Þjóðviljinn - 29.01.1963, Qupperneq 9
Þriðjudagur 29. janúar 1963
ÞJ OÐ VIL JINN
- SÍÐA g
FISKIMÁL - Eftir Jóhann J. E.
WÆM
opnað nokkra nýja markaði fyr-
ir afurðir okkar, og þessvegna
er það, að aukafundur S.H. læt-
ur nú ljós sitt skína og vill
fá fram breytta stefnu, bæði í
bankamálum og markaðsmálum.
Hér er um algjört vantraust
að ræða á höfuðstefnu „við-
reisnarinnar" í þessum málum.
Það er nú líka staðrejmd. að
ýmsir atvinnurekendur sem allt
sitt eiga undir rúmum, góðum
mörkuðum, þeir eru þeirrar
skoðunar, að „viðreisnarstjórn-
in“ hafi í þessum málum meir
láti ðstjórnast af óskum er-
lendra pólitískra samherja, held-
ur en íslenzkum hagsmunum,
og því sé nú ástandið í þessum
efnum verra en það gæti verið.
Hefur ríkisvaldið aðstoðað
við að hofa af sjómðnnum Svissneskt auðfélag kaupir
hiutabréf Findus í Noregi
Iþróttir
og útvegi milljónir króna?
1 Þjóðviljanum 15. janúar si.
er mjög athyglisverð frétt, sem
birt er á forsíðu blaðsins, og
fyrirsögn hennar er svona:
„Ríkisstjómin hindrar hag-
kvæma síldarsölu". Fréttin hefst
svo á þessum orðum: „Þetta er
furðuleg staðreynd, en sönn
engu að síður“. Að þessu loknu
er skýrt frá því, að útflutn'imgs-
fyrirtækið „íslenzkur fiskur“
hafi gengið frá samningum um
sölu á 10 þús. smálestum af
nýrri síld til þýzka fyrirtækis-
ins Seefisch, sem hafi boðizt
til að greiða fyrir síldina eftir-
farandi verð, fob á Islandi. Fyr-
ir síld þar sem 3—5 stykkj
færu í kg. kr. 3,00 íslenzkar.
Og fyrir síld þar sem 5—7
stk. færu í hvert kg. kr. 2,60
fyrir kg. Ennfremur segir í
fréttinni að það hafi verið áskil-
ið að íslenzk skip sætu fyrir
því að flytja síldina til Þýzka-
lands.
Það er sagt að ríkisstjórnin
hafi neitað að fallast á þennan
viðskiptasamning, og er þess
getið til, að hún hafi hugsað
sér að láta togarafélögin njóta
gróðans af þvi að kaupa síldina
hér fyrir lágt verð, eða eins og
stendur í fréttinni fyrir kr. l,o7
pr. kg. Sagt er að ríkisstjórnin
hafi hugsað sér gróðann af
þessum viðskiptum sem eins-
konar styrk til togaraútgerðar-
innar, og þá náttúrulega á
kostnað sjómanna og útvegs-
manna vélbátaflotans.
Ég efast ekkert um, að tog-
araútgerðinni hafi verið full
þörf á að fá þennan styrk, þvi
að svo grátt er „viðreisnin" bú-
in að leika þá útgerð, þar sem
meðalaflinn getur engan veginn
staðið undir útgerðarkostnaði og
viðhaldi skipanna sökum of
hárra vaxtakjara, okurs útflutn-
ingstolls á afurðum og of hárra
tolla á vörum til útgerðarinn-
ar. Það er þetta sem ráðið heE-
ur mestu um afkomu togara-
útgerðarinnar á undanförnum
árum ásamt of lágu fiskverði
þegar landað var hér heima.
Hitt er sjálfsblekking að kenna
aflatregðu hjá togurunum ein-
göngu um þetta ástand í togara-
útgerðinni, því að það sem c-g
hef talið upp hér að framan,
hefur ráðið þar meiri úrslitum.
