Þjóðviljinn - 29.01.1963, Síða 4
4 SlÐA
ÞJÓÐVILJINN
■Þriðjudagur 29. janúar . 1963
„iþróttamaður
heimsins" 1962
Hinir ötulu íþróttaspámenn og spekingar
sem tilheyra samtökunum „International Sports
Correspondence“, er hafa aðalstöðvar í Stutt-
gart í Vestur-Þýzkalandi hafa kjörið „íþrótta-
mann heimsins“ fyrir árið 1962.
Rod Laver
Valeri Brumel
Á vegum þessara samtaka
hafa íþróttatimarit í 26 lönd-
um útnefnt fimm beztu í-
þróttamenn og konur heims.
Úrslitin i atkvæðagreiðsl-
unni urðu þau, að sovézki há-
stokkvarinn Valeri Brumel
var útnefndur bezti íþrótta-
maður heims annað árið í röð.
Númer tvö varð ástralska
sundkonan Dawn Fraser. í
þriðja sæti varð millivega-
lengdahlauparinn Peter Snell
frá Nýja-Sjálandi og 4. tenn-
isleikarinn Rod Laver frá
Ástralíu.
Brumel var settur efstur á
listann í Brasilíu, Búlgariu,
Mexíkó, Rúmcníu. Svíþjóð.
Tékkóslóvakíu og Ungverja-
landi. Dawn Fraser skákaði
öllum körlum 1 fimm löndum
og Peter Snell var efstur á
blaði í fjórum löndum. Sovét.
menn taka ekki þátt í þess-
ari atkvæðagreiðslu. Þjóðern.
issjónarmiða þótti viða gæja
Mexikanar settu tennisleikar-
ann Rafael Osuna (Davis
Cup-signrvegara) í 2. sæti.
Finnar höfðu stangarstökkvar-
ann Pentii Nikula í efsta
sæti og Bandaríkjamenn
höfðu golfleikarann Arnold
Palmer (atvinnumann) efst-
an.
Það vekur athygli, að Bras.
ilíumenn nefndu ekki Pele né
Garrincha á sínum lista. en
þcir voru bó á listum fiestra
annarra.. Á franska listanum
var þeirra maður. hlauparinn
Michel Jazy, aðeins í fimmta
sæti.
Alþjóðasamtökin hafa sam-
tals 17 sinnum kjörið íbrótta-
mann heimsins og fyrst var
bað gert 1947 Það er athygl-
isverf að frjálsiþróttamenn
hafa i öll skiptin nema tvö
verið útnefndir beztu menn-
irnir. Franski sundmaðurinn
Alex Jany komst í efs*a sæti
1947. og ítalski hjólreiðamað-
'irlnn Fausto Coppi var kjör-
inn maður ársins 1953. Margir
undrast að knattspymukapp-
arnir skulj aldrei hafa kom-
■7,t ofor-loga á þennan heið
urslista.
Dawn Fraser
Pcter Snell
Handknattleiksmótið
Fram hefur nú
tekiS forustuna
Tveir leikir fóru fram
í 1. deiid á sunnudags
kvöldið að Hálogalandi.
Fram vann KR með 9
marka mun eða 33:24
og Víkingur sigraði
Þrótt með 25 mörkum
gegn 22.
Leikur Víkings og Þróttar
var jafnari en búizt hafði ver-
ið við því að mótstaða Þróttar
kom skemmtilega á óvart. Það
var ekki fyrr en rétt undir lok-
in sem Víkingunum tókst að
hrista Þróttarana af sér en
tæplega þó.
Víkingarnir settu fyrsta mark-
ið með skoti Rósmundar en
Haukur jafnar fyrir Þrótt. Síð-
an nær Grétar forustunni fynr
Þrótt og héldu þeir henni fram
að hléi með allt að 5 marka
mun. Fimm mín. fyrir hlé var
staðan 14:9 fyrir Þrótt, en þá
gerðu Víkingamir harða hríð
að marki Þróttar og settu 4
mörk í röð og setti Þórarinn
Ölafsson þrjú þeirra. Staðan
var því í hléinu 14:13 fyrir
Þrótt.
1 síðari hálfleik snerist þetta
alveg við því þá tóku Víking-
amir við forustunni en Þrótt-
aramir héldu yfirleitt í við bá.
og sem dæmi um það þá var
staðan 21:20 Víking i vil þegar
Stoðan í I.
10 mínútur voru eftir af leikn-
um. Var þá oft broslegt að sjá
til liðsmannanna því að þeir
voru svo „slappir á taugum'*
að sendingar þeirra lentu á ó-
líklegustu stöðum.
