Þjóðviljinn - 23.01.1963, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 23.01.1963, Qupperneq 1
Miðvikudagur 23. janúar 1963 28. árgangur — 18. tölublað Nokkrír hafa þegar samið BílstjóraverkfaUið í Kefla- vík stendur enn, en gera má ráð fyrir, að styttast taki í því. Nokkrir aðilar hafa þegar undirritað samninga við bíl- stjórafélagið, þar sem kröfur þeirra eru teknar til greina. Það eru útgerðarfélög eftirtai- inna báta: Andri, Vilborg, Vonin II., Stafnes, Steingrimur trölli. Auk þess hefur Fiskimjöl Njarðvík h.í hrritað samn- ingana. Fmdur í Dagshrún \annaB kvöh/í | klukkan 9 ! ! ! Dagsbrúnarfundur verður haldinn annað kvöld í Gamla bíó og hefst hann kl. 9. Verða þar rædd samningamálin og kosning- arnar. Stjórnarkosningar og aðrar kosningar í félaginu fara fram á laugardag og £ sunnudag. Venja er að ■ halda einn fund rétt fyrir J kosningar, en þar sem ^ það fer nú saman að samn- ts ingarnir eru að komast á ^ úrslitastig og því eðlilegt b að hugur verkamanna snú- ® ist þessa dagana um samn- g ingamálin, verða þau mál einnig rædd á fundinum. auk kosninganna Dagsbrúnarmenn eru hvattir til að mæta vel og fylgjast með því sem er að gerast í samningamál- unum, og þá einnig kosn- ingabaráttunni, sem verða mun afdrifarík fyrir kjara- málin I I Ægir fer s rann- séknaleiðangur f fréttatilkynningu sem Þjóð- viljanum hefur borizt frá Fiski- deild segir að í gær hafi varð- skipið Ægir lagt af stað í síldar- og hafrannsóknaleiðangur undir stjórn Jakobs Jakobssonar fiski- frseðings en skipherra á Ægi er Haraldur Björnsson. Tilgangur leiðangursins er einkum sá að rannsaka íslenzku síldarstofnana næsta mánuð en eins og kunnugt er hafa slíkar rannsóknir á vetrargöngum síld- arinnar verið framkvæmdar ár- lega síðan 1960. Þá verða m. a. einnig gerðar seltu- og hitamæl- ingar við Suður- og Suðvestur- land með sérstöku tilliti til á- stands sjávar á helztu hrygning- arstöðvum íslenzkra nytjafiska. Eins og áður segir er Jakob Jakobsson fiskifræðingur leiðang- ursstjóri en aðrir þátttakendur frá Fiskideild eru Svend Aage Malmberg haffræðingur, Birgir Halldórsson og Sverrir Guð- mundsson starfsmenn Fiskideild- ar. krefst svara Stjórn Verkamannafé- lagsins Dagsbrúnar hélt fund í fyrrakvöld, um stöðuna í samningamál- unum. Ákvað stjórnin að beina þeirri fyrirspurn til Vinnuveitendasam- bandsins, hvort Dags- t>rún stæði til boða hið sama og gert var á Akur- eyri, 5% kauphækkun án minnstu bindinga á samningum. í gærmorgun var þessi spurn- ing svo lögð fyrir Vinnuveitenda- sambandið og óskað eftir svari samdægurs. Var því svarað til að framkvæmdanefnd Vinnuveit- endasambandsins yrði á fundi kl. 5 og að honum loknum skyldi fyrirspurninni svarað. Laust fyrir kl. 7 i gærkvöld barst Dagsbrún það svar Vinnu- veitendasambandsins að það ósk- aði eftir að samninganefndir að- ila mættu til fundar kl. 11 í dag, og myndi þá efnislegt svar verða gefið. Mönnum er spum: Vefst svar- ið fyrir Vinnuveitendasamband- inu? Er það hugsanlegt að ætl- unin sé að neita verkamönnum í Reykjavík um það sem þegar hefur verið gert á Akureyri? Á Akureyri féllust atvinnurek- endur eins og kunnugt er á að hækka kaupið um 5% frá og með sl. mánudegi. Að sjálfsögðu uppfyllir slík hækkun ekki nema að litlu leyti þær kröfur sem verkamenn gera, og ekki kemur til mála að binda samninga verkamanna upp á þau býti. 1 gærkvöld hélt sáttasemj- ari, Torfi Hjartarson, fund með deiluaðilum, en ekki er Þjóðviljanum kunnugt um, hvort samkomulag hefur tek- izt. Syngur fyrir MÍR-féloga Athygli MÍR-félaga er vakin á því, að óperusöngkonan Zerm- ,ena Heine-Wagner og undirleik- iari hennar, Vilma Zirúle halda hljómleika fyrir meðlimi MÍR í Austurbæjarbíói föstudaginn 25. janúar klukkan sjö síðdegis. Félagar fá aðgöngumiða senda í pósti, en þeir, sem af einhverj- um ástæðum fá þá ekki þannig geta vitjað þeirra í skrifstofu MÍR að Þingholtsstræti 27. 2 seldu í gær og fyrradag Togarinn Júní séldi í gær 230 tonn af síld í Bremerhaven fyrir 109.000 mörk og 13 tonn af ýsu fyrir 20.000 mörk (15—16 krónur kílóið). Alls nam því salan 129. 