Þjóðviljinn - 08.01.1963, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 08.01.1963, Blaðsíða 5
Þríðjudagur 8. janúar 1963 ÞJÖÐVILJINN SlÐA g Lagabálkur um rannsóknir í þágu atvinnuveganna Skömmu fyrir þinghlé í desember var lagt fram á Alþingi stjórnarfrumvarp um rannsóknir í þágu atvinnu- veganna. Frumvarp þetta er samið af atvinnumálanefnd ríkisins og hefur verið í athugun og undirbúningi hjá ríkisstjórninni og ýmsum öðrum aðilum frá því í ágúst- mánuði 1960. í atvinnumálanefnd ríkisinSj — sem kosin var 1955, — eiga sæti Davíð Ólafsson fiskimálastjóri, Egg- ert Þorsteinsson alþm., Einar Olgeirsson alþm., Hermann Jónasson alþm. Jóhann Jakobsson verkfræðingur, Magn- ús Jónsson alþm. og Vilhjálmur Þór bankastjóri. — Árið 1956 tók Runólfur Þórðarson verksmiðjustjóri við störf- um í nefndinni af Hermanni Jónassyni, en Már Elísson hagfr. hefur mætt í nefndinni fyrir Davíð Ólafsson og |»orbjörn Sigurgeirsson próf. fyrir Einar Olgeirsson. ÞINCSIÁ Þ|ODVIL|ANS í fyrsta kafla frumv. er kveðið svo á, að sett skuli á stofn Rannsóknarráð ríkisins og heyri það undir mennta- málaráðherra. Skulu eiga saeti í því 17 menn, þar af fimm al- þingismnnn kosnir af samein- uðu þingi eftir hverjar Alþing- iskosningar. Aðra fulltrúa skipi menntamálaráðherra til fjög- urra ára i senn að fenginni til- nefningu eftirtalinna stofnana: Búnaðarfélags íslands. Fiskifé- lags íslands. Iðnaðarmálastofn- unar Islands. Seðlabanka Is- lands, Raforkuráðs og raforku- málastjóra (sameiginlega). einn aðila frá hverjum og þrjá eftir tilnefningu eftirta'linna sofn- ana: háskólaráðs og eftir sam- eiginlegri tilnefningu rannsókn- arstofnana byggingariðnaðarins. iðnaðarins, landbúnaðarins. fiskiðnaðrins og Hafrannsókn- arstofnunarinnar. Menntamála- ráðherra skipar formann og V'araformann. Rannsóknarráðið skal vera ráðgjafarstofnun til eflingar hagnýtra rannsókna í landinu og einnig undirstöðurannsókna. Ráðið kýs sér fimm manna framkvæmdanefnd og gerir það tillögur um verkefni i umboði Rannsóknarráðsins. Ráðherra ákveður laun nefndarinnar. en méðlimir Rannsóknarráðs eru ólaunaðir. + Um verkefni ráðsins segir svo: 1. — ..Efling og samræming hagnýtra rannsókna og undir- stöðurannsókn3 í landinu. Ráð- ið skal hafa náið samstarf við hinar ýmsu rannsóknarstofnan- ir Það skal hafa sem gleggsta yfirsýn yfir alla rannsókna- starfsemi í landinu og gera til- lögur til úrbóta, ef það telur rannsóknastarfsemina ófull- næejandi. rannsóknarskilyrði ó- fullkomin eða markverð rann- sóknarverkefni vanrækt. 2 — Athuganir á nýtingu náttúruauðæfa landsins til nýrra atvinnuveea og atvinnu- greina. enda skulu allar tillöe- ur um nýjungar á sviði at- vinnuvega og atvinnusreina. sem berast ríkisvaldinu. sendar ráðinu og skal það beita sér fyrir því a* fram fari tækni- lég og þjóðhagsleg atbusun þéirra. ef það télur þess börf' 3. — Gera tillögur um fram lög ríkisins til rannsóknamá’a og fylgiast með rástöfun onin- bérra fjárframlaga til þeirra rannsóknaretofnana, sem löe þéssi ná til 4. — Öflun fjármagns til rannsóknarstarfseminnar al- mennt til viðbótar fram’.agi rík- isins oe ti’lösuserð um skipt. ihgu besp á milli rannsókna- stofnana n« rannsóknaverkefna 5. — Að hafa í sínum vörzl- um skvrcb'r ni-n rannsóknir sviði raunvisinda. sem kostað- ar eru af ooinberu fé og hlut- ast til um að niðurstöður séu kynnt.ar Rannsóknarráð semur árlega skýrslu um rannsóknar- starfsemina í landinu. 