Þjóðviljinn - 19.04.1963, Qupperneq 6
g SIBA
ÞlðÐVILIINN
Föstudagur 19. apríl 1963
íranskir stúdentar í
.itéimæia ofsóknum heima
Samskot til að efla friðar
baráttu innan þings USA
Um þessar mundir birtist oft í bandarískum
blöðum augiýsing þar sem skorað er á landsmenn
að leggja fram fjórar milljónir dollara til að
kosta friðarbaráttu innan þingsins. Auglýsingin
er birt í nafni „Council for a Livable World“ og
rita margir frægir vísindamenn undir áskorun-
ina, þar á meðal upphafsmaður hreyfingarinnar.
ungversk-bandaríski prófessorinn Leo Szilard.
Hinir nýju stjórnendur Iraks
hafa síðan þeir tóku völd ofsótt I \rA»«aaAi í I IC A
af miklu kappi kommúnista og l»y vJf cXJCrl I W J f~K
marga aðra róttæka menn. og
hefur fjölda þeirra verið varpað
í fangelsi og þeir teknir af lífi.
Einn þeirra sem myrtir hafa
verið er Calam Adile, tæplega
þrítugur kommúnistaforingi,
sem á stjórnarárum Núri Said
sat í fangelsi og sætti pynd-
ingum, og á síðari árum Kass-
ems fór hann huldu höfði.
Hann er einn af mörgum
hundruðum. — Myndin sýnir
arabíska stúdenta við Moskvu-
háskóla fara í mótmælagöngu
að íranska sendiráðinu í borg-
inni til að Iáta í Ijós andúð
sína á atferli stjórnarvaldanna.
Svarta dauðc
skýfur upp í
S.-Víetnam
Svarti dauðinn hefur haldið
innreið sína í Saigon, höfuðborg
Suður-Víetnams. Yfirvöldin
hafa einangrað 30 menn sem
talið er að sýktir séu. þar af
eru mörg böm méð dæmigerð
pestareinkenni, háan hita og
þrútna kirtla.
Hin sjúku böm hafa verið
flutt til Choquán-sjúkrahússins,
en þar er ásérstök deild fyrir
bráðsmitandi sjúkdóma. Mikill
hörgull er á bóluefni í borg-
inni, en það getur aðeins vald-
ið ónæmi um stundarsakir.
Upphaflega var Leo Szilard
einn um hituna en á undan-
íömum árum hefur honum
bætzt liðsauki og í júní 1962
var stofnað „ráð til að berjast
fyrir byggilegum heimi.“ Sam-
kvæmt því sem segir í auglýs-
ingunni tók ráðið beinan þátt
í kosningabaráttu síðar á árinu.
Skorað var á fylgismenn þess
að leggja fram fé til að styrkja
kosningabaráttu þriggja öld-
ungadeildarfaambjóðenda. —
Lögreglumenn siga hundum
á negra sem vilja kjósa
Einn negranna sncrist til varnar cr hundi var sigað á hann. Lög-
reglumcnnimir brugðu við, vörpuðu honum á jörðina og mis-
þyimdu honum.
-4>
Bandarískir læknar hefja
baráttu gegn „dauÓaþoku
Iiópur lækna í Los Angelcs
vinnur um þessar mundir að
rannsóknum á fyrirbrigði sem
hætt er við að verði bráðlega
eitt af mciriháttar vandamálum
Bandaríkjamanna, en það er ó-
hreint loft.
Læknar og sérfræðingar eru
sammála um að nauðsynlegt sé
að finna einhver ráð gegn ó-
hreina loftinu í Suður-Kali-
fomíu — en svæði það hefur
verið frægt fyrir indælt veð-
allan ársins hring.
Hættuiegt
öndunarfærunum
Rannsóknunum stjórnar dr.
Oscar Balchum, læknisfræði-
próiessor við háskólann i Suð-
ur-Kalifomíu. Markmiðið er að
ganga úr skugga um hve hættu-
legt óhreint loft er mönnum og
hvaða áhrif það hefur á önd-
unina. Sjálfboðaliðar hafa gef-
ið sig fram til rannsóknanna og
ganga þeir allir með sjúkdóm
sem nefnist enfysem — sjúk-
lega loftsöfnun í lungnavefin-
um sem veldur því að andar-
drátturinn verður mjög stuttur.
„Fólk sem þjáist af enfysem er
mun viðkvæmara fyrir óhrein-
indum í andrúmsloftinu og
verður fyrst til að falla fyrir
„dauðaþokunni‘‘ svokallaðri,
segir dr. Balchum.
