Þjóðviljinn - 12.01.1963, Side 7

Þjóðviljinn - 12.01.1963, Side 7
Laugardagur 12. janúar 1963 ÞJOÐVILJINN SlÐA 1 Um áramótin barst fregn Xrá Washington um að Kenn- edy forseti hefði einsett sér að ná þeim tökum á bandamönn- um sínum 1 Evrópu á nýja ár- inu, að hann verði áður en það er á enda búinn að fá aðstöðu til að taka upp samninga við Sovétrikin um lausn ágreinings- mála eins og Berlínardeilunn- ar, án þess að þurfa að eiga það á hættu að bandamennirn- ir bregði fyrir hann fæti þegar verst gegnir. Ekki sögðu frétta- menn í Washington frá b/í hvaðan þeim kæmi vitneskjan um fyrirætlanir forsetans, vitn- uðu aðeins í „hina traustustu heimild”. Þegar þannig er kom- izt að orði, vita allir sem mál- um eru kunnugir að sá sem í hlut á hefur sjálfur talað, en fyrirboðið fréttamönnunum að vitna til sin með nafni. Úr þessu þarf því engum blöðum um það að fletta að Banda- ríkjaforseti er staðráðinn í að una því ekki lengur að skjói- stæðingar hans í Bonn og Farís taki af honum ráðin, eins og þegar Adenauer ónýtti banda- ríska tillögu um alþjóðlegt eft- irlit með samgöngum milli Vestur-Þýzkalands og Vestur- Berlínar, eða de Gaulle neitaði að taka þátt í undirbúningi Vesturveldanna að samningum við Sovétríkin um Berlínarmál- ið með þeim rökstuðningi að staða Vesturveldanna i Berlín geti á engan hátt eflzt frá því sgm nú er og því sé ekki um neitt að semja. Þeir fáu dagar sem liðnir eru af nýja árinu hljóta dð hafa fært Kennedy heim sann- inn um að hann verður að leggja "ig allan fram ef takast á að beygja ellistirða svíra þeirra sem nú ráða málum helztu meginlandsríkjanna i Vestur-Evrópu. Á fundi sínum með brezka forsætisráðherran- um Macmillan fyrir jólin i Nassau á Bahamaeyjum, taldi Kennedy sig hafa fundið ráð til að vinna de Gaulle á sitt band og rjúfa um leið öxulinn sem síðustu árin hefur tengt Bonn og París. Bandaríkjafor- seti kunngerði, að Frökkum stæði til boða að fá bandarísk Polarisflugskeyti sem skjóta á úr kafbátum með sömu kjör- um og Bretar. sem sé þeim að myndaður yrði floti banda- rískra, brezkra og franskra kjarnorkukafbáta búinn Polar- arisskeytum og undir yfirstjórn herstjómar Atlanzhafsbanda- lagsins. Macmillan átti fyrir sitt leyti ekki annars kost en taka þessu boði með þökkum. því með ákvörðun sinni að stöðva smíði Skybolt eldflaug- arinnar sem skjóta átti úr flug- vélum hafði Bandaríkjastjóm í einu vetfangi gert kjamorku- vopnin sem Bretar hafa komið sér upp með svo miklum kostn- aði ónothæf með öllu að skömmum tíma liðnum. Kjam- orkuvopnasmíðar Breta og Bandaríkjamanna hafa verið tengdar allt frá því á stríðs- árunum, en Frakkar hafa basl- azt áfram upp á eigin spytu''. og það ætlar de Gaulle að nota sér. Frakklandsforseti hefur þegar kunngert að hann sé stað- ráðinn í að koma upp áður en 1963 er á enda flota franskra sprengjuflugvéla sem búnar verða frönskum kjamorku- sprengjum. Frakkar eiga nú þegar nokkrar birgðir af til- tölulega afllitlum plútóníum- sprengjum. og fyrir lok bessa árs er ætlun þeirra að taka í notkun sprengjuflugvélar sf gerðinni Mirage IV sem eiga að geta borið bessar sprengjur og flogið tvöfalt hraðar en hljóðið Tveim dögum eftir að de Gaulle skýrði franska hern- um frá þessu í nýársboðskap