Þjóðviljinn - 29.01.1963, Qupperneq 3
Þrjðjudagur 29. Janúar 1963
ÞJÓÐVILJINN
■-'•í-r .... .1
Lokaviðrœður hafnar í Brussei
Úrslita von um aðild Breta að
Efnahagsbandalagi Evrópu
BRUSSEL 28/1 — Utanríkisráðherrar sex aðildarríkja
Efnahagsbandalags Evrópu komu í dag saman á fund í
Brussel með samningamanni Breta, Heath ráðherra, og verð-
ur nú afráðið hvort haldið skuli áfram frekari viðræðum
um aðild Breta að bandalaginu. Heldur er talið ólíklegt
að svo verði.
Fundurinn hófst um fimm-
leytið í dag eftir íslenzkum tíma,
miklu seinna en ráðgert hafði
verið, og stafaði það m.a. af
því að flugvél vesturþýzka utan-
ríkisráðherrans, Schröders, seink-
aði vegna veðurs.
Hlé var gert á fundinum eftir
Sovézkur kjarna-
kafbátur á ferð
um íshafið
MOSKVU 28/1. — Kjamorku-
knúinn kafbátur sovézkur. Len-
ininski Komsomol, er kominn til
heimahafnar úr ferð um Norð-
ur-Ishafið, segir í síðasta tölu-
blaði Uauðu stjörnunnar, blaðs
sovéthersins.
Skipstjóri á kafbátnum var
Lev Sjiltsoff. Hann segir í við-
tali við blaðið að kafbáturinn
hafi siglt undir heimskautaísn-
um og þá leiðað að kafbátum frá
öðrum löndum. I viðtalinu segir
ennfremur að Sovétríkin eigi nú
kafbáta sem geta farið um öll
höf og einnig siglt undir ísnum.
Lenininskí Komsomol sem blaðið
birtir mynd af fór yfir norður-
pólinn í þessari ferð sinni. Þetta
er í fyrsta sinn sem birt er mynd
af sovézkum kjamorkukafbát.
Málgagn sovétstjómarinnar, Is-
vestía, sagði í dag að sovézkir
kafbátar hefðu orðið fyrri en
bandarískir til að sigla undir ís-
inn yfir norðurheimskautinu. Þeir
hefðu gert það löngu áður en
Bandaríkjamenn voru þar fyrst
á ferð í ágúst 1958. Því hefur
verið haldið leyndu fram tiil
þessa af hernaðarástæðum.
tæpar tvær klst., en hann
átti að hefjast aftur um kl. 19.30
eftir íslenzkum tíma og var bú-
izt við að hann stæði fram eftir
kvöldinu, eða jafnvel fram á nótt.
Ólíklegt þótti að endanleg ákvörð-
un yrði tekin um það hvort
haldið skyldi áfram viðræðum
við Breta.
Frakkar óbifanlegir
Vesturþýzka stjómin hefur lagt
til að viðræðunum verði haldið
áfram eftir að framkvæmda-
stjóm bandalagsins eða sérstök
nefnd hefur samið skýrslu um
gang þeirra fram að þessu. Vit-
að er að stjómir allra fimm
aðildarríkjanna utan Frakklands
eru samþykkar þessari vestur-
þýzku tillögu, en í dag var enn
ekki ljóst, hvort franska stjórn-
in myndi samþykkja hana. Því
hefur verið haldið fram að de
Gaulle hafi fallizt á hana í við-
ræðum sínum við Adenauer i
París í síðustu viku, en ekki
hefur það fengizt staðfest.
Fréttaritarar eru þeirrar skoð-
unar að franska stjómin hafi
hvergi hvikað frá þeim ásetn-
ingi sínum að binda skjótan enda
á viðræðumar við Breta. Franski
utanríkisráðherrann, Couve de
Murville, er talinn munu beitá
neitunarvaldi sínu til að fella
sérhverja tillögu um að fram-
kvæmdastjóm bandalagsins verði
falið að undirbúa málamiðlun-
arlausn.
Haft er eftir fulltrúum vest-
urþýzku stjórnarinnar að ekki
séu neinar horfur á að hægt
verði að sætta hin ólíku sjón-
armið frönsku stjórnarinnar og
hinna aðildarríkjanna fimm.
Dönum hleypt inn?
De Gaulle er sagður hafa lát-
ið Jens Otto Krag, forsætisráð-
herra Danmerkur, sem nú er í
París, vita að Frakkar myndu
geta fallizt á að Danir fengju
fulla aðild að Efnahagsbandlag-
inu, jafnvel þótt Bretum yrði
ekki hleypt í það.
