Þjóðviljinn - 04.01.1963, Side 4
4 SÍBA
ÞJOÐVILJINN
Föstudagur 4. janúar 1&63
Vísindlin opna íþróttunum
nú nýjar lciðír til afreka
Þjálfunartilraunir í 2000 metra hæð —
Ný uppgötvun um samhæfingu vöðvanna
Mikil þátttaka var í ráðstefnu íþróttaþjálf-
ara, sem haldið var í Moskvu 13.j—17. nóv.
s.l. Haldin voru 17 framsöguerindi á ráð-
stefnunni, en höfuðviðfangsefni hennar var
,,Viðbrögð og starfsemi mannslíkamans við
hámarksáreynzlu* ‘.
Rúmlega 500 vfsindamenn,
sérfræðingar og íþróttakennarar
sótu ráðstefnuna, þar af 16 há-
skólaprófessorar og 46 dósent-
ar.
Sovézki prófessorinn A. V.
Korobkov, forstjóri Líkams-
menntastofnunarinnar i Moskvu
og bróðir eins þekktasta frjáls-
íþróttaþjálfara Sovétríkjanna,
hélt því fram í ræðu, að vöðva-
kerfið gæti afrekað meiru í
keppni en við ströngustu æfing-
ar. Hann sagði að miða yrði
þjálfunina við þessa staðreynd,
og því bæri að leggja meiri
sitt af hverju
★ Valeri Brumel, heimsmet-
hafinn í hástökki, stökk „að-
eins“ 2.10 m. í innanhúss-
keppni í Moskvu um síðustu
helgi. Þetta var fyrsta keppni
hans eftir að hann setti
heimsmetið — 2.28 m. í sept-
ember s.l. Það háði Brumel
mjög í keppninni að hann gat
ekki tekið nema helming
venjulegs tilhlaups, vegna
þrengsla í húsinu. Brumel
sagði eftir keppnina að hann
byggist við að stökkva mun
hærra áður en hann fer í
keppnisferðalagið
ríkjanna í vetur .
til Banda-
★ Maraþonhlauparinn Brian
Kilby og sundkonan Anita
Lonsbrough voru kjörin beztu
íþróttamenn Englands. Það
voru íþróttafréttaritarar á
Englandi sem þátt tóku í at-
kvæðagreiðslunni. Kilby sigr-
aði á Evrópumeistaramótinu l
Belgrad og einnig á brezku
samveldisleikjunum. Anita
Lonsbrough vann þrenn gull-
verðlaun í sundi á samveldis-
leikjunum og auk þess gull-
verðlaun á Evrópumeistara-
mótinu í Leipzig.
★ ítalska frjáls-
íþróttasamband-
ið hefur um þetta
leyti námskeið
fyrir frjálsíþrótta-
menn sína, og á
það að standa frá
2. til 12. jan.
Til námskeiðs
þessa hefur sam-
bandið boðið til
sín finnska þjálf-
aranum Gösta
Olenius og stang-
arstökkvaranum
Pentti Nikula og
Risto Ankio.
Einnig hefur ít-
alska sambandið
boðið á némskeið-
ið austurrískum
sleggjukastara og
eiga allir þessir
menn að sýna
ítölskum frjálsí-
þróttamönnum
sínar aðferðir og
kenna þeim.
utan úr heimi
Fjölmenni við
skíðaskála IR
Mikið fjölmenni var
við hinn nýja skíða-
skála ÍR milli jóla og
nýárs. Skíðadeild ÍR
gekkst fyrir fjögurra
daga skíðanámskeiði og
var þátttaka ágaet.
Þórir Lárusson, formaður
skíðadeildar ÍR. tjáði íþrótta-
síðunni að gestir í skálanum
hefðu verið svo margir sem
frekast var unnt að hýsa. —
Skíðafæri vpr og veður
sörr’ ' með
því að un„u xóikið •þj-rptist til
fjalla í jólafríinu.
