Þjóðviljinn - 21.03.1963, Síða 12
■
* ■»« - >
*• ^A- X<
*0<*- ■•■ ' «
• ■'■ .V-,
j ||jj
■
->••■?s'.
Úr 25 ára gömlum lerkiskógl I Hallormsstað Hér eru tré upp í 12 m á hæð og vöxtur annar*
Skógrækt ríkisins
eflist og stækkar
Vinsælnýbreytni
/ starfí KR ON
Kaupfélag Reykjavíkur og
nágrennis hefur undanfarið
haldið skemmti- og fræðslu-
kvöld fyrir félaga sína í Þjóð-
leikhúskjallaranum. Hafa
tvær, þrjár deildir félagsins
verið saman um hvert kvöld
formenn deilda flutt ávörp og
fleiri komið fram úr deildun-
um víðsvegar um bæinn,
karlar og konur.Fjögur slík
fræðslu- og skemmtikvöld
hafa þegar verið haldin og ná
þau til allra deildarsvæðanna
í vestur- og suðvesturborginni
og á Seltjarnarnesi, auk þess
Voga- og Kleppsdeiida. Nú
líður að aðalfundi deildanna
og er ætlunin að hafa
skemmti- og fræðslukvöld
með þessu sniði fyrir aðrar
deildir félagsins í Reykjavík á
hausti komanda. En tvö slík
kvöld fyrir kaupfélagsmenn í
Kópavogi verða á næstunni í
Félagsheimilinu.
Húsfyllir hefur verið öll
kvöldin og færri komizt en
vildu, þv£ húsrýmið takmark-
ar aðganginn. öll kvöldin
hefur farið fram einhver get-
raunaþáttur, sem Hermann
Þorsteinsson hefur stjómað og
nefnist „Hvað veiztu um
kaupfélagið?“ Páll H. Jóns-
son, forstöðumaður Fræðslu-
deildar Sambands íslenzkra
samvirmufélaga, hefur stjóm-
að fjöldasöng við góðan orð-
stír og sýnt landkynningar-
mynd „Þýtur í skógum".
Skemmtikvöldunum hefur svo
lokið með dansi með undir-
leik hljómsveitar Finns Ey-
dals og afhendingu verðlauna
fyrir úrslit í getrauninni.
Menn hafa skemmt sér hið
bezta og telja forráðamenn fé-
lagsins, Kjartan Sæmundsson
kaupfélagsstjóri og Björgúlf-
ur Sigurðsson félagsmálafull-
trúi, sem skipulagt hafa þessa
nýbreytni í félagsstarfi KRON
ásamt deildarst j ómunum, að
vel hafi tekizt sá tilgangur
þessara samkoma að auka
kynni félagsmanna og sam-
stöðu þeirra um verzlun sína
og félagsskap.
Musica Nova tón-
leikar á sunnudag
Félagið Musica Nova, sem hef-
ur það að markmiði eins og
kunnugt er að kynna nýja ís-
lenzka og erlenda tónlist, heldur
næstu tónleika sína í súlnasal
Hótel Sögu sunnudaginn 24. þ.m.
Á efnisskrá eru tvö íslenzk verk
eftir þá Jón Léifs og Atla Heimi
Sveinsson og tvö erlend.
Þau erlend verk sem flutt
verða eru Kontrastar eftir Béla
Bartók og er það verk samið fyr-
ir fiðlu, klarinettu og píanó, og
„Zwanzig Gruppen" fyrir flautu,
klarinettu og óbó eftir Bo Nils-
son.
Islenzku verkin eru Noctume
eftir Jón Leifs, sem leika skal
á Websterhörpu, og Hlými eftir
Atla Heimi Sveinsson, og er það
flutt af ellefu hljóðfærum og eru
sum þeirra næsta sjaldgæf eins
og klukkuspil, ýlófónn, ýlórimba
selesta og harpa. Atli Heimir
stjómar þessum tónleikum.
Hlými kveðst Atli Heimir
Sveinsson hafa skrifað í október
Mikill landburður neta-
þorsks við Breiðafjörð
Áttatíu krónur á tím-
ann í landi
Hellissandi í gær. .— Fjórir
þátar gera út frá Rifi og komu
bátamir hlaðnir að Iandi í gær
frá tólf Iestum til 26 lesta og
hefur Arnkell haft 21 lest í róðri
að meðaltali undanfarna fimm
daga.
