Þjóðviljinn - 19.06.1963, Page 7
ÞI0ÐVILVINN
SÍÐA
Miðvflcudagur 19. 3úní 1963
VINNUMADUR—SKUTUKARL
Þorkell Þorleifsson, fyrrum
bóndi að Brjánsstöðum í Gríms-
nési varð 95 ára i gær. fasdd-
ur á Syðri-Brú í Grímsnesi 18. i
júní 1868. Foreldrar hans voru ’
Sigríður Jónsdóttir frá Fossi í
Grímsnesi og Þorleifur Bjama-
son frá Holtakoti i Biskups-
tungum. dugnaðarfólk, en alið
upp í fátækt eins og almennt
var þá.
— Þú hefur alizt upp hjá
foreldrum þínum þar eystra,
Þorkell?
— Foreldrar mínir byrjuðu
búskap á hálfri Syðri-Brú, þar
sem ég fæddist. Ég missti móð-
ur mína 8 ára gamall og föð-
ur minn 12 ára, og þá var allt
bú þeirra selt á uppboði. Ég
látinn til vandalausra; raunar
á þriðja ríkasta heimilið i
Grímsnesi, en móðir mín og
bóndinn þar voru bræðraböm.
Ég þarf ekki að kvarta um að
ég fengi ekki að éta. en þræl-
dómurinn var afskaplegur —
eins og þá gerðist yfirleitt með
unglinga. Þama var ég í 11 ár
en fór þó töluvert í burtu.
Vorið sem ég var fermdur
astluðu gömlu hjónin að hætta
að búa og tengdasonur þeirra
að taka við. Yngri hjónunum
fannst ég of mikill maður til
að taka mig til snúninga, en of
lélegur til þess að ráða mig
vinnumann. Þá fór ég að Kára-
stöðum í Þingvallasveit, til frú
önnu Beck. Ég var látinn sitja
hjá ám. Fyrsta sumarið hjá
vandalausum voru 104 ár í kví-
um — og mér leiddist afskap-
lega, en á Kárastöðum gætti
ég ánna uppi í heiði og var
yiir þeim allan daginn, og þar
brá svo við að ég kunni þessu
ágætlega! Það var leiðinlegast
að á kvöldin þegar ég kom
heim þurfti ég að fara að leita
að kúnum, það kom varla fyr-
ir að þær skiluðu sér sjálfar
heim. Vorið eftir hætti frú
Anna að búa — þá fór ég aft-
ur að Syðri-Brú, en gamli mað-
urinn þar hafði haldið áfram
að búa, þar var ég enn í tvö
ár. Þá fór ég til bróður míns.
er byrjaði búskap. Fyrsta árið
hjá honum leið mér reglulega
illa, en hríði ég aldrei verið
hjá honum hefði ég aldrei búið
á Brjánsstöðum.
— Nú, kynntistu kannski
konunni þinni þar?
— Nei, þegar ég var á Kára-
stöðum var hún þar. 8 ára
stelpa.
— Trúlofuðuzt þið karinski
þá?
— Nei, en hún fór 12 ára að
Miðfelli og þar var ég tíður
gestur — það var smalað þang-
að.
— Varstu aldrei á sjó?
— Jú, ég réri 10 vertíðir.
Fyrst 2 á Álftanesi, 3 i Hala-
koti suður á Strönd. 2 í Þor-
lákshöfn og 2 var ég á skútu.
Ég hafði lítil höpp á vertíðun-
um. Fyrri vertíðina í Þorláks-
höfn varð ég að fara heim og
tapaði þá um 200 fiska hlut, en
seinni vertíðina höfðum við 900
fiska í hlut.
— Hvernig var vetrarvertíð i
Þorlákshöfn í þá daga?
__ Við vorum vitanlega með
róðrarbát og bjuggum í sjóbúð.
Þær voru hlaðnar úr torfi og
grjóti. Það voru tvísettar stoð-
ir eftir endilöngu gólfinu og
þvert yfir mæninn og þakið lak
í hverri skúr. Það voru 2 menn
um hverja koju og sváfu and-
fæting. Skrínumar höfðum við
fyrir ofan okkur. Skinnklæðin
hengdum við á stoðimar við
rúmin og bundum klofbandinu,
sem kallað var utan yfir. Það
var furðulegt hve heilsufarið
var gott í þessum grútarkofum.
