Þjóðviljinn - 29.01.1963, Page 7
Þriðjudagur 29. janúar 19&3
ÞJÓÐVILJINN
Þaðan er um 6 leiðlr að
veija. Þar er brennidepill sam-
skipta á Austurlandi. Elzta hús-
ið er réttra 20 ára, en byggðin
mun víst talin ári yngri. Þar
var Valtýr á grænni treyju
hengdur forðum í nafni guðs,
konungs og góðra siða föður-
landsins. Þar er að finna hina
glötuðu paradis íhaldsins. Þar
hefur mátt líta stærstu akra á
Austurlandi. — Og Jiar er ver-
ið að reisa stærsta féiagsheim-
ili á fslandi.
Staður þessi heitir Egilsstaðir
og er i Fljótsdalshéraði miðju;
munu flestir landsmenn hafa
héýrt hans getið. Hér er að,
rísa sveitaborg, á ásunum utun
túns Sveins bónda Jónssonar á
Egilsstöðum. Héðan liggur leið
upp með Lagarfljóti sunnan-
megin. á Velli, i Skriðdal og
til suðurhluta Austurlands; leið
til Reyðarfjarðar og þaðan ti!
briggja annarra fjarða; leið 111
Seyðisfjarðar; leið til Eiðaþing-
hár, Úthéraðs og Borgarfjarðar;
leið til Jökuldals og Norður-
lands og loks leið upp Fell í
FJjótsdal, norðan Lagarfjjóts.
Síðastnefnda leiðin liggur
raunar um norðurbakka Lagar-
ins, en sá bakki tilheyrir ekki
Egilsstöðum, en á honum kvað
íhaldið vera að reisa ,.tilrauna“-
úthverfi frá Egilsstöðum, sem
hvorki lýtur lögum né skatt-
heimtu Egilsstaðabæjar. Við
brúarsporðinn norðanfljóts er
verzlun ein þar sem íhaldið
kvað gera „tilraunir“ með að
dreifa viðskiptum bænda frá
kaupfélaginu. Þar kvað líka
vera hin pólitíska „tilrauna-
stöð“ íhaldsins. Hefur forstöðu-
maður „tilraunastöðvarinnar“.
Jónas Pétursson, verið fluttur
frá Skriðuklaustri og settur þar
niður. Kvað Þorvaldur Garðar
hafa séð það af þjóðkunnri
skarpskyggni sinni og gái'um að
maður með reynslu Jónasar
Péturssonar af sauðfjárræktar-
búinu á Skriðuklaustri væri
ijálfsagður forstöðumaður hinna
jólitísku sauðaræktartilrauna j-
laldsins á Austurlandi, þarna í
'.andj Ekkjufells
Á bakkanum sunnan Lagar-
lljóts eru öðrumegin vegar tún
ig akrar Sveins bónda. en hinu-
megin hagar og vegur til flug-
vallarins og síðan tún og akrar,
en á ásunum ofan þeirra rís
ilgilsstaðakauptún. Bæjarstæðið
er skemmtilegt; byggð hafa ver-
ið snotur hús og ræktaðir
nokkrir fallegir garðar.
Lengra uppi á ásunum er
Egilsstaðaskógur, og ekki hefur
verið farið langt eftir veginum
til Úthéraðs og Seyðisf jarðar
þegar afvegur liggur inn í skóg-
inn. Þar í fallegu rjóðri rís
hús eitt mikið og vandað er
Sjálfstæðisflokkurinn h/f reisti
á sínum tíma. Landið undir
húsi þessu á Sveinn bóndi á
Egilsstöðum. og þegar Sjálf-
stæðisflokkurinn h/f tók hinn
rikislaunaða tilraunastjóra fram
Sigurður Gunnursson smiður segir frá Egiisstuðukuuptúni
B
Þið sjáið að það oru snotur hús á Egilstöðum — og að ekki hefur verið Játið bíða að rækta
fallega garða.
yfir óðalsbóndann á Egilsstöð-
um setti Sveinn akkeriskeðjur
í hlið paradísarinnar. En inni í
skóginum bíður hin mikla bygg-
ing afgirt og yfirgefin, hin glat-
aða paradís íhaldsins á Austur-
landi.
