Þjóðviljinn - 13.02.1963, Page 5
-— ---------------- ÞJÓÐVILJINN---
fyrir 8. st. vinnu verð-
duga meðal fjölskyldu
Miðvikudagur 13. íébrúar 1963
Kaup
ur að
Um helmingur fundartíma
neðri deildar Alþingis í gær
fór enn í 1. umræðu um frum-
varp Einars Olgeirssonar um
áætlunarráð ríkisins, og varð
umræðunni enn ekki lokið.
Tveir þingmenn töluðu, Þórar-
inn Þórarinsson og Hannibai
Valdimarsson, og var ræðu
Hannibals ekki lokið 'pegar
fundartíminn var allur.
Þórarinn Þórarinsson and-
mælti ummælum Gylfa varð-
andi vinnuþrælkun og baett
kjör almennings, en aðalhluti
ræðu hans fjallaði um „ást
Sjálfstæðisflokksins á Einari
Olgeirssyni" og mátti heita
samfelld túlkun á heitri aí-
brýðissemi Framsóknarflokksins
og harmakvein vegna þess að
sá flokkur skyldi ekki hafa
algjöran einkarétt á stjórnar-
samstarfi og samstarfi að af-
greiðslu mála með Sjálfstæðis-
flokknum. Var enn diskað upp
með hinar venjulegur Fram-
sóknarlummur um „kosningar í
Norðurlandaráð“ „kosningar í
Sogsstjórn“ og „eftirlaun Brynj-
ólfs Bjarnasonar". Var það á-
lyktun Þórarins að einungis
éinn sterkur flokkur íhaldsand-
stæðinga gæti sigrað íhaldið. og
það vséri hinn hreini, frjáls-
lyndi vinstri flokkur, Fram-
sóknarflokkurinn.
★
Hannibal Valdimarsson svar-
aði kveintöfum Þórarins með
því að minna á að allir þing-
flokkamir hafa haft stjórnar-
samstarf við alla hina á undan-
förnum áratugum. svo vandséð
sé hver geti brigslað öðrum um
slíkt, hitt skipti meira máli um
hvað samvinnan sé höfð.
Spáði Hannibal því. að þeg-
ar liði að kosningum
það verða Framsóknarflokkur-
inn sem yrði einna tregastur til
svars við þeirri spurningu hvort
hann ætlaði að vinna með
kommúnistum eftir kosningar!
Hins vegar yrði Framsókn kraf-
in kröftuglega svars. Henni
myndi ekki haldast það uppi
að sigla undir1 rauðum fána i
kosningabaráttunni. flagga rót-
tækum málum, en halda svo
beina leið inn í íhaldsstjóm
með það kjörfylgi vinstri
manna í landinu sem hún hefði
fengið til fylgis við sig á röng-
um forsendum.
Vitnaði Hannibal i háttsettan
Framsóknarmann sem hefði
gefið þau svör, þegar flokks-
bróðir hans spurði hann þess-
arar samvizkuspurningar. áð
Framsóknarmenn væru orðnir
svo lífsreyndir, svo miklir
diplómatar, að þeir teldu sig
eiga erfitt að svara slíkri spum-
ingu fyrir kosningar. Aðstæð-
urnar gætu breytzt eftir kosn-
ingarnar svo að bezt væri að
hafa haft sem fæst orð um
slíkt fyrir þær!
Þórarinn hafði um það fög-
ur orð að Framsóknarmenn í
verkalýðsfélögunum hefðu
kennt „kommúnistum" þar
sanngirni og hófsemi í kaup-
kröfum og samvinnuhreyfingin
hefði svo átt meginhlut að leið-
réttingu kaupsins. Hannibal
taldi að sanngirni og hófsemi
hefði verkalýðshreyfingin áður
átt, og myndi enginn neita því
sem kunnugur væri. En mæli-
kvarðinn sem Þórarinn hefði
stillt upp. að kaupið mætti ekki
hækka meira en atvinnuvegirn-
ir bæru, væri engin föst mörk.
um það væri einmitt deilt
hversu mikið atvinnuvegirnir
bæru. Samvinnuhreyfingin
hefði ekki talið sér fært undan-
farið að koma eins ósanng.jarn-
lega fram gagnvart verkalýðs-
hreyfingunni og aðrir vinnu-
veitendur og komið til móts
við verkalýðsfélögin til leiðrétt-
ingar í kaupgjaldsmálum.
