Þjóðviljinn - 29.01.1963, Page 6
g SlÐA
ÞJÓÐVILJINN
Þriðjudagur 29. janúar 1963
Botninn var suður í Borgarfirði
Að þessu sinni verður skýrt
frá ráðningu verölaunagátunn-
ar, sem við birtum fyrir þrem
vikum. Galdurinn var sá að
bæta einu orði við hverja af
átta veðurvísum. Rétta lausn-
in var þessi:
1. TJtsynningur:
Maeðinn hrotti hurðir knýr,
heiftarþrútinn syngur
hæðinn glottir, hagli spýr,
harður útsynningur.
2. Austræningur:
Orðalaust við eyru þér
ótal raustum syngur,
ilm um haust af birki ber
blíður austræningur.
3. Norðanbylur:
Gnístir storðir, grös og dýr,
grimmdarorðin þylur,
drýgir morð og frá þeim flýr
fólskur norðanbylur.
4. Vetrarstilla:
Himnasetra skrúði skín.
skýin letrið gylla,
fer í betri fötin sín
fögur vetrarstilla.
5. Landsynningur:
Hvetur gandinn, hnyklar brá,
hvessir brandinn slyngur,
mörgum grandar geislum sá
grimmi landsynningur.
6. Næturþoka:
Blóma gætir, brosir föl,
birtu lætur doka,
daginn grætur dul og svöl
döpur næturþoka.
7 Landnyrðingur:
Ryki blanda barinn snjó
^lárra handa fingur,
fnæsir sandi fram í sjó
frakkur landnyrðingur.
8. Júnídagur:
Gróin tún á gullnum skóm
gengur brúnafagur,
litar í dúnalogni blóm
Ijúfur júnídagur.
Af þeim lausnum, sem okk-
ur bárust í tæka tíð voru 38
réttar, en ajls komu 112 ráðn-
ingartilraunir. Ýmsir áttu erf-
itt með að finna austræning-
inn, enda er hann óvíða
þekktur nema um suðvestan-
vert landið. Margir höfðu líka
skipti á landsynningi og land-
nyrðingi, enda gat það staðizt
rimsins vegna. Það sem gerir
muninn á þessum hálfbræðr-
um í vísunum er það að ann-
ar er þur og kaldur (bláar
hendur hans blanda ryki bar-
inn snjó), og í Borgarfirði
hlýtur það að vera fremur
landnyrðingurinn. Þar er iand-
synningurinn líka djmmari,
grandar fleiri geislum. En það
var tekið fram, að hafa átti
lundarfar þessara persóna þar
i sveit, ef það væri ekki alls
staðar hið sama. Hér var því
botninn suður í Borgarfirði
eins og fyrri daginn.
Dregið var úr réttu lausn-
unum um verðlaunin, og kom
upp hlutur Hinriks Guð-
mundssonar, Heiðargerði 13 í
Reykjavík. Fær hann því loft-
vog þá, sem verzlunin Hans
Petersen gaf í þessu skyni og
er 500 króna virði. Biðjum við
Hinrik vel að njóta.
Að lokum er skylt að þakka
góðar kveðjur og stökur, sem
flutu með frá lesendum, • en
rúmsins vegna er ekki hægt
að birta nema fáar.
Halldór Þórhallsson á Sel-
tjamamesi skrifaði þetta utan
á bréfið, og bar ekki á öðru
en pósturinn áttaði sig á því:
Eg hef bætt við orðafans,
ýmsir hættir gerast.
Veðraþætti Þjóðviljans
þetta mætti berast.
Torfi Ölafsson í
virðist hafa haft
gátunni:
Reykjavík
gaman af
Gleymdi ég víni og kátum
klið,
kominn af fínu balli,
er gáfumar mínar glímdu við
gátuna þína, Palli.
Ámi Jóhannesson i Kópa-
vogi sendi meðal annars þessa
v£su:
Vorið nálgast, vetur flýr,
veðra lýkur báli.
Sunnanblærinn sumarhlýr
sífellt ylji Páli.
Og þessa gátu lét Egill Jón-
asson á Húsavík fylgja með
lausn sinni:
Speki hleður hlustimar,
hressir geð í ljóði,
bögur kveður botnlausar
bóndinn ........