Á stað eins og Egilsstaða-
þorpi, þar sem allt hefur verið
byggt frá grunni — þar sem
engin bygging var áður, er sjálf-
sagt að hitta fyrst að máli
byggingameistarann Sigurð
Gunnarsson. Hann er ekki
heima, er enn að vinna þótt
komið sé langt fram á kvöld.
Við finnum h„nn loks í geysi-
stóru steinbákni, nokkuð fjarri
öðrum húsum; þeir vinna þar
við ljós. Hann ætlar að vinna
lengur og allan daginn á morg-
un og fram eftir kvöldi: þeir
eru í kapphlaupi við tímann cg
komandi vetur. Næsta dag qr
hann reiðubúinn að fóma okk-
ur tíma.
— Segðu mér, Sigurður, þú
sem alltaf ert að byggja, hve-
nær var byrjað að byggja hér,
hvað hefur helzt verið byggt —
hverjir hafa hér aðsetur?
— Það var byrjað að byggja
hérna 1943. Raunar var byrjað
á fyrsta húsinu hér 1942, og þá
var byggt án skipulags. Árið
1943 var byrjað að byggja hér
íbúð fyrir héraðslækni og
sjúkraskýli og dýralæknisbú-
stað....
Þá var læknirinn fluttur að
Eiðum því læknishúsið á Brekku
brann veturinn áður, en fram
að þelm tíma sat læknir Fljóts-
dalshéraðs á Brekku — inni í
Fljótsdal. Nú hefur verið
byggður hér læknisbústaður og
eru tveir læknar hér, fyrir aust-
ur- og vesturhéraðið. Þá hefur
verið byggður hér barnaskóli
og skólastjórabústaður. Hér er
kaupfélagsverzlun....
— En íhaidsmannaverzlunin?
— Aðalverzlun einstaklings-
framtaksins er i hverfinu hinu-
megin við Lagarfljót, en hér er
útibú.
Hér er líka einstaklingsfram-
taksverzlun er Gunnar Gunn-
arsson bílaviðgerðarmaður rek-
ur og verzlar þar með vara-
hluti í bifreiðar og landbúnað-
arvélar. Er það til mikils hag-
ræðis íyrir Héraðið og firðina
líka, því kaupfélögin og íhalds-
verzlanirnar telja að það borgi
sig ekki að verzla með vara-
hluti vegna þess hve lítil á-
lagning er á þá.
Skrifstofur RARIK (Raf-
magnsveitna ríkisins) hér á
Austurlandi og aðalaðsetur er
hér og hér situr ral'veitustjór-
inn fyrir Austurland.
Þá er hér banki, útibú frá
Búnaðarbankanum; bankinn tók
til starfa hér 1960.
Mjólkurbú er starfandi, áður
hafði verið byrjað með rjóma-
bú. Mjólkurframleiðsla hefur
aukizt í nærliggjandi sveitum
og er seld mjólk héðan niður í
fjarðakaupstaðina. Þá er hér
pósthús og símstöð.
Nú er í smíðum stórt félags-
heimili; — aðrar byggingar hér
eru aðallega íbúðarhús.
— Hve margir íbúar?
Þeir voru um áramötin
1961 og 1962 nálægt hálíu fjórða
hundraði.
— A hverju geta þeir allir
lifað hér?
— Nokkurt starfsfólk er á
Egilsstaðaflugvelli og flugturni,
Það býr hér. Við verzlun og
mjólkurbú þarf allnokkurt
starfslið, þá eru tvö vélaverk-
stæði fyrir bíla og landbúnaðar-
vélar, tvö trésmíðaverkstæði og
rafvélaverkstæði. Nokkrir fast-
ir starfsmenn RARIK búa hér.
Töluvert af fólki er hér i sam-
bandi við póst og síma. Og
byggingavinna er töluverð.
— Er mikið byggt hér?
— Já, það er alltaf verið að
byggja. Fólk sem hingað flyr.t
verður að byrja á því að byggja
yfir sig því hér er ekkert leigu-
húsnæði til.
— Hvaðan er það fólk sem
hefur setzt hér að?
— Flest af því er héðan af
Héraði, en annars er það víðs-
vegar að. m. a. frá Seyðisfirði.
Reykjavík, Kópavogi og Akra-
nesi.
— Hvernig kann það við sig?
— Fólk virðist yfirleitt ó-
nægt með að vera hér. Þetta
er ungt og efnilegt fólk sem
hefur valið sér bólfestu hér, en
það á í erfiðleikum: því gengur
illa að fá byggingarlán, en það
verður að byrja á því að byggja
yfir sig.