En verkalýðurinn hefur ekki
fengið sinn réttláta hlut af
þjóðartekjunum né af hinni
mikul aukningu þeirra undan-
farið. Á því verður að verða
breyting, það verður að rétta
hlut launþega frá því sem nú
er, um það breytir engu sú 5%
Iaunahækkun sem nú hefur
fengizt með semingi.
*
Hannibal ræddi þar næst um
frumvarpið, ákvaeði þess um á-
ætlanagerð um þjóðarbúskap
tima. I því sambandi tók hann
einnig til meðferðar yfirlýsing-
ar ríkisstjórnarinnar um „fram-
kvæmdaáætlunina miklu“ sem
svo væri nefnd i áróðrinum og
taldi ekki seinna vænna að rík-
isstjórnin færi nú að sýna það
plagg, ef líkindi væru til að
kosningarnar yrðu strax í vor.
á sneri hann sér að ræðum
Gylfa Þ. Gislasonar og tók
hressilega og hvasst til endur-
skoðunar hugmyndir Gylfa um
þróun verkalýðsmála hér á
landi undanfarna áratugi og
verður vikið að þeim kafla
ræðunnar síðar.
★
Ummæli Gylfa og fullyrðing-
ar um baett kjör alþýðu á Is-
landi fyrir áhrif viðreisnar-
stjórnari'.rar tók Hannibal sér-
staklega til meðferðar. 1 ræðu
sinni hefði Gylfi talið sig sanna
tvennt: Að kaupmáttur verka-
mannalauna væri nú 10% hærri
en í byrjun viðreisnarinnar, og
að meðaltalstekjur verkamanna,
sjómanna, og iðnaðarmanna
væri nú 98 þúsund krónur á
ári.
Hefði ráðherrann véfengt að
rétt væri að miða við lægsta
taxta Dagsbrúnar, taxta fyrir
almenna verkamannavinnu.
þegar um kaupmátt tímakaups-
ins væri að ræða. Rétt væri að
það væri ekki hárnákvæmt,
þar sem nokkrar tilfærslur
hefðu orðið milli taxta frá 1958
og því ekki alveg sambærilegt
við núverandi ástand. En 1958
hafi lægsti taxti Dagsbrúnar
verið almennt verkamannakaup
um land allt. Og það sé hann
enn, hann gildi sem almennt
verkamannakaup kringum allt
land með óverulegum frávikum.
og því sé þetta rétt viðmiðun
þegar um er að ræða kaup ó-
faglærðra verkamanna. jafnt nú
og 1958.
Og með því að miða við tima-
kaupið sé þó miðað við verk-
einingu, eina klukkustund. Eigi
að miða við árstekjur sé gjör-
ólíkur vinnutími borinn sam-
an. Þá mætti miða við 8—9
stunda meðaltíma 1958 en með-
alvinnutími nú væri varla und-
ir 11 stundum.
Hvað þýðir tala ráðherrans um
sem meðaltekjur ef reiknað er
með Dagsbrúnarkaupi? Tekjur
upp á 98 þúsund krónur á ári
jafngilda því að Dagsbrúnar-
maður ynni meira en 12 klukku-
stunda vinnudag alla virka
daga ársins, 8 stundir í dag-
vinnu, 2 stundir i eftirvinnu
og 2 í næturvinnu. Þessi tólf
stunda vinna hefði gefiið hon-
um 94.800 kr. í árstekjur, áður
en 5% komu til. Hann hefði því
þurft að vinna á 13. stund
hvern virkan dag allt árið til
þess að fá þær meðaltekjur sem
ráðherrann var að flagga með.
með.