Rannsóknir munu standa i 18
mánuði. Sjálfboðaliðunum verð-
ur fyrst komið fyrir í venju-
legri sjúkrastofu en síðan
verða þeir fluttir í stofu með
hreinsuðu lofti. Þeir verða ekki
lótnir vita um hvers konar lofti
þeir anda að sér. Vandlega
verður fylgzt með öndun hvers
einstaks sjúklings og borin
saman líðan þeirra í venjulegu
lofti og hreinsuðu.
„I>ak“ yfir borginni
Á Los-Angeles-svæðinu eiga
verksmiðjur, olíuhreinsunar-
stöðvar og útblástur frá bif-
reiðum mesta sök.á óhreinind-
um — auk þess sem landslagið
hjálpar til. Borgin liggur í dæld
umlukinni fjöllum í norðri og
austri en sjó í vestri. Yfir dæld
þessari er yfirleitt svalt loft í
kyrrstöðu í 900 til 1200 metra
hæð og lokar inni heita loftið
að neðan. Ofar þessu þaki er
himinninn hejður — eins og
hann áður var alltaf yfir Los
Angeles.
Reykurinn hvílir yfir borg-
inni eins og grásvart ský. Ef
vindurinn af halinu eða heita
loftið frá ströndinni er nógu
öflugt brestur hindrunin og
reykurinn hverfur.
Læknamir berjast ekki einir
gegn reyknum. Yfirvöld borgar-
innar hafa látið fara fram tii-
raunir með það fyrir augum að
tempra útblásturinn frá bifreið-
unum. Nokkur árangur hefur
náðst ó þessu sviði. Ennfremur
hefur verið unnið að því að
fá þá sem ráða verksmiðjunum
til að nota jarðgas eins mikið
og mögulegt er í staðinn fyrir
olíu.
Að undanförnu hefur verið
æði róstusamt í Birmingham í
Alabama. Negrar þar f borg
hafa hvað eftir annað efnt til
friðsamlegra mótmælaaðgcrða
gegn kynþáttamisrétiinu en Iög-
reglan hefur jafnan ráðizt að
þeim, misþyrmt þcim, sigað á
þá hundum og hefur alls hand-
tekið 170 úr þeirra hópi.
Á páskadag komu nokkur
hundruð negrar syngjandi úr
kirkju og héldu í átt til fang-
elsis borgarinnar, en þar er
negraleiðtoginn Martin Luther
King haíður í haldi. Hann var
handtekinn á föstudaginn langa
fyrir að hafa gengizt fyrir mót-
mælaaðgerðum. Þrír prestar
gengu í fararbroddi. Fólk af
gangstéttunum slóst í hópinn
og munu um 1.000 manns hafa
verið þar saman komið.
Sungu sálma
Brátt komu lögreglumenn til
skjalanna og vörnuðu negrun-
um vegarins. Þeir héldu þá inn
í hliðargötu en lögreglan lok-
aði henni einnig. Þar voru 30
negrar handteknir og varpað
inn í lögreglubíla. þar á meðal
voru prestarnir þrír. Fólkið
var um kyrrt og söng sálma. Þá
siguðu lögreglumennimir hund-
um á mannfjöldann, en hundar
þessir eru sérstaklega þjálfaðir
til þess að ráðast á negra. Fólk-
ið hröklaðist þá brott sárt leik-
iö.
1 vikunni sem leið hafa negr-
amir nokkrum sinnum safnazt
saman fyrir utan ráðhús borg-
arinnar til þess að láta skrá
sig á kjörskrá. Lögreglan hefur
jafnan ráðizt á þá og hrakið
þá á brott.
Skotið á stúdenta
I Greenwood í Mississippi
hafa hópar negra að undan-
förnu haldið daglega til ráð-
hússins til þess að láta skra
sig á kjörskrá. I hvert einasta
sinn hefur lögreglan tvístrað
þeim. Stúdentar úr hópi negr-
anna hafa einkum gengizt fyr-
ir þessum aðgerðum og hafa
þeir mjög fengið að kenna á
ofstæki hvítu mannanna. Oft
hefur verið skotið á aðseturs-
stað stúdentanna og hefur einn
orðið fyrir skoti og særzt. 27
þeirx-a hafa verið handteknir og
einn særzt verulega af hunds-
biti.
20.000 dollurum var safnað —
og allir frambjóðendurnir þrír
náðu kosningu.
Brátt verður ókleift
að snúa við
Því starfi hyggst ráðið halda
áfram. Meðlimir þess telja að
kosningabarátta eins frambjóð-
anda kosti frá 100.000 til einn-
ar •miUjónar doll. E£ milljón-
irnar fjórar sem safna á „verða
notaðar skynsamlega verður
unnt aö hafa veruleg áhrif á
það hvernig þingið verður sam-
an sett með því að tryggja
dugandi og djörfum mönnum
kosningu.“
í auglýsingunni segir að auð-
veldara sé að halda áfram að
framleiða Minuteman og Polar-
is-flaugar eins ört og fram-
leiðslugetan leyfir en að gera
tillögur um afvopnun sem báð-
ir aðilar geti sætt sig við, en
ef haldið verður þannig áfram
munu mennirnir brátt verða
komnir á það stig vígbúnaðar-
Leo Szilard
kapphlaupsins að ókleift verður
að snúa við.
