Þjóðviljinn - 26.02.1963, Side 1
Þriðjudagur 26. febrúar 1963 ---- 28. árgangur — 47. fölublað.
ÁSKRIFENDASÖFNUNIN
Munið áskriftasöfnun Þjóðviljans. Takmarkið er: 500 nýir
áskrifendur fyrir 1. apríl n.k. Sá er fyrstur útvegar 10 nýja
áskrifendur hlýtur að verðlaunum ferðaútvarpstæki. Einnig
verða veitt bókaverðlaun.
'•?ffS:^WTOW?íí¥Jfí®í'í!5^:5S;!-’5ÍÍÍ
V-s •
.
Igor Stravinsky, höfund-
ur „Sögunnar af dátan-
um“, sem utvarpið flytur
í kvöld —
sjá frétt á 2. síðu.
Eindreginn sigur
vinstri manna í
Trésmílaféiaginu
Kosningarnar í Trésmiðafélagi Reykjavíkur nú
um helgina urðu eindreginn sigur fyrir vinstri
menn í félaginu, sem ekki hafa fengið jafngóða
útkomu við stjórnarkosningu áður. Listi vinstri
manna hlaut nú 290 atkv. og 63 atkv. fram yfir
íhaldslistann, sem hlaut 227. 5 seðlar voru auðir.
Við stjórnarkosninguna í fyrra var munurinn að-
eins 16 atkvæði.
20 merin fórust í eldhofi
er tvö olíuskip rákust á
Sjá frétt á 3. síðu
tJlfar Kristjánsson.
íslenzkur
tréskurður
Þetta er einn af gripunum
á afmæiissýningu Þjóð-
minjasafnsins: Skápur frá
17. öld. — Frá opnun
afmæliissýningarinnar í
fyrradag er nánar skýrt á
3. síðu. (Ljósm. Þjóðv. A.K.)
Samkvæmt úrslitum kosning-
anna verður stjóm Trésmiðafó-
lags Reykjavíkur þannig skipuð:
Formaður: Jón Suorri Þor-
leifsson.
Varaformaður: Sturla H. Sæ-
mundsson.
Ritari: Þórður Gíslason.
Vararitari: Hólmar Magnússon.
Gjaldkeri: Ásbjörn Pálsson.
Boliudagurinn var í gær. Þá hef-
ur líklega verið mikið um rúm-
rusk og flengingar á barnmörg-
um heimilum. Hér eru tvær liitl-
ar dömur og ejnn herra með
alvæpni og er ekki að sjá, að
þeim sé meira en svo um ljós-
myndarann gefið. Líklega haft
hann grunaðan um að vera
nízkur á bollur. (Ljósm. Þjóðv.
G. O.).
Varastjórn: Sigurjón Pétursson,
Jón Sigurðsson, Einar L. Haga-
lsnsson.
Ihaldið ætlaði sér mikinn hlut
í þessum kosningum. Þó höfðu
frambjóðendur íhaldslistans ekk-
ert til málanna að leggja i hags-
munamálum og félagsmálum tré-
smiðanna — nema að veifa
kommúnistagrýlunni. En meiri-
hluti trésmiðanna lét ekki hræða
sig með grýlu og kaus stjóm
með hliðsjón af þeim árangri
sem náðst hefur í kjaramálum og
öðrum félagsmálum undir for-
ystu vinstri manna undanfarin
þrjú ár, — og minnugir eymd-
arstjómar íhaldsins 1957—’59.
Samheldni vinstri' manna í fé-
laginu var enn sem fyrr með
ágætum, enda þótt lítið þætti
fara fyrir liðveizlu Tímans í
baráttunni.
Trésmiðir í Reykjavík og ná-
grenni hafa kosið félagi sínu
trausta og samhenta forystu, sem
líkleg er til að treysta það álit
sem Trésmiðafélag Reykjavíkur
hefur verið að ávinna sér síð-
ustu árin sem stéttarfélag í
fremstu röð í kjarabaráttu reyk-
vískra launþega.
# eldsvoða
Á sunnudagsmorguninn laust íyrir kl. 8 kvikn-
aði í húsinu númer 94F við Suðurlandsbraut. Hús-
ið fuðraði upp á mjög skömmum tíma og 3 mann-
eskjur brunnu inni. Húsmóðirin Helga Elísbergs-
dóttir og 5 ára dóttir hennar, Elísa, í svefnherbergi
á efri hæð, einnig Úlfar Kristjánsson rafvirki, sem
var gestkomandi í húsinu og svaf í stofu á neðri
hæð. Húsbóndinn, Rjörn Kjartansson húsgagna-
smiður og 3 önnur börn þeirra Helgu björguðust
naumlega úr eldinum, en eitt barnið, Sesselja 9
ára, liggur mikið brennd á Landakotsspítalanum.
Helga Elísbergsdóttir,
Eldurinn magnaðist svo fljótt,
að lítið ráðrúm gafst. Björn mun
hafa vaknað fyrstur við að reyk
og eld lagði innum svefnher-
bergisdyrnar, en hann svaf þar
ásamt konu sinni og dætrum,
Elísu og Sesselju. Björn reyndi
að vekja konu sína og braut
síðan rúðu og kallaði á hjálp.
Þá mun hann hafa kastað sér
út um gluggann og náð í stiga,
sem hann reisti við húsið. Þeg-
ar hann kom upp stigann var
herbergið alelda, en Sesselja
dóttjr hans komin að glugganum.
Gat hann náð til hennar og
komið henni niður.
I herbergi á neðri hæð sváfu
systkinin Ásta 11 ára og Pétur
5 ára, tvíburi Elísu. I sófa í
stofunni svaf Úlfar Kristjánsson
rafvirki nágranni þeirra hjóna.
Ásta vaknaði við hrópin í föð-
ur sínum, greip bróður sinn og
ætlaði fram í gegnum eldhúsið.
Þar var svo magnaður eldur
fyrir að hún komst hvergi og
tók það ráð að fara gegnum
glugga á herberginu.
Úlfar var í þeim hluta hússins,
sem mest brann og var engin
leið að komast að honum til
björgunar.
Húsið, sem þessi harmleikur
gerðist í var einlyft timburhús
með risi, byggt fyrir 6—7 árum.
Húsið stóð í svokölluðu Herskála-
hverfi, en þar er mikið af svip-
uðum húsum, þau standa þétt
og voru næstu hús í nokkurri
hættu. Slökkviliðinu tókst þó að
verja þau í þetta sinn.
Taljð er að kviknað hafi í út-
frá olíukyndingu, sem staðsett
var í einu horni hússins. Vegg-
irnir að þessu horni eru alveg
hrundir, en hinir tveir standa. 1
Allir innviðir og innbú er brunn-
ið.
Helga heitin var 29 ára göm-
ul og Elísa litla 5 ára. Úlfar
heitfnn var 32 ára og lætur eftir
sig konu og þrjú börn.
Eiísa Björnsdóttir.
*
I
#