Þjóðviljinn - 19.03.1963, Síða 12
: .
Innbrot framtt
á Selfossi
Selfossi í gær. — Aðfaranótt
sunnudagsins var brotizt inn í
Sælgætisverzlun S. Ölafssonar &
Co. og stolið nokkrum lengjum
af sígarettum og smávegis af
sælgæti. Þessi sælgætisverzlun er
opin til kl. 10 á kvöldin og er
starfrækt með benzínsölu.
Rúða var brotin á útidyrum og
komst þjófurinn þannig óhindr-
aður inn og lét greipar sópa um
helztu nauðsynjar.
Seinna um nóttina sást maður
á hlaupum í næturmyrkrinu og
missti hann eina sígarettulengju
í götuna og er talið, að þjófurinn
hafi verið þar á ferð, en hann
bvarf óþekktur út í nóttina.
Málið er í rannsókn hjá lög-
reglunni á Selfossi.
Ók útaf til að
forða árekstri
Á sunnudaginn varð það slys á
Suðurlandsbraut á móts við
Lækjarhvamm, að bifreiðinni R
3212 var ekið út af veginum og
rann hún um 30—40 metra áður
en hún stöðvaðist. Slys varð ekki
á mönnum og bifreiðin sjálf
skemmdist furðulítið. Tildrög að
slysi þessu voru þau, að bifreiða-
stjórinn á R 3212 ætlaði að aka
fram úr annarri bifreið en um
leið beygði sú bifreið inn á götu
til hægri og tók bílstjórinn á R
3212 þá þann kost að aka út af
veginum til þess að forða á-
rekstri.
Bæjarstjéri
kosinn
Syðisfirði 18/3 — Bæjarstjórn-
arfundur var haldinn í dag og
var þar formlega kjörinn bæjar-
stjóri Hrólfur Ingólfsson frá
Vestmannaeyjum og tekur hann
við embætti um mánaðamótin
maí og júni.
Öli Hertervig, síldarsaltandi frá
Vopnafirði hlaut þrjú atkvæði
Sjálfstæðismanna og þótti raunar
undarlegt, þar sem maðurinn
hafði ekki sólt formlega um
stöðuna.
Fjárhagsáætlun. var samþykkt
á þessum fundi og urðu niður-
stöðutölur kr. 5.082.500.00. Útsvör
og aðstöðugjöld kr 3.875.000.00.
Mikill undirbúningur er hér
jundir byggingarframkvæmdir og
brannast upp lóðaumsóknir og er
reyndar mikill húsnæðisskortur
hér í bænum. St. St.
Piltur mciðist
Um kl. 12 á hádegi i gær varð
14 ára piltur, Steinar Þórðarson
að nafni, fyrir bifreið á Brúna-
vegi og skarst hann dálítið á
höku og meiddist smávegis á
fæti. Var hann fluttur í slysa-
varðstofuna. Pilturinn var á
reiðhjóli og rakst á bifreiðina.
reisir
félagsheimili
Hestamannafélagið Fákur
hefur nú tekið í notkun glæsi-
legt félagsheimili á athafna-
svæði sínu við Elliðaár. Árið
1959 hófust byggingarfram-
kvæmdir á þessu svæði með
því að reist voru tvö hesthús,
sem tóku 50 hesta og síðan
hafa verið reist tvö hús ár-
lega og nú er svo komið að
þar eru 223 hestar í húsum.
Skipulagið leyfir byggingu 8
húsanna í viðbót og verður
|
h þá hægt að geyma 450 hesta
á þessu svæði.
Nokkuð hefv’- ' * 1 "•
lagslífinu að engin aðstaða
hefur verið á svæ. iu ao
að skola af sér ferðarykið og
kverkamar í kaffi eftir út-
reiðartúr. Því var ákveðið á
síðasta ári að hefjast handa
um undirbúning félagsheimil-
isbyggingar og voru kosnir í
byggingamefnd þeir Þorlákur
Ottesen, formaður félagsins,
Sigvaldi Thordarson arkitekt
og Sveinn K. Sveinsson verk-
fræðingur. Sigvaldi hafði áð-
ur teiknað hesthúsin og sá nú
um teikningar að heimilinu.
