Þjóðviljinn - 08.01.1963, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 08.01.1963, Blaðsíða 12
Næsfa frumsýnmg L. R. á miðviícudag \n Astarhringurinn Annað leikrit Leikfélags Reykja- víkur á þessu leikári verður frumsýnt næstkomandi miðviku- dag. Það heitir Ástarhringurinn og er eftir Arthur Schnitzler, austurrískan höfund. Arthur Schnitzler (1862—1931) var allþekktur leikrita- og skáld- sagnahöfundur; fékk Grillparzer- bókmenntaverðlaunin 1908. Ást- arhringinn samdi hann árið 1903, en bseði honum og öðrum þótti það nokkuð djarft og var það ekki sett á svið fyrr en tuttugu árum síðar. Það hefur síðan verið sýnt víða, og árið 1950 var gerð eftir því kvikmynd sem sýnd var hér. Eitt leikrita Schnitzlers hefur verið sýnt hér áður — ^kilnaðarmáltíðin” sem L. R. sýndi 1924. Þessi leikur er um ástir þeirr- ar gömlu Vínarborgar sem lofuð er í margvíslegri léttri músík. Hann er byggður upp mjög sér- kennilega — í tíu atriðum leiks- ins eru aðeins tveir leikarar á sviöinu í einu; Hann og Hún. 1 fyrsta atriði hittast skækjan og hermaðurinn, í öðru hermaður- inn og stofustúlkan, stofustúlkan og ungi herrann í hinu þriðja og þannig koll af kolli þar til ástarhringurinn lokast: í síðasta atriði finnur greifinn skækjuna; hver persóna mætir tveim á ástafundi. Af sjálfu leiðir að í þessu leik- riti eru engin aðalhlutverk, allir eru jafnir í Amor. En Vínar- fólkið sem kemur við sögu er leikið af: Þóru Friðriksdóttur, Steindóri Hjörleifssyni, Bryndísi Pétursdóttir, Birgi Brynjólfssyni. Kristínu önnu Þórarinsdóttur, Guðmundi Pálssyni, Guðrúnu Ás- mundsdóttur, Helga Skúlasyni, Helgu Bachmann, Erlingi Gísla- syni. Leiksvið eru tíu, sem er auðvitað óvenjulegt í Iðnó, en vandinn er leystur með hugvits- samlegu súlnaverki. Leiktjöld gerði Steinþór Sigurðsson, en hann hefur nú verið fastráðinn leikt j aldamálari Leikfélagsins. Leikstjóri er Helgi Skúlason. Þýð- inguna gerði Emil Eyjólfsson lektor. Næsta verkefni Forráðamenn Leikfélags Reykjavíkur sögðu fréttamönnum einnig frá næsta verkefni þessa leikárs en það er „Eðlisfræðing- arnir” eftir svissneska leikskáld- ið Friedrich Dúrrenmatt. Þetta ieikrit var fyrst sýnt í Sviss í febrúar í fyrra og hefur vakið meiri athygli, hrifningu og um- ræður en flest önnur leikverk síðustu áratuga — talið er að það sé nú sýnt í fimmtíu leik- húsum í Evrópu. Eðlisfræðingarnir verða að öll- um líkindum frumsýndir í seinni hluta febrúar. Leikstjóri er Lár- us Pálsson. eðlisfræðingana leika Gísli Halldórsson, Guðmundur Pálsson, Helgi Skúlason; af öðr- um leikurum má nefna Þorstein ö. Stephensen, Regínu Þórðar- dóttur, Ingu Þórðardóttur, Helgu Bachmann, Helgu Valtýsdóttur. Aðsókn að fyrsta leikriti vetr- arins, Hart í bak, hefur verið sérstaklega góð; þegar hafa verið haldnar 23 sýningar og alltaf fyr- ir fullu húsi — er þetta metað- sókn hjá LR f mörg ár. Ekki er enn ákveðið hvort ráðizt verð- ur i fleiri verkefni í vetur. Málamiðlun Colombofundarins Stjórn Kína tekui vel í tilícgurnar PEKING 7/1 — Kínverska stjórn- in hefur gefið jákvætt svar við tillögum fundar sex Asíu- og Afríkuríkja í Colombo á Ceylon um friðsamlega lausn landa- mæradeilu Kína og Indlands. Þetta var kunngert í Peking í kvöld. I opinberri tilkynningu sem fréttastofan Nýja Kína birti segir að tillögur Colombofundar- íns, sem forsætisráðherra Cey- lons, frú Bandaranaike, hefur lagt fyrir Sjú Enlæ forsætisráð- Vilja nú stækka brezka landhelgi LONDON 7/1 — Sjávarútvegs- málaráðherra Bretlands. Christo- pher Soames, mun á fimmtudag taka á móti fulltrúum brezkra ■togaraeigenda, sem bera munu fram við hann kröfu um að