Þjóðviljinn - 22.01.1963, Qupperneq 3
Þriðjudagur 22. janúar 1963
JÞJ ÓÐ.V IL JINN
SlÐA 3
Bréfaskipti Krústjoffs og Kennedys
Miðar í átt til samkomulags
um stöðvun kjarnasprenginga
!
WASHINGTON og MOSKVU 21/1 — Birt hafa
verið bréf, sem farið hafa á milli Kennedys, for-
seta Bandaríkjanna, og Krústjoffs, forsætisráð-
herra Sovétríkjanna, um leiðir til að ná samkomu-
lagi um stöðvun kjarnasprenginga. Þessi bréfa-
skipti, sem Krústjoff átti upphafið að, hafa vakið
vonir um að slíkt samkomulag geti tekizt milli
stórveldanna.
Krústjoff skrifaði Kennedy
bréf um þetta mál 19. desember.
1 þvi gengur hann að þeirri
kröfu Bandaríkjanna að Sovét-
ríkin heimili erlendum eftirlits-
nefndum að fylgjast með því að
ekki séu sprengdar kjamasprengj-
ur neðanjarðar í Sovétríkjunum
LAUGAVEGI 18K-- SIMI 19113
TIL SÖLU:
Einbýlishús
í Smáíbúðahverfi
Járnsmíðaverkstæði
með öllum vélum og tækj-
um á mjög góðum stað.
Framhaldsverkefni geta
fylgt
Einnig íbúðir
af ýmsum stærðum viðs.
vegar um borgina og í
Kópavogi.
ÍBÚÐIR ÓSKAST
Höfum kaupendur
að flestum stærðum íbúða.
Miklar útborganir.
Hafið samband við
okkur ef þið þurfið
að selja eða kaupa
íbúð.
og leggur til að þær fái að fara
tvær—þrjár slíkar eftirlitsferðir
á ári. Jafnframt verði komið upp
sjálfvirkum mælitækjum („svört-
um kössum") í jarðskjálftahéruð-
um í Sovétríkjunum, sem fylgzt
gætu með hvort þar ættu sér
stað nokkrar annarlegar jarð-
hræringar.
Tímabært að Ieysa vandann
1 bréfi sínu bendir Krústjoff á
að tímabært sé orðið að leysa
þann vanda að gera alþjóðlegan
samning sem banni kjamaspreng-
ingar. Ástandið í heimsmálunum
hafi batnað að undanfömu, eink-
um eftir farsæla lausn Kúbu-
málsins, og því beri að taka til
meðferðar önnur ágreiningsmál
stórveldanna og þá fyrst og
fremst að koma á banni við
kjamasprengingum. Ragnarök
kjarnastríðs myndu leiða ósegjan-
legar hörmungar yfir banda-
rísku þjóðina og allar þjóðir
heims, segir Krústjoff. Okkur
ber því að bæta friðsamleg sam-
skipti okkar og leysa allar deil-
ur með samningum og gagn-
kvæmum tilslökunum á gmnd-
velli fulls jafnréttis og rétts mats
á hagsmunum beggja. Eitt þeirra
mikilvægu mála sem sovétstjóm-
in telur að verði að leysa á
þennan hátt er einmitt hvemig
sett verði algert bann við kjama-
sprengingum.
Við emm sammála um, herra
forseti, heldur Krústjoff áfram,
að hver þjóð um sig geti fylgzt
með öllum tilraunum sem gerð-
ar yrðu í háloftunum, gufuhvolf-
inu og neðansjávar. Hins vegar
hefur ekki tekizt enn að finna
viðunandi lausn varðandi eftir-
lit með slíkum sprengingum neð-
anjarðar og höfuðástæðan fyrir
því að samkomulag hefur ekki
tekizt er sú að Bandaríkjastjórn
hefur haldið fast við kröfu sína
um alþjóðlegt eftirlit í löndum
kjamorkuveldanna. Ég er enn
þeirrar skoðunar að hver þjóð
um sig gæti einnig annazt eftir-
lit með slíkum sprengingum.
Sovétstjómin gerði mikilvæga
tilslökun nýlega þegar hún féllst
á að komið yrði upp sjálfvirkum
mælistöðvum til að fylgjast með
annarlegum jarðhræringum og að
erlendum aðilum yrði leyít að
fylgjast með starfsemi þeirra
6töðva, en við teljum að þrjár
slíkar stöðvar mjmdu nægja í
Sovétríkjunum.