En þrátt fyrir þessar stað-
reyndir, þá verður það ekki
réttlætt, að ætla að jafna ha'la
togaraútgerðarinnar með því eð
taka af réttu verði síldar hjá
sjómönnum og útgerðarmönn-
um vélbátaflotans. og afhenda
togaraútgerðunum. En það er
í raun og veru þetta sem ríkis-
stjómin hefur gert ef frét.t
Þjóðviljans er rétt. Þessar að-
farir virðast heldur ekki styðj-
ast við bein lagafyrirmæli held-
ur framkvæmdar í krafti þess
valds sem ráðherrar hafa á
meðan beir sitja í stjórnarstól-
unum. Ýmsir munu nú halda
að svonalagað sé ekki hægt að
framkvæma í okkar þjóðfélagi.
En þessu hefur ekki verið mót-
mælt af ríkisstjórn eða stuðn-
ingsblöðum hennar, og verður
því að taka fréttina sem sanna.
Annar báttur
hneykslisins
Ýmsum mun nú finnast að
þetta sé Ijót saga, og skal ég
ekki vefengja að svo sé. En
fréttin heldur áfram og tek'ir
þá sízt betra við. Næst er skýrt
frá því að „íslenzkur fiskur“
hafi gert annan viðskiptasamn-
ing við sama þýzka fyrirtækið
um sölu á 9 þúsund smálestum
af frosinni síld fyrir talsvert
hærra verð en þá hafi verið
greitt.
Það er sagt að ríkisstjórnm
hafi svarað þessari umsókn
þannig að hún hafi bent fyrir-
tækinu „Islenzkur fiskur" á að
selja þessa vöru í gegnum Sölu-
miðstöð hraðfrystihúsanna, eða
útflutningsdeild SÍS. Takið nú
vel eftir: Stóra síld, sem sagt
er að „Islenzkur fiskur" haíi
getað selt á 54,10 sterlingspund
hana seldi S.H. á 53 sterlings-
pund. Og smærri síld sem „Is-
lenzkur fiskur" gat selt á 50,10
sterlingspund, þá síld er sagt
að Sölumiðstöðin hafi selt á 41
sterlingspund. Síldarflök sem
„Islenzkur fiskur" gat selt á
90,10 sterlingspund, þau seldi
S.H. eftir því sem fullyrt er,
á aðeins 80 sterlingspund. Þarna
ber mikið á milli í verði, á
öllum flokkum frosinnar síldar,
og væri ekki undarlegt þó að
spurt væri hverju þetta sætti.
En hjá forráðamönnum Sölu-
miðstöðvar hraðfrystihúsanna
ríkir grafarþögn þó sagt haíi
verið opinberlega frá þessum
mikla verðmun við sölu á fros-
inni síld.
Hvað veldur þessu? spyrja
menn, og það er ekki undar-
legt þótt spurt sé. Þegar athug-
að er verð á Norðursjávarsíld
í Noregi á sl. hausti, í' vinnslú
til manneldis og til útflutnings
(ísvarin síld fyrir Þýzkalands-
markað), þá kemur á1 daginn,
að verð úr skipi í norskri höfn
fyrir stærri hluta síldarinnnr
var sem næst kr. 3,40 íslenzkar
fyrir kg. Verðið sem „íslenzkur
fiskur" getur selt á í íslenzkri
höfn virðist vera nokkuð í sam-
ræmi við þetta, þegar tekið er
tillit til mismunar á flutnings-
kostnaði. Viðvíkjandi hinum
mikla verðmun á síldarsölu
„Islenzks fisks“ annars vegar
og S.H. hinsvegar, þá er hann
svo miklll, að full þörf er á
skýringum.