Húsið er 240 m2 að stærð með
80 m2 veitinga- og samkomu-
sal, 80 m2 húsvarðaríbúð, ?ld-
húsi, forstofu, snyrtiherbergi-
um og fundarherbergi. Húsið
er allt hið vandaðasta og
smekklegt.
Yfirsmiður var Sigurður
Þorsteinsson, Ólafur H. Páls-
Félagsheimili Fáks við Eliiða-
ár. (Ljósm. Þjóðv. G. O.).
son sá um múrverk, Magnús k
Gíslason múrarameistari hlóð ^
kamínu og steinvegg í miðju S
hússins, Sigurður Halldórsson ^
teiknaði raflögnina, Rafgeisla-
hitun lagði raflagnir og Gísli
Halldórsson sá um pfpulagnir.
Þar að auki lögðu fjölmargir
velunnarar félagsins hönd á
plóginn.
Allmikil starfsemi er nú á
svæði félagsins við Elliðaár.
Rosemarie Þorleifsdóttir reið-
kennari veitir forstöðu reið-
skóla og kennir 5 daga vik-
unnar við miklar vinsældir.
alls um 100 börnum á viku.
Alls eru nú 328 hestar í
hesthúsum félagsins og á skrá ^
eru 450 félagar. Stjómina h
skipa nú Þorlákur Ottesen "
formaður, Haraldur Sveins-
son varaformaður, Jón Bjöms-
son gjaldkeri, Einar Sæ-
mundsen ritari og Ingólfur
Guðmundss. meðstj. — Vara-
stjóm skipa Bjöm Halldórs-
son og Bergur Magnússon.
li
Islenzk sinfónía" eftir
amerískt tónskáld
Á næstu tónleikum Sinfón-
íuhljómsveitar íslands verð-
ur frumflutt ný sinfónía eft-
ir bandaríska tónskáldið
Henry Dixon Powell; kallar
hann hana „íslenzku sinfón-
íuna“ og tileinkar hana
minningu Vilhjálms Stef-
ánssonar landkönnuðar, en
hann lézt um þær mundir er
tónskáldið vann að sinfón-
íunni „fyrir William Strick-
land og Sinfóníuhljómsveit
íslands“ eins og hann kemst
sjálfur að orði.
Frímann Hclgason brá sér tii Noregs um heigina, og var við-
itaddur hina sögulegu skíðastökkkeppni á HolmenkoIIen á sunnu-
laginn. Holmenkollen-mótið vekur ætíð heimsathygli íþróttaunn-
tnda, og stökkkeppnin cr hápunktur þess. Við eigum von á frásögn
l'rímanns af keppninni cinhvern næstu daga.
\ Um næstu helgi verður Frímann viðstaddur Norðurlandameist-
tramót unglinga í handknattleik, en það fer fram í Hamar í Nor-
tgi. Mun Frímann senda Þjóðviljanum fréttir al mótinu jafnharðan.
Powell og fyrirsvarsmenn Sin-
fóníuhljómsveitarinnar áttu fal
við blaðamenn í gær.
Powell er fæddur 1897 i Kali-
forníu. Hann tók snemma að
fást við músik: Ég heyrði barn-
ungur mikið af austurlandatón-
list þar vestra og hún hefur
sjálfsagt haft töluverð áhrif á
mig. Fimm ára gamall hafði ég
kennara, hálfáttræðan Englend-
ing, mjög sérvitran mann sem
kenndi mér Haydn og Mozart
og vildi ekki heyra minnzt á
„nútímavitleysu“ eins og Schu-
mann En hjá föður mínum
heyrði ég írsk þjóðlög. Þetta
var upphafið. Ég lék á fiðlu
þar til ég var átta ára, þá
hætti ég og tók að semja mús-
ík. Ég var að vísu hljóðfæra-
laus, en sat og rejmdi að hugsa
músík.. .
— Ég kynntist íslenzkri, þjóð-
legri músík, tvisöng og rímum í
Berlín 1931—32 og hafði Jón
Leifs hljóðritað, og hlustaði ég
á þetta af kappi. Nokkru síðar
safnaði ég allmörgum íslend-
ingum heim til mm í San Frans-
isco og voru þeir fyrst minnis-
litlir, en þó fór svo að lokum
aðr þeir sungu.