Hins vegar hefur okkur skil-
izt, heldur Krústjoff áfram í bréfi
sínu, að Bandaríkjaþing myndi
ekki fást til að fullgilda samn-
ing um bann við kjamaspreng-
ingum nema í honum væri gert
ráð fyrir einhverju alþjóðlegu
eftirliti. En sé þetta eini ásteyt-
ingarsteinninn, emm við fúsir
til að ryðja honum úr vegi og
mæta Bandaríkjunum á miðri
leið.
Auðvelt viðureignar
Að lokum segir Krústjoff í bréf-
inu að ’þagga verði niður í þór-
dunum kjamasprenginganna.
Þjóðir heimsins vilja það og
allsherjarþing SÞ vill það líka.
Með lausn Kúbumálsins bægð-
um við ógnarhættu kjarnorku-
stríðsins frá dymm mannkynsins.
Ættum við þá ekki líka að geta
leyst þann miklu einfaldari vanda
að banna kjarnasprengingar á
friðartímum? Ég held að við
getum það og verðum að gera
það. Það er skylda okkar gagn-
vart öllum þjóðum heims. Við
skulum vinda bráðan bug að
lausn þessa máls.
8-10 eftirlitsferðir
1 svarbréfi Kennedys, sem
dagsett er 28. desember, segist
hann vona að tillögur Krústjoffs
geti auðveldað lausn þessa máls.
Hann tekur þó fram að Banda-
ríkjastjórn telji tvær-þrjár eftir-
litsferðir á ári ófullnægjandi.
Hún hafi upphaflega krafizt
tólf-tuttugu slíkra ferða, en
hafi lækkað þá kröfu niður í
átta-tíu og hafa vonazt til að
sovétstjórnin gengi til móts við
sig að þessu leyti. Kennedy taldi
einnig að tillaga Krústjoffs um
sjálfvirkar stöðvar væri ófull-
nægjandi. Kennedy lét í ljós von
um að hægt yrði að jafna þenn-
an ágreining í frekari viðræðum.
Annað bréf Krústjoffs
Krústjoff svaraði síðan bréfi
ICennedys aftur 7. janúar og
sagðist þá telja allar líkur á að
hægt yrði að ná samkomulagi
um eftirlitið og vona að viðræð-
ur fulltrúa þeirra gætu borið
slíkan árangur, að þeir gætu til-
kynnt afvopnunarnefndinni í
Genf að hægt væri að undirrita
samkomulag um bann við kjama-
sprengingum.
Viðræður fulltrúa stjóma Sov-
étríkjanna og Bandaríkjanna um
þetta mál hefjast að r.ýju í
Washington á morgun.
* Skattaframtöl
* Innheimtur
* Lögfræðistörf
* Fasteignasala
Hermann G. Jónsson, hdl.
lögfræðiskrifstofa.
Skjólbraut 1. Kópavogi.
Sími 1003) kl. 2—7.
Heima 51245.
SIÓIWENN
Sjóstakkar og löndunarbuxur
fást enn fyrir Iítið verð.
Einnig síldarpils.
¥ 0 P N I
Aðalstræti 16.
Aðild breta að EBE
Macmillan ber
a
brýn svik og undirferli
LONDON 21/1 — Macmillan, forsætisráðherra Bretlands,
sakaði í dag de Gaulle forseta um svik og undirferli vegna
framkomu hans gagnvart Bretum í samningum þeirra um
aðild að Efnahagsbandalagi Evrópu. De Gaulle hefði ver-
ið óhreinskilinn og óheiðarlegur bæði þegar Bretar sóttu
um aðild að EBE og í viðræðum þeirra í Rambouillet í
síðasta mánuði.
Marmillan sem hélf ræðu á
fundi íhaldsmanna í Liverpool,
sagði að de Gaulle hefði vitað
frá upphafi um hinar sérstöku
aðstæður Breta og þau skilyrði
sem þeir myndu verða að setja.
Ef hann hefði haft einhverjar
grundvallarmótbárur gegn aðild
Breta, hefði hann átt að gefa
þær strax til kynna.
KIPAUTGCRÐ RIKISINS
Herjólfur
fer til Vestmannaeyja og Horna-
fjarðar á morgun. Vörumóttaka
til Homafjarðar í dag.
Aðstoðarmaður
Stúlka eða piltur óskast í veðurfarsdeild Veðurstofu Is-
lands. Góð almenn menntun áskilin. Stúdentspróf æski-
legt. Lágmarksaldur 20 ár. Umsóknarfrestur til 5. febr.
VEÐURSTOFA fSLANDS.
Inniharðir
Eik — Teak — Mahogny
HtJSGÖGN &
INNRÉTTINGAR.
Ármúla 20, simi 32400.