★
Néi, hér er farið rangt með
tölur, sagði Hannibal. Enda
sést það bezt hvort kaupmátt-
urinn launanna hefur aukizt,
að kaupgjald skuli einungis
hafa hækkað um 4% frá 1959
(áður en 5% komu til) en verö-
lag vöru og þjónustu hefur á
sama tíma hækkað um yfir
40%. Enda sé það andstæít
allri reynslu þeirra sem kaupa
þurfi nauðsynjar til heimilis
að vinnutekjur endist nú bet-
ur til þess en fyrir nokkrum
árum.
Gylfi hefði sjálfur játað að
ekki væri hægt að færa fram
óyggjandi tölurök í þcssu máli.
Samt hafa tölurök Gylfa verið
birt í tímaritinu Nordisl? Kont-
akt sem óyggjandi, að kaup-
máttur launanna hafi hækkað
á íslandi um 10% og meðal-
talslaun verkamanna. sjómanna
og iðnaðarmanna séu nú 98
þúsund krónur- Þetta tekju-1
mark er áreiðanlega rangt hvað j
verkamenn snertir, þó góðæris- |
tekjur sjómanna og iðnaðar-
manna kunni að ná því.
Kaupið þarf aö vera að
minnsta kosti svo hátt, að
með átta stunda vinnudegi geti
verkamaður með meöalfjöl-
skyidu unnið fyrir lífsnauðsynj-
um sínum. Það er langt frá
því að svo sé hér með verka-
mannakaupið. Hér þarf hvorki
meira né minna en 11 stunda
vinnu hvern virkan dag til að
ná því kaupi sem talið er í
útreikningi vísitölunnar að fjög-
urra manna f jölskylda þurfi sér
til lífsframfæris.
Það er röng niðurstaða Gylfa
að kjör launþega á Islandi
hafi batnað í tíð núverandi
ríkisstjórnar og að hlutur laun-
þega x þjóðartekjunum hafi
haldizt óbreyttur, sá hlutur hef-
ur rS’rnað, um það er ekki að
villast. Alþýða landsins hefur
orðið fyrir því að laun henn-
ar hafa verið skert og kjor
hennar rýrnað á síðustu árum.
Og orsökin er þjónusta Alþýðu-
flokksins við þá afturhaldsr
stefnu sem hér hefur verið
stjórnað eftir.
★
Fleiri atriði úr ræðu Hanni-
bals verða birt síðar.
Minningarspjöld
■k Minningarspjöld Sjálfs-
hjargar. félags fatlaðra. fám
á eftirtöldum stöðum: Bóka-
búð tsafoldar. Austurstræti —
Bókabúðin. Laugarnesvegi 5’
— Bókaverzlun Stefáns Stef-
ánssonar. Laugavegi 8 —
Verzlunin Roði. Laugavegi 14
— Reykjavíkur Apótek. Lana-
loltsvegi — Garðs Apótex
Hólmgarði 32 — Vesturbæj-
ír Apótek — I Hafnarfirði:
Valtýr Sæmundsson. öldu-
5ötu 9.
myndi . islendinga til langs og skamms
§§ ÚTGERÐARMENN - BÁTAEiGENDUR
9f)
&ó
Með hinum lieimsþekktu PERKINS diesel-
vélum býðst yður: —
Óumdeild tæknileg gaeði. —
Bezta verðið á markaðinum. —
Þrautreyndar vélar. —
Perkinsverksmiðjurnar eru stærsti framleið-
andi heims í dieselvélum af stærðunum 30 til
125 Hö. — sem bátavélar, ljósavélar o.s.frv.
125 ha. bátavélin 6. 354M með sjóforkældu
ferskvatnskerfi. olíuskiptum gírkassa og niður-
urfærslu 3:1, kostar aðeins um 131 þúsund
krónur með tollum.
Leltlð nónari upplýsinga
DÆMI UM VERÐ:
87 ha. iðnaðan’élin 6. 3051, sem notuð er
sem ljósavél, með frystjvélum og svo fram-
vegis kostar aðeins um 57 þúsund krónur
með tollum.
DRÁTTARYÉLAR h.f.