íslenzku sinfóníuna samdi ég
í fyrra, og tileinkaði hana minn-
ingu Vilhjálms Stefánssonar,
sem var góður vinur minn. Ég
nota aðeins eitt íslenzkt stef
í öðrum af hinum fimm þáttum
sinfóníunnar, en ég má segja
að hún sé öll samin í anda þjóð-
legrar íslenzkrar tónlistar. Mér
finnst að íslenzk þjóðlög séu ein
þjóðlaga orðin til í skala sem
bendir rökrétt til atónaltónlist-
ar samtímans; hinsvegar sé hin
evrópska atónalmúsík Schön-
bergs. Bergs, Weber nokkuð
,,tilbúin“, ekki grundvölluð á
þjóðlegri músík Þetta finnst
mér mjög spennandi staðreynd,
og þessvegna er þessi nýja sin-
fónía þannig byggð að hún er
fyrst tónðl en þróast síðan upp
í atónalítet...
Henry Dixon Powell ræðir við
frét.tamenn. (Ljm. Þjóðv. A.K.).
Það kom á daginn að Pow-
ell og Strickland hljómsveitar-
stjóri hafa um langt skeið haft
samband sín á milli, en það
er í fyrsta sinn nú að þeir
vinna saman að flutningi verks
eftir tónskáldið, og hefur sú
samvinna gengið mætavel, þótt
Strickland segi að vísu að það
sé hættulegt að hleypa tón-
skáldum á æfingar á verkum
þeirra Munu þeir fara utan á
mánudag. Strickland fer til
Hgfnar en Pcwell til Hannover
og Hamborgar, en síðan hittast
þeir í Berlín. þar sem Strick-
land stjórnar flutningi á verk-
um tónskáldsins.
Á tónleikum Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar verða auk þessar-
ar nýju sinfóníu flutt þrjú verk.
Hið fyrsta er Inngangur og
Allegró fyrir strokhljóðfæri
eftir Elgar. Þá músík við
Galdra-Loft eftir Jón Leifs (áð-
ur flutt á norrænni tónlistarhá-
tíð 1938) ■— og les Gunnar Eyj-
ólfsson hlutverk Lofts. Enn-
fremur verður flutt svíta sem
Thomas Beecham hefur samið úr
einni af óperum Deliusar.
Oryggisflauta kost-
ar aieins
Fyrir helgina ræddi Sigurður^
Gunnar Sigurðsson varaslökkvi-
liðsstjóri og fulltrúi eldvarnaeft-
irlitsins við fréttamenn um eld-
varnir. Var þeim þá m.a. sýnd
öryggisflauta af þeirri tegund er
forðaði stórslysi í brunanum á
ísafirði sl. laugardagsnótt eins og
frá var skýrt í frétt hér í blað-
inu á sunnudaginn.
Tæki þetta sem er mjög fyrir-
ferðarlítið og kostar aðeins 285
krónur er þannig útbúið, að fari
hitinn í herberginu sem tækið er
í yfir 70 gráður hreyfist fjöður
í því og setur um leið straum á
rafhlöðu sem tengd er við flautu
er gefur frá sér hátt og sker-
andi blísturshljóð. Heldur tækið
áfram að flauta meðan hitinn
helzt í 70 gráðum og rafhlaðan
endist. Þetta er í apnað sinn,
sem svona öryggistæki verður til
að bjarga við eldsvoða, en hið
fyrra sinn var það, er kviknaði
í mb. Víkingi við bryggju í
Hafnarfirði sl. gamlárskvöld.
Heyrðu drengir sem voru á
gangi á bryggjunni flautið og
kvöddu slökkviliðið á vettvang.
Tæki þessi fást bæði hér í R-
vík og allvíða úti á landi. Er það
nú orðið skylda að hafa þau í
bátum, en einnig eru þau mjög
hentug í miðstöðvarklefa eða
annars staðar þar sem eldhætta
er mest í húsum. Hægt er að
losa flautuna frá tækinu og setja
hana í annað herbergi eða jafn-
vel á næstu hæð en þó má’leiðsl-
an frá tækinu og að flautunni
ekki vera lengri en 2 m., annars
er hætta á að spennufallið verði
of mikið og flautan virki ekki.
Nota má vasaljósarafhlöður í
tækið og er því auðvelt um út-
vegun þeirra. Þarf að sjálfsögðu
að gæta þess vel, að tækið og
rafhlöðurnar séu alltaf í góðu
lagi.