Tekin var í notkun ný skíða-
lyfta við ÍR-skálann og bætir
hún mjög aðstæðurnar. Kenn-
arar á námskeiðinu voru þeir
Jakob Albertsson og Eiríkur
Haraldsson. Skipulagt var fjög-
urra daga námskeið og var fæði
innifalið i þátttökugjaldinu.
Margir no'tuðu sér þetta ágæta
tækifæri og var almenn ánægja
ríkjandi meðal þátttakenda.
Á laugardagskvöldið 29. des.
var haldin kvöldvaka í skálan-
um. M. a. komu þangað dreng-
ir úr hinum ágæta fimleika-
flokki drengja úr ÍR og sýndi
fimleika. Þá var og flugelda-
sýning í fjallinu fyrir ofan. og
vakti hún mikla ánægju.
áherzlu á æfingakeppni en gert
hafi verið til þessa.
Æfingar á háfjöllum
P. Alipov, prófessor, við Vís-
indastofnunina fyrir líkams-
mennt í Kirgisistan, greindi frá
athyglisverðum þjálfunartil-
raunum í þessu fjallalýðveldi.
Tilraun hefði verið gerð með
þjálfun íþróttamanna í 1500 til
2000 metra hæð yfir sjávarmáli.
I Ijós hefði komið, að áhrif
hins litla súrefnismagns urðu
þau að afreksgeta íþróttamann-
anna óx mikið á tiu dögum,
enda þótt þeir æfðu aðeins
þriðjung á við æfingar á jafn-
sléttu. Iþróttamennimir héldu
þessari afrekagetu sinni síðan
í tuttugu daga. Hér var ekki
aðeins um að ræða betra þol,
heldur einnig styrkleika- og
hraðaaukningu.
Lífeðlisfræðileg
uppgötvun
Mikla athygli vöktu einnig
þjálfunartilraunir, sem pró«-
essor N. Zymkin hafði gert,
en þær voru fólgnar í samhæf-
ingu á hreyfingum. Rannsóknir
prófessorsins sýna fram á, að
líkar hreyfingar hjá tveimur
íþróttamönnum geta veríð ár-
angur af samhæfingu rnismun-
andi vöðvasvæða.
Jafnframt sýndu rannsóknim-
ar að þótt tveir vöðvahópar
ættu jafnan hlut að hreyfingu
hjá einum íþróttamanni, þá var
nákvæmlega samskonar hreyf-
ing hjá öðmm framkvæmd með
80 prósent afli frá öðmm
vöðvahópum en 20 prósent frá
hinum. Hreyfingamar em sem
sagt nákvæmlega eins, en vöðv-
amir leggja mismunandi afl til
þeirra hjá hinum ýmsu íþrótta-
mönnum.
Búast má við að þessi upp-
götvun hafi geysileg áhrif á
þróun þjálfunartækni í fþrótta-
heiminum.
Lathi sækir um
Olympíuleikana
★ Finnski bærinn Lathi hefur
beðið olympíunefncl Finnlands
að koma á framfæri umsókn
bæjartins um að halda vetrar-
olympíuleikana árið 1968. Um-
sóknin hefur verið send áfram
tii alþjóða-olympíunefndarinnar
í Lausanna í Sviss.
Velheppnuð skíða-
vika í Jósefsdal
'l '/ *
Skíðaskáli Ármanns í Jóscpsdal
Ármenningar gengust
fyrir skíðakennslu við
skíðaskála sinn í Jós-
epsdal um hátíðarnar
og var hún mjög vel
heppnuð.
Mikill fjöldi ungs fólks kom
í Jósepsdal og notaði sér skíða-
kennsluna þar allt frá 2. jóla-
degi og fram á nýársdag. 20—25
manns nutu skíðakennslu á
hverjum degi. Fólk dvaldi mis-
jafnlega langan tíma, en sumir
alla dagana.