. Málgagn brezka Verkamanna-
flokksins Daily Herald minntist
á þetta í gær og sagði að de
Gaulle gæti sætt sig við fulla
aðild Danmerkur, vegna þess að
það land væri lítíð og vinmátt-
ugt og gæti því ekki boðið
Frakklandi byrginn. „De Gaulle
stundar glæfraspil og hann get-
ur það því aðeins að Adenauer
er nógu heimskur til að láta
honum haldast það uppi“. sagði
blaðið. „De Gaulle mun fyrr eða
síðar eyðileggja Efnahagsbanda-
lagið og þar hlýfcur að koma
að bandamenn hans verða að
rísa gegn honum“.
Ihaldsblaðið Daily Mail sagði
að það væri algerlega tilgangs-
laust fyrir Breta að standa fyr-
ir utan dyr bandalagsins í þeirri
von að þeim yrði hleypt inn.
„Haldi de Gaulle fast við sjón-
armið sín, eigum við að hverfa
frá samstundis“, sagði blaðið.
Maður gæti haldið við fyrstu sýn að myndin hér að ofan væri
af afstrakt málverki. Svo er þó ekki. Myndin sem tekin var úr
Iofti yfir höfninni í Blankenberge í Belgíu er af snæviþöktum
bát í íshröngli.
PARlS 28/1. — Jens Otto Krag,
forsætisráðherra Danmerkur,
borðaði í dag árdegisverð með
Pompidou, forsætisráðherra
Frakka. Krag er sagður vera í
París í einkaerindum, en mun
hafa notað tækifærið til að ræða
við franska ráðamenn um aðild
Breta að Efnahagsbandalaginu.
Orðrómur um sáttaboð til sovétstjórnarinnar
De Gauile sagður hafa boðið
upp á nýskipan mála í Evrópu
PARÍS 28/1 — Sá kvittur hefur komizt á kreik að
de Gaulle Frakklandsforseti hafi gert stjórn Sovét-
ríkjanna boð um allsherjar samkomulag um mál-
efni meginlandsríkjanna í Evrópu sem myndi hafa
í för með sér að allt herlið Bandaríkjanna yrði flutt
burt úr álfunni og þá um leið að Atlanzhafsbanda-
lagið myndi liðast í sundur. Sagt er að sovétstjóm-
in hafi tekið vel í þetta boð.
Bann við kjarnasprengingum
Miðai hefur í ált
til samkomulags
NEW YORK 28/1. — Það er haft
eftir sovézkum heimiidarmönn-
um í aðalstöðvum SÞ í New
York að samningamönnum Sov-
étríkjanna, Bandaríkjanna og
Bretlands, sem undanfarið hafa
rætt í Washington um bann við
frekari tilraunum með kjarna-
vopn, hafi orðið mikið ágengt,
svo að vænta megi málamiðl-
unarlausnar innan skamms.
Það samkomulag sem yrði í
viðræðunum í Washington yrði
þá lagt fyrir afvopnunarráðstefn-
una í Genf, sem aftur á að taka
upp störf 12. febrúar n.k. Það
var síðar haft eftir talsmönnum
Bandaríkjastjórnar, að enn ætti
það langt í land að samkomu-
lag gæti tekizt í viðræðunum
í Washington. Mikið bæri enn
á milli og mörg ágreiningsat-
riði væru óleyst.
Helzti ágreiningurinn mun
vera um hve margar eftirlits-
ferðir alþjóðlegar nefndir skulil
fara um lönd kjarnorkuveldanna
eftir að sprengibann hefur verið
sett. Sovétríkin hafa fallizt ái
2—3 slíkar ferðir árlega, en
Bandaríkjastjóm vill að þær sáu
a.m.k. 8—10. Annað atriði sem
erfitt mun vera að finna lausn
á er varðandi aðild Frakka cg
einnig Kínverja að samkomulagi
um sprengingabann, en talið
hefur verið liklegt að þeir síð-
amefndu geti sprengt fyrstu
kjamasprengju sína fyrir lok
þessa árs.
Það var fréttaritari mágagns
norska Verkamannaflokksins,
Arbeiderbladets, í Brussel, Per
Monsen, sem fyrstur varð til að
skýra frá þessu boði frönsku
stjómarinnar, en hin hálfopin-
bera franska fréttastofa AFP ber
frásögn hans til baka og segir
að hún hafi ekki við nein rök
að styðjast.
Sameining þýzku ríkjanna,
viðurkenning Oder-Neisse-
landamæranna
Monsen telur sig hafa heim-
ildir fyrir því að de Gaulle hafi
beðið sendiherra Sovétríkjanna í
París, Vinogradoff, að koma
sáttaboði sínu áleiðis til sovét-
stjórnarinnar og hafi Krústjoff
forsætisráðherra tekið mjög vel
í það.