sínum. var kunngert efni svars hans við boði Kennedys eftir fundinn í Nassau. Þar kveðst hann enga ákvörðun geta tekið að svo stöddu en vilja ræða málið nánar. Jafnframt murii unnið eftir áætlun að áætlun- inni um að gera Frakkland að sjálfstæðu kjarnorkuveldi. Peyrefitte. upplýsingamálaráð- herra de Gaulle, útskýrði svar forsetans nánar fyrir frétta- mönnum. Franska stjórnin „hef- ur sem stendur engan áhuga” á boðinu um Polarisskeyti. sagði ráðherrann. vegna bess að hún ið Daily Express). Atök framundan milii Kennedy og de Gaulle á hvorki kafbáta til að taka við eldflaugunum né vetnis- sprengjuhleðslur i þær. Gert er ráð fyrir að franskar vetms- sprengjur komi í fyrsta lagi til sögunnar um 1970 og kjarn- orkukafbátar um svipað leyd. Ekki vill Kennedy gefast upp að svo komnu máli við að fá de Gaulle ofan af sínum háa kjarnorkuhesti. Bent er á í Bandarikjunum að frönsku kjamorkuvopnin og sprengju- flugvélarnar séu’ nánast þýðing- arlaus borið saman við her- búnað Bandaríkjanna og Sovét- ríkjanna. Vonlaust sé með öllu fyrir ríki elns og Frakkixnd að keppa við þau. Bandaríski sendiherrann í París, Charles Bohlen, hóf fyrir helgina við- ræður við de Gaulle um kjarn- orkumálin, en áður hafði hann fengið ýtarleg fyrirmæli í Washington. Sagt er að Bohlen hafi verið falið að heita de Gaulle vetnissprengjuhleðslum í Polarisskeytin ef hann þiggur þau, enda þótt til slíks þurfi breytingu á kjamorkulöggjöf Bandaríkjanna. Jafnframt mun hann leggja áherzlu á. það á- kvæði í boði Kennedys til Mac- millans og de Gaulle, að ríkin sem hlut eiga að máli skuli £á heimild til að kalla kjarnorku- kafbáta sína undan yfirstjórn A-bandalagsins og taka yfirráð þeirra í eigin hendur ef „lífs- hagsmunir” þeirra krefjist. Loks er bent á það í Washing- ton, að með framkvæmd Poi- aristillögu Kennedys væri i rauninni tekin upp tillaga de Gaulle sjálfs um sameiginlega yfirst.jórn Bandaríkjanna, Bret- lands og Frakklands innan NATÓ. Hingað til hefur boð Bandaríkjastjórnar um að láta bandalaginu í té kafbáta búna Polarisskeytum verið bundið því skilyrði að öll bandalags- ríkin kæmu sér saman um yf- irstjórn þeirra. Vestur-Þjóðverjar voru fljótir að sjá hvar fiskur lú undir steini og andmæltu hvasst ti'- raun Kennedys til að slíta bau sérstöku tengsl sem á síðustu árum hafa myndazt milli Frakklands og Vestur-Þýzka- lands. Adenauer skrifaði Kenr- edy bréf og bað um útskýr- ingu á boðinu til Breta og Frakka, og þýzku stórblöðin kvörtuðu hástöfum yfir að Bandaríkjaforseti væri aðreyna að gera Vestur-Þýzkaland að annars flokks bandamanni í NATÓ. „Vestur-Þýzkaland neit- gr að láta nota sig sem óbreyít- an fótgönguliða,” sagði Die Welt. 1 blaðaþjónustu Krisli- lega demókrataflokksins var Bandaríkjastjórn brigzlað um tilhneigingu til að hafa Vestui- Þjóðverja að „fallbyssufóðri” ti! að verja „bandaríska riddar- ann”. Adenauer ákvað að fara á fund de Gaulles 21. janúar til að ræða um nánari sam- vinnu Vestur-Þýzkalands og Frakklands á öllum sviðum. meðal annars að ríkin taki upp samstöðu innan NATÓ. Er það í samræmi við áramótaboðskap de Gaulle til frönsku þjóðar- innar, þar sem hann sagði að æðsta markmið stjórnar sinnar í utanríkismálum væri að koma á „einingu Evrópu” svo