þannig nær
18 mínútna vinnu.
Næst þegar Gylfl Þ. Gísla-
son borðar hrísgrjónagraut
getur hann hugleitt hverja
lífskjarabót sá réttur hafi
fært verkamönnum á síðustu
fjórum árum.
Breytsngartillögur Alþýðabandalagsins við fjárhagsáætiun Reykjavíkur
Hærri framlög til bygginga-
framkvæmda og menningarmála
BrÆWjBMrÆW ^ ■!' mm æí y
| Merkar tillögur Al- í
| þýðubandalagsins: |
| Adstoð viði
jaldrað fólkj
i
1 breytingartillögum borg- I
arfullarúa Alþýöubandalgs- k
ins við fjárhagsáætlun B
Reykjavíkurborgar fyrir ár- fe.
ið 1963 eru tvö merk ný- ^
mæli, sem rétt þykir að k
vekja sérstaka athygli á "
hér í blaðinu.
Lagt er til,
verði upp 500
framlag til aðstoðar við
aldrað fólk eftir nánari
ákvörðun borgarráðs. Þessi
við ályktunartillögu þá sem L
Alfreð Gíslason flytur um
bætta aðbúð og aukna |
heilsuvernd aldraðs fólks, B
er birt hefur verið hér í b
blaðinu, en þar er m.a. gert
ráð fyrir að komið verði á B
heimilishjálp, er annist eft- J
irlit og aðstoð við einstæð B
gamalmenni, er dvelja í
heimahúsum.
£ Þá er lagt til að tekinn |
Q verði upp nýr liður: Aðstoð J
J við húsnæðislausar fjöl- |
1 skyidur, 1 millj. kr.
Þessi tillaga er mjög þörf ■
I vegna vaxandi húsnæðis- J
K vandræða í borginni er B
|| leiða af óhóflegri hækkun k
byggingarkostnaðar og
lánsvaxta svo og rýrnandi
lífskjara almennings. Gerist ^
það nú æ tíðara, að hús- k
næðislaust 'fólk brestur qj
fjárhagsgetu til þess að K
„ festa sér húsnæði og myndi ^
J nokkur styrkur frá borg- |
■ inni, 20—30 þús. krónur, oft N
* geta riðið þar baggamun- R
irm J
Star/sfólk veitsnga-
húsa fær kjarabætur
Samninæar hafa tekizt um k.iör starfsfólks í
veitingahúsum, en verkfall hafði verið boðað í
þeirri starfsgrein frá 0£ með öðrum degi ióla.
Sáttafundur í deilunni hófst í
fyrrakvöld og lauk í gærmorg-
un með undirritun samnings.
Samkvæmt honum hækkar kaup
stúlkna um 11%. Nú var auk
þess í fyrsta skipti samið sér-
staklega um kaup fyrir smur-
brauðsstúlkur og fá þær kr.
6000 á mánuði, en það er sama
kaup og næturverðir gistihúsa
höfðu, en kaup þeirra var hækk-
að allmikið að þessu sinni.
Þá var samið um 6% orlof á
alla aukavinnu og tvo frídaga
til viðbótar þeim fimm sem fyr-
ir voru. Auk þess var nú í fyrsta
skipti samið um kaffi- og mat-
artíma starfsfólks og að einn
hinna vikulegu frídaga hvers
mánaðar verði sunnudagur.
Samningurinn gildir frá 1.
des. til 31. des. 1964, en kaup-
gjaldsákvæðum má segja upp á
misseris fresti hækki vísitaia
framfærslukostnaðar um tiltek-
inn stigafjölda.
Samninganefnd starfsfólksins
undirritaði samninginn með fyr-
irvara um samþykkt félagsfund-
ar, og í kvöld verður fundur í
Félagi starfsfólks í veitingahús-
um til að fjalla um samninginn.
Fyrri samningur félagsins var
frá því í júlí 1961.
á jóla-
trjám
★ Það hefur verið mlkil ös að
★ öllum jafnaði við sölustað
★ Landgræðslusjóðs á Laugavegi
★ undanfarna daga, en þarna
★ eru seld jólatré og greni- og
★ furugreinar. Ljósmyndarinn
★ náði þessari mynd á dögun-
★ um, þegar viðskiptavinirnir
★ voru með fæsta móti. (Ljósm.
★ Þjóðv. A.K.).
Um klukkan hálf sex í gær-
dag, kom upp eldur í verk-
stæði í kjallara Gamla komp-
anísins við Síðumúla. Nokkrar
skemmdir urðu á einangrun á
vegg. Aðrar ekki.