Eins og nú standa sakir hefur
ekkert komið fram sem réttlætt
getur þennan mun. En þess
vcrður að krefjast án nokkurr-
ar linku að forráðamenn S.H.
geri hér hrcint fyrir sínum dyr-
um. Hver er ástæðan fyrir því,
að S.H. selur frosna síid á
lægra verði heldur en „lslcnzk-
ur fiskur" getur fengið?
Það er mesti misskilningur, ef
forráðamenn S.H. og ríkisstjórn-
in halda, að það sé eitthvert
einkamál þeirra, fyrir hvaða
verð íslenzkar afurðir eru seld-
ar á erlendum mörkuðum. Hér
hafa ekki aðeins sjómenn og út-
vegsmenn mikilla hagsmuna að
gæta, heldur þjóðin öll, að vel
sé staðið á verði þegar afurðir
eru seldar úr landi. En á það
virðist hafa skort í þessu til-
felli. Og þorir háttvirt ríkís-
stjórn að skýra almenningi frá
því, hversvegna þeim sem hæst
getur selt íslenzkar afurðir er
meinað að selja?
„Viðreisnin“ og
markaðirnir
Sölumiðstöð hraðfrystihúr,-
anna hefur nýlokið aukafundi
þar sem rætt var urri útlit og
horfur.
Á fundinum kvörtuðu frysti-
húsaeigendur yfir of háum
vöxtum á rekstrarlánum og
kröfðust vaxtalækkunar. Enn-
fremur kvartaði fundurinn und-
an þeirri stefnu „viðreisnar-
innar“ að draga úr innkaupum
frá jafnvirðiskaupalöndunum og
töldu fundarmenn að með þvi
væri markaði fyrir hraðfrystar
fiskafurðir stefnt í voða.
Síðastliðin tvö ár hefur „við-
reisnin“ unnið að því kapo-
samlega að draga úr innkaup-
um frá þeim löndum austan-
tjalds sem á undanförnum ár-
um hafa keypt héðan frosnar
fiskafurðir í stórum stíl, vit-
andi það að þessir markaðir
eru bundnir því skilyrði að
keypt sé jafnmikið frá þessum
löndum og selt er til þeirra.
Til þess að gera þessi áform
„viðreisnarinnar" möguleg hafa
verið tekin erlend lán sem var-
ið hefur verið til vörukaupa
1 löndum sem lítið sem ekkert
hafa keypt af íslenzkum af-
urðum.- Þetta heitir á máli „við-
reisnarinnar" hagspeki og frjáls
verzlun. En hin frjálsa verzlun
sem mest hefur verið gumað af,
hefur þrátt fyrir þetta. ekki
Þau tíðindi gerðust í Noregi
fyrri hluta desembermánaðar
sl. að salan á meirihluta hluta-
bréfa í hinu þekkta útgerðar-
og fiskiðnaðarfyrirtæki „Find-
us“ í Hammerfest til svissneska
auðfélagsins „Nestles" var end-
anlega samþykkt í norska Stór-
þinginu með 113 atkvæðum
gegn 33. Þrátt fyrir þennan
sterka meirihluta með sölunni,
eða sem treysti sér ekki til að
stöðva hana þá urðu í þessu
máli mjög hörð átök í stór-
þinginu áður en því lauk, og
riðluðust margir flokkar í af-
stöðunni til málsins. Tillaga
kom fram frá minnihlutanum
um að stöðva söluna og finna
þessu fyrirtæki alnorskan
grundvöll að slarfa á. Ýmsir af
þingmönnum sem atkv. greiddu
með meirihlutanum sögðust
gera það vegna þess að þeir
sæju ekki aðrar útgöngudyr,
þar sem málið væri komið svo
langt áleiðis. „Norges Fiskar-
lag“ og „Ráfisklaget“ lögðust
bæði eindregid gegn sölunni og
vildu að stórþingið stöðvaði
hana. Ýmsir þekktir þingmenn
voru innan minnihlutans, þar
á meðal Johannes Olsen frá
Finnmörku, en hann er Verka-
mannaflokksþingmaður og for-
maður sjávarútvegsrrálanefndar
stórþingsins. Átökin í þessu
máli eru sögð ein þau allra
hörðustu sem orðið hafa í
norska stórþinginu lengi.