Þetta ættu veðurfróðir menn
að geta botnað. — Hafið svo
öll þökk fyrir leikinn.
Páll Bcrgþórsson.
Veöriö
!
I
I
!
Í C\/Kcta Uirirli m ilxilr n tirArl/r IrnmiA ■ hMMM/ivl/M ^
i
Fyrsta bindi mikils ritverks komið út í Danmörku
Albert Thorvaldsen gerði
umþaðbil 180 brjóstmyndir
!
Danski listfræðingurinn, prófessor Else Kai Sass,
hefur sent frá sér fyrsta bindi mikils ritverks sem
hún hefur unnið að árum samian og fjallar um
þann fjölda brjóstmynda, sem Albert Thorvaldsen gerði
af samtíðarmönnum sínum og hefur hún grafið upp
tugi mynda, sem áður var ekki kunnugt um.
Þetta verður geysimikið
ritverk. Fyrsta bindið sem nú
er komið út er hálft sjötta
hundrað blaðsiíður. Annað
bindi kemur með vorinu og
verður um 400 síður, það
þriðja og síðasta er væntan-
legt fyrir jól.
Frú Sass hefur áður gefið
út litla bók um brjóstmyndir
Thorvatdsens. Það var árið
1938, en hún vann þá á Thor-
valdsenssafni. 1926 gáfu þeir
Johannes V. Jensen og Aage
Marcus einni.g út mynd-
skreytta bók um brjóstmynd-
imar og gengu þeir þá út frá
því að Thorvaldsen hefði gert
121 brjóstmynd og var þá
ekki vitað um af hverjum 28
myndanna væru. Þá var birt
skrá yfir 22 menn, sem talið
var að Thorvaldsen hefði
mótað myndir af, en mynd-
imar sjálfar voru hins vegar
ókunnar.
178 brjóstmyndir
Prófessor Sass hefur varið
áratugum til þess að leita
uppi áður ókunnar myndir
eftir Thorvaldsen og ekki
verður annað sagt en henni
bafi orðið vel til fanga, því
að hún telur sig geta fært
rök fyrir því að Thorvaldsen
hafi mótað ekki færri en 178
brjóstmyndir.
Hún hefur ferðazt um mörg
lönd til að hafa upp á mynd-
unum. verið í Svíþjóð, Pól-
landi, Skotlandi, Englandi, Is-
landi, Skotlandi, Belgílu
Frakklandi, Þýzkalandi, Aust-
urríki, Sviss og Ítalíu.
Um nokkrar þessara 57
„nýju“ mynda Thorvaldsens
veit frú Sass aðeins að Thor-
valdsen hefur mótað þær,
sjálfar myndirnar hefiirhenni
ekki tekizt að finna. En fleiri
eru þær som hún hefur haft
uppi á, oft á næsta ólíklegum
stöðum. Þannig fann hún áð-
ur óþekkta brjóstmynd eftir
Thorvaldsen uppi á skáp sem
stóð í gangi á ensku sloti.
Hún hafði veirið svo vel
geymd að eigendumir höfðu
ekki hugmynd um hana.
Margar þessara mynda sem
frú Sass hafði uppi á eru nú
komnar á Thorvaldsenssafnið
í Kaupmannahöfn.
Af hverjum eru myndimar?
Ekki hefur það kostað
minna erfiði, þrautseigju og
þolinmæði að grafa upp af
hverjum margar myndimar
eru. Enn eru margar slíkar
gátur óleystar en fleiri hin-
ar, sem ráðnar hafa verið.
Gamalt stórskorið andlit
reyndist þannig vera rúss-
neski sendiherrann í Vínar-
borg, sem gerði stuttan stanz
í Róm 1819 og sat þá fyrir
hjá Thorvaldsen.
Elzta myndin er af
Jóni Eiríkssyni
Þetta fyrsta bindi verksins
fjallar um þær brjóstmyndir
sem Thorvaldsen gerði frá
fyrstu námsárum sílnum í
Kaupmannahöfn og árunum
sem hann dvaldist í Róm
fram til ársins 1819. Fyrsta
brjóstmyndin sem vitað er, að
Thorvaldsen gerði var mótuð
1787. þegar Thorvaldsen var
17 ára og við nám í akadem-
íinu. Hún var af Ferrini gull-
smið. en mun glötuð.