Nokkrir af beztu skíðamönn-
um Ármanns, m.a. Sigurður R.
Guðjónsson og Bjarni Einars-
son, önnuðust skíðakennsluna,
og var kennt á hverjum degi.
Skíðafæri var ágætt í dalnum,
göngufæri ágætt og skíðabrekk-
ur góðar. Notaður var traktor
til að draga fólkið á sleða upp
brekkurnar. Skíðabrekkur voru
lýstar á kvöldin, bví veður var
ágætt og margir dvöldu við
skíðaiðkanir fram eftir kvöld-
um.
I skálanum var nú í fyrsta
sinn rekið mötuneyti og gafst
það mjög vel. Fólkið skemmti
sér í skálanum á kvöldin og fór
öll kennsla og skemmtun vel
fram.
Skíðalyfta
Ármenningar eiga von á
nýrri dráttarvél í þessum mán-
uði, og batnar þá til muna að-
staða til skíðaiðkana í Jósefs-
dal. Ármenningar kusu dráttar-
vélina fremur en fasta skíða-
lyftu, enda er hægt að færa
dráttarvélina til með lítilli fyr-
irhöfn og nota hana í þeirri
brekku þar sem bezt skíðafæri
er hverju sinni.
Þá hafa Ármenningar gert
ýmsar endurbætur á skála sín-
um undanfarið, og er hann
hinn vistlegasti.
r
Jón Þ. Olafsson
stökk 2,11 metra
Jón Þ. Ólafsson sigraði í öllum
setti 14 Islandsmet
greinum á Jólamóti l.R. Hann
á síðastiiðnu ári.
Eins og skýrt hefur verið frá setti hinn efni-
legi hástökkvari Jón Þ. Ólafsson IR nýtt ís-
landsmet í hástökki innanhúss á Jólamóti ÍR
29. des. s.l. Jón stökk 2,11 metra og hefur þar
með tryggt sér sess í hópi beztu afreksmanna
heimsins í þessari grein.
Jón Þ. lét ekki sitja við þetta
afrek eitt. Hann setti einnig Is-
landsmet í langstökki áh at-
rennu — 2,38, en hann átti
sjálfur eldra metið, sem var
2 sm styttra.
Loks jafnaði hann met Vil-
hjálms Einarssonar í hástökki
án atrennu — 1,75 m en það er
aðeins einum sm lakara en
heimsmetið.
Flestir beztu stökkmenn okk-
ar tóku þátt í þessu móti og
náðist ágætur árangur. Má þar
t.d. nefna drengjamet Sigurð-
ar Ingólfssonar, Ármanni,
hástökki — 1,82 metra.
Það ríkir almenn gleði meðal
frjálsíþróttamanna og allra í-
þróttaunnenda yfir afreki Jóns
Þ. Ólafssonar. Menn vona að
glæsileg afrek hans undanfarið
séu fyrirboði nýrrar vakningar
í frjálsíþróttum hjá okkur, og
áreiðanlega á fordæmi hans
eftir að hvetja unga drengi til
dáða og aukinnar þátttöku í
frjálsíþróttum.
Kennedy vill eitt USA —
frjálsíþróttasnmband
Forseti Bandaríkjanna mæð-
ist í mörgu um þessar mundir,
og þarf að láta til sín taka
í flciri málum en um eldflaug-
ar á Kúbu eða í enska kaf-
báta m.m,
Fyrir hátíðarnar skoraði hann
með mikilli alvöru á frjáls-
íþróttasamböndin tvö að sam-
einast í eitt samband. Sam-
bönd þessi eru, sem margir
vita, landssamband frjáls-
íþróttamanna (AAU) og lands-
samband stúdenta (NCAA), og
vill Kennedy að sambönd þessi
hefjist handa nú þegar um
sameiningu þessa og afhendi
þetta stríðsmál til samninga-
nefndar, sem verði látin gera
út um málið.