- SlÐA g
Útgefandi: Sameimngarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokk-
urinn. —
Ritstjórar: ívar H. Jónsson. Magnús Kjartansson, Sigurð-
ur Guðmundsson (áb)
Fréttaritstjórar: Jón Bjarnason. Sigurður V Friðþjófsson.
Ritstjórn anpiýsingar. prentsmiðja: Skólavörðust. 19-
Sími 17-500 (5 línur). Áskriftarverð kr. 65 á mánuði.
Gerhreyting óhjákvæmiieg
j^/jorgunblaðið ræðir í síðustu forustugrein sinni
í gær um þá 5% kauphækkun sem almennu
verklýðsfélögin hafa fengið að undanförnu og
segir að með henni sé ætlunin „að greiða fyrir
því, að hinir lægst launuðu fengju raunhæfar
kjarabætur, þannig að laun þeirra einna hækk-
uðu“. En því aðeins hafi þessar kjarabætur gildi
„að aðrar stéttir fylgi ekki í kjölfarið“, og því
verði staðið gegn öllum öðrum kauphækkunum
hjá öllum öðrum aðilum í þjóðfélaginu. Þessi
staðhæfing er þeim mun kynlegri sem í fyrsfu
forustugrein blaðsins er farið fögrum orðum um
tilboð ríkisstjórnarinnar til opinberra síarfs-
manna, en ríkisstjórnin kveðst leggja til að kaup
þeirra hækki að meðaltali um 15—16% og hjá
sumum starfshópum um allt að því 60%. Rík-
isstjórnin veit jafnvel og aðrir að þetta tilboð
fær engan veginn staðizt og að kjarabæturnar
til opinberra sfarfsmanna hljóta að verða mikl-
um mun meiri. En það hlýtur að verða býsna
mikið vandamál fyrir Morgunblaðið að búa til
eina forustugrein úr þessum tveimur.
§ú 5% kauphækkun sem nokkur hluti verk-
lýðsstéttarinnar hefur fengið er að sjálf-
sögðu ekki lausn á nokkrum vanda. Vísitala
ríkisstjórnarinnar sjálfrar sýnir að á hálfu ári
hefur almennt verðlag í landinu hækkað um
rúmlega 10%. Kauphækkunin vegur þannig að-
eins upp helming þessara verðhækkana, og al-
mennu verklýðsfélögin búa við lakari kost en
þegar seinast var samið fyrir mitf ár í fyrra.
Enda hefur ekkert verklýðsfélag — ekki einu-
sinni þau sem stjórnarflokkarnir hafa forustu
fyrir og fengu hækkunina þess vegna seinna
en aðrir — tekið þessa kauphækkun gilda sem
samningsatriði; þau hafa öll lausa samninga eff-
ir sem áður og hyggja á að afla mun betri
hlutar.
það er einníg tilgangslaust fyrir stjórnarblöðin
að halda því fram að vandinn í kaupgjalds-
málum sé ekki meiri en svo að unnt sé að leysa
hann með einhverri hungurlús fil þeirra sem
búa við skarðastan hlut. Staðreyndin er sú að
það er orðið óhjákvæmilegt að gerbreyta allri
vinnutilhögun á íslandi. Öðaverðbólgan hefur
raskað öllu greiðslufyrirkomulagi í þjóðfélaginu
og gerf allt vinnuskipulag að hreinum óskapn-
aði, þar sem aðalstörf eru einatt orðin að aukaat-
riði í samanburði við yfirvinnu og aukagreiðsl-
ur. Undan því verður ekki komizt að fram-
kvæma altæka breytingu á þessu fyrirkomulagi
öllu. Það væri meira að segja hægt að gerbreyta
lífskjörum manna án þess að auka launamagn
það sem er í umferð í þjóðfélaginu, með því að
tryggja mönnum óskertar árstekjur fyrir eina
saman dagvinnu, og það er mikill misskilning-
ur ef einhverjir ímynda sér að afköstin myndu
minnka við þá brey'tingu. En til þess að einhver
varanleg lausn fáist þurfa valdhafarnir að hætta
beirri eiturlyfjaneyzlu sem nefnist skipulögð
v/erðbólga. — m.
»
i
I