6. — Að stuðla að söfnun erlendra rita og annarra upp- lýsinga um visindastörf, rann- sóknastörf og tækni og úr- vinnslu þeirra til hagnýtinear fyrir atvinnuvegi landsins. Upplýsingum þessum skal komið á framfæri við rann- sóknastofnanir 7. — Að beita sér fyrir skjótri hagnýtingu tæknilegra nýunga hjá atvinnuvegunum með kynningarstarfsemi og uoolýsingaþjónustu. 8. — Samstarf við h’iðstæð- ar erlendar stofnanir og að stuðla að bátttöku fslands í alþjóðleeu samstarfi á sviði rannsóknamála. 9. — Önnur þau verkefni. sem æskilegt reynist að sam- eina fyrir rannsóknastarfsem- ina.“ ★ ! öðrum kafla frumv. cr kveðið á um að stofnsettar skuli eftirfarandi rannsóknar- Lögum þessum er ætlað að ná til undirstöðurannsókna í dýrafræði. grasafræði, jarð- fræði og landafræði, sem ekki eru unnar beinlínis í þágu at- vinnuveganna og skal mennta- málaráðherra hafa yfirumsjón með þessum rannsóknum. I frumvarpinu eru ákvæði um rétt innlendra manna og útlendra til þess að stunda al- mennar náttúrurannsóknir hér á landi. Þá gerir frumvarpið ráð fyr- ir að sett verði á stofn Nátt- úrufræðistofnun íslands og er stofuninni ætlað að annast eft- irfarandi verkefni: „a. Að verða miðstöð al- mennra rannsókna á náttúru íslands, vinna að slíkum rann- sókum, samræma þær og efla. b. Að koma upp sem full- komnustu vísindalegu safni ís- lenzkra og erlendra náttúru- gripa og varðveita það. c. Að koma upp sýningar- safni, er veiti sem gleggst yiix- stofnanir: Hafrannsóknarstofn- un, Rannsóknarstofnun fis!k- iðnaðarins, Rannsóknarstofnun landbúnaðarins, Rannsóknar- stofnun iðnaðarins og Rann- sóknarstofnun byggingariðnað- arins. Þá getur ráðherra að fengnum tillögum Rannsóknar- ráðs og með samþykki Alþing- is stofnsett nýjar rannsóknar- stofnanir til að sinna öðrum verkefnum. 1. III.—VII. kafla eru ákvæði um stjórn og verkefni hinna einstöku rannsóknastofnana og annað sem að rekstri þeirra lýtur. í VIII. kafla eru almenn á- kvæði svo sem um launakjör starfsmanna framantalinna stofnana, tekjur þeirra. ráð- stöfun á eignum þeirra rann- sóknarstofnana ríkisins. sem fyrir eru og annast hafa svip- uð verkefni o.fl. Að lokum er gert ráð fvrir að nema úr gi’di lög nr. 68/1949 um náttúru- rannsóknir o? lög nr. 64/1940 um rannsóknir í bágu landbún- aðarinc svo os önnur lös. sem hrjóta kynnu í bága við þessi lög. * f athugasemdum við frum- varpið er vísað til gréinar- gerðar, sem fylgdi frumvarpi bví. sem atvinnumálanefnd lagði fyrir rikisstjórnina 1960. en þar segir m.a.: ..Gildandi lög um rannsókn- ir í bágu atvinnuvesanna hér á landi voru sett árið 1940. Það éru lögin um náttúrurannsókn- ir nr. 68 og lögin um rann- sóknir og tilraunir í bágu landbúnaðarins nr. 64. Sam- kyæmt þessum löfum eru rann- 'óknir í bágu atvinnuveganna í höndum Rannsóknaráðs ríkis- ins og Atvinnudeildar Háskól- lit um náttúru íslands og sé opið almenningi. d. Að hafa eftirlit með al- mennum rannsóknum erlendra náttúrufræðinga hér á landi og gæta íslenzkra hagsmuna í sambandi við þær. e. Að greina frá meginþátt- um í starfsemi stofnunarinnar í árlegr: skýrslu og frá niður- stöðum rannsókna í fræðslu- og visindaritum." Gert er ráð fyrir að Nátt- úrufræðistofnuninni verði skipt í þrjár