Þjóðviljinn - 29.01.1963, Page 2

Þjóðviljinn - 29.01.1963, Page 2
Fyrsti stálbátur- inn afhentur Á laugardaginn var Ishúsi Hafnarfjarðar afhentur hinn nýi stálbátur, sem Stálsmiðj- an í Reykjavík smíðaði, Am- ames. Skip þetta, sem er fyrsta stálskipið, sem smíðað er á íslandi, er 130 brúttó- tonn að stærð, mesta lengd þess er 27,5 metrar, breidd 6,4 m og dýpt 3,3 metrar. Skipið er byggt samkvæmt reglum Skipaskoðunar ríkis- ins og einnig fylgt reglum norska Veritas, skrokkur þess var allur rafsoðinn og suðan skoðuð með Röntgengeislum, þilfarshús voru einnig öll raf- soðin, en brúin, kortaklefinn og reykháfurinn smíðuð úr sjóhæfu alúmíni. Vistarverur eru fyrir 12 menn í skipinu og eru þær undir þiljum aftast á skipinu, þar fyrir framan er vélar- rúmið með 400 ha. Deutz að- alvél og 30 ha. Deutz ljósa- vél, sem einnig knýr dælu og loftpressu. Rafall Ijósavélar er 14 kw. en kw. rafall er tengdur við aðalvélina. Þá eru í vélarrúminu dælur fyrir sjó og ferskt vatn, stýrisvél og skíptiskrúfu. Fiskilest er tré- klædd, en klæðningin öll húðuð með plasti, en skil- rúmsborð eru úr alúmíni. framan við fiskilestina er kælilest, sem er einnig húð- uð með plasti og klædd með rafknúinni Freon-þjöppu. Á framþilfari er 6 tonna þil- farsvinda og 2 tonna línu- vinda. Á bátaþilfari, sem er útbúið með síldarnótarkassa, er komið fyrir kraftblökk og tveim gúmbjörgunarbátum. Stýrisvélar eru af Frydenbö gerð, en sjálfstýring af Robert- son gerð er í brúnni, þaðan getur skipstjóri líka stjórnað skiptiskrúfu, ganghraða vélar, tengingu skrúfu við vél og tengingu vökvavindu á þil- fari. 1 brúnni eru líka átta- viti, dýparmælir og fisksjá, en ratsjárskífa, loftskeytatæki. sjálfvirk miðunarstöð og inn- anskips kallkerfi er í korta- klefa. Allar vistarverur eru hitað- ar með rafmagni og í eldhús- inu er rafmagnseldavél, en rafstraumur er 110 volta jafn- straumur. Þessir aðilar lögðu hönd á plóginn undir stjóm Stál- smiðjunnar: Hamar sá um uppsetningu á öllum vélum, Héðinn setti niður vindur og smíðaði þær, Slippfélagið sá um innréttingu ásamt tré- smíðaverkstæði Jónasar Sól- mundssonar, Báran h.f. tré- klæddi lestar og þilfar. Plast- húðun lesta var gerð af Trefjaplasti h.f. á BJönduósi, kæliútbúnaður í kælilest var settur upp af Sveini Jónssyni vélstjóra, Svavar Kristjánsson lagði raflagnir, fisksjáin, dýpt- armælirinn og sjálfstýringin voru sett upp af Friðriki A. Jónssyni útvarpsvirkjameist- ara og ratsjáin sett upp af Ólafi Jónssyni og sá hann einnig um uppsetningu á mið- stöðinni. Allar teikningar og útreikn- ingar við skipssmíðina voru framkvæmdar af teiknistofu Stálsmiðjunnar h.f. og öll vinna var framkvæmd undir hennar stjórn. M.s. Amames, er sem fyrr segir fyrsti stálfiskibáturinn, sem smíðaður hefur verið á íslandi og meðgöngutími hans var langur og strangur. Smið- in mun hafa tekið 2 ár, enda unnin í íhlaupum til að byrja með. Báturinn hljóp af stokk- unum skömmu fyrir jól og eftir það var unnið í honum af mikium krafti þar til verk- inu var lokið. Skipið fer nú á útilegu með línu undir stjórn Elíasar Þórðarsonar skipstjóra írá Keflavík. Það mun leggja upp í Hafnarfirði. 