Borgarfulltrúar Al-
þýðubandalagsins hafa
lagt fram breytingartil-
lögur sínar við frumvarp
að fjárhagsáætlun Rvík-
urborgar fyrir árið 1963.
Aðalefni breytingartil-
lagnanna er að hækka
framlög til byggingar
íbúða, skóla, barnaheim-
ila og leikvalla og að
fjár til þess sé aflað með
lagfæringu á tekjuáætl-
un frumvarpsins og með
því að draga nokkuð úr
óþörfum úfgjöldum og
eyðslu hjá borgarsjóði.
Síðari umræða og afgreiðsla
fjárhagsáætlunarinnar fer fram
á íundi borgarstjómar, sem hefst
kl. 5 í dag. Fyrri umræða fór
fram fyrir hálfum mánuði og
fylgdi þá Geir Hallgrímsson
borgarstjóri frumvarpinu úr
hlaði en Guðmundur Vigfússon
gagnrýndi þá þegar ýmsa þætti
frumvarpsins og deildi á fjár-
málastjórn borgarstjómarmeiri-
hlutans og fjölmargt í rekstri
borgarinnar og stofnana hennar.
Tekjuhækkun um
6,9 milljónir
I breytingartillögum Alþýðu-
bandalagsins er gert ráð fyrir að
tekjur borgarsjóðs verði 6.9
millj. kr. hærri en frumvarpið
gerir ráð fyrir. Munar þar mest
um tillögu um 6 millj. kr. hækk-
un aðstöðugjaldsins, og er þar
miðað við að þetta gjald, sem
innheimt er af atvinnurekendum
í stað veltuútsvaranna áður,
hækki um rúml. 20%, en samkv.
frumvarpinu er gert ráð fyrir
að útsvarsupphæðin hækki um
27% frá fyrra ári. Aðrar tekju-
hækkunartillögur nema smærri
upphæðum.
Nokkuð dregið úr
óþörfum útgjöldum
Við gjaldabálk frumvarpsins
flytja borgarfulltrúar Alþýðu-
bandalagsins margar breytingar-
tillögur til lækkunar á ýmsum
óþörfum útgjöldum og bruðli,
sem borgarstjómarmeirihluti £-
Framhald á 2. síðu.
2 menntaskól-
ar í Reykjavík
Gylfi Þ. Gíslason menntamála-
ráðherra skýrði frá á þingfundi
í gærkvöld, spánýrri „ákvörðun"
um menntaskólabyggingar í
Reykjavík. Væri nú ákveðið að
kaupa tvær lóðir í viðbót við
Bókhlöðustíg og ætlazt til að
skólinn fengi allt svæðið milli
Bókhlöðustígs og Amtmannsstígs
og frá Lækjargötu að Þingholts-
stræti, þó þannig að húsaröð
yrði vestan Þingholtsstrætis.
Þama yrði byggð næsta sum-
ar einnar hæðar skólabygging
með sex sérkennslustofum, auk
þess yrði þar næsta ár byggt
leikfimihús á lóð skólans. Þetta
myndi kosta um 22 milljónir
króna að meðtöldu lóðarverði.
Auk þessa hefði ríkisstjómin
ákveðið að byggt skuli nýtt
menntaskólahús við Hamrahlíð
er taki 500 nemendur og kosti
nálægt 50 milljónum, en byrjað
yrði á því 1964.
Yrðu þá tveir menntaskólar
í Reykjavík eftir fáein ár, sagði
ráðherrann og lét þá umsögn
fylgja að þetta væri gáfleg-
asta lausnin á þessu máli.
Alþingi frestað
Samþykkt var á fundi samein-
aðs þings 1 gær heimild til að
fresta fundum Alþingis frá deg-
inum í dag, 20 des. til 29. janúar.
Sameinað þing fjallaði í gær
um fjárlagafrumvarpið, við 3.
umræðu, og komu fram allmarg-
ar breytingatillögur. Stóð fund-
ur fram á nótt og var jafnvél
gert ráð fyrir að umræðu máls-
ins lyki í nótt, en atkvæða-
greiðsla færi fram í dag.
Vinnutími
og kaup
Vegna mistaka hefur sama fyr-
irsögn og var á forystugrein
blaðsins í gær lent yfir leiðar-
anum i dag. Hin rétta fyrirsögn
er: Vinnutími og kaup.
ZTÚ
Dregið eftir fjóra daga — Opið é Þórsgötu í til kí. W
/ kvöld — Nú er hver síðustur - Happdrætti Þjóðviijans