Matur var fiskur, harður og
nýr. brauð, kaffi og hangikjöt,
aðallega lifað á fiski og brauði.
Flestir höfðu 1 Mndarskrokk
í kæfu og 1 í hangikjöt. Kaffi
var mikið drukkið, það var
gestkvæmt hjá okkur og oft
drukkið 6 sinnum á dag. Hús-
bóndi hvers manns lagði til 2
pund af kaffi og 2 af sykri til
vertfðarinnav. Kaffið dugði
eæmflega — en sykurinn!
BONDI
Tólf ára gamall átti hann hvorki föð-
ur né móður. Bú foreldra hans selt á upp-
boði. Fór til vandalausra og fékk nógan
þrældóm: smali, vinnumaður, skútukarl.
Hóf búskap í Grímsnesi 1897. Túnið karga-
þýfi. Risti ofan af með torfljá, sléttaði
með skóflu. Girti tún sit.t einn fyrstur
manna — hluti þeirrar girðingar stendur
enn. Páll Zophoníasson lét verðlauna hann
fyrir hagnýta meðferð áburðar. — Afhenti
syni sínum jörðina 1925. Reykvíkingur frá
1935. Vakti báðar nætumar eftir kosn-
ingaúrslitunum um daginn.
Þorkell Þorleifsson og Halldóra Pctursdóttir kona hans.
Hangiketið var lítið notað fyrr
en seinast, það var geymt í
vaskið .... Já, við þvoðum
fiskinn sjálfir fyrir lokin, 11.
maí. — Ég var í Þorlákshöfn
vertíðirnar 1893 og ’94 og réri
hjá Þorkeli Þorkelssyni frá
Óseyrarnesi.
Eftir veruna í Þorlákshöfn
var ég eina vertíð heima en
næstu tvo vetur var ég á
skútu. Svo fór ég að basla við
búskap.
— Já, hvernig var það tengt
dvölinni hjá bróður þínum?
— Bróðir minn hafði lánað
bóndanum á Brjánsstöðum og
fengið jörðina í pant. Svo einu
sinni losnaði Neðri-Háls í Kjós
og bóndinn á Brjánsstöðum
samdi um kaup á þeirri jörð
og segir bróður mínum að hann
þurfi að losna við Brjánsstað-
þá daga, eða voru þetta mikil
hús?
— Ég byrjaði að búa 1897.
Húsin voru 18 kofar talsins,
auk baðstofu og fjóss. Það voru
tvö fjárhús er tóku 60 kindur
hvort og við þau var hlaða er
tók 220 hesta. Veggir þeirrar
hlöðu standa enn. Hún var
hlaðin úr klofnu grágrýti og
með jámþaki.
— Voru víða komnar hlöður
með jámþökum þá?
— Já, þá voru kornnar slík-
ar hlöður á þó nokkrum bæj-
um.
— Hvemig voru hin húsin?
— Það voru tvö fjárhús úti
á múla, jafnstór þeim fyrr-
nefndu, svo voru kindakofar
sinn í hverri áttinni á túninu.
Húsunum var dreift um túnið
áður fyrr vegna ræktunarinn-
torfljá og pældi þúfumar nið-
ur með skóflu. Ég keypti seinna
ristuspaða, en gat aldrei notað
hann sjálfur, þoldi það ekki
fyrir bakinu. Þegar ég hætti
að búa eftir 28 ár var engin
þúfa eftir á túninu.
— Notaðir þú aldrei plóg,
eða voru þeir lítið notaðir?
— Ég notaði aldrei plóg. —
var hestafátækur og svo hesta-
sár að ég tímdi aldrei að láta
hest fyrir plóg. Annars eignað-
ist ég plóg. því Páll Zophonías-
son lét Búnaðarfélagið gefa
mér plóg.
— Hvemig stóð á því?
