Þjóðviljinn - 19.04.1963, Qupperneq 1
Fösíudagur 19. apríl 1963 — 28. árgangur — 88. tölublað.
YFIRLYSING
Þeir óttast samein-
vinstrí manna
„Tilkynning sú um sameiginleg framboð og samstöðu
Alþýðubandalagsins og Þjóðvarnarmanna í kosningunum
9. júní næstkomandi, sem Karl Guðjónsson birti í umræð-
unum hér í gærkvöld fyrir hönd Alþýðubandalagsins, hef-
ur vakið mikla athygli um land allt. Hún hefur glatt allt
vinstri fólk .í landinu. Hún hefur vakið ergi og ugg í
röðum stjórnarflokkanna.
Það var ekki sízt afstaðan til Efnahagsbandalagsins,
sem veldur því að miklu fleiri en nokkru sinni áður eru
nú staðráðnir í því, þrátk fyrir margvíslegan skoðana-
mun um önnur mál, að berjast saman undir merki Al-
þýðubandalagsins. Það er baráttan gegn innlimun íslands
í Evrópustórveldið, baráttan jyrir sjálfstæði íslands í
framtíðinni, sem öllu öðru fremur sameinar áður sundr-
aða og dreifða krafta. Undir slíkum kringumstæðum mega engin atkvæði vinstri
manna falla dauð niður. Sameinum kraftana, sósíalistar, jafnaðarmenn, þjóðvarnar-
menn og vinstri Framsóknarmenn. Alþýðubandalagið eitt hefur afdráttarlausa afstöðu
til Efnahagsbandalagsins. Leggjum nú öxl við öxl í baráttunni fyrir því að völdum
stjómarflokkanna verði myndarlega hrundið í kosningunum 9. júní.“ — Á þessa leið
fórust Hannibal Valdimarssyni, formanni Alþýðubandalagsins, m.a. orð í útvarpsum-
ræðunum í gærkvöld.
— Á 4. síðu blaðsins er safft frá nokkrum atriðum í ræðu Hannibals.
Alþýðubandalagið annars veg-
| ar og Þjóðvarnarílokkur íslands
| hins vegar hafa komið sér saman
5 um samstarf í komandi alþing-
J iskosningunum, hinn 9. júní næst-
| komandi, og munu bera fram og
| styðja sameiginlega framboðslista
b í öllum kjördæmum landsins.
Enda þótt Þjóðvarnarflokkur ís-
lands sé ekki aðili að Alþýðu-
I bandalaginu og ekki bundinn af
!
Reykjavík, 16. apríl 1963.
Samninganefnd
Alþýðubandalagsins
Hannibal Valdimarsson
(siign.)
Björn Jónsson
(siign.)
Kjartan Ólafsson
(sign.)
öðru en þeim atriðum, sem um
hefur verið samið, hafa framan-
greindir aðilar orðið sammála um,
að framboðslistar og kjörgögn
skuli aðeins bera nafn Alþýðu-
bandalagsins.
Samkomulag hefur einnig orð-
ið uin stefnuskrá í meginmálum
kosninganna, og verður hún birt
síðar.
Samningancfnd
Þjóðvarnarflokksins.
Gils Guðmundsson
(siign.)
Bergur Sigrurbjörnsson
(sSgn.)
Hermann Jónsson
(sign.)
Æ,-jssanr ÆmSm jHMsJS' ÆMmdr Mr jmmmr ■ ■■ n j vmr-—ur ■■hmh r ■. ■ mwr <■. ■ .. ■ ■ -
Stefnir Framsókn
að íhaldssamvinnu?