deildir, dýrafræðideild, grasafræðileild og jaðfræði- deild. og skal séstakur deild- arstjóri vera yfir hverri deild Forstöðumaður stofnunarinnar skal skipaður úr hópi deildar- stjóranna til 3ja ára í senn. í athugasemdum við frum- varpið segir m.a.: „Með lögum nr. 68/1940, um náttúrurannsóknir, var sett heildarlöggjöf um allar nátt- úrurannsóknir hér á landi, bæði hinar almennu (undir- stöðurannsóknir.) og hagnýtu ans ásamt tilraunaráðum jarð- ræktar og búfjárræktar. Síðan þessi lög voru sett hafa orðið stórko.stlegar framfarir í at- vinnuvegum öllum og tækni, og hafa fyrrgreindir aðilar ekki haft aðstöðu til að fullnægja þörf atvinnuveganna fyrir rann- sóknastarfsemi. Af öðrum aðilum, sem sinna að einhverju leyti rannsóknum vegna atvinnuveganna má nefna: Rannsóknastofu Fiskifélags íslands. sem starfar að rann- sóknum á sviði fiskiðnaðarins, jarðhitadeild raforkumálastjóra, sem er með rannsóknir í sam- bandi við nýtingu jarðhitans. Verkfæranefnd ríkisins. sem gerir tilraunir með landbúnað- arvélar, o.fl. smærri aðila. Undirstöðurannsóknir hafa fyrst og fremst verið í höndum Háskóla íslands o.g Náttúru- gripasafnsins, Háskólinn rekur tilraunastöð í meinafræði að Keldum og eðlisfræðistofnun. Auk þess er nokkuð unnið að undirstöðurannsóknum við Fiskideild og Landbúnaðardeild Atvinnudeildar Háskólans og lítils háttar hiá öðrum aðilum í sambandi við önnur megin- verkefni. F'ins og fyrr segir, er rann- sóknastarfsemin hér á landi alls kostar ófullnægjandi í þeirri hröðu þróun í tækni og vísind- um. sem nú á sér stað í heim- inum. Mjög skortir á eflingu og samræmingu rannsóknastarf- seminnar, enda hef-ur ekki skap- azt sú samstaða ríkisvaldsins, vísindamanna og atvinnuvega, sem er talin nauðsynleg til þess að skapa samstarf og fá yfirsýn yfir rannsóknastarfsemina og almenna þróun og þörf at- vinnuveganna, þannig að marka megi heildarstefnu á þessu sviði. eins og aðrar þjóðir leggja meg- ináherzlu á. Rannsóknastarfsemin er á sumum sviðum óeðlilega dreifð. Þsnnig fá nú að minnsta kosti 8 aðilar fjárveitingu úr ríkis- sjóði til rmnsókna á sviði Iand- búnaðarins, án þess að nokkurí Framhald á 8. síðu. rannsóknir. Meginkafli laganna (III. kafli) fjallar um At- vinnudeild Háskólans og hinar hagnýtu rannsóknir, en framan við hann var skeytt tveimur smáköflum (I. og II. kafla), sem fjalla um hinar almennu rannsóknir og Rannsóknarráð ríkisins. Þegar þessi lög voru sett, var engin stofnun 1 land- inu, sem gat annazt og haft umsjón með hinum almennu rannsóknum. Það var þvi ekki nema eðlilegt að Rannsóknar- ráði væri falið að gegna því hlutverki, sem slík stofnun, ef til hefði verið, hefði átt að hafa með höndum. í ársbyrjun 1947 var Nátt- úrugripasafnið gert að ríkis- stofnun og jafnframt voru róðnir að safninu fastir starfs- menn. Með þessari ráðstöfun var sett á laggirnar opinber stofnun, er að sjálfsögðu ber, eins og ríkissöfnum í öðrum löndum, að annast og hafa for- ustu um hinar almennu rann- sóknir ó sviði dýrafræði, grasa- fræði, jarðfræði og landafræði. í framhaldi af þessari ráðstöf- un hefði að sjá’.fsögðu átt að endurskoða lögin frá 1940 og breyta þeim tú samræmis við hinar breyttu aðstæður, en ekki verið gert. enda þótt nú séu liðin 13 ár frá því að Nátt- úrugripasafnið tók til starfa sem rikisst.rtfnim.