En Víkingarnir áttu betrí
endasprett og sigruðu með 25
mörkum gegn 22. Þetta var
langbezti leikur Þróttar í mót-
inu, og með enn meira þreki
ætti þeim að takast að halda
sér uppi í deildinni. Það sem
háir Þrótti mest er að liðs-
menn þeirra eru yfirleitt svo
ungir og þá vantar líkamsþrek.
Ef það væri fyrir hendi ætti
ekkert að vera því til fyrir-
stöðu að gera Þrótt að „topp“-
liði.
Fram — KR 33:24
Islandsmeistaramir Fram
höfðu talsverða yfirburði yfir
KR allan leikinn og í upphafi
leiks náðu þeir sér í haldgott
forskot sem þeim entist út all-
an leikinn. Framarar sýndu að
þessu sinni allgóðan leik og
gerðu margt iaglega.
KR-ingar áttu við ofurefli að
sitt af hverju
Grétar Guðmundsson, Þrótti, skorar í Ieiknum víð Víking. Sig-
urður Hauksson er í vamarstöðu. (Ljósm. Bj. Bj.)
L. U. J. T. Mörk St.
Fram 5 4 0 1 148:116 8
Víkingur 4 3 1 0 90:79 7
FH 4 3 0 1 117:88 6
KR 5 2 0 3 127:133 4
ÍR 4 0 1 3 105:123 1
Þróttur 4 0 0 4 75:123 o!
ir Sovézki skautahlauparinn
Evgeni Grisjin setti nýtt
heimsmet í 500 m. skauta-
hlaupi á alþjóölegu skauta-
móti í Alma Ata um helg-
ina. Nýja metið er 39,6 sek.
Grisjin áti sjálfur gamla met-
ið. sem var 40,2 sek., sett í
Misurina 1956.
★ Frakkinn Guy Perillat
sigraði í svigi í alþjóðlegri
keppni í Megeve s.l. sunnu-
dag. Austurríkismaðurinn
Egon Zimmermann sigraði í
samanlögðu svigi og bruni.
etja en vörðust hraustlega til
leiksloka. Það var sameigin-
legt með báðum þessum leikj-
um að þeir voru drengilega
leiknir og lausir við þá fúl-
mennsku sem farin er að sjást
í sumum leikjum. Engum leik-
Urslit: SVIG: 1) Perillat, 2)
Pepi Stiegler (Austurríki),
3) A. Leitncr Bonieu (Frakki).
4) A. Leitner (Austurríki),
5) Karl Schranz (Austurr.),
6) A. Mathis (Sviss).
SAMANLAGT: 1) Zimm-
ermann, 2) Pepi Stiegler, 3)
Kari Schranz. 4) Bonlieu, 5)
Leitner og 6) Guy Perillat.
ir Svíinn Erik Carlsson sigr-
aði á Saab-bíi í hinum sögu-
lega Monte Carlo-kappakstri
í ár. Keppni um fyrsta sætið
var harðari en dæmi eru til
áður. Óveður geisaði um
mestalla álfuna þegar keppni
hófst og stöðvuðust margir
bílar af þeim sökum. 296 bíl-
manni var vísað útaf og ör-
fáir fengu áminningu.
Dómarar voru þeir Gylfi
Hjálmarsson og Daníel Benia-
mínsson og tókst þeim yfirleitt
vel upp.
H.
ar lögðu af stað í keppnina.
Aðeins 102 komust alla leið
en 194 heltust úr lestinni. í
kvennaflokki sigraði Ewy
Rosqvist en önnur varð Syl
via österberg. Þær eru báðar
frá Svíþjóð. í karlaflokk:
urðu þessir fyrstir:
1) Erik Carisson — Gunnar
Palm, Svíþjóð, (Saab),
2976,18 stig.
2) P. Toivonen — Anssi
Jarvi, Finnlandi, (Citro-
en) 3014,846 stig.
3) R. Aaltonen — Tony Am-
brose, Finnl.-Engl., (Morr-
is Cooper) 3055,077 stig.
4) Luciano Bianchi — Jean
C. Ogier, Belgíu 3101,240
stig.
Handknattleiksmótið
Efnilegir menn í
yngri flokkunum
Á laugardagskvöldið
fóru fram fjórir leikir
í öðrum aldursflokki, og
voru flestir þeirra
nokkuð skemmtilegir og
tvísýnir. Sást þar hópur
sem áður en langt um
líður skipar meistara-
flokka félaganna er
leika í fyrstu og annarri
deild núna.
1 næstum hverju liði voru
piltar sem sýndu mjög góðan
handknattleik, og sem virðast
hafa þegar náð furðu langt.
Manni verður á að hugsa til
þess, hve stórstígar framfar-
irnar verða þegar hið nýja og
stóra hús kemur til skjalanna.