— Ég reif einu sinni kofa á
bak við fjósið og byggði þar
haughús, en þau munu þá
hvergi hafa verið til í Gríms-
nesinu. Ég hafði hesthúsið við
hliðina á fjósinu og notaði
haughúsið bæði fyrir hesthúsog
fjós. Áburðurinn dugði ekki á
túnið svo ég notaði mikið af
rnold til að drýgja hann. þurrk-
aði allt land þannig. Þetta lík-
Ganili bærinn á Brjánsstöð usn, sem Þorkell ræðir um.
ina, hvort hann vilji ekki kaupa
þá af sér. Bróðir minn segist
vilja gera það, ef ég vflji fara
að búa þar. Ég var þá í Mið-
felli — og ég skil aldrei hvað
ég var vitlaus að ráðast í þetta
og kaupa öll hús og eiga ekkert
fyrir þeim.
— Varstu snauður þegar þú
byrjaðir búskapinn?
— Krónumar sem við Hall-
dóra áttum dugðu fyrir 40 roll-
um, 5 hrossum og einni kú —
og vantaði þó 10 krónur til! Svo
átti ég að kaupa hús upp á 800
krónur. Ég átti hvergi víst lán,
nema vinnukona sem ég hafði
verið með í 3 ár lánaði mér
200 krónur sem hún hafði spar-
að saman. Bóndinn var ekki
strangur — kvaðst myndu lána
mér þetta. en á miðjum slætti
heimtaði hann alla skuldina af
mér.
— Ilvemig fórstu að?
— Ég átti góða kunningja og
smalaði saman einu og einu
hundraði þangað til ég hafði
fengið fyrir skuldinni. Ég veii
varla hvernig þetta braskaðist
áfram hjá mér. Ég reyndi a*
standa í skilum og átti því hæg
ara með að fó lónað þegar mí'
lá .ó, að fá nokkrar krónur.
— Hvenær byrjaðir þú að
búa? Voru ekki 800 krónur
mikið fyrir hús á einum bæ í
ar sem kom í kringum þau.
Svo voru 3 hesthús, smiðjuhús
og hjallur. Sumir kofarnir voru
ekki til annars en rífa þá. Ein
stofa var í bænum nýbyggð —
og hún átti líka að kosta 200
krónur. Baðstofan var líka ný-
byggð og var með jórnþaki of-
an á kantsettri súð og pappa,
að innan þiljað með panel, og
stoppað — en það var ekki
líft í henni fyrir kylda.
Mógur minn kom til mín
nokkrum árum eftir að ég byrj-
aði að búa. Við fórum út í
lambhús og hleyptum lömbun-
um út og fórum svo inn í hlöðu
til að líta á heyin. Ég var kom-
inn niður i hlöðuna en hann
var enn í stiganum þegar lamb-
húsið steyptist niður! Annar
veggurinn hafði hrunið. Það
sýnir nokkuð hve traust húsin
voru.
— Hvemig var túnið?
— Það var örlítill blettur
sem fyrri bóndinn hafði slétt-
að, annars allt þýft, aðeins
mismunandi vont þýfi. Fyrsta
'rið fékk ég 180 hesta af því
'n seinast 230. Eitt árið þó að-
■ins 60 hesta — það var þá svo
íalið að ekki var hægt að bers
iá ó stóra hluta þess.
— Og svo hefur þú farið að
slétta?
— Já, ég skar ofan af með
aði Páli Zophoníassyni svo vel,
að hann lét gefa mér plóg.
— Þér hefur líklega ekki ver-
ið borgaður styrkur út á haug-
húsið?
— Styrkur! Nei, — en ég
fékk plóginn auðvitað! En ég
notaði hann aldrei heldur seldi
hann.
— Var túnið ekki ógirt? ^
— Jú, en 1906 girti ég það
með fimmsettum gaddavír —
og fyrir það fékk ég mikið á-
mæli.
— Segðu mér nánar um það.
— Við vorum 3 bændur sam-
an um að panta vír og teina.
Hinir pöntuðu stutta teina til
að hafa ofan á görðum og
skurðbökkum. Það þótti ódýr-
ara og búmannlegra. En ég sá
ekki eftir því að hafa girð-
inguna svona þegar hún var
komin upp því ég hafði túnið
i friði — og gat einnig byrgt
allar skepnur inni á túninu.