Þegar við fórum fram á við-
ræður um aðild að EBE, sagði
Mahmillan, féllust öll sex aðild-
arríki bandajagsins á það. einn-
ig Frakkland. Því var þá ekki
haldið fram, að aðild okkar
myndi kc»ma bandalaginu úr
jafnvægi Hin víðtæku við-
skiptasambönd okkar voru ekki
talin mæla gegn okkur. Ermar-
sund var ekki talið vera djúp
sem ekki yrði brúað. Nú virðist
sem annað sé upp á teningnum.
Ég á bágt með að trúa að nokk-
urt þeirra sex ríkja sem upp-
haflega féllust á umsókn okkar
geti nú vísað henni á bug —
ekki af efnahagsástæðum. ekki
vegna þess að samningarnir hafi
strandað, heldur vegna þess að
þau hafi það meginsiónarmið
að loka skuli Bretland úti.
Adenauer miðlar ekki málum
Adenauer, for.sætisráðherra V,-
Þýzkalands, ræddi við de Gaulle
í París i dag (Frá fundi þeirra
er skýrt á öðrum stað hér á
síðunni). Af ummælum embætt-
ismanna í föruneyti Adenauers er
dregin sú ályktun að hann reyni
alls ekki að miðla málum milli
de Gaulle og Breta. Sjálfur tók
hann fram í gær að hann væri
ekki kominn til Parísar til að
ræða sérstaklega mál sem nú
væru ofarlega á baugi og blaða-
fulltrúi hans sagði, að um þau
yrði ekkert fjallað á fundum
haris og de Gaulle. Það væri
fulltrúanna í Brussel að ráða
íram úr þeim.
I
I
Oldungar fá
áminningu
De Gaulle og Adenauer
Adenauer, kanslari Vestur-
Þýzkalands, og de Gaulle,
forseti Frakklands, hófu við-
ræður í París í gær. Þeir öld-
ungamir hafa oft hitzt á síð-
ustu árum, en þessi fundur
þeirra er hinum merkari fyr-
ir þá sök, að á honum ætla
þeir að reka smiðshöggið á
það verk, sem þeir leggja
báðir allt kapp á að hafa
gengið svo vel frá, að eftir-
menn þeirra geti engu um
það þokað: tryggja nána sam-
vinnu Frakklands og Vestur-
Þýzkalands á flestum sviðum
mannlegra athafna. Þegar de
Gaulle heimsótti Vestur-
Þýzkaland í september sl. gaf
hann í skyn að brátt yrði
gerður samningur milli ríkj-
anna um samstarf þeirra og
það er sá samningur sem Ad-
enauer er nú kominn til Par-
ísar að undirrita.
Það fer því víðsfjarri að
nokkur fótur sé fyrir
þeirri skoðun sem látin er í
ljós í forystugrein, Vísis í gær,
að Adenauer hafi gert sér
ferð til Parísar til að reyna
að tala um fyrir de Gaulle
og fá hann til að láta af
andstöðu sinni við brezka að-
ild að Efnahagsbandalagi Evr-
ópu. Allir sem gera sér nokk-
urt far um að fylgjast með
alþjóðamálum vita glöggt að
þessir tveir öldnu stjómmála-
refir eru sama sinnis í þessu
máli og ekki nokkrar líkur á
því, að Adenauer reyni að
telja de Gaulle hughvarf. Til-
gangurinn með gerð hins
fransk-þýzka samnings er
einmitt sá að binda hendur
þeirra vesturþýzku (og
frönsku) ráðamanna, sem and-
vígir eru stefnu öldunganna
og vilja að Bretum sé hleypt
í Efnahagsbandalagið.
Eindregnustu stuðningsmenn
brezkrar aðildar að EBE
í Vestur-Þýzkalandi, leiðtogar
sósíaldemókrata, lögðu því að
sögn Bonn-fréttaritara brezka
blaðsins Obscrvcrs mjög fast
að Adenauer að hætta við
Parísarförina og fresta undir-
ritun samningsins. 1 vestur-
þýzku stjómarflokkunum er
einnig meirihluti fyrir brezkri
aðild að EBE og sama máli
gegnir um sjálfa ríkisstjóm-
ina og hafa Gerhard Schröd-
er utanríkisráðherra og Lud-
vvig Erhard efnahagsmálaráð-
herra ekki farið dult með þá
skoðun sína, en annar hvor
þeirra mun væntanlega taka
við stjómartaumunum af Ad-
enauer í haust. En einmitt
þess vegna liggur þeim de
Gaulle og Adenauer svo mjög
á því að binda hendur eftir-
manna sinna. Vesturþýzkir
bændur og smáiðnrekendur
telja hagsmunum sínum bezt
borgið með þvi að Bretar
komi í Efnahagsbandalagið.