Vestur- Evrópuríkin geti í sameiningu komið fram sem „jafnoki Bandaríkj anna”. Iþessum átökum tnnan A- bandalagsins hefur Bret- land orðið fyrir mestu hnjaski til þessa. Kennedy hefur sýnt stjóm Macmillans algert til- litsleysi, fyrst í Kúbudeilunni þegar hann tók ákvarðanir sí’>- ar án þess að ráðfæra sig við brezka forsætisráðherrann, og síðan í Skyboltmálinu. Á hinn bóginn bverneitar de Gaulle að greiða Bretum á nokkurn hátt veginn inní Efnahagsbandalag Evrópu, nema þeir slíti með öllu sérstök tengsl sín við sam- veldislöndin og Bandaríkin og gerist „Evrópumenn” og ekkert annað. Áður en Macmillan héit til Nassau ræddi hann við d° Gaulle í París. Sagt er að franski forsetinn hafi þá gefið í skyn, að Frakkar myndu gjaman þiggja vitneskju Brefa um smíði eldflauga og vetnis- sprengja. Þegar Macmillan svar- aði, að í þvi máli gæti ham ekkert gert nema ráðfæra S'g fyrst við BandaríVastjórn, sagði de Gaulle þurrlega, að úr bvi að svo væri sæi hann ekki að Frakkar gætu neitt slakað tll í samningunum um aðild Bret- lands að EBE. 1 áramótaboð- skap sínum itrekaði hann svo að Bretland gæti „á sínum tíma” fengið inngöngu í nýja stórríkið í Vestur-Evrópu, þeg- ar Bretar féllust á að taka á sig allar skyldur sem aðild fylgja fyrir stofnrikin og fæm ekki fram á neinar undanþág- ur. Yíst er því að bandaríska for- setanum mun reynast de Gaulle harður í horn að taka í þeim viðræðum sem fram- undan eru. Sagt er að Kennedy hafi komið þeim skilaboðum til de Gaulle að hann telji rétt að þeir hittist áður en langt um líður. Franskir ráðherrar sem spurðir hafa verið um möguleika á slíkum fundi svara, að de Gaulle eigi alltof annríkt til þess að hann geti gefið sér tíma til Ameríkuferð- ar fyrst um sinn. Bandaríkja- stjórn þykist eiga vantalað við Frakka um fleira en stórpóli- tík. Efnahagsbandalag Evrópu er farið að troða Bandaríkja- mönnum um tær í viðskiplum. Stefna bandalagsins í landbún- aðarmálum, sem mótuð hefur verið að vilja Frakka, er oú smátt og smátt að koma til framkvæmda. I ræðu nýlega sakaði Orville Freeman, land- búnaðarráðherra Bandaríkj- anna, EBE um að stefna að því að hrekja baníarískar land- búnaðarafurðir af mörkuðum Vestur-Evrópu og þeirra Afríko- rikja, aðallega fyrrverandi ný- lendna Frakka, sem tengzt hafa Efnahagsbandalaginu. Boðaði Freeman harkalegar gagnráð- stafanir Bandaríkjanna ef EBE breytti ekki um stefnu. Hermálin eru samt það sem hsest ber í erjunum innan A-bandalagsins. Stjórn Kenn- edys hefur komizt að þeirri niðurstöðu, að Vestur-Evrópu- ríkin séu vel þess megnug að koma sér upp það öflugum her búnum gamaldags vopnum að engin þörf sé á að grípa til kjarnorkuvopna þegar í stað þótt til árekstra komi einhvers staðar á markalínunni í Mi<5- Evrópu milli A-bandalagsins og Varsjárbandalagsins. Meðan Bandaríkjamenn höfðu yfir- burði í kjarnorkuvopnavígbún- aði, var það yfirlýst stefna þeirra að beita kjamorkuvopn- um þegar í stað kæmi 111 vopnaviðskipta í Evrópu. En nú ráða Sovétríkin yfir eld- flaugum sem gera Bandaríkin jafn berskjölduð í kjarnorku- styrjöld og hvem annan blett á jörðinni. Við það hefur mesti móðurinn runnið af bandarísku herstjórninni, og hún hefur uppgötvað kosti þess að berjast upp á gamla móðinn