Þingið hindrar
friðarstefnu
Margir stjórnarmeðlimir eru
uggandi vegna þess, segir enn-
fremur, en meðan andinn inn-
an þingsins er óbreyttur er
stjórninni ekki kleift að snúa
inn á þá braut sem liggur frá
stríði. Því mun ráðið ekki láta
sér nægja að veita Washing-
ton-stjórninni vísindalegar ráð-
leggingar heldur beita sér fyrir
því að þingið verði þannig
saman sett að friðarstefnan sé
möguleg.
Það eru engin smámenni sem
hér eiga hlut að máli. f stjóm-
arnefnd ráðsins eiga sæti Szil-
ard prófessor, Doering prófesor
við Yale, Feld prófessor frá
Masachusets. Ruth Adams og
fleiri slikir.
Áskorun til Quebecbúa
Vsnnum s/álfstæði
með vopn í hönd"
í Quebec-héraði i Kanada
starfa leyniileg samtök sem
nefnast Frelsisfylkingin og bcrj-
ast fyrir sjálfstæði fylkisins og
aðskilnaði frá Kanada. íbúar
Quebec eru að lang-mestu leyti
frönskumælandi. Um páska-
helgina scndi Frclsisfyikingin
frá sér ávarp til íbúanna og
skoraði á þá að grípa til vopna
og bera sjálfstæðiskröfuna fram
til sigurs eða falla dauðir ella.
Tími byltingarinnar
kominn
— Tími þjóðbyltingarinnar er
kominn, segir í áskoruninni sem
send var öllum blöðum og
fréttastofnunum. — Það nægir
ekki að óska eftir sjálfstæði eða
reka áróður fyrir frelsi með
hjálp stjórnmálaflokka sem
hafa sjálfstæði á stefnuskrá
sinni. Stjórnmálaflokkarnir
verða aldrei nógu öflugir til að
brjóta á bak aftur efnahagslegt
og stjórnmálalegt veldi ný-
lenduherranna. Sjálfstædið eit.t
saman mun heldur ekki nægja
til að leysa vandamál okkar.
Þjóðfélagsbreytingar verða að
fylgja sjálfstæðinu hvað sem
það kostar.
í lok ávarpsins er gerð grein
fyrir kröfum hinna frönsku-
mælandi íbúa Quebec og deilt
harðlega á yfirgang Bretanna
sem gert hafa héraðið að ný-
lendu. Á sínum tíma lögðu
Bretar franska Kanada undir
sig smám saman og fyrir rétt-
um hundrað árum afsöluðu
Frakkar sér endanlega nýlend-
um sínum í Norður-Ameriku.
,Verwoerd stef nir
að f jöldamorðr
— Kíkisstjórn Suður-Afríku
hefur skipulagt fjöldamorð A
svörtum íbúum gæzluverndar-
svæðisins Suðvcstur-Afríku, þar
sem hvítir bændur fá ókcypis
vopn og skotfæri frá yfirvöld-
unum, sagði fulltrúi þjóðfrelsis-
hrcyfingar Suðvestur-Afríku á
fundi nýiendumáianefndar Sam-
einuðu þjóðanna í vikunni sem
lcið.
Jacob Kuhangua er ritari
SWAPO, þjóðfrelsishreyfingu
negranna í Suðvestur-Afríku
Hann sagði meðal annars:
— Á árinu 1962 var hinum
hvítu í Suðvestur-Afríku afhen!
meira en milljón skot. en hvert
þeirra táknar einn fallinn eða
særðan meðal mjnna manna.
Nýtt Alsír
— Ríkisstjórn Suður-Afriku
hefur séð fram á að hún verð-
ur að búa sig undir skæru-
hernað og byltingu. Þar af leið-
andi dregur úr notkun skrið-
dreka, stórskotaliðs og bungra
vopna en hins vegar er meirl
áherzla lögð á létt vopn og
auðfæranleg. Við erum vitni að
svipuðum hernaðarlegum um-
breytingum og beim sem
Fralckar reyndu að framkvæma
er þeir börðust gegn Serkjum
I Alsír. sagði Kuhangua.
Hann lagði áherzlu á þá
skoðun sína að vopnasending-
arnar til hvítu mannanna mið-
uðu að bví að útrýma fólki af
"frfskum uppruna.
i
i
í
4