Við höfum haldið því fram, að
Hálogalandshúsið stæði hand-
knattleiknum hér fyrir þrifum,
vegna þess hve lítill salurinn
er og langt frá því að vera
hin alþjóðlega stærð. Þó er
eins og það bregði fyrir svolít-
illi svartsýni, hvað það snertir
að framfarirnar verði í sama
hjutfáíli ö'g stéerðiri á húsun-
um á að verða. Handknattleik-
urinn hefur hrifið unga fólkiö,
og það hefur iðkað hann yfir-
leitt af kappi, og sætt sig við
þau skilyrði sem fyrir hendi
hafa verið. og með elju sinni
náð lengra en búizt hefur verid
við, og sanngjamt er að krefj-
ast.
Þessi svartsýni er ef til vill
óþarfi, einkum þegar maður er
nýbúinn að horfa á menn f ram-
tíðarinnar, og sjá þá hæfileika
sem þeir sýna margir hverjir
og þann árangur sem þeir hafa
þegar náð.
Við þá má þó segja (þó nokk- j
uð langt sé þangað til húsið
kemur), að þótt hér rísi upp
stórt og „löglegt" keppnishús,
krefst það ekki síður en litla
húsið fullrar elju og áhuga
ungu mannanna. Það veitir
méiri möguleika, en krefst líka
meiri vinnu, þjálfunar. Stórt
hús leysir ekki eða léttir kröf-
urnar til þess að ná árangri,
til þess verður alltaf að ein-
beita viljanum, sem knúinn er
af innri áhuga.
Þessar hugrenningar urðu til
á meðan þessir ungu og efm-
legu leikmenn börðust af á-
huga og krafti um mörkin -jg
stigin.
Handknattleiksíþróttin þarf
ekki að vera kvíðandi um
framtíðina, hvað það snertir
að eiga efnivið sem lofar góðu,
ef áhugi. vilji. aðstaða. kennsla
og góð forsjá er fyrir hendi
hverju sinni.
2. fl. Suðurnesjamenn harð-
skeyttjr; unnu Val 13:11
Fyrsti annarsflokksleikurinn
var á milli Iþróttabandalags
Keflavíkur og Vals, og var
lejkurinn frá upphafi skemmti-
legur og nokkuð jafn. Keflvík-
ingamir voru þó alltaf með
forystu í leiknum. Valur byrj-
aði heldur illa og voru IBK
komnir 4:1 og litlu síðar 6:2,
en í lok hálfleiksins náðu Vaís-
menn góðri lotu og í hálfleik
stóðu leikar 7:6 fyrir Keflavík.
Sama sagan endurtók sig í síð-
ari hálfleik að Valur slakaði á
og Keflvíkingar notuðu sér það
og komust í 11:6, en þá vakn-
aði Valur og komst í 12:11, og
máfti ekki á milli sjá. Keflvík-
ingar taka að halda knettinum,
en Valsmenn sækja á og leika
maður á mann, en þá skorar
Keflavík á síðustu sekúndunum,
og endaði leikurinn 13:11.
Þetta var fjörugur leikur og
nokkuð vel leikinn. Keflvíking-
ar voru jafnara lið, og unnu
réttlátan sigur. Piltamir úr
Keflavík eru kröftugir og frísk-
ir og kunna töluvert. I þessum
flokki á Keflavík vissulega efni-
Framhald á 9. síðu.
Heim vann Skov-
bakken — 19:17
Stokkhólmi 27/1 - Sænskahand-
knattleiksmeistaraliðið „Heim“
lék við dönsku meistarana
„Skovbakken" í Evrópubikar-
keppninni sl. sunnudag. Svíam-
ir sigruðu með 19:17.
Skovbakken hafði áður sigrað
fslandsmeistarana, „Fram“, og
norsku meistarana, „Fredens-
borg“, báða mjög naumlega.
Dómari í leiknum í Stokk-
hólmi var Norðmaðurinn Reid-
ar Akek.
Kínverji stökk
4,96 m. á stöng
Portland 27/1 — Kínverjinn C.
K. Jang frá Formósu setti nýtt
heimsmet í stangarstökki inn-
anhúss um helgina. Jang stökk
4,96 m og gerðist þetta á móti
í Portland í Bandaríkjunum.
Jang er annars kunnur afreks-
maður í tugþraut, og varð ann-
ar í þieirri grein á olympíu-
leikunum í Róm 1960. Banda-
ríkjamaðurinn Dave Tork átt-i
gamla innanhússmetið — 4,93
m, en hið opinbera heimsmet í
stangarstökki (úti) á Finninn
Pentii Nikula — 4.94 m.
Erik Carisson og Pauli Toi-
vonin takast í hendur fyrir
lokasprettinn.
»
i
I