„Misklíð sambandanna er
beinlínis hætta fyrir forsvaran-
lega þátttöku bandarískra
íþróttamanna í næstu pan-
amerísku leikjum og í sjálfum
Olympíuleikjunum11, segir for-
setinn. Bróðir forsetans dóms-
málaráðherrann Robert Kenne-
dy hefur gert tilraun til þess að
sameina aðilana.
Kennedy þótti mál þetta svo
þýðingarmikið, að hann tók
það upp á einum af hinum
venjulegu blaðamannafundum
sínum í Washington um dag-
inn.
Afskipti þessi eru talin koma
vegna þess að það er álit
margra kunnugra að lausn þessi
sé aðeins möguleg ef á því verði
tekið beinlínis úr Hvíta húsinu.
Samkvæmt alþjóðareglum er
það aðeins AAU sem getur á-
kveðið þátttöku í alþjóðamót-
um, og getur komið fram fyr-
ir USA í landskeppni. Kjam-
inn í deilu þessari er sá, að
flestir frjálsíþróttamenn, körfu-
knattleiksmenn, fimleikamenn
eru í NCAA, en AAU á að á-
kveða hverjir fá að taka þátt
í alþjóðlegum mótum.
Á fundi sínum með dóms-
málaráðherranum um daginn
fundu aðilarnir að því að talið
er, samkomulagsgrundvöll, og
er talið að fyrir pan-amerísku
leikina muni samkomulag hafa
náðst. pn beir leikir fara fram
í Sao Paulo í Braríliu.
ÚRSLIT:
Á jólamótinu urðu úrslit í
einstökum greinum þessi.
Hástökk með atrennu,
(keppendur 6)
Jón Þ. Ólafsson IR 2,11
Isl. met. (áður 2,08)
Sigurður Ingólfsson Á 1,82
ísl. drengjamet
Halldór Jónasson IR 1,80
persónulegt met.
Helgi Hólm IR 1775
Steindór Guðjónsson IR 1,70
Páll Eiríksson FH 1,70
Hástökk án atrennu (keppendur 10)
Jón Þ. Ólafsson ÍR 1,75
jafnt meti V.E.
Halldór Ingvarsson ÍR 1,65
persónulegt met
Björgvin Hólm IR 1,60
persónulegt met.
Jón ö. Þormóðsson IR 1,55
Óskar Alfreðsson UMSK 1,55
Vilhjálmur Einarsson IR 1,55
Langstökk án atrennu
(keppendur 11)
Jón Þ. Ólafsson IR 3,38
ísl. met (var 3,36)
Vilhj. Einarsson ÍR 3,26
Jón ö. Þormóðsson ÍR 3,10
Kristján Kolbeins IR 3.10
Halldór Ingvarsson 1R 3,08
Óskar Alfreðsson UMSK . 3,05
Hið nýja met Jón 2,11 er ann-
ar bezti árangur í heiminum
þetta ár innanhúss, og fjórði
bezti árangur innanhúss frá
upphafi. Bezta árangur innan-
huss betta ár á John Thomns
USA fyrrverandi heimsmeistari
2,13,4 mtr. Arangur Jóns er
sami og fyrrverandi heimsmet
Vilhjálms Einarssonar í há-
stökki án atrennu. Heimsmet á
Norðmaðurinn Johan Chr. Ev-
andt 1,76 metra.
★ A árinu 1962 komu 305 hóp-
ar erlends iþróttafólks í
keppnisferðalag til Sovéíríkj-
anna, og 313 hópar af sovézku
íþróttafólki kepptu erlendis.
Samtals keþpti sovézkt íþrótta-
fóllc við íþróttafólk frá 60 lönd-
um og 5 heimshlutum. Iþrótta-
samvinna Sovétmanna og
Bandaríkjamanna ver stöðugt
vaxandi. A næsta ári hyggjast
Sovétmenn stórauka íþrótta-
samskinti s'u við t- *- ríki f
Afríku og Rómönsku Ameríku.