Þá ræddi varaslökkviliðsstjór-
inn um sinubruna en þeir eru
tíðastir í marz og apríl. Er það
mjög algengt, að krakkar kveiki
í sinu, jafnvel heim við hús og
ráði svo ekki við eldinn eða
slökkva ekki nægilega tryggilega
í honum. Var slökkviliðið í Rvík
kvatt 73 sinnum út í marz í
fyrra og í langflest skiptin vegna
íkveikju bama og unglinga. Er
það brýnt fyrir foreldrum, að
gæta þess vel, að böm leiki sér
ekki með eld, hvorki inni né úti,
þótt hið síðarnefnda kunni að
virðast saklaust.
Valtýr Stef-
ánsson rít-
stjórí látinn
Valtýr Stefánsson ritstjóri
Morgunblaðsins Iézt í borgar-
sjúkrahúsinu í Reykjavík sl.
Iaugardagskvöld sjötugur að
aldrii. Hafði Valtýr átt við lang-
vinn veikindi og vanheilsu að
stríða.
Valtýr Stefánsson var fæddur
á Möðruvöllum í Hörgárdal 26.
janúar 1893 og voru foreldrar
hans Stefán Stefánsson skóla-
meistari og Steinunn Frímanns-
dóttir kona hans. Hann lauk
stúdentsprófi 1911 og lagði síðan
stund á búnaðarnám i Dan-
mörku. Ráðunautur Búnaðarfé-
lags Island var Valtýr 1920—
1923, en blaðamennskan varð
þó hans aðalævistarf, því að ár-
ið 1924 var hann ráðinn ritstjóri
Morgunblaðsins og gegndi hann
því starfi til dauðadags eða í
nær fjóra áratugi. Bæjarfulltrúi
var Valtýr Stefánsson um skeið
hér í Reykjavík, átti sæti í
Menntamálaráði alllengi og var
formaður þess nokkur ár. Þá
átti hann og sæti í stjóm Búnað-
arfélags Islands og formaður
Skógræktarfélags Islands var
hann um langt árabil. Að félags-
málum íslenzkra blaðamanna
lagði hann skerf. Allmargar
bækur komu út eftir Valtý Stef-
ánsson, hin síðari ár voru m.a.
gefin út úrvalssöfn blaðagreina
hans og viðtala. Kvæntur var
Valtýr Kristínu Jónsdóttur list-
málara, sem látin er fyrir nokkr-
um ámm.
Borgaríbúðum við
Alf tamvri úthlutað
Á fundi borgarráðs sl. föstudag
var samþykkt úthlutun fjórða og
síðasta sambýlishússins sem
Reykjavíkurborg er að láta reisa
við Álftamýri, en það er eins
og hin þrjú sem áður var út-
hlutað byggt til útrýmingar
heilsuspillandi húsnæðis.
Þetta eru 32 íbúðir, 24 3ja her-
bergja og 8 2ja herbergja íbúðir.
1 3ja herb. íbúðirnar fara fjöl-
skyldur með 5-11 manns í heimili
en i 2ja herb. íbúðimar 3-5
manna fjölskyldur.
Alls eru þessar borgaríbúðir
við Álftamýri 128 en umsækj-
endur um þær voru samtals 380.
Nokkrir munu þó hafa bætzt
við síðar, eða eftir að fyrri út-
hlutunin fór fram.
Eins og áður verða íbúðimac
afhentar tilbúnar undir tréverk.
Kosta 3ja herb. íbúðirnar þannig
338 þús. kr. og 3ja herb. íbúð-
irnar 178 þús. kr. Föst lán fylgja
íbúðunum frá borg og ríki, 240
þús. 3ja herb. íbúð og 220 þús.
kr. 2ja herb. íbúð. Eru þau lán
til 42 ára með 5% vöxtum. Sið-
an er heimilt að taka einnig húa-
næðismálastjómarlán út á 1. veð-
rétt eða þá lífeyrissjóðslán.
Gert er ráð fyrir að þessar i>
búðir verði afhentar í ágúst eða
september n.k.
Um kl. 21.30 á sunnudags-
kvöldið var slökkviliðið kvatt að
húsinu Sólvallagötu 9. Hafði
komið upp eldur í herbergi en
hann varð fljótt slökktur og
skemmdir mjög litlar.
!
'i
i
t
4