Elzta myndin sem varðveizt
hefur í gifsi er af Jóni Ei-
ríkssyni. Síðasta brjóstmyndin
var af ungum manni af hinni
frægu dönsku Bartholin-ætt
vísindamanna og lækna,
Caspar, en hann dó 22 ára
gamall suður á Ítalíu.
Albert Thorvaldsen, sjálfsmynd.
„Hálf Evrópa" sat
fyrir hjá honum
Það hefur verið sagt að
„hálf Evrópa“ hafi setið fyrir
hjá Thorvaldsen, og satt er, að
hann mótaði myndir af mörg-
um þekktustu samtílmamönn-
um sínum, en einnig fjöl-
mörgum, sem enginn kann
lengur að nefna. Margir voru
danskir, eins og t.d. Bemstoff
og Eckersberg, og fjöldinn
allur af Þjóðverjum, Hum-
boldt, von Schubart barón.
Lúðvík Bajarakonungur. Af
Englendingum nægir að
nefna Byron lávarð. Annars
gerði hann myndir af mönn-
um frá flestum löndum álf-
urrnar. Brjóstmyndin af Mett-
emich (frá 1819) er sérstak-
lega rómuð.
Lagði lítið upp úr
þeim sjálfur
Thorvaldsen kynni að hafa
þótt eimkennilegt að svo mik-
ið og vandað verk skyldi
verða skrifað um brjóstmynd-
ir hans, því að sannast sagna
lagði hann lítið upp úr þeim
sjálfur. Hann gerði slíkar
myndir fyrst og fremst vegna
peninganma sem hann fékk
fyrir þær, fastur príls var 200
scudi eða 1000 lírur, sem var
allmikið fé á þeim tiíma.
Eftirmaður Gaitskells
Wilson talinn haf a
mestar sigurlíkur
Miklum getum er að því
leitt hver muni verða fyrir
valinu sem eftirmaður
Hugh Gaitskells og taka við
forustu þingflokks brezka
Verkamannaflokksins. Bar-
áttan stendur aðallega milli
tveggja manna, hægri-
mannsins George Brown og
vinstrimannsins Harolds
Wilson, og er sá síðamefndi
nú talinn hafa nokkru meiri
sigurlíkur.
Brezku blöðin sem kannað
hafa viðhorfin meðal þing-
manna Verkamannaflokksins
eru að minnsta kosti þeirrar
skoðunar.
Þeir Wilson og Brown leiddu
saman hesta sína í vetur þegar
varaformaður þingflokksins var
kosinn og bar þá Brown sigur
úr býtum, en með naumum
meirihluta. Brezku blöðin telja
að á annan veg muni fara nú.
Fylgi Wilsons hafi aukizt, en
Browns hrakað að sama skapi
og kemur ýmislegt tiL Wilson
er kunnari meðal brezlcs al-
mennings en Brown og það
getur haít sitt að segja í næstu
þingkosningum, en hitt kann
einnig að koma við sögu, að
Brown hefur verið 1 þeim hópi
þingmanna flokksins sem vilj-
að hafa styðja stefnu íhalds-
stjómarinnar varðandi aðild
Bretlands að Efnahagsbanda-
lagi Evrópu. Það er einmitt
vegna andstöðu Gaitskells heit-
ins við þá stefnu sem flokkur-
inn gerir sér nú vonir um að
geta unnið næstu þingkosning-
ar.
Yngsti viðskiptamálaráð-
herrann
Enda þótt Harojd Wilson sé
enn ungur maður (hann er 46
ára gamall), er hann eini mað-
urinn í núverandi forystusveit
Verkamannaflokksins, sem hef-
ur að baki nokkra reynslu í
stjómarstörfum. Hann varð við-
skiptamálaráðherra í stjóm
Attlees þegar hann var aðeins
31 árs gamall og var yngsti
maðurinn sem gegnt hafði því
embætti. Hann er talinn flug-
gáfaður maður og vafalaust
einn mesti hæfileikamaðurinn
sem Verkamannafl, hefui- á
að skipa. Síðan Aneurin Bevan
lézt hefur hann verið talsmað-
ur flokksins í utanríkismálum,
en þeir voru góðir vinir og
samstarfsmenn og Wilson jafn-
an verið talinn til vinstriarms-
ins í flokknum.