Norski skuttogarinn „Hemnestrál."
Nýjasti smátogari
Norðmanna
Norðmenn vinna nú kapp-
samlega að því að stækka fiski-
skipaflota sinn, með stórum og
litlum skuttogurum. Nýjasti
litli skuttogarinn sem þeir hafa
byggt heitir „Hemnestrál“ og
er aðeins 92 tet á lengd. Skipið
er með 510 hestafla Caterpiller-
vél.
Þessi togari, þó lítill sé, er
búinn öllum nýjustu og bjztu
fiskileitar- og öryggistækjum.
Talið er að ganghraði togarans
verði sem næst 11 mílur á vöku.
Togarinn hefur mannaíbúðir
fyrir aðeins 11 menn og er það
talið hámark þess mannafla
Á skólabekk í afríska lýðveldinu Togo
Afríka er stundum nefnd heimsálfan á skólabekknum. Myndin er tek-
in í einni kennslustofunni í unglinaskóla í Lome, höfuðborg Afríkuríkis-
ins Togo. Þarna grúfir unga fólkið, sig yfir námsverkefnis.
sem hann þurfi á þorskveiðum.
En á síldartogveiðum er talið
að hægt sé að komast af með
4—5 manna skipshöfn.
Otgerðarmaður skipsins segir
í blaðaviðtali að ákveðið sé að
togarinn stundi síldveiðar með
vörpu haust og vetur en um
vorið og sumarið þorskveiðar.
Þrátt fyrir vöntun á sjó-
mönnum til fiskveiða í Noregi
þá hafa 200 sjómenn sótt um
skiprúm á þessum nýja skut-
togara, enda er gert ráð fyrir
að mannahlutir geti orðið háir,
ef togarinn aflar sæmilega þar
sem hlutnum verður deilt á
milli svo fárra manna. En eng-
in krafa um lægri aflahlut til
skipshafnar þrátt fyrir aukna
tækni, sem sparar vínnu', hefur
komið fram frá útgerðarmanni.
Otgerðarmaðurinn segir beinlín-
is þegar hann talar við blaða-
menn, að einn höfuðkostur
þessa skips eigi að vera sá, að
hver einstakur sjómaður eSgi
að hafa skilyrði til þess að bera
meira úr býtum, vegna þess að
aukin tækni gerir það kleyft að
hafa skipshöfn minni en áður
þekktist.
Þegar gæði síldar-
innar eru metin
verðurverðmun-
urinn enn meiri
Vegna fréttiar sem birtist
forsíðu bl. á laugard. um verð
mun á norskri síld og íslenzkri
er rétt að geta þess að gæði
íslenzku haustsíldarinnar og
norsku stórsíldarinnar eru
engan hátt sambærileg, svo
miklu betri er síldin sem veið-
ist hér við land Er helzt hægt
að bera saman gæði norsku
Norðursjávarsíldarinnar og þeirr.
ar íslenzku. Þegar þetta er haft
í huga verður verðmismunurinn
svo miklum mun meiri en fram
kom í frétt blaðsins.
Framhald af 4. síðu.
lega framtíðarmenn, ef þetf
halda saman. Liðið er nokkuð
jafnt, með markmann sem
bezta mann.
Valsliðið gerði margt laglega
þegar þeir náðu tökum á leikn-
um, en það var aðeins í síðari
helming hálfleikjanna. I liðinu
eru nokkrir verulega efnilegir
piltar og er Sigurður Dagsson
þar fremstur í flokki.