— Er mjög erfitt að fá hús-
næði hér?
— Já, það er svo erfitt að
fastur starfsmaður á flugvell-
inum varð að flytja fjölskyldu
sína til Neskaupstaðar en búa
hér sjálfur í hótelherbergi.
— Þið byggið eftir sVmnbii
— er það ekki?
Jú. hér i Egilsstaðaþorpi
er byggt eftir skipulagi — en
töluverð brögð virðast að því
að skipulaginu sé breytt.
— Er ekkert þyggingafélag
hér?
— Jú. vjð höfum hér bygg-
ingafélag verkamanna, það var
stofnað 1959.
— Hefur það byggt mikið?
— Það hefur fengið Ián fyrir
aðeins tveimur íbúðum! Síðan
höfum við fengið vilyrðl fyrir
meira fé, — en það verða ekki
byggð hús fyrir vilyrðin ein,
til þess áð koma upp húsum
þarf pcninga.
— Og erfitt að fá lán til
bygginga?
— Það fást engin byrjunar-
lán nema helzt víxlar í Búnað-
arbankanum og sparisjóðnum.
— Það er talað um þetta sem
miðstöð Héraðsbúa.
— Já, hér á Egilsstöðum cr
óumdcilanlcga miðstöð Héraðs-
manna, og það hefði mikið að
segja íyrir Héraðsbúa hér i
kring að hér yrði mikil byggð.
— Segðu mér, hvernig er fé-
lagslífið hér í Egilsstaðakaup-
túni?
— Það er heldur dauft yfir
félagslífinu. Eitt félag starfar
þó með miklum blóma, og það
er kvenfélagið. Það hefur gert
ákaflega mikið fyrir sjúkraskýl-
ið, — og nú hafa þær fengið
þá hugmynd að byggja kirkju,
en aðrir hafa látið sér detta
í hug að komast mætti af með
kapellu í sambandi við barna-
skólann, a. m. k. fynst um sinn,
og gætu þó guðsþjónustur verið
haldnar með fullum virðuleik.
Þá er hér taflfélag og ung-
mennafélag, en frekar dauft yf-
ir starfi þeirra beggja. Enn-
fremur er verkalýðsfélag og
iðnaðarmannafélag og er starfs-
svið iðnaðarmannafélagsins allt
Fljótsdalshérað.
— Hvað um atvinnumögu-
leika hér og stækkun byggðar-
innar?
— Egilsstaðakauptún hefur^
góða stækkunarmöguleika. En
við þurfum að fá hingað léttan
iðnað. Hingað flyzt fyrst Dg
fremst ungt fólk og það þai-f
að skapa hér atvinnu fyrir vax-
andi íbúatölu í framtíðinni.
Hér eru líka ýmis skilyrði
til aukins iðnaðar. Hér er slát-
urhús — en enginn kjötiðnaður.
Hér gæti t. d. verið vinnufata-
gerð, það er töluverður mark-
aður fyrir þau á Austurlandi
sjálfu.
Athugandi væri að fá hingað
einhvem iðnað á vegum SlS,
það þarf ekki að safna honum
öllum á einn stað. Það er t. d.
mikið sem framleitt er hér á
Austurlandi af ull og skinnum.
Við Austfirðingar höfum ekki
verið verr settir en aðrir með
aðstöðu í stjóm SÍS, svo ekki
ætti það að standa í vegi fyrir
slíkum iðnaði hér.
Þá hefur verið rætt um
spónaplötuverksmiðju hér en
gegn því standa öfl sem halda
því fram að héðan yrði alltof
mikill flutningskostnaður. Gegn
þeim rökum maelir aftur það
að stutt er að flytja hráefni 1il
slíkrar verksmiðju hér: úr Eg-
ilsstaðaskógi, frá Skógræktinni
á Hallormsstað og rekavið ,if
Héraðssandj og hájm af ökrum;
og flutningskostnaður hráefms
á vinnslustað er líka atriði, og
það ekki svo lítið. í sambandi
við verksmiðjur.
--------------------- SÍÐA 1
Og hér er flutningamið-
stöls, veit ég.
— Já, hér er flutningamið-
stöð. Einir 8 stórir bílar eru
í flutningum hingað og héðan,
og frá Reykjavík til Austfjarða-
bæjanna.