2 SlÐA Trú Benedikts Alþýðublaðið virðist nú vera mun verr að séi um ástandið í verklýðs- hreyfingunni en Morgunblað- ið. Ekki lét Morgunblaðið sér til hugar koma að halda því fram að unnt yrði að feíla stjórn Dagsbrúnar, þótt það eggjaði lið sitt lögeggj- an. Alþýðublaðið hrópaði hins vegar hástöfum í fyrra- dag: „Verkamenn. Kommún- istar hafa misnotað félag yk’kar nógu lengi. Veitið póli- tíkusunum lausn frá störfum í félagi ykkar svo að þeir geti haldið áfram störfum fyrir kommúnistaflokkinn ó- truflaðir af hagsmunamálum verkamanna, enda hafa þenr engan áhuga á framgangi þeirra. Sýnið kommúnistum það að verkamenn kæra sig ekki um það lengur að flokk- ur kommúnista stjórni mál- efnum þeirra." Benedikt Gröndal virðist þannig hafa trúað því statt og stöðugt að nú yrði Bjöm frá Mannskaða- hóli nábúi hans í Alþýðuhús- inu. Vafalaust myndi Alþýðu blaðið skrifa ura stjórnarkiör í Vinnuveitendasambandi Is- lands af miklu meiri þekk- ingu. Sorg- ieg staðreynd í forustugrein Alþýðublaðs- ins í fyrradag er að flinna þetta andvarp: „Það er sorg- leg staðreynd, að kjör verka- manna hafa lítið batnað und- anfarin ár þrátt fyrir mikla hækkun krónutölu kaups.“ Hvemig stendur á því að kjörin batna ekki þegar kaupið hækkar? Ástæðan er sú að hver kauphækkun er tekin aftur með verðhækkun. Til þess að koma í veg fyrir að kauphækkanir bæti kjörin hafa verið fram- kvæmdar tvennar gengis- lækkanir á einu ári. lagður befur verið á nýr söluskatt- ur, tol'lar allliir hafa verið hækkaðir. beinir skattar hafa einnig aukizt og verðlagseft- irlit hefur verið afnumið að verulegu leyti. Allt er þetta afleiðing af stefnu tveggja stjórnmálaflokka, og úrslita- valdið befur verið hjá Al- þýðuflokknum, sem var stofnaður fyrir tæpri hálfri öld til þess að bæta kjör verkafólks. Vist er þetta sorgleg stað reynd. — Austri. Kl. 5.30 í gærmorgun silaðist eftir Reykjanesbr. fríð fylking í næturmyrkrinu og fóru fyrstir lögregluþjónar á bifhjólum, bá kom í ljós aflóga orustuþota á flutningavagni og síðan enn lög- reglulið á bifhjólum og hafði þessi fylking verið á ferð alla nóttina. Þarna voru á ferð bandarískir hermenn og vildu færa flugvél- ina að gjöf Slökkviliði Reykja- víkurflugvallar, sem nota skyldi hana í æfingarskyni næstu daga. Þegar komið var á móts við Silfurtún neyddist fylkingin til þess að stöðva ferð sína, þar sem tveir ljósastaurar reyndust standa tveimur metrum of þröngt fyrir vænghaf vélarinnar og þama stóð þessi farkostur á veginum. Það tók sinn tíma að setja sig í samband við Vegagerð ríkis- ins og fá lánaðan kranabíl og tók það þrjár klst., að ryðja veg- inn. Vonir stóðu til, að unnt yrði aö flytja þennan grip á leiðarnenda í nótt og þarf að stytta vængina um einn til tvo metra. Umferðarstjóm lenti í handa- skolum og voru til dæmis engar ráðstafanir gerðar til þess að að- vara vegfarendur beggja megin við og runnu menn grunlausir beint í þennan ófögnuð. Ein maður kom að máli við blaðið í gær. Var hann á ferð með veika dóttur sína til Hafn- arfjarðar og lenti með bíl sinn milli tveggja stórra flutningabif- reiða og sat þar fastur í langan tíma. Það hefði komið sér vel að fá viðvörun á Miklubrautinni og hefði ég þá farið upp að Elliða- vatni um Vífilsstaði í staðinn fyrir að bíöa þama um sinn, sagði hann. Vonir íhaldsins brugðust Þátttakan í Dagsbrúnarkosn- ingunum var heldur minni en í stjómarkosningunum í fyrra, þá voru greidd alls 2190 atkvæði, A- listinn hlaut þá 1443 atkvæði (65.9%) og B-listinn 693 (31.6%). I allsherjaratkvæðagreiðslunni í október í haust fékk A-listinn 1251 atkvæði eða 65.1% og B- listinn 649 atkvæði eða 33.8%. I kosningunum nú um helgina hefur því A-listinn fengið 54 at- kvæðum færra en við stjórnar- kjör í fyrra og B-listinn 63 at- kvæðum færra. Frá haustkosn- ingunum bætir hinsvegar A-list- inn við sig 138 atkvæðum en B- listinn tapar 19. Hlutfallstala A- listans í þessum þrennum kosn- ingum á árinu er 65.9, 65.1 og 67.8%. En hlutfallstala B-listans