Mikið er að gera í frystihús-
unum og er unnið frá klukkan
átta á morgnana til klukkan tvö
á nóttinni og þannig vinna sjö
menn í . íiskverkunarstöðinni
Jöklí í ákVæðisvinnu og hafa að
meðaltali kr. 70.00 til 80.00 á
tímann. Eru afköstin hjá þessum
sjö mönnum 40 lestir á sólar-
hring. Hraðfrystihús Hellissands
h.f. afkastar líka miklu og vinna
þar 40 manns. Hér vantar þó
miklu fleiri menn í fiskinn og
þykir blóðugt að horfa upp á,
hvemig fólkið drífur að Islenzk-
um aðalverktökum þessa dagana
til þess að byggja htna nýju lór-
anstöð hér í nágrenninu.
Frá árániðtum er afli Rifsbáta
eftirfarandi: Tjaldur með 104,1
lest í 50 róðrum. Hamar með
400,5 lestir í 55 róðrum, Sæborg-
in með 415,7 lestir í 49 róðrum
og Amkell með 268,8 lestir í 17
róðrurri. — SkAl.
Spanskur nautabani
blóðgar fiskinn
Stykishólmi I gær. — Héðan
eru gerðir út fimm bátar og bár-
ust að Iandi í gær um 120 lestir
af vænum þorski í tvö frystihús
staðarins. Hæsti báturinn var
Straumneslð, með 38 lestir og er
báturinn að stærð 36 lestir og
var það búsældarleg sjón, þeg-
ar hann skreið inn i höfnina.
Skipstjóri á bátnum er Grímúlf-
ur Andrésson.
Aldrei hefur komið svona
mikill afli í einum róðri á land
í Stykkishólmi og einnig saman-
lagt aflamagn og er þetta tvö-
faldur metdagur í sögu þorpsins.
Amfinnur var með 21 lest, Þórs-
nesið með 30 lestir og Nonni
lítiU pungur, með 14 lestir og
aðkomubátur frá Grafamesi með
18 lestir og var allt orðið fullt
í Grafamesi.
Tvö frystihús eru hér í Hólm-
inum og er mikið að gera að
vonum í báðum húsunum og geta
þau ekki tekið á móti meiri afla,
ef svona heldur áfram næstu
daga. Þetta er yfirleitt tveggja
nátta fiskur og fer mikið af
honum í skreið. Fiskmóttaka er
líka erfið og fólksleysi hamlar
nýtingu aflans. Einn bátur hef-
ur þó átt í erfiðleikum með að
halda sér úti og var í landlegu
einn daginn í þessum óða fiski
og reyndist erfitt að manna bát-
inn, er til dæmis einn hásetinn
nautabani sunnan frá Spáni og
er notaður til þess að blóðga
fiskinn.
J. R. ó.
Rúm tvö þúsund tonn á
land hjá Ólaísvíkurbátum
ólafsvík f gær. Heildaraíli
átía Ólafsvíkurbáta frá áramót-
um, var hinn 15. marz orðinn
2135,4 tonn í 224 róðrum. Á sama
tímabili í fyrra fóru 13 bátar 237
róðra og fengu 1630,8 tonn. Með-
alafli á bát á þessu tímabili i ár
er því 266,9 tonn, en meðalafli
í fyrra frá áramótum hefur ekki
verið nema 125,5 tonn.
Frá fyrsta marz og til þess 15
Framhald á 5. síðu.
Atli Heimir Sveinsson
og hóvember á fyrra ári. Verk
eftir Atla hafa verið flutt í Köln
en þar hefur hann verið við
hljómlistarnám. Hann er nú með
ballett í smíðum, en ekki kvaðst
hann hafa trú á því að hann
yrði færður upp hérlendis, það
væri of umfangsmikið verkefni.
Fyrir helgina lauk árlegum
fundi, sem skógræktarstjóri held-
ur með skógarvörðum Skóg-
ræktar ríkisins og starfsmönn-
um skógræktarinnar í Reykjavík.
í þessu tilefni ræddi Hákon
Bjarnason, skógræktarstjóri við
fréttamenn og gaf ýmsar upp-
lýsingar um störf skógræktarinn-
ar.
Ætlast er til, að gróðursettar
séu í landinu 1.5 milljónir
plantna árlega. Við það ena all-
ar framkvæmdir miðaðar eins og
er.
I skógræktinni þarf að gera
allar áætanir a.m.k. 5 ár fram
í tímann, því að oftast líða
5 ár frá því fræi er sáð í gróðr-
astöð og þar til trjáplanta er
gróöusett á endanlegum sama-
stað.
