Þjóðviljinn - 29.01.1963, Síða 10
10 --------------------------------------- ÞJÓÐVILJINN
Þriðjudagur 29. janúar 1963
GWEN BRISTOW:
I
HAMINGJU
LEIT
Þegar hann nefndi Florindu,
tók hjartað i Gamet viðbragð.
Oliver hafði engan sérstakan á-
huga á Florindu Garnet hafði
sagt honum frá móður hennar
og föður og örunum á hand-
leggjum hennar. Oliver hlýddi á
hana en áhugi han.s var tak-
markaður Hann hafði hitt sæg
af furðulegasta fólki á ferðum
sínum og Florinda var aðeins
ein úr hópnum. Og þegar hann
minntist á Florindu i þetla sinn,
þá lét Gamet ekki uppi að hún
bæri neina viðkvæmni í brjósti.
Hún hló aðeins að hugmyndum
kaupmannanna um New York, og
Oliver bætti við:
— Þegar þú hittir mennina frá
Los Angeles, þá spyrðu þá einsk-
is og það mun fara vel á með
ykkur.
— Attu við að þeir eigi vafa-
sama fortíð? spurði hún hikandþ
— Nei, nei, ekki allir En það
eru óskráð lög, að þegar maður
fyrirhittir mann sem valið hef-
ur að setjast að fyrir vestan
Santa Fe. þá spyr maður ekki
hvers vegna. Ef hann vill gefa
upplýsingar um það. þá gerir
hann bað óbeðinn.
Útkíksmaður kom ríðandi til
móts við þau Hann stöðvaði
hestinn þegar hann kom að
vagninum. Oliver talaði við
hann
— Jæja. Rejmolds, hvað er
títt?
— Góðan daginn, frú Hale,
sagði reiðmaðurinn hressilega.
— Kanínulækurinn, sagði hann
við Oliver. — Við stöldrum við.
— Ágætt. Er vatn í læknum?
— Eitthvað lítils háttar.
— Þakka þér fyrir. Reynolds,
sagði Oliver Gamet stundi feg-
insamlega. Reynolds brosti til
hennar.
— Já, frú. Þannig líður mér
líka. Ég gæti étið upp heilan
uxa.
Hann hélt áfram ferð sinni
Hróp kváðu við um alla lestina:
— Kanínulækur!
Gamet klifraði yfir sætisbak-
ið og inn í vagninn. Hún fór að
hleypa niður segldúknum. Þetta
táknaði málsverð. þrjár blessaðar
klukkustundir með nægum mat
og hvíld Þegar hún var búin
að renna dúknum niður aUt í
kring, tók hún af sér sólhattinn
og hristi niður hárið og tók
þvottafatið uppúr kistunni. Hún
ætlaði ekki að fylla það fyrr en
vagninn stianzaði Þegar vagninn
var á hreyfingu sullaðist vatnið
útúr fatinu og fór til spillis.
Meðan hún beið burstaði hún á
sér hárið.
Hún fann að vagninn stóð
kyrr. Hún dró dúkinn frá að
framanverðu og kallaði til Oli-
vers.
— Er allt f lagi núna, Oliver?
— Já, allt í lagi. Geymdu
vatnslögg handa mér
Garnet gekk gegnum vagninn
og að afturhlutanum. Þar dýfði
hún fötu niður í valnstunnuna.
Karlarnir æddu um a]lt og hróp-
uðu og kölluðu eins og þeir
hefðu aldrei áð fyrri. Reynolds
reið framhjá rétt í þessu og
veifaði til hennar
Hún veifaði á móti. Síðan
renndi hún dúknum fyrir aftur,
fór úr kjólnum og þvoði sér eins
vel og hún gat uppúr vatns-
skammtj sinum Hún fléttaði
hárið í tvær fiétiur og brá þeim
yfir höfuðið. f svona ferðalagi
var fráleitt að hafa slegið hár
tii að safna í sig ryki. Þegar
hún var aftur búin að hneppa
að sér kjólnum. dró hún upp
hljðardúkinn og fór út úr vagn-
inum til að hella niður óhreina
vatninu Hún studdi olnboganum
á vagnhjólið og horfði á menn-
ina búa til corral
Stóru vagnami'r komu skrolt-
andi í fjórum röðum Þegar þeir
komu að læknum biðu þungu
vagnarnir þar til léttari vagn-
amir voru búnir að aka saman
: þéttum hnapp Þá þokuðu uxa-
’-úskamir vöruvögnunum til,
Hannig að þeir mynduðu fer-
Hvrnjng umhverfis íveruvaanana.