000 mörkum. Gylfi seldi síld í Hamborg í fyrradag og Cuxhaven í gær, alls 277 tonn fyrir 150.039 mörk og einnig seldi hann 4,2 tonn af öðr- um fiski fyrir 5035 mörk og nam því salan 155,074 mörkum. Þetta voru síðustu togarasöl- urnar í Þýzkalandi í þessari viku, en Hafliði og Geir eru á leið til Englands með afla til sölu. þar. Sovésk-ítö/sk samvmna um kvikmyndir „Þcir héldu í austur“ cr nafnið á fyrstu myndinni scm sovézk'ir og ítalskir kvikmyndagerðarmenn hafa samvinnu um að gera. Er unnið að töku kvikmyndar þcss- arar í Sovétríkjunum um þessar mundir. Á myndinni sem tek- in er í Moskvu-kvikmyndaverinu sést cinn ítölsku myndasmiðanna, hinn frægi leikstjóri Giuscppe Santis í hópi sovézkra leikara og samstarfsmanna. Böndin á milii Bonn og Parísar tmjst - SAS-ferðir á lágum fargiöldum 7. okt Sjá 3. síðu ! Viðtal um kjaramálin I viðtali við GUÐMUND J. GUÐMUNDS- SON, varaformann Verkamannafélagsins Dags- brúnar, sem birt er á 5. síðu blaðsins í dag ræðir hann m. a. um þessi atriði: ■jc Eiga verkamenn ekki að fá hlutdeild í hinni gífurlegu framleiðsluaukningu? Verkamenn vinna stórkostleg afrck að sköpun mikilla verömæta, en aðrir hirða ofsa- gróðann. •fc Ríkiisstjórnin áskilur sér fullt „frelsi" til þess að ræna kauphækkunum aftur af verka- mönnum. •fc Atvinnurekendur virðast ekki vita af góð- ærinu þegar kauphækkun er nefnd. •fr Hafa ekki verkamenn það „voðalega gott“? •fc Stytting vinnuvikunnar úr 48 stundum í 44 með óskertu kaupi er ein af aðalkröfum Dagsbrúnar í samningunum nú. •fr Kosningabaráttan í Dagsbrún er beinn þáttur í kjarabaráttunni. Verður upplausn á vinnumarkaðinum ef atvinnurekendur hunza cðlilegar kröfur vcrka- manna og neita að semja um þær við Dags- brún? ! ! Það verður ekki fyrr en 1. október í haust sem skandinavíska flugfélag- ið SAS getur í fyrsta lagi hafið ferðir á flug- Leiðinni Norðurlönd — Bandaríkin — Norður- lönd með skrúfuvélum og boðið lægri fargjöld en nú tíðkast á þessari leið með flugvélum fé- laga innan IATA, al- þjóðasamtaka flugfélaga. til að hef ja þessar ferðir strax I leiðamönnum í gær, en þeir kváð- og sumaráætlun félagsins geng- ust ekkert hafa frekar um mál- ur í gildi 1. apríl n.k. ið að segja en þegar hefði verið Þjóðviljinn hafði tal af Loft-1 komið fram. Engum datt eitrun í andrúmsiofti í hug I gærmorgun kl. 9.30 hófust sjópróf í Hafnarfirði í Röðuls- málinu og komu skipstjóri, 1. stýrimaður og 2. vélstjóri fyrir réttinn í gær Við réttarhöldin kom það fram, að aðeins 1. og 2. vélstjóri önnuðust um kæli- kerfið í skipinu og í þessari ferð sá 1. vélstjóri algerlega um eft- irlit með því og var 2. vél- stjóra ekki kunnugt um neina bilun á því. 1. vélstióri l'iggur hins vegar á sjúkrahúsi og hef- ur því ekki verið hægt að taka skýrslu af honum ennþá. 2. vél- stjóri bar það, að í síðustu ferð skipsins hafi hann annazt eftirlit með kælikerfinu og hafi hann enga bilun fundið á þvi þá. Skipstjórinn vissi ekki heldur um bilunina á kælikerfinu. Það kom einnig fram í sjó- prófinu i gær, að engum um borð mun hafa komið til hugar, að veikindi áhafnarinnar stöf- uðu af eitrun í andrúmsloftinu. Var það fyrst er skipið kom . hingað til Reykjavíkur og borg- en SAS hafði lýst sig reiðubúið arlæknir hóf rannsókn sína a« Frá því var skýrt í fréttum í gær, að SAS hefði hlotið sam- þykki IATA-félaganna til þess- ara ferða og fargjalda, og sé ir.iðað við að notaðar séu flug- vélar af gerðinni Douglas DC-7C (heldur stærri vélar en DC-6B vélar Loftleiða) og verði annað- hvort flogið beint yfir Atlanzhaf- ið eða um Grænland og Island. Hin lágu fargjöld getur einungis það fólk notfært sér sem búsett er í einhverju Norðurlandanna þriggja, Danmörku, Noregi og Svíþjóð, og Bandaríkjunum. Sem fyrr segir er leyfið bundið flug- ferðum frá og með 1. október, í ljós kom að hér var um að ræða eitrun í andrúmsloftinu út frá kælikerfinu Þá kom það fram í réttar- höldunum í gær, að veikinda varð fyrst vart um borð á fimmtudaginn en ekki svo al- mennra eða mikilla að óeðlilegt væri talið fyrr en á föstudags- morgun og var þá haft sam- band við lækni í Eyjum. Skipið fór hins veg.ar til veiða á þriðju- dag. í gærkvöld var enn óráðið hvenær sjóprófum yrði haldið áfram. Forseti sjódómsins er Jón Finnsson fulltrúi. Slys á Akranesi Akranesi 22/1 — Um hádegis- bilið í dag varð drengur fyrir jeppa á mótum Kirkjubrautar og Skagabrautar. Drengurinn, sem var á reiðhjóli, lenti framan á bifreiðinni og kastaðist upp á vél- arhlífina og þaðan á götuna. Var hann fluttur á spftala, en meiðsli reyndust ekki alvarleg. GMJ t 7

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.