meðan ekki er allt í húfi. McNamara, landvarnaráðherra Bandaríkj- anna, hefur flutt ráði A-banda- lagsins þennan boðskap ú fundi eftir fund, en fengið daufar undirtektir. Norstad, hinn Fyrir skömmu gjörði eg dá- Framhald á 10. síðu Fáein orð um Magnús Benediktsson litla athugasemd við fyrirsögn um manndráp £ Tímanum. Sá, sem hér á fyrir að svara, er Jón Helgason, einn af ritstjór- um Tímans. Hann virðist ekki hirða um það, og má hann bó nokkuð af sér bera, því blaða- maðurinn, sjálfsagt ekki hann sjálfur, hafði hert nokkuð á því, sem ritgerð Jóns í „Islenzkt mannlíf”, gaf tilefni til, en víst er hér allt af einum anda. Eg hafði ekki lesið ritgerð Jóns þegar eg rak augun í þessa fróðlegu fyrirsögn, en þekkti múlið allrækilega. Eg hafði tvisvar í sumar beðið Jón Helgason að finna mig. 1 bæði sinn lofaði hann því, en er ókominn enn. Eg ætlaði að sýna honum, og ræða við hann, um nokkra þætti sögulegs efnis, sem eg hafði hug á að bjóða honum í sunnudagsblað Tímans. Þar á meðal var ritgerð um Magnús Benediktsson, sem mér lék hugur á að eigi lægi leng- ur óbættur hjá garði, þótt þar yrðu að koma i ljós hlutir, sem betur aldrei hefðu gerzt, sög- unnar vegna, en verður þó við svo búið að standa. Eg ætla nú aðeins að drepa ú nokkur atriði þessa máls. 1. Magnús Benediktsson var borinn sökum um það, að hafa drepið stúlku, sem fannst með höfuð niðri í vatni í ánni Úlfá, stutt frá ósi hennar í Eyjafjarð- ará, hinn 14. sept. 1704. Til þess að bendla Magnús við málið fannst kápa á túninu á bænum Úlfá, þar sem stúlkan átti heima, en það er í Saurbæjar- hreppi í Eyjafjárðarsýslú. Káp- an var frá Hólakoti, í túni Hóla, þar sem Magnús Bene- diktsson bjó, ög vinnumaður Magnúsar, Jón Hálfdánarson, hafði notað undanfarna daga k og var hann tekinn í júm og færður sýslumanni, sem var Lárus Scheving, klausturhald- ari Möðruvallaklausturs, dansk- ur maður. Þar laust Jón því upp í járnunum, að hann hefði verið með Magnúsi Benedikts- syni, er hann drap stúlkuna, en þó ekki öðruvísi en vottur i hæfilegri fjarlægð. Hann hgfði verið í kápunni, en lún- að Magnúsi hana eftir að þeir voru komnir yfir Eyjafjarðará náttúrlega utan yfir sína kápu, og Magnús svo haft hana til síns brúks á túninu, er hhnn var að sækja frillu sína van- færa, að Úlfá til að drepa hana fyrir augunum á Jóni! Þetta var talin gild saga. Menn gátu trúað því, að menn færu til launmorðs með votta og skildu svo lík eftir með „dráps merkj- um”, þar sem minnsta kosti var stutt til að lúta Eyjafjarð- ará fleyta því frá vettvangi. Það munu flestir sjá, að slíkt fær ekki staðizt og eins hitt, að notkun Jóns á kápunni frá fimmtudegi og fram á laugar- dagsnótt er fyrirframhugsað ráð í þessu sambandi, og hér standa einhverjir á bak við, sem nota Jón til að fyrirkoma stúlkunni, þv£ margra manna verk hefur það ekki verið. Hvöt Magnúsar að þessu verki átti svo að vera sú, að hann hafi átt þunga með stúlkunai. sem hann hafi ekki viljað gangast undir. Hinsvegar kem- ur það hvergi fram í málinu, að neinn geti staðhæft það, að svo hafi verið um ásigkomulag stúlkunnar. En eitthvað verður að nota og Jón laust þessu upo. en engir aðrir, og var tekinn trúanlegur, en engu skeytt um líkskoðun. 