Mennimir spenntu uxana frá og
i bundu vagnana saman með fest-
>im. Þessi ferhvmingur var ejns
konar virki. Fyrir innan var
farangurinn. fólkið og dýrin í
öruggu skjóli
Þau höfðu ekki lent í neinum
illindum við indíánana Þegar
þau sáu indíánahópa, voru send-
ir á vettvang njósnaflokkar með
gjafir í annarri hendi og byssur
í binni og þegar búið var að
þvæla fram og aftur um eiiífa
vináttu, sneru njósnaflokkarnir
heim til lestarinnar aftiur. Gam-
et hafði komizt að raun um, að
Oliver hafði á réttu að standa
í sambandi við indíánana. Þeir
réðust yfirleitt ekki á vörulest-
irnar á leið til Santa Fe. Þeir
horfðu löngunaraugum á múldýr-
in og hrossin og stálu þeim ef
þau urðu viðskila við hópinn.
Fáir indíánar átitu skotvopn Þeir
höfðu lítið að gera í hendumar
á alvopnuðum karlmönnunum og
þeir vissu það. Hún hafðj ekki
séð indíána nær sér en hundrað
metra.
Mennimir höfðu op á virkinu
á einn veg, svo að hægt væri að
beita dýru-num fyrir utan. Verðir
tóku sér stöðu hér og þar um
svæðið. Kokkamir fóru útfyrir
og fóru að grafa holur fyrir bál-
in
Garnet fór líka út fyrir. Tutt-
ugu menn hjuggu burt Jágskóg-
inn við lækinn til að hægara
væri að komast að honum. Með-
an þeir hjuggu, báru aðrir menn
greinar í farveginn, svo að vagn-
arnir kæmust yfir án þess að
festast í ieðjunni. Aðrir lágu á
hnjánum og fylltu vatnstunnum-
ar Uxakúskarnir ráku uxana
að vatninu og bölvuðu svo að
neistamir hrukku. meðan þeir
ráku uxana niður með straumn-
um svo að þeir spilltu ekki vatn-
inu fyrir mannfólkinu Gamet
horfði með aðdáun á þetta allt
saman. Allar þessar athafnir
áttu sína sérkennilegu. hrjúfu
fegurð. Allir höfðu sitt ákveðna
verkefni. Það var ekki að undra.
þótt þessir náungar gsetu gert
gys að þreHum Armijos digra í
sambandi við tollinn.
Meðan hún horfði á þetfa,
fann hún kaffiilm berast að vit-
um sér Það minnti hana á að
hún hafði ekki bragðað mat síð-
an kvöldið áður. Hún hafði tekið
með sér bolla og skál úr vagnin-
um og nú svipaðist hún um eft-
ir matsveini Olivers.
Hún sá hvar hann sat framan
við dálitla gryfju, þar sem hann
hafðj gert eld úr vísundataði.
Hér var engan við að fá. Vik-
um saman hafði eldurinn nærzt
á vísundataði. Lágskógurinn var
óhentugur Hann logaði vel. en
var úfhrunninn áður en nokkuð
hafði hitnað nema potturinn að
utan
Kokkurínn var ungur. horað-
ur náungi frá Missouri og hét
Luke. Hann hafði fest upp tvær
sterkar jámstengur sitt hvorum
megin bálsins og fest þá þriðju
þvert á milli þeirra. Á þeirri
stöng hékk stærðar potfur með
vísundakjöfi og annar með
kaffi Hjá pottunum hafði Luke
komið fyrir mörgum. þunnum
flögum til að baka á brauð.
Brauðflögumar voru festar í
jörðina sitt hvorum megin við
gryfiuna og þær sköguðu úty'fir
bálið Kringum flögurnar hafði
Luke fest langa deigklumpa og
hann sat og sneri flögunum
varlega. svo að brauðið bakað-
ist á alla vegu.
Hópur af mönnum stóð þegar
í röð við bálið og beið matarins.
Þeir brostn til Gametar begar'
hún kom. Hún hrosti á móti og
spurði hvort erfitt yrði að kom-
ast vfir lækinn
Nei. frú. það vrði það ekki.
svöruðu þejr tjl. Þeir hefðu
gjaman viljað að það væri erf-
iðana, þvi að þá hefði lækurinn
verið vatnsmeiri Það var ekki
auðveþ að fá nóg drykkjarvatn
handa uxunum úr svona drullu-
pytti.
Meðan þeir töluðu horfðu þeir
á hana eins og hún væri feg-
ursta vera sem til væri í heim-
inum. Áður en Garnet fór frá
New York, hefði henni aldrei til
hugar komið, að menn gætu lát-
ið aðdáun sína í ljós svona opin-
skátt. Fyrst hafði það hneyksl-
að hana og auðmýkt hana. En nú
vissi hún, að húni varð að sætta
sig við þetta og hennar bezta
vörn var að láta sem ekkert
væri. Karimennirnir myndu sjá
hana í friði, bæði vegna þess
að þeir voru heiðarlegir menn
og vegna þess að sumir vissu
að Oliver myndi skjóta Þá, ef
þeir sýndu henni áreitni. Enda-
þótit hún hefði verið býsna fá-
fróð, þegar hún lagði upp í
ferðalagið, komst hún fljótlega
að því, að hún hefði hæglega
getað valdið vandræðum meðal
þejrra.
