Þjóðviljinn - 20.12.1962, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 20.12.1962, Blaðsíða 12
Handboltastrákur fékkjarðhnöttinn Einn Þjóðviljamanna var nærstaddur, þegar afhent voru 1. verðlaun fyrir gagn- fræðaskóla í getraunakeppni Máls og menningar. Það var i fyrradag í húsi féla.gsins Laugavegi 18. Auðvitað gát- um við ekki látið verðlauna- hafann, Svein Óskarsson í friði fyrir spumingum? ■— Hvað ertu gamall? — 13 ára. verð 14 núna í desember. — Og þú ert í Gagnfræða- skólanum við Lindargötu? — Já, í II. bekk. — Gaman þar? — Já, mér líkar vel. — Hvað er mest gaman? — Mér finnst náfttúru- fræðin skemmtilegust. en sag- an er svo sem ágæt líka. — En þegar Þú ert ekki í skólanum, hvað gerirðu þá? — Ég vinn. — Líka á veturna? — Já, ég vinn allan ársins hring. Ég er hjá Bergi Lár- ussyni, Simra-umboðinu. ég bæði sendist og afgreiði í búð Stundum er ég tvo til þrjá tíma fyrir hádegi, stund- um einn. en í jólafríinu vinn ég al'lan daginn. — Þá hefurðu aldrei frí. — Jú, ég hef frí á kvöldin. — Ferðu þá í bíó? — Nei, Ég fer bara í híó á sunnudögum. Svo er ég líka í handbolta •— í hvaða félagi? — Ég er í Fram í fjórða flokki A — Þá ertu líklega íslands- meistari. — Nei ekki alveg. — Heldurðu. að Þú verðir það ekki? — Við ætlum að gera það sem við getum. — Jæja. þér verður ekki svarafátt. En segðu mér að lo.kum: Heldurðu, að það verði ekki gott að hafa jarðlíkan- ið við landafræðinámið í skól- anum? — Jú. — Og svo fæ ég kannski að fara til útlanda næsta sumar, og þá verður gott að ver.a búinn að læra um þau lönd, sem maður ferðast til. F.T.H. Þörf mikils átaks í uppeldismálunum Við afgreiðslu fjárhagsá- ætlunar Reykjavíkurborgar fyrir árið 1963 sem fram fer á borgarstjórnarfundi í dag flytur Adda Bára Sigfúsdótt- ir sex ályktunartillögur er varða uppeldismál. Fjalla þær um byggingu vistheim- ila, dagheimila og vöggustofu fyrir börn, aukna leikskóla- starfsemi, auknar fram- kvæmdir við leikvallagerð, starfrækslu skólaheimila og sumarbúðastarfsemi fyrir böm og unglinga. Hefur borgarstjórnaríhaldið mjög vanrækt þessi mál á und- anförnum árum svo að þörf- in á stóru átaki til úrbóta er mjög brýn. Tillögur öddu Báru fara hér á eftir. „Borgarstjóm álítur óhjá- kvæmilegt að hefja á næsta ári framkvæmdir á þeirri áætlun um byggingu vistheimila, sem borgarstjóri lagði fram á fundi borgarráðs 30. apríl síðastliðinn. Borgarstjómin telur Reykjahlið heppilegan stað fyrir upptöku- heimilin, að því tilskildu, að bamaheimilum þar verð tryggð afnot jarðarinnar eftir þörfum, og felur borgarráði að sjá til þess að framkvæmdir geti haf- izt þar næsta vor“. Daghelmili — leikskólar „Borgarstjórn átelur, að enn skuli ekki vera hafnar fram- kvæmdir við dagheimilið í Grænuhlíð og leggur rika áherzlu á að þeirri byggingu verði lok- ið á næsta ári. Jafnframt tel- ur borgarstjóm nauðsynlegt, að undirbúin verði á árinu bygging dagvöggustofu í Vesturbænum, annað hvort í tengslum við Hagaborg eða nýtt dagheimiii. Einnig ákveður borgarstjórn að láta starfrækja dagvöggustofu í gamla húsinu á Hlíðarenda og gera tilraun með vikuvistar- vöggustofu í öðru hvoru hús- inu þar“. „Þar sem mjög brýn þörf er fyrir aukna leikskólastarfsemi, felur borgarstjórn borgarráði að láta fara fram athugun á þvf, hvort ekki sé unnt að útvega húsnæði, sem nothæft sé fyrir slíka starfsemi í þeim hverf- um, sem verst eru sett í þessu efni, svo sem Bústaðahverfi og Laugarneshverfi, jafnhliða því sem unnið verði að byggingu nýrra leikskóla og við það mið- að, að