2. Stúlkan var hreppsómagi 1703, 20 ára að aldri, en þeir menn, sem svo er ástatt um. eru frekast holdsveikisjúkling- ar og á það bendir það, að hún er látin sofa ein fram í bæjardyrum þetta sumar. Hún var dóttir fátækra manna og telst faðir hennar 88 ára gam- all 1703 og býr í Syðra Vill- ingadal. Ekki ber ómagaskráin það með sér hvar hún eigi heima þetta ár, 1703. Jón Hálf- dánarson hittir stúlkuna að máli á fimmtudag og spyr hana m. a. um það hvað hún ætli að sofa lengi í bæjardyrunum, ef þá er nokkurt orð að marka, sem frá Úlfsá kemur fram í málinu. Það átti að vera njósn- ir fyrir Magnús um hætti stúlk- unnar, en hætt við að Jón hafi spurt fyrir sjálfan sig. Stúlkan fannst á sunnudagsmorgun af bóndanum frá Úlfá og gesti hans. Þar átti að vera margt fólk á kirkjureið til Hóla, en Úlfá er innsti bær í Eyja- fjarðardölum, og ríða þeir Ey- firðingar einkennilega til kirkju á þeim dögum, er þeir koma fyrst í Úlfá. Líkið er sam- stundis borið heim til Hóla, margar bæjarleiðir og yfir Eyjafjarðará — líklega ekki verið mörg lýsipund — þar er því tekin gröf, hinn sama dag, og saumað utan að líkinu. Get- ið um að fólk stúlkunnar sé fátækt og sýnir þetta að stúlk- an er hreppsómagi. Stúlkan sullar í brennivíni, sem vani er holdsveikisjúklinga, og kút- ur er skilinn eftir hjá líki henn- ar, en Magnús var kútamaður, svo þetta átti að vera í stfl. 3. Lárus sýslumaður braut Iög og rétt á Magnúsi í hand- töku og varðhaldi og virðist hafa farið fram með miklum harka í málinu. Lét Hólakots- bóndann vitna á móti sjálfum sér, að því er virðist, svo vitn- isburðir hans í málinu voru dæmdir ógildir á alþingi 1705. Hætt við að þeir hafi fleiri verið ógildir. 4. Magnúsi voru dæmdar undanfærslur með 12 manna eiði, en tilnefndir voru meðal annars tveir landsetar Lárusar sýslumanns, og klausturhaldar- inn á Munkaþverá, kóngs um- boðsmaður. Enginn slíkra manna vildi sverja með Magn- úsi, en allir bændur í Öxna- dal kváðust reiðubúnir að sanna sakleysi hans með eiði. 5. Nú var Magnús ryktaður við manndráp og hann var auðugur maður og fé hans því komið í það, sem íslendingar kölluðu „Kongs interesse”. Eng- inn þeirra þorir að fylgja réttu máli og var þó allt ólöglegt, sem gert var f málinu m. a. eiðatakan, að dómi Lárusar Gottrúp. Svo aumlega er komið fyrir þjóðinni. Lögmaður, Lár- us Gottrúp, danskur maður, neitaði að skipta sér af málinu, sem var algerlega á móti lög- um, að áliti Páls Vídalín. Varð varalögmaðurinn að stsmda fyr- ir dóminum. 6. Magnús var dæmdur út- lægur og nú skyldi maður halda að manndráparinn hefði talið sig heppinn að vera kom- inn út úr landinu með haus- inn á bolnum. En Magnús stefndi málinu fyrir hæstarétt. Varla gat hann búizt við ?ð vinna rangt mál fyrir æðri dómstigum eftir að hafa tapað því fyrir hinum lægri. En Magnús hefur trúað á réttinn. Það var óhyggilegt af honum, eins og rétturinn leit nú út í ríkjum einvaldskonungs Dana. 7. Magnús tapaði málinu í hæstarétti 16. marz 1709 og var dæmdur á Brimarhólm. Jón Hálfdánarson var dæmdur út- lægur, og að koma aldrei íil Islands, hið sama sinn, en 25. júní s. á. náðaði kóngur Jón Hálfdánarson. Þá var Lánxs Scheving í Danmörku. Hver Framhald á 10. síðu /

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.