2. fl. Fram lék sér að hinu
unga liði Ármanns, vann 18:7
Leikur Fram og Ármanns í
öðrum flokki var lakasti leik-
urinn, og stafaði það af því
að Ármann tefldi fram kom-
ungu liði. ■ Hinir ágætu annars-
flokksmenn frá umliðnum ár-
um gengu allir upp í 1. ald-
ursflokk, og því verður Ármann
að byrja frá grunni.
Fram á allgóðan hóp í þess-
um aldursflokki og eftir að
Ármann hafði skorað eitt mark
úr vítakasti skoraðu Framarar
8 í röð, en hálfleiknum lauk
með 9:3 fyrir Fram.
Þetta hélt áfram í síðari
hálfleik í svipuðum tón, þvi
leiknum jauk 18:7 fyrir Fram.
Þessi leikur sagði lítið til um
styrk Fram, sem þó gerði ýmis-
legt laglega. Þar era á ferðinni
nokkrir efnilegir piltar og var
Tómas Tómasson beídur í þess-
um leik.
2. fl. Víkings og KR
börðust íil síðustu sekúndu
Leikur þessi var mjög fjör-
lega leikinn og spennandi frá
upphaf itil enda. Aldrei mun-
aði nema einu marki. og skipt-
ust liðin á um að hafa forust-
una. Víkingur skoraði fyrsta
markið. og sjö sinnum varð
jafntefli, og þegar hálf mínúta
var til leiksloka stóðu leikar
7:7, en Víkingur skoraði sigur-
markið á síðustu sekúndunum.
Bæði liðin ráða yfir tölu-
verðri leikni, kunnáttu og
hraða, enda bauð leikurinn upp
á að báðir tækju fram það
sem bezt þeir áttu.
1 liði Víkings var beztur
Ólafur Friðriksson, en í liði
KR var markmaðurinn sá sem
mesta athygli vakti, fyrir frá-
bæra vöm hvað eftir annað.
2. fl. FH vann Þrótt 12:9
Síðasti leikur kvöldsins var
og nokkuð fjörlega leikinn, og
vora það FH-piltamir sem yfir-
leitt höfðu forastuna, og sér-
staklega er á leikinn leið náðu
þeir betri tökum á honum.
Þróttur byrjaði illa og komust
4:1 undir, en þeir jöfnuðu samt
hressilega sakimar og komust
yfir á 5:4, en i hálfleik stóðu
leikar 5:5. Leikur Þróttar var
lakari í síðari hálfleik, og var
sem þeir tækju þetta ekki veru-
lega alvarlega, en í þessum
ungu mönnum er greinilega
mikill efniviður.
I liði FH era nokkrir ungir
menn, sem með sóma gætu
fljótl. hlaupið í skarð í mejst-
araflokknum án þess að veikja
hann mikið, og ætti FH ekki
að þurfa að kvíða viðkomunni.
3. fl. IBK—Haukar 8:6
Fyrsti leikur kvöldsins var
á milli utanbæjarliðanna Hauka
og Keflvíkinga £ þriðja flokki.
sýndu bæði liðin furðu mikla
kunnáttu mjðað við aldur, og
virðist sem þeir séu að ná
góöum tökum á leiknum.
Keflvíkingar virðast eiga mik-
inn efnivið meðal yngri kyn-
slóðarinnar þannig að þeir ættu
ekki að þurfa að kvíða fram-
tíðinni, og svipað er um Hauka
að segja sem töpuðu fyrri hálf-
leik 5:3, en i þeim síðari varð
jafntefli, en Keflavík vann 8:6:
Frímann.
5% kauphækkun
NESKAUPSTAÐ 25/1 — í gær
náðjst samkomulag millj verka-
lýðsfélagsjns á Norðfirðj 0g
vinnuveitenda um 5% hækkun
á öllum launaliðum í kaupgjalds-
samningi þessara aðila. Hér er
aðeins um bráðabjrgðasamkomu-
lag að ræða og eru samningam-
ir lausir eftir sem áður. — rs.