fiskveiðilandhelgin við Bret- landseyjar verði færð út, en hún er nú þrjár mílur, eins og land- helgin. Brezkir togaraeigendur krefjast þess að öllum erlendum togurum verði haldið frá miðum við strendur Bretlands, þar sem þeir valdi bæði stórtjóni á veið- arfærum brezkra fiskimanna og stundi rányrkju á miðunum. herra og aðra kínverska leiðtoga, muni ekki verða birtar fyrst um sinn. Tilkynningin var undirrituð af Sjú Enlæ og frú Bandara- naike. Tillögur Colombofundarins verða einnig lagðar fyrir Nehru, forsætisráðherra Indlands, og þá fyrst birtar. Kínverska stjórnin hefur lýst sig samþykka þeirri skoðun Col- ombofundarins að taka beri upp samningaviðræður milli Indlands og Kína í því skyni að binda enda á landamæradeiluna milli ríkjanna. Ríkin sem fulltrúa áttu á fundinum í Colombo (Ceylon, Indónesía, Burma, Kambodja, Egyptaland og Mali- lýðveldið) hafa lýst þeirri skoð- un að það sanni friðsamlegar fyrirætlanir kínkersku stjómar- innar að hún skuli hafa látið hersveitir sínar á landamærun- um hörfa, en Sjú Enlæ hefur sagzt kunni vel að meta viðleitni þessara ríkja til að miðla málum í deilunni. f lok hinnar opinberu tilkynn- ingar um viðræður frú Band- aranaike og Sjú Enlæ er sagt að bæði Kína og Ceylon ítreki stuðn- ing sinn við meginregluna um friðsamlega sambúð ríkja og hveji öll ríki Asíu og Afríku til sam- stöðu gegn ofbeldis- og út- þenslustefnu heimsvaldasinna og nýkólóníalista. Þriðjudagur 8. janúar 1963 ----- 28. árgangur — 5. tölublað. Slys á Akranesi AKRANESI 7/1 — Klukkan þrjú á sunnudag er verið var að landa síld úr Skipaskaga vildi það slys til að háfur, sem búið var að hífa upp úr lestinni hrapaði niður aftur, og varð maður und- ir honum og stórslasaðisí. Hann bringubrotnaði, rifbrotnaði — og stakkst það inn í lungað, einnig skemmdist miltið eitthvað. Maður þessi heitir Ingvi Bjarnason til heimilis hér á Akranesi. Ingvi var skorinn upp til frekari rannsóknar kl. 11 í gær- kvöld. Hlaut 110 þúsund króna námsstyrk Helgi Skúlason og Helga Baehmann í hlutverkum sínum í ledk- ritinu Astarbringurinn eftir Arthur Schnitzler, sem frumsýnt vcrð- ur á morgun. í frétt frá Íslenzk-ameríska fé- laginu segir, að á síðastliðnu vori hafi félagið fengið tUkynn- ingu um, að Otto Bremer-stofn- unin í St. Paul í Minnesota hefði ákveðið að veita framvegis árlega nokkra fjárupphæð til styrktar háskólamönnum frá Norðurlöndum til framhalds- náms vestan hafs. Nú hefur fyrsta styrknum sem veittur er í þessu skyni verið úthlutað og kom hann í hlut íslands. Er hann 2500 dollarar eða um 110 þúsund krónur. Styrkurinn hefur verið veittur Herði Lárussyni menntskólakennara, sem nú usuppm. tunnur Á laugardaginn var heildarafl- inn á vetrarsíldveiðunum orðinn 801.462 tunnur, eða rúmum 50.000 tunnum meiri en á sama tíma í fyrra, Aflinn frá áramót- um til laugardags var 135.000 tunnur, en siðan hafa bætzt við 101,800 tunnur og var heildar- aflinn því í gær orðinn 903,262 I tunnur mældar upp úr bát. Hæsta veiðistöðin er sem fyrr Reykjavík með 279.366 t.unnur, þá Keflavik með 138.722, Akra- nes 137.664 og fjórða í röðinni er Hafnarfjörður með 90.418. Alls hefur síld borizt til 9 staða. Hér fer á eftir skrá yfir 10 Gerðardómur Framhald af 1. síðu gera upp fyrir suma útgerðar- menn a. m. k. Verkalýðs- og sjómannafélag Miðneshrepps kærði þetta uppgjör þegar í stað og fól Alþýðusambandi Islands að höfða mál gegn LÍÚ fyrir Fé- lagsdómi fyrir þetta samnings- brot. / Alþýðusambandið fól lögfræð- ingi sínum, Agli Sigurgeirssyni, hrl., að reka mál þetta fyrir Fé- lagsdómi. Alllangt er síðan mál- flutningur hófst, en síðan hefur ekki verið frekar