er 31.6, 33.8 og 30.7%. Trúnaðarmenn I stjórn Vinnudeilusjóðs voru kosnir: Formaður: Vilhjálmur Þorsteinsson, meðstjórnendur: Kristinn Sigurðsson og Jón D. Guðmundsson. Varamenn: Hjálmar Jónsson og Eggert Guð- mundsson. I stjórn Styrktarsjóðs Dags- brúnarmanna vom kosnir Eð- varð Sigurösson, Halldór Björns- son og Vilhjálmur Þorsteinsson. Varamenn: Guðmundur J. Guð- mundsson og Andrés Guðbrands- son. Endurskoðandi Styrktar- sjóðs var kosinn Hannes M. Stephensen. Auk þess var kosið, einnig af A-lista, 100 manna 'trúnaðar- ráð og 20 varamenn þeirra. Vonir íhaldsins brugðust Það var áberandi fyrir þessar kosningar að íhaldið gerði sér miklar vonir um fylgisaukningu. Á fundinum í Gamla bíó lýstu íhaldsmennimir yfir að munur- inn á listunum myndi verða minni nú en nokkru sinni áður. En þó öll kosningavél íhaldsins væri sett í gang með tilheyrandi bílakosti og aðgangi, munu þeir B-listamenn fljótt hafa fundið eftir að kosning hófst að þungt var fyrir fæti, og meira að segja þeir Dagsbrúnarménn sem vísir voru taldir .reyndust tregir til að fara á kjörstað og gefa Bimi frá Mannskaðahóli og Jóhanni Sigurðssyni atkvæði sitt. Hins vegar var eindreginn hugur og vilji í verkamönnum að fylkja sér um stjóm sína, kjörsóknin hófst strax rösklega á laugar- dagsmorgun, þá komu meðal annars heilir hópar manna af vinnustöðum til að kjósa. ÞJÓÐVILJINN Hér sést nokkur hluti af bílalestinni sem myndazt hafði á Reykjanesbrautinni. — (Lm. Þv. A.K.). Og þessi mynd cr af Hafnfirðingum sem urðu að leggja land undir fót vcgna umferðarteppunnar. . ,.uw- • u'^niouiioU tl'llfl JiSk>Lrtll**iV Jt Þotan truflaði alla umferð í þrjá tíma Þriðjudagur 29. janúar 1963 Verkamcsður fyrirfannst enginn! Sagt er að spaugilegt at- vik hafi komið fyrir á skrifstofu „lýðræðissinn- aðra verkamanna" á Freyjugötunni nú um helg- ina. Þangað hafði komið mað- ur nokkur, atvinnurekandi, sem vantaði sárlega nokkra verkamenn til vinnu. Upp- tendraður af skrifum Morg- unblaðsins og Vísis og Al- þýðublaðsins hafði hann einsett sér að ná sér í „lýð- ræðissinnaða verkamenn". 'Honum kom það snjallræði í hug að leita fyrir sér á skrifstofu „lýðræðissinn- aðra verkamanna" á Freyjugötunni, því hvar ætti „lýðræðissinnaðra verkamanna“ að vera von ef ekki þar? En það varð ógreitt um svör. Þar var fyrir kven- fólk og þar voru fyrir börn og þar var Gauji bróðir Péturs stýrimanns og Pétur stýrimaður bróð- ir Gauja í Iðju og Jón Hjálmarsson útgerðarmað- ur. En verkamaður fyrir- fannst enginn. Og hinn upptendraði at- vinnurekandi hverf þaðan vonsvikinn á brott, og hafði hann ekki enn fundið sér „lýðræðissinnaða verka- menn“ er hann enn að leita þeirra. SDIU8H PlONlSTtl LAUGAVEGl 18^ SfMI 19113 Til sölu: 2 herb. íbúð við Austur- brún. 3 herb. íbúð við Kapla- skjólsveg. 3. herb. íbúð með eirru herb í risi í Hlíðunum. 5 herb. ný íbúð við Laug- arnesveg. 3 herb. íbúð á fögrum stað í Kópavogi. Einbýlishús i Smáíbúða- hverfi. Einnjg íbúðir tilbúnar und- ir tréverk. 2, 3, 4 og 5 herb. íbúðir á beztu framtiðarstöðum borgarinnar. Tðnaðarhúsnæði tilbúið í vor. íbúðir óskast: Höfum kaupendur með miklar útborginar að: 2—3 herb ibúðum (nýjum og eldri). 4 herb. íbúðum. 5 herb. fbúðum. Raðhúsj. Iðnaðarhúsnæði í Kópa- vogi. Húsnæðj fyrir vélaverk- stæði. Hafið samband við okkur ef þið þurfið að selja eða kaupa fasteignir. * Skattaframtöl * Innheimtur * Lögfræðistörf * Fasteignasala Hermann G. Jónsson hdl. lögfræðiskrifstofa. Skjólbraut 1. Kópavogi. Sími 10033 kl. 2—7. Heima 51245.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.