“ I a um náttúrurannsókmr Nokkru fyrir jólin var lagft fram á Alþingi stjórnarfrumvarp til laga um almennar náttúru- rannsóknir og Náttúrufræðistofnun Íslands. Frumvarpið er samið af atvinnumálanefnd rík- isins í samráði við starfsmenn Náttúrugripasafns íslands. Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokk- urinn. — Ritstjórar: ívar H. Jónsson, Magnús Kjartansson, Sigurð- ur Guðmundsson (áb) Fréttaritstjórar: Jón Bjarnason, Sigurður V. Friðþjófsson. Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðust. 19. Sími 17-500 (5 línur). Áskriftarverð kr. 65 á mánuði. Yfirlýsingar ^lþýðublaðið segir í fyrradag að ekkert mark sé takandi á yfirlýsingum Framsóknarflokks- ins um stjórnmálasamstarf að kosningum lokn- um. Blaðið kemst svo að orði í forustugrein: „Framsóknarmenn sverja að vísu dag eftir dag, að þeir vilji ekkert hafa með kommúnista að gera. Það taka menn ekki alvarlega. Þeir réð- ust harðlega á kommana allt vorið 1956 og lýstu afdráttarlausf yfir, að þeir væru ósamstarfshæf- ir. Eysteinn kallaði leiðtoga kommanna auðtrúa flón og talaði um villimennsku þeirra — fyrir kosningar. Strax daginn eftir kosningarnar var komið annað hljóð í Tímann. Þá sagði blaðið að reynslan ætti eftir að skera úr um það, hvort Alþýðubandalagið væri kommúnistískt fyrir- tæki. Það var byrjunin, sem endaði í stjórnar- samstarfi með kommum". Þetta er rétí lýsing, en Alþýðublaðinu láðist að geta þess að hún á í enn ríkara mæli við um Alþýðuflokkinn. Fá- einum dögum fyrir þingkosningarnar 1956 lýsti formaður Alþýðuflokksins, Haraldur Guðmunds- son, yfir því í útvarpsræðu í áheyrn alþjóðar að Alþýðuflokkurinn myndi aldrei taka upp sf jórn- arsamvinnu við Alþýðubandalagið. Þegar Al* þýðuflokkurinn sá þann kost vænstan eftir kosn- ingarnar að éta ofan í sig öll stóryrðin neyddisf Haraldur Guðmundsson til þess að segja af sér formennsku í flokknum og flýja land. Aðrir forustumenn Alþýðuflokksins hafa margsinnis komizf í sömu aðstöðu, án þess þó að fylgja fordæmi Haraldar Guðmundssonar; m.a. sór Emil Jónsson í Hafnarfirði fyrir nokkrum árum að aldrei skyldi unnið með sósíalistum — nokkr- um dögum áður en hann tók upp þá samvinnu. það á ekki aðeins við um Framsóknarflokkinn, að enginn skyldi taka mark á svardögum leiðtoga hans, heldur í jafn ríkum mæli um Al- þýðuflokkinn og Sjálfstæðisflokkinn. Allir stjórnmálaflokkar á íslandi hafa átt með sér samvinnu um stjórn landsmála, samkvæmí þeim forsendum sem kjósendur hafa búið til með at- kvæðum sínum. Ef kjósendur ákveða í sumar að tryggja Alþýðubandalaginu þá aðstöðu að aðrir flokkar telji sér óhjákvæmilegt að semja við það mun enginn þeirra telja eftir sér að ganga með grasið í skónum. Yfirlýsingar þessara flokka um pólitískt hreinlífi hafa þann einn til- gang að blekkja einfalda kjósendur, og skal þó dregið mjög í efa að þvílík einfeldni sé til á Islandi eftir reynslu síðustu áratuga. ^lþýðubandalagið og Sósíalistaflokkurinn eru einu stjórnmálasamtökin á íslandi sem aldrei hafa lýst yfir að þau séu ekki reiðubúin að vinna með hverjum sem er, ef samkomulag tekst um mál. Flokkar sem hafa málefnin í fyrirrúmi lenda aldrei út í þeim afskræmilega dansi kring- um ráðherrastóla sem einkennir alla stjórnmála- starfsemi Sjálfstæðisflokksins. Framsóknar- flokksins og Alþýðuflokksins. — m.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.