hér eftir verði smiði leikskóla lokið í hverju nýju íbúðarhverfi um svipað leyti og íbúðir þar eru almennt teknar í notkun". Lelkvellir „Vegna sívaxandi slysahætlu af völdum aukinnar umferðar, telur borgarstjóm óhjákvæmilegt að auka framkvæmdir við leik- vallagerð til muna. Borgarstjóm- in álítur að þörf sé á þrenns konar leiksvæðum í hverju íbúðarhverfi: 1) lokuðum gæzlu- velli með skýlum, sem veitt gætu afdrep þegar verr viðrar; 2) opnum, en afgirtum velii, með gæzlu fyrir böm upp að um það bil 10 ára aldri; 3) af- girtu útivistarsvæði fyrir stálpuð börn og unglinga — og felur borgarráði að láta gera athugun á því, hvernig bæta megi úr skorti á leiksvæðum í þeim borgarhlutum, sem eru að meslu eða öllu byggðir og hafa eftir- lit með því, að á nýjum skipu- lagsuppdráttum sé nægjanlegt rúm ætlað leiksvæðum". Skólaheimili — Sumarbúðir „Þar sem auglóst er, að 6 ára börn og yngstu aldursflokkar skólabarna þurfa að geta átt kost á sambærilegri umönnun og dagheimilin veita yngri börn- •um ef mæður þeirra vinna ut- an heimilis eða aðstæður eru erfiðar á heimilum þeirra, ákveð- ur borgarstjóm að verða við þeim tilmælum Bandalags kvenna að hefja starfræksiu skólaheimila, og felur borgarráði að athuga möguleika á því að útvega leiguhúsnæði í grennd við bamaskóla borgarinnar og gera tilraun með þessa starfsemi í 2—3 skólahverfum næsta haust. „Borgarstj. felur Æskulýðsráði að gera tillögur um sumarbúða- starfsemi fyrir böm á skóla- aldri og unglinga og miða við, að hægt verði að hefja þá starf- semi að einhverju leyti næsta sumar. Jafnframt felur borgar- stjóm bamavemdamefnd að leita eftir heppilegum sumar- dvalarstað fyrir börn innan skólaaldurs og miða við, að sá staður geti næsta sumar að minnsta kosti létt þeirri kvöð af upptökuheimilinu að Silunga- polli að taka á móti sumardval- arbömum. “ TryggiB ykkur miðu í tímu Aðgöngumiðar að jólatrés- skemmtun Sósíalistafélags- Reykjavíkur í Iðnó kl. 3 síð- degis á þriðja í jólum, fimmtudaginn 27. desember. eru seldir í skrifstofu félags- ins Tjamargötu 20. — Þar sem búast má við mikilli að- sókn er mönnum ráðlagt að tryggja sér miða í tæka tíð. Ný SVR-leið Nr.25 A morgun, föstucjaginn 21. desember, hefja Strætisvagnar Reykjavíkur akstur á nýrri leið. Heitir hún Safamýri og verður nr. 25. Ekið verður á hálftíma fresti á heila og hálfa tím- anum — frá kl. 7:00 til 24:00. Brottfararstaður er Kalkofns- vegur. Ekið verður um Hverfis- götu. Laugaveg, Suðurlands- braut, Hallarmúla, Safamýri. Háaleitisþraut, Hallarmúla, Suð- urlandsbraut, Laugaveg, Banþa- stræti á Kalkofnsveg. Viðkomustaðir verða þessir: Á Hverfisgötu við Frakkastíg og Rauðarárstíg. Á Laugavegi við Tungu og Kringlumýrarbraut. Á Hallarmúla. Þrír viðkomustaðir verða á Safamýri. tveir á Háa. leitisbraut. Á leið í bæinn; Á Hallarmúla. Kringlumýrarbraut. við Nóatún, Rauðarárstíg, Frakkastíg og Bergstaðastræti. s oIíhih ©*? benzsn! Við afgreiðslu fjárhagsáætlun- ar Reykjavíkurborgar er fram fer í dag flytur Guðmundur Vig- fússon eftirfarandi ályktunartil- lögu: „Borgarstjórnin ákveður að segja upp núgildandi samningi við Olíufélagið Skeljung h.f. um kaup á olíum o.g benzíni fyrir borgarsjóð og borgarstofnanir og samþykkir jafnframt að fela Inn. kaupastofnun borgarinnar að undirbúa almennt útboð um kaup á þessum vörum.“ í gær, miðvikudag var undirrituð í Reykjavík bókun um viðskipti milli íslands og Sovétríkj- anna á tímabilinu 1. janúar 1963 til 31. des- ember 1965. Utanríkisráðuneytið sendi frá sér í gær svofellda frétt um þessa samningsundirritun: r't>aana 7.