• Vinstri menn standa
sameinaðir í þeim kosning-
um sem framundan eru og
munu ekki láta minniháttar
ágreiningsefni tvístra sér.
að
rísa upp
til varnar og sóknar í vor
Einar Olgeirsson var
síðasti ræðumaður af
hálfu Alþýðubandalags-
ins í útvarpsumræðun-
um í gærkvöld. Varaði
hann þjóðina við þeim
hættum, sem framund-
an væru ef núverandi
stjórnarflokkar halda á-
fram meirihlutaaðstöðu
sinni í komandi kosning-
um. Ekki aðeins lífskjör
þjóðarinnar eru í hættu,
heldur beinlínis sjálfstæði landsins og öll tilvera
íslenzkrar þjóðar vegna innlimunarhættunnar í
Efnahaersbandalag Evrópu. Gegn þessu verður al-
þýðan að rísa off svipta hernámsflokkana valdi til
þess að framkvæma þær fyrirætlanir.
Einar minnti á það í upphafi
rasðu sinnar, að í komandi Al-
þingiskosningum verða raun-
verulega útkljáð öll veigamestu
hagsmunamál almennings í land-
inu. Það er því jafnframt á
þeim vettvangi sem launþegar
landsins verða að sameina krafta
sína til þess að hnekkja þeirri
afturhaldsstefnu. sem núverandi
stjómasamsteypa beitir sér fyrir.
Kjör alþýðustéttanna hafa á
síðustu árum verið rýrð svo
mjög, að ísland er að komast
niður á stig almennrar vinnu-
þrælkunar. Auðvaldsöfl landsins
hafa beitt ríkisvaldinu til þess
að kúga verkalýðsamtökin og
allar vinnandi stéttir. Það vopn,
ríkisvaldið, verður að slá úr
Þýzkur sjómaður slasast
f gærdag slasaðjst þýzkur
sjómaður við vinnu sína á þjl-
fari um borð í þýzkum togara,
sem var að vejðum við Græn-
land. Spilvírinn slitnaði allt í
einu og lenti með miklu k-asti í
hnakka sjómannsins og stakkst
hann fram vfir sig og slasað-
ist jlla í andiiti, nefbrotnaði og
mlssti tennur. Einnlg hefur hann
sennilega fengið snert af heila-
hristingi. Flugvél á ; vegum
dönsku landhelgisgæzlunnar við
Grænland kom í gær með
hinn slasaða mann og var
hann lagður inn á Landakots-
spítala. Þýzki sjómáðurinn heit-
ir Fritz Reinn, frá Bremerhaven
höndum auðvaldsins í komandi i
kosningum.
Ef það verður ekki gert, vofa
yfir þjóð og landi enn geig-
vænlegri hættur: Hættan á inn-
limun landsins í Efnahagsbanda-
lag Evrópu og þar með tortím-
ing sjálfstæðis landsins og ís-
lenzks þjóðernis. Afstaða Fram-
sóknarflokksins í því máli er
hip sama og svo oft áður í
hinum mikilsverðustu málum:
Framsóknarflokkurinn sver
þeim málstað dýrasta eiðana,
sem hann er albúinn að svíkja
eftir kosningar.
Það þarf ekki að fara í nein-
ar grafgötur með það, að fram-
undan eru nýjar árásjr á lífs-
kjör almennings. ef meirihluta-
valdið verður ekki tekið af nú-
verandi stjórnarflokkum í kom-
andi kosningum. Þetta er bein-
línis boðað í nýútkominni
skýrslu Seðlabankans, og það
verður ekki látið staðar numið
þar. Þá verður einnig ráðizt á
vinnulöggjöfina.
Allir flokkar viðurkenna nú í
orði kveðnu þá miklu hættu
sem Islandi mundi stafa af
beinni innlimun í Efnahags-
bandalag Evrópu. En það er
einnig margendurtekin reynsla
að hernámsflokkarnir allir þrír
leggjast þegar á reynir í duft-
ið fyrir þeim sjónarmiðum, sem
hin erlendu hernámsveldi Nató
vijja þröngva upp á þá.
Það hefur verið hlutverk Sósí-
aiistaflokksins frá upphafi, að
verjg landið gegn erlendri á-
sælni og vara við undirlægju-
hætti hernámsflokkanna. Og
hætturnar, sem framundan eru
hafa aldrei verið meiri en nú.
Ræðu sinni lauk Einar á eft-
irfarandi hátt:
„Islenzk þjóð. Þessar kosn-
Framhaid á 4. síðu.