Hún var eina ameríska kon-
an í lestinni. Þar voru líka fjór-
ar mexíkanskar konur, eiginkon-
ur uxakúska, sem ferðuðust fram
og til baka á hverju ári til að
sinna eiginmönnum sínum Þeg-
ar Garnet gekk framhjá eldstæði
þeirra, brostu þaer alltaf kurt-
eislega og sögðu „Buenos dias,
senora,“ En þær gerðu enga til-
raun ti! að komast í nánara
samband við hana, vegna þess
að mennimir þeirra voru uxa-
kúskar en Oliver kaupmaður og
milli þeirra var staðfest regin-
djúp í ferðalaginu.
Garnet reyndi að umgangast
karlmennina á þægilegan en
ópersónulegan hátt. Sumir þeirra
forðuðust hana. aðrir notuðu
hvert tækifæri til að tala við
hana, enn aðrir voru óþægilega
kurteisir. Aðeins örfáir, eins og
t.d Reynolds, höfðu nægilegt
sjálfstraust til að umgangast
hana á frjálslegan og eðlilegan
hátt Hún hafði tekið eftir því,
að þegar þau tóku sér náttból,
var alltaf bil á milli vagns þeirra
og hinna íveruvagnanna. TJxa-
kúskamir sem vöfðu sig í ullar-
teppi og sváfu undir berum
himni. hölluðu sér aldrei útaf
í nánd við vagninn þeirra.„Þetta
var ekki af því að mennirnir
væru svo sérstaklega tillitssam-
ir. Það var aðeins vegna þess
að þeir vildu ekki koma nærri
því sem þejr kærðu sig eklci um
að rifja upp fyrr en í Santa
Fe Oliver hafði ekki talað um
þetta við hana. Hún vissi ekki
einu sinni hvort hann vissi að
hún hafði tekið eftir því
En ekkj einu sinni Oliver, sem
hún dáði og elskaði. vissi hversu
mikið hún hafði lært í ferðinni.
í bær sex vikur sem ferðin
hafði staðið, hafði hún lært
meira en öll árin i skólanum.
Auk þess sem líkaminn varð
sterkari og stæltari, varð hug-
ur hennar einnig stæltari. Hún
vissi ekki hvort hún gæti komið
orðum að þessu Jafnvel þótt hún
hefði getað það. hafði hún enga
aðra konu að tala við. og hún
var ekki viss um að karlmaður
myndi skilja það.
Hún óskaði þess að önnur
amerísk kona hefði verið með í
ferðinnj Hún hefði getað létt
svo mjög á hjarta sínu við vin-
konu Og þótt þær hefðu ekki
talað um þetta. hefðu þær getað
talað um svo margt annað. Þær
hefðu getað rætt um það hve
erfitt væri að þvo á sér hárið
þegar vatnið var af svona skorn-
um skammti og þær hefðu get-
WHAT PO THEY USe)
'T for?-^HL/Taf?e you'
rDUMB? THAT'S
'THE STUFF "THEV
U5E ÍNSTEAP OF
—v. WASHINO! .
Rollingarnir þrír ganga fram
hjá sýningargluggum snyrti-
vöruverzlunar. Þá hrópar einn
þeirra: — Sjáiði! Speglaborð-
ið hennar Dísu!
Annar: — Nei sko! Hvað
skyldi vera í þessari krukku?
Þriðji: — Kanntu ekki að
Iesa, eða hvað? (Á krúsina cr
límdur miði með áletruninni
„IIreinsikrem“i.
Fyrsti: — Til hvers notar
kvenfólk þetta? Annar: —
Ertu bjáni? Þetta er það sem
þær nota í stað þess að þvo
sér. Þriðji: — 1 staðinn fyrir
þvott!
Við búðarborðið: — Gjöra svo
vel að selja mér stóra krús
af hreinsikremi!
SKOTTA
Það er verið að flytja sjónvarpsviðtækið úr einbýlishúsinu við
Strákasund á viðgerðarstofu, þegar Skotta á Ieið um gðtuna
ásamt vinkonu sinni. Skotta segir: „Ú-ó. Þarna passa ég
ég ekki börnin næstu dagana!"
RúðugSer
Verðlækkun
A flokkur 3 mm Verð per ferm. fcr. 69.00.
B flokkur 3 mm. Verð per ferm. kr. 59,00.
Söluskattur innifalinn.
Marz Trading Company H.f.
Klapparstíg 20 — Sími 17373.
UTSALA
HELDUR ÁFRAM.
Herraföt, drengjaföt, frakkar, stakar buxur.
Mikill afsláttur.
Elltima 1
Kjörgarði.
Geymsluhúsnœði
Bílskúr eða annað pláss á götuhæð ca. 30
til 40 ferm. óskast nú þegar. Mætti vera í
Kópavogi. Góð aðkeyrsla nauðsynleg.
Upplýsingar í síma 17500.