— Og mikill ferðamanna-
straumur?
— Já, hér er mikill ferða-
mannastraumur og fer sívax-
andi, En hér er ekkert hótel,
nema gisting hjá Sveini bónda
á Egilsstöðum og svo er greiða-
sala í Ásbíói. Hér þarf að
koma gistihús því ferðamanna-
straumurinn vex með hverju
ári.
— Segðu mér nánar um fá-
lagsheimilið sem þið eruð að
byggja.
— Við byrjuðum haustið 1960
á grunni þess og skal þetta vera
sameiginlegt félagshelmilí fyrir
alla hreppa Fljótsdalshéraðs.
— Leggja allir hreppamir
fram jafnan hlut?
— Nei, framlög eru mishá
því eignarhluti hreppanna fer
eftir stærð þeirra, t. d. leggur
Egilsstaðahreppur fram 40%.
— Og hvað verður svo í
þessu félagsheimili?
— Þar verður samkomusalur,
veitingasalur, eldhús og geymsl-
ur, leiksvið og búningsherbergi.
1 álmu sem eftir er að þyggja
verða skrifstofur fyrir Egils-
staðakauptún, húsvarðaríbúð, og
svo bókasafn og byggðasafn.
Þess má líka geta að í kjallara
hússins er rúmgott pláss fyrir
ýmsa félagsstarfsemi og tóm-
stundaiðju.
— Mörg önnur ágæt félags-
heimili eru misheppnuð vegna
þess að leiksvið hefur verið
miðað við úreltar hugmyndir
— verður hægt að leika í þessu
húsi?
— Já! Lejksviðið er 100 fer-
metrar og rúmgott hliðarsvið
og er gert ráð fyrir að gestir
frá Þjóðleikhúsinu peti leikið
þar.
— Og hver er áætlunin um
hraða í byggingarframkvaemd-
um?
— Á árinu i fyrra var lítið
unnið við það, en mikið i sum-
ar og miðað við að það verði
fokhelt á þessu ári.
— Hve marga tekur húsið
í sæti, og hve stórt er nú svona
hús?
— Húsið tekur 460 manns i
sæti í aðalsal og á svölum. Að-
alhúsið er 806 fermetrar og
5425 rúmmetrar. Álma sem síð-
ar verður byggð við húsið verð-
ur 313 ferm. og 2500 rúmm.,
svo húsið veröur alls 1119 fer-
metrar og 7925 rúmmetrar.
— Er almennur áhugi fyrir
byggingu þessa húss?
— Já, það er mikill áhugi
fyrir að koma félagsheimilinu
upp, og sá óhugi er ekki síðri
í hreppunum en í Egilsstaða-
kauptúni sjálfu.
■A-
Við þökkum Sigurði Gunn-
arssyni upplýsingarnar. — Von-
andi gefst seinna tækifæri til
að segja fleira frá Egilsstöðum.
J.B.
Piítur beðinn aí
gefa sig fram
Um kl. 12 á hádegi þann 14.
þ.m. varð slys á gatnamótum
Vesturgötu og Grófarinnar. Sjó-
maður er var á leið frá höfninni
og gekk eftir gangstéttinni vest-
an Grófarinnar staðnæmdist á
horni Vesturgötu og Grófarinnar
og leit fyrst í austur til þess að
gæta að umferðinni en í því
hann leit í vestur kom piltur á
reiðhjóli þarna aðvífandi og
rakst stýrið á hjólinu í mjöðm-
ina á sjómanninum og féll ung-
lingurinn af hjólinu við árekstur-
inn og lenti á sjómanninum og
rak höfuðið i hægra kinnbein
hans. Sjómaðurinn hjálpaði pilt-
inum á fætur og síðan héldu þeir
bóðir leiðar sinnar þar eð hvor-
ugur virtist neitt meiddur að
ráði.
Nokkru síðar fékk sjómaðurinn
hins vegar verk í kinnbeinið og
kom í ljós við myndatöku, að
það var brotið oj? þurfti upp-
skurð til þess að gera að brot-
inu. Eru það vinsamleg tilmæli
rannsóknarlögreglunnar að pilt-
urinn sem var á reiðhjólinu, gefi
sig fram og ennfremur biður
hún sjónarvotta, ef einhveriir
eru að gefa sig fram.
1
*
í
i
h
i