Lúðvík Jósefsson
Ástæðurnar eru þau alvar-
legu viðhorf sem við blasa
ef núverandi stjórnarflokkar
halda áfram meirihlutavaldi
sínu.
• Framsóknarflokkurinn
segist vilja fella stjórnina
til þess að „ekki verði geng-
ið fram hjá sér“ við stjórn-
armyndun. En Framsókn
varast að gefa nokkurt lof-
orð um að semja sig ekki
inn í núverandi afturhalds-
stjóm eftir kosningar.
• Kosningabaráttan er
hafin og henni verður að
ljúka með stórsókn .vinstri
manna og miklum sigri Al-
þýðubandalagsins. — Á þessa
leið fórust Lúðvik Jósefssyni
m.a. orð í ræðu sinni í út-
varpsumræðunum í gær-
kvöld.
Lúðvík vék í ræðu sinni ýtar-
lega að þeim málum, sem kom-
andi kosningar hljóta óhjákvæmi
lega að snúast um í höfuð-
dráttum, svo sem kjaramálunum,
uppbyggingu atvinnulífsins, af-
stöðunni til Efnahagsbandalags-
ins, hemámsins o.fl. málum.
Jafnframt sýndi hann fram á
hver væri hin raunverulega af-
staða stjórnmálaflokkanna í þess-
um málum.
Framhald á 4. síðu.
800mi/lj.
myndu farast
ikjarnastríði
WASHINGTON 18/4 — Einn
af fulltrúum í landvarnaráði
Bandaríkjanna David M.
Shoup hershöfðingi, segir í
skýrslu til einnar af nefnd-
um Bandaríkjaþings að gera
megi ráð fyrir að 700—800
milljónir manna myndu láta
lífið ef heimsstyrjöld yrði háð
með kjamavopnum og myndi
hinn hvíti kynþáttur verða
harðast fyrir barðinu á kjam-
orkuógnunum og þá líða und-
ir lok.
##
Stjórnin" í Fu II trúaráðinu rýfur
áratuga hefö um 1. maí
★ Komjð hefur í ljós að hin
svokallaða stjóm Fulltrúaráðs
verkalýðsfélaganna í Reykjavik
hefur ákveðið að brjóta áratuga
hefð við undirbúning 1. maí
hátíðahaldanna. með því að sjá
sjálf um daginn án þess að
mynduð verði 1. maí nefnd með
fulltrúum frá verkalýðsfélögun-
um sjálfum.
★ Þessi ráð munu hafa ver-
ið ráðin á ólöglegum aðalfundi
Fulltrúaráðsins eftir að um
helmingur löglegra fulltrúa hafði
gengið af fundi til þess að mót-
mæla lögleysum fráfarandi
stjórnar.
★ Af þessu tilefni komu
saman fyrir nokkru formenn
nokkurra verkalýðsfélaga í
Reykjavík og ákváðu að bjóða
verkalýðsfélögunum að tilnefna
memi í nefnd til undirbúnings
hátíðahaldanna 1. maí. Var öll-
um félögum innan Fulltrúaráðs-
ins sent bréfið og lögð á það
áherzla, að með þvi að brjóta
hefðina um undirbúning dagsins
sé vísvltandi stefnt að því að
ekki verði samstaða um daginn.
★ Áríðandi er að fólkið í
verkalýðsfélögunum láti ekki
neinum haldast uppi að neita
verkalýðsfélögunum um að á-
kveða sjálf, á lýðræðislegan
hátt, innihald og tilhögun há-
tíðahaldanna 1. maí, nú þegar
þess er minnzt að 40 ár eru'
liðin frá því dagurinn var fyrst
haldinn hátíðlegur á fslanli.
Hafa formenn verkalýðsfélag-
anna, sem bréfið sendu boðað
til fundar með fulltrúum félag-
anna i kvöld, föstudag, i fund-
arsal Alþýðusambandsins að
Laugavegi 18. 6. hæð og hefst
"undurinn kl hálf níu.
-k Bréfið til f°Iaganna er
birt á 2. síðu.
4
A