að gert í mál- inu. Er svo að sjá sem ráðamenn Félagsdóms telji, að sjómenn megi gjarna þola nokkra bið eftir endanlegu uppgjöri vertíð- árkaupsins. Málarekstur þessi er ein af- leiðmg gerðardómslaga Emils Jónssonar og hyggst LÍÚ-klíkan nota þau lög sem skálkaskjól til þess að klekkja á sjómönnum, á þeim stöðum sem henni tókst ekki að segja samningum upp á löglegan hátt fyrir sumarver- tíðina. ÍSLENZKU STÚLKURNAR NR. 3 OG 5 ! hlýtur að Iaunum ferð til ^ Beirut þar sem hún verður g heiðursgestur á Evrópukeppn- inni. SAS kostaði keppnina H og ferðir keppendanna, Þetta er í annað sinn sem B Guðrún Bjarnadóttir tekur ^ þátt í fegurðarkeppni erlend- ^ is og næst heldur hún til k Mallorca þar sem hún tekur tj þátt í alþjóðlegri keppni. Nú um helgina íóku tvær íslenzkar stúlkur þátt í nor- rænni fegurðarsamkeppni i Helsinki, þær Guðrún Bjarna- dóttir fegurðardrottning ís- lands 1962 og Auður Aradótt- ir. Fór keppnin fram í finnska sjónvarpinu og var keppt um titilinn Miss Scandi- navia. Guðrún varð númer 3 í keppninni og Auður nr. 5. í keppninni tóku alls þátt 10 stúlkur eða tvær frá hverju landi, Finnlandi, svíþjóð, Noregi, Danmörku og íslandi. Sigurvegari varð finnsk stúlka, sænsk stúlka varð nr. 2, þá kom Guðrún Bjarna- dóttir, fjórða varð norsk stúlka og sú fimmta Auður Aradóttir. Sigurvegarinn í keppnlnni aflahæstu skipin, en sjálf sild- arskýrslan er á 2. síðu blaðsins. Víðir II. GK 19.068 Haraldur AK 18.271 Halldór Jónsson SH 15.811 Náttfari ÞH 14.103 Skírnir AK 13.229 Guðm, Þórðarson RE 12.789 Hilmir KE 12.675 Eldborg GK 12.303 Auðunn GK 12.181 Pétur Sigurðsson RE 12.085. 1111 Blíða á Borgar- firði eystri Borgarfirði eystri 7/1 ’63. Veð- ur hefur verið stillt og gott að undanförnu, nær snjólaust í byggð — aðeins föl á jörð og bílfært um sveitina, til Héraðs a.m.k. fyrir jeppa og má segja að samgöngur hafi verið óvenju greiðfærar, það sem af er þess- um vetri. Síðustu dagana hefur verið stillt veður og töluvert frost. Um skemmtanalíf um hátíð- irnar er það að segja, að á veg- um Ungmennafélags Borgarfjarð- ar var sýndur tvisvar gamanleik- urinn Saklausi svallarinn eftir Arnold og Bach. Brennur voru á gamlárskvöld og 3ja janúar var álfadans og brenna. . Að venju fer héðan margt fólk til sjóróðra og margskonar vertíðarvinnu til verstöðvanna sunnanlands. Eru margir þegar komnir í verið en aðrir fara með næstu ferðum. Hörður Lárusson dvelur við framhaldsnám i stærðfræði við liáskólann i Minnesota. Þá er í fréttinni skýrt frá því, að eftirtaldir stúdentar hafi hlot- ið námsstyrk á vegum ísienzk- ameríska félagsins og Institute of International Education til há- skólanáms í Bandaríkjunum skólaárið 1962—1963: Svanfríður Larsen Akureyri til náms í ensku við Smith College. Ólöf B. Blöndail Siglufirði til náms í ensku við Stephens Coll- ege. Gigja Friðgeirsdóttir Akureyri til náms í ensku við Mount Holyoke College. Katrín S. Árnadóttir Reykja- vik til náms í ensku við North- east Missouri State Teachers Col'lege. Matthias Matthiasson Reykja- vík til náms í verkfræði við University of Kansas. Guðrún Guðjónsdóttir Reykja- vík til náms í ensku við New York State University College of Education. Þrettándasprell í fyrrakvöld urðu einhver ó- læti á Strandgötunni í Hafnar- firði, krakkar voru þar með sprell og tepptu götuna um tíma með drasli, sem þau drógu að sér. Lögreglan ruddi götuna fljót- lega og varð ekkert tjón af. Lögreglan tjáði blaðinu að að sín- um dómi hafi kvöldið verið ró- legt. Ekki sé hægt að kalla það óspektir, þó krakkar séu eitthvað að leika sér.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.