Fjórir tilnefndir
En þótt baráttan standi eink-
um milli þeirra Browns og
Wilsons er ekki loku fyrir það
skotið, að þriðji maöurinn
verði fyrjr valinu. Þingflokk-
urinn kom saman í síðustu viku
og var þá byrjað að leita eftir
uppástungum. Fresti til að skila
uppástungum lýkur um miðja
þessa viku og mun atkvæða-
greiðslan hefjast upp úr mán-
aðamótum. Hún stendur í
heila viku.
Auk þeirra Browns og Wil-
sons eru tilnefndir tveir aðrir
sem til greina koma. Það ern
þeir James Callaghan, fjár-
málafræðingur flokksins og
Patrick Gordon Walker, sem
var náinn samstarismaður
Gaitskells. Allir fjórir eru til-
tölulega ungir menn, Walker
er elztur. 56 ára.
Kosið í mörgum Iotum
Verði stungið upp á fleiri en
tveimur mönnum, en við því
er fastlega búizt, verður sá
sem flest atJcvæði fær að fá
fleiri en allir hinir til samans
til að kosningin sé gild. Fái
hann það ekki feilur sá úr leik
sem fæst hefur atkvæðin og er
haldið áfram að kjósa þar til
aðeins standa tveir eftir. Sigr-
ar þá sá sem fleiri atkvasði
fær. Það er þvf vart við því
að búast að únslit verði kunn
fyrr en um eða upp úr miðjum
næsta mánuði.
Hefur unnið sér inn hálfan milljarð
Presley veit ekki
aura sinna tal
Bandaríski rokksöngvarinn
Elvis Presley vann sér í fyrra
inn um tvær milljónir dollara
(uppundir 90 milljónir króna),
en það cru tíu sinnum meiri
tckjur en Bandaríkjaforseti hef-
ur. A þeim fáu árum sem iiðin
eru síðan hann hófst til vin-
sæida hefur hanri haft yfir tíu
miiljónir dollara í tekjur, en
það jafngildir um hálfum millj-
arö íslenzkra króna.
Þáð er bandaríska tímaritið
McCall’s sem skýrir frá þessu.
Síðustu tvö árin hefur Presley
farið með aðalhlutverk 1 sex
kvikmyndum. Tekjur hans af
kvikmyndunum bætast við þær
sem hann hefur samkvæmt
samningi sínum við hljómplötu-
firmað RCA-Victor, en hann
tryggir honum þrjár milljónir
dollara næstu tíu árin.
Veit ekki aura sinna tal
Timaritið segir, að Prestley sé
orðinn svo auðugur að hann
viti ekki lengur aura sinna tal.
Framkvæmdastjóri hans, Tom
Parker, hafnaði nýlega boði
sem hann fékk frá Bretlandi
um að halda þar 25 hljómleika
og átti hann þó að fá 700.000
dollara fyrir. eða um 30 millj-
ónir króna. Þegar Parker var
spurður að því hvers vegna
hann hefði hafnað þessu ágæta
boði, sagði hann, að í boðinu
hefði ekkert verið minnzt á
hver greiða skyldi ferðakostnað-
inn.
Tímaritið segir, að Prestley,
sem enn er einhleypur, eigl
lúxusvillu í Memphis, sem hann
keypti handa foreldrum sínum
1957. Sjálfur býr hann í ann-
arri lúxusvillu í snobbhverfinu
Bel Air í Los Angeles. Síðast
þegar til var vitað átti hann
ellefu bíla, þar með talinn Cad-
illac sem kostar 30.000 dollara
(1,3 millj. kr.).
Fyrirmyndar ungur maður
Tímaritið hefur orð á þvi að
Elvis sé mikill fyrirmyndar-
maður. Hann hvorki reyki,
drekki né taki sér ljót orð í
munn. Hann fari sjaldan á næt-
urklúbba eða veitingakrár, sé
umgangsgóður, hafi aldrei lent
undir mannahendur og sé ekki
mikið fyrir það gefinn að um-
gangast kvikmyndaleikara. að
því Jjó undanteknu a,ð hann á
til að hverfa stund og stund
með leikkonu þeirri sem Jeikur
á móti honum í það og J>afi
skintið.
i
i
k
i