—18. þ.m. fóru fram á Morgunblaðsgríllur um fíugmunnsþóknun Morgunblaðið hefur skrifað grein eftir grein undanfama daga, sem byggðar eru á þeim tilhæfulausu ósannindum að Karl Guðjónsson hafi flutt eða verið stuðningsmaður tillögunnar um 200 þús. kr. „þóknunina“ til Sigurðar Ólafssonar flugmanns. Það hefur tíðkazt undanfarin Tæknideild Rvíkurborgar verði endurreist Meðal ályktunartillagna þeirra er Guðmundur Vigfússon flytur við afgreiðslu f járhagsáætlunar Reykjavíkurborgar fyrir árið 1963 er eftirfarandi tillaga um endurreisn tæknideildar borgai- innar: „Með því að borgarstjómm er þeirrar skoðunar, að full- nægjandi starfræksla tæknideilda borgarinnar, skipulagsdeildar og verkfræðideildar, sé grundvall- arskilyrði þess að rannsókmr, undirbúningur og ákvarðanir í skipulagsmálum og verklegum framkvæmdum borgarinnar sé í viðunandi lagi og undir traustri forustu, samþykkir borgarstjórn- in að fela borgarráði og borg- arstjóra að gera hið fyrsta ráð- stafanir til að binda endi á nú- verandi ófremdarástand í þess- um efnum, með því að byggja tæknideildirnar upp að nýju með nægum og hæfum starfs- kröftum". ár að ýmsar tillögur meirihluta fjárveitingamefndar og þær sem fjárveitinganefnd stendur að séu prentaðar á einu þingskjali, og á þær prentað: Frá fjárveitinga- nefnd. Báðir minnihlutar fjár- veitinganefndar gera þar um fyrirvara í nefndarálitum sínum, að þeir standi ekki að öllum tillögunum, og tekur Karl Guð- jónsson þannig fram í nefndar- áliti að Alþýðubandalagið styðji flestar tillögur, „en er þó ó- bundið um afstöðu til einstakra tillagna.“ Karl Guðjónsson hefur aldrei stutt þessa tillögu um 200 þús.' kr. „þóknun" af almannafé til flugmannsins, og allar bollalegg- ingar Morgunblaðsins um það því byggðar á hreinum ósann- indum. Kosið í Norð- urlandoráð Á fundi sameinaðs þings í gær var kosið í Norðurlandaráð, fimm fulltrúar og jafnmargir varafulltrúar. Gildir kosningin þar til ný kosning hefur farið fram á næsta reglulega Alþingi. Þessi hlutu kosningu: Af c- lista Einar Olgeirsson og til vara Hannibal Valdimarsson. Af b- lista Ásgeir Bjamason, til vara Ólafur Jóhannesson. Af a-lista Gísli Jónsson, Magnús Jónsson og Sigurður Ingimarsson, til vara Matthías Matthíesen, Ólafur Bjömsson, Birgir Finnsson. Þelr sem eiga lelð um Austurstræti þessa daga mættu gjarnan líta til hliðar og staldra við þcnnan bíl og frcista gæfunnar í Skyndihappdrætti Þjóðviljans og kostar hver miði aðeins kr. 25.00. Dregið vcrður eftir fjóra daga í happdrættinu. hér í Reykjavík viðræður milii íslenzkrar og sovézkrar samn- inganefnda um viðskipti milli Islands og Ráðstjórnarríkjanna fyrir tímabilið 1. janúar 1963 til 31. desember 1965. Viðræð- ur þessar leiddu til þess, að í dag var undirrituð bókun um viðskipti landanna fyrir umrætt tfmabil. Bókunin var af Islands hálfu undirrituð af Emil Jónssyni, sjávarútvegsmálaráðherra, í fjar- veru utanríkisráðherra, en af hálfu Ráðstjómarríkjanna af D. F. Fokin, forstjóra áætlunar- ráðs utanríkisverzlunarráðuneyt- isins í Moskvu, en hann var formaður sovét-nefndarinnar. Vörur þær, er ísland mun að- allega selja til Ráðstjórnarríkj- anna eru: Hraðfryst fiskflök, fryst síld, saltsíld, ýmsar ullar- vörur og fiskniðursuðuvörur. Ráðstjómarríkin munu hins vegar aðallega selja til Islands: Benzín- og brennsluolíur, timbur, jám- og stálvömr, jarðstreng, ýmsar kornvömr kol og koks og vélar og tæki.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.