Helztu atriði þess em sögð
vera að austurlandamæri Þýzka-
lands við Oder-Neisse skuli end-
anlegt viðurkennd. Þýzku ríkin
tvö yrðu sameinuð og hið satn-
einaða Þýzkaland verða hlutlaust
og afvopnað.
Pólland, Tékkóslóvakía, Ung-
verjaland, Rúmenía og Búlgaria
yrðu einnig afvopnuð, sömuleið-
is Júgóslavía, Grikkland og
Tyrkland.
Af slíku samkomulagi myndi
leiða að Bandaríkjamenn yrðu
að flytja burt allt herlið sitt
frá meginlandi Evrópu og það
myndi aftur hafa í för með sér
að Atlanzhafsbandalagið liðaðist
í sundur og Varsjárbandalagið
yrði þá um leið lagt niður.
Adenauer sagður
hafa samþykkt
Það fylgir fréttinni að Aden-
auer, forsætisráðherra Vestur-
Þýzkalands, hafi lýst sig sam-
þykkan tillögum de Gaulle, þeg-
ar þeir ræddust við í París í
síðustu viku.
Eins og áður er tekið fram, er
sagt í París að frétt þessi sé
úr lausu lofti gripin og sé eng-
inn fótur fyrir henni, en þó er
á það bent að de Gaulle hafi
oft látið í ljós hugmyndir um
skipan mála í Evrópu sem eru
mjög af sama toga og þessar
meintu tillögur hans. Hann hef-
ur þannig ævinlega verið þvi
fylgjandi að landamæri Þýzka-
lands og Póllands yrðu staðfest
við Oder-Neisse-línuna.
OSLÖ 28/1. — Bílstjórar áætlun-
arbíla í Noregi hafa nú verið í
verkfalli á þriðju viku og er ekk-
ert útlit fyrir að verkfallið muni
leysast á næstunni. Allar tilraun-
ir til málamiðlunar hafa farið
út um þúfur, enda ber mikið á
milli deiluaðila. Sáttasemjari
ríkisins mun ekki kalla þá aftur
á fund fyrr en verkfallið hefur
staðið í mánuð.
Deilur kommúnistaflokkanna
Kommúnistar í Kína vil ja að
haldin verði ný ráðstefna
PEKING 28/1 — Aðalmálgagn kínverskra kommúnista,
Dagblað alþýðunnar í Peking, gerði á sunnudaginn ágrein-
inginn innan hinnar alþjóðlegu verkalýðshreyfingar að um-
ræðuefni í langri grein sem sett var upp undir stórri fyr-
irsögn á forsíðu blaðsins. Er þar enn ítrekuð tillaga Kín-
verja um að haldin verði sem skjótast ráðstefna forystu-
manna kommúnista- og verkalýðsflokkanna til að ræða
deilumálin.
Að sögn fréttaritara Reuters
eru öðrum kommúnistaflokkum
settir þeir úrslitakostir í grein-
inni, sem er um 8.000 orð, að
þeir skipti um skoðun á stefnu
júgóslavneskra kommúnista eða
eigi að öðrum kosti á hættu
að hin alþjóðlega verkalýðshreyf-
ing klofni. Þeir flokkar, og þar
mun fyrst og fremst átt við
Kommúnistaflokk Sovétríkjanna,
sem veiti júgóslavnesku endur-
skoðunarsinnunum stuðning sinn,
en hafni öllu samneyti við alb-
Alltaf
fjölgar
VOLKSWAGEN
.og þar af
einn
fyrir yður
. . . en vinsamlegast
pantið tímanlega
Heildverzlunin
HEKLA h.f.
Simi 11275.
anska kommúnista, geri sig seka
um svik við hugsjónir sósíal-
ismans og stefni vísvitandi að
því að kljúfa hina alþjóðlegu
verklýðshreyfingu, segir í grein-
inni.
Það er tími til kominn að
tekið verði í taumana. Því er
enn hvatt til þess að haldin
verði ráðstefna forystumanna
allra hinna róttæku verklýðs-
flökka, þar sem ágreiningsmálin
væru rædd á grundvelli Moskvu-
yfirlýsingarinnar frá því 1960 og
gefið er í skyn að sovézka
kommúnistaflokknum beri að
boða til slíkrar ráðstefnu.
1 greininni er vikið að þingi
Sameinaða sósíalistaflokksins
austurþýzka og á það minnzt
að ræður kínverska og júgóslav-
neska fulltrúans hafi fengið mjög
ólíkar undirtektir á þinginu.
Áherzla er lögð á það hvað
eftir annað í greininni að hin
alþjóðlega verklýðshreyfing sé
nú í miklum vanda stödd og
mikil hætta sé á því að hún
sundrist. Því sé áríðandi að for-
ystumenn hennar komi saman á
fund til að setja niður deilur
sínar.
i
x