Fjárveiting til beinna fram-
kvæmda hjá Skógrækt ríkisins
er nú á fjárlögum 3.1 milljón
króna og tekjur af vindlingum
nema 2.1 milljón króna. Auk
þess fá skógræktarfélögin kr.
600.000.00 ríkisstyrk.
Árlega er nú gróðursett í 250
til 300 ha lands. Skógræktar-
stjóri lagði á það sérstaka á-
herzlu, að í þessari grein yrði
alltaf að hugsa langt fram í tím-
ann. 1 samræmi við það var
gerð fyrir nokkru fimm ára á-
ætlun um skóggræðslu, en slík-
ar áætlanir þarf að endurskoða
og aðlaga breyttum aðstæðum.
Fram að árinu 1958 var eitt
mesta vandamálið 1 skógrækt-
inni að ala upp nægilega mik-
ið af plöntum enda var það
fyrst eftir síðustu heimsstyrjöld-
að hægt var að byggja upp ör-
ugg fræsambönd víðsvegar um
heim, en öflun á hentugu fræi er
undirstöðuverk í skógrækt okk-
ar. Frá 1958 hefur verið til nóg
af plöntum og í ár og í fyrra
hefur raunverulega ekki verið nóg
fjármagn eða vinnuafl til þess
að gróðursetja allar þær plönt-
ur, sem hægt hefur verið að ala
upp.
Sigurður Blöndal, skógarvörð-
ur á Hallormstað gaf nokkrar
upplýsingar um skógræktina þar
eystra.
Á Hallormstað er fengin lengst
reynsla í ræktun barrtrjáa hér
á landi. Þar eru til næstum 60
ára gömul grenitré, sem eru orð-
in svo há og gild, að þau reynd-
ust vel nýt til flettingar í borð
og~ planka, þó að sé um litlar
trjáþyrpingar að ræða, þá sýna
þær óvéfengjanlega, að við get-
um framleitt okkar timbur sjálf-
ir.
Fyrsti raunverulegi barrskóg-
urinn okkar er þó ekki eldri en
frá 1938. Þetta er síberískt lerki,
sem vex á tæplega 1 ha. Vöxt-
ur þess hefur farið langt fram
úr djörfustu vonum, kvað Sig-
urður, svo að meðalhæðin eftir
25 ár er um 9 metrar og hæsta
tré 12 metra hátt. Slíkur vöxtur
þætti ágætur ,hvar sem væri
um norðanverða Skandinavíu.
Sigurður sagði, að það hefði
verið athugað, hve mikill arður
væri af ræktun þessa lerkis mið-
að við það að nýta allan viðinn
í girðingarstaura við rúmlega
20 ára aldur og varð niðurstað-
an þannig að 1 ha af þessum
lcrkiskógi gæfi í hreinan ágóða
tæplega kr. 3000.00 árlega. Fæst
þessi góði arður, þó að reiknað
sé með 7% vöxtum af stofnfé,
Taldi Sigurður vafasamt, að önn-
ur ræktun skilaði meiri arði á
ha. þar austur á Héraði nema
kornrækt í góðum árum.
Á Hallormstað er nú búið að
gróðursetja í 90 ha erlendar trjá-
tegundir. Fyrir 1948 var aðeins
búið að planta í 2 ha.
Loks sagði Sigurður Blöndal,
að eftir lauslega athugun teldi
hann fært að framleiða í Vk
hreppi efst á Héraði 1/10 hluta
þess timburs, sem notað er á
íslandi í dag .
Einar Sæmundsson, skóga-
vörður í Reykjavík svaraði að
lokum nokkrum spumingum um
Heiðmörk. Hann kvað þar gróð-
ursettar liðlega tvö þúsund trjá-
plöntur um þessar mundir. Vega-
kerfi merkurinnar væri orðið 22
km. alls. Einar tók sérstaklega
fram, að í Heiðmörk væri ekki
markmiðið að rækta timburskóg.
Þar væri ætlunin að skapa Reyk-
víkingum skjól og augnayndi í
þessu friðlandi þeirra ;
Æskulýðsfylkingin í Reykjavík
efnir til kvöldvöku í Tjarnar-
götu 20 n.k. sunnudagskvöld kl.
9 í Tjamargötu 20. Til skemmt-
unar: Ólafur Hannibalsson flytur
frásöguþátt um Bandaríkjadvöl,-
kvikmynd sýnd, kaffidrykkja og
almennur söngur. ÆFR.
ems og bezt gerist um norðanverða Skandinavíu.
Fimmtudagur 21. marz 1963 —