Bændur hafa þegar orðið fyr-
ir áföllum vegna landbúnað-
arskipanar EBE og gera sér
vonir um að með tilstyrk
Breta myndi hægt að fá henni
breytt. Framleiðendur neyzlu-
vamings hafa von um að
markaðsvandræði þeirra
myndu minnka ef Bretland
kæmi í bandalagið. Vestur-
þýzki stóriðnaðurinn og
bankaauðvaldið eru annarrar
skoðunar, segir fréttaritari
Observers, og Adenauer hefur
jafnan verið helzti talsmaður
þeirra. Þeir telja, segir frétta-
ritarinn, að þegar fram í sæk-
ir og eftir að de Gaulle er
horfinn af sjónarsviðiriu, muni
hver höndin aftur rísa á móti
annarri í Frakklandi og Vest-
ur-Þýzkaland þá verða alls
ráðandi á meginlandi Vestur-
Evrópu. Þessi frásögn hins
brezka íhaldsblaðs kemur
þannig alveg heim við þá
„uppáhaldskenningu andstæð-
inga EBE“, sem Vísir víkur
að í gær og reynir að ve-
fengja, i,,að Þjóðverjar ætli
sér að brjótast til valda í
Evrópu í skjóli aðstöðu sinn-
ar innan EBE“.
Brezka fjármálablaðið Fin-
ancial Times sem eins og
Observcr hefur verið fylgj-
andi brezkri aðild að Efna-
hagsbandalaginu segir þá líka
að þeir „geri sér tálvonir sem
trúi því að doktor Adenauer
geti lagt nokkuð að hershöfð-
ingjanum (de Gaulle) að fall-
ast á að Bretum verði hleypt
í EBE. Kanzlarinn leggur of
mikið upp úr vaxandi vináttu
landanna tveggja til þess að
hætta á nokkurt sundurlyndi
einmitt á þeirri stundu, þegar
hann getur talizt standa á
hátindi stjómmálaferils síns“;
Hinn fransk-þýzki vináttu-
sáttmáli mun ekki birtur fyrr
en að loknum viðræðunum í
París, en sitthvað hefur síazt
út um innihald hans. Megin-
atriði samningsins er að hann
gerir ráð fyrir mjög náinni
samræmingu á stefnu og
stjómarathöfnum beggja ríkj-
anna. Þannig mun ætlunin að
stjómarleiðtogamir hittist
tvisvar á ári til að samræma
pólitísk stefnumið, yfirhers-
höfðingjar þeirra hittist ann-
an hvem mánuð og utanríkis-
ráðherrar hvem mánuð. Gert
mun ráð fyrir gagnkvæmum
skiptum á herforingjum og
annarri samvinnu í hermálum.
Talið er líklegt að sérstakur
samningsviðauki fjalli um
sameiginlega afstöðu ríkjanna
til helztu alþjóðlegra vanda-
mála, svo sem Berlínar- og
afvopnunarmálsins. Fréttarit-
ari Reuters segir einnig senni-
legt að sett verði ákvæði um
að annar aðilinn geti ekki
rift samningnum um sameig-
inlega stefnu ríkjanna í utan-
ríkismálum, og um samvinnu
þeirra á öðmm sviðum. Slíku
ákvæði myndi að sjálfsögðu
ætlað að binda hendur eftir-
manns Adenauers. Eftir er að
vita, hvort vesturþýzka þing-
ið myndi fullgilda slíkan
samning.
Þær vonir sem sumir hafa
látið í ljós um að för Ad-
enauers til Parísar muni verða
til þess að draga úr sundr-
unginni innan vesturblakkar-
innar munu því ekki rætast.
Það er þvert á móti öll á-
stæða til að ætla að hún muni
enn ágerast. Bandaríkjastjóm
hefur tekið þann kost að bíða
átekta og hún mun ekki hafa
lagt að Adenauer að reyna
að fá de Gaulle ofan af and-
stöðu sinni við aðild Breta
að EBE. Það er á hinn bóg-
inn varla nein tilviljun að
daginn sem Adenauer kom
til Parísar skyldi bandaríska
utanríkásráðuneytið birta
bréfaskipti þeirra Krústjoffs
og Kennedys um stöðvun
kjamasprenginga: Kennedy
forseti hefur viljað minna
hina evrópsku öldunga á að
þótt þá dreymi mikla stór-
veldisdrauma, þá hefur hann
einn vald til að semja fyrír
hönd hinna vestrænu auð-
valdsríkja, og að hann er
staðráðinn í að nota það vald,
hvort sem þeim líkar betur
eða verr. ás.
I