— Hve mikið kostaði slík
girðing þá, og hvernig var að
fá lán fyrir henni?
— Búfræðingurinn sem mældi
fyrir henni áætlaði hana 210
ri-ónur og hún varð víst lítið
lýrarl. Ég fékk 200 jámteina
og ég man ekki hve margar
rúllur af stálvír. Ég hafði að-
eins 8 ólnir milli teina en
flestir aðrir 3 faðma. Viðhaldið
kostaði lítið, eyddi venjulega
einum degi á vorin til að end-
urfesta stólpa og laga ef slitn-
að hafði strengur. Þessi stálvír
var miklu betri en vir sem ég
fékk síðar og ryðgaði fljótt.
Það stendur víst enn hluti af
þessari girðingu (frá 1906). frá
traðarhliðinu og í Hálskletta.
Það borgar sig að ganga upp-
haflega vel frá girðingum.
Efnið var frá Noregi, og þvi
var skipað upp á — Seyðisfirði!
Svo var það síðar flutt á Eyr-
arbakka, og þess vegna gat ég
ekki girt um vorið en varð að
fresta þvi til hausts.
Fjórða hluta efnisins varð ég
að borga strax en afganginn
á 41 ári með jöfnum afborgun-
um, sem voru teknar með þing-
gjaldinu.
— Segðu mér, misstirðu aug-
að í einhverju slysi?
— Nei, það byrjaði þannig
að mér fannst eitthvað flökta
fyrir því. Fór þrem dögum
seinna til Skúla í Skálholti, er
sagði sár á auganu og lét mig
hafa dropa. Fór heim aftur. leið
mjög illa og fór aftur til Skúla
er sagði nú tvö sár á auganu
og var hjá honum í viku. Hann
sagði sárin gróa en mér fannst
augað versna. Brauzt svo heim
— þetta var í harðindum á gó-
unni og kunningjamir reiddu
mig bæ frá bæ. Fjórum dögum
síðar kom Skúli og sagði þá
komna skemmd í augað inn-
anfrá, og leizt ekki á. Gunn-
laugur á Kiðabergi bauð mér
mann til fylgdar svo ég kæmist
suður — og á þriðja degi kom-
umst við til Reykjavíkur. Bjamj
Matthíasson hringjari, vinur
minn fór strax með mig tfl
Bjarna augnlæknis. Ég heyrði
að honum leizt ekki á það. en
sagði að bezt væri að bíða
fram yfir páskana — þetta var
einum degi fyrir póska. Ég
svaraði: Ef þú þarft að taka
augað er bezt að gera það
strax. Klukkan fimm sama dag
var ég kominn á Landakot. og
augað reyndist vera ein graftar-
ígerð.
— Hvernig stóð á því að þú
hættir að búa?
— Ég eftirlét syni mínum
jörðina. Ég flutti alfarinn til
Reykjavíkur haustið 1935, hef
verið hér síðan. Var á vetrum
hjá syni mínum en á sumrin
í kaupavinnu. Ég var orðinn
svo gigtveikur að ég gat ekki
ráðið mig til fullrar vinnu. Svo
var ég sex sumur á Ormsstöð-
um í Grímsnesi, en þar er heit
laug sem ég fór í — og þá
brá svo við að ég losnaði alveg
við gigtina í mörg ár.
Það mátti segja að í sex vet-
ur gerði ég ekkert hjá syni
mínum og tengdadóttur nema
gæta stráks er þau áttu. fyrst
í vagni, svo við hönd mér.
Það verður aðeins hlé á við-
ræðunum. — Kona Þorkels var
Halldóra Pétursdóttir Jónssonar
frá Þingvöllum. Þau eignuðust
10 böm og komust 9 til full-
orðinsára. Fyrstu árin hér
dvaldi Þorkell hjá Jóni Asbimi
vélstjóra syni sínum. en er nú
hjá Lilju, elztu dóttur sinni,
á Grettisgötu 28.
— Þú hlustar mikið á út-
varpið — fylgdistu með kosn-
ingafréttunum?
— Já. fyrri nóttina vakti ég
til morguns, en seinni nóttina
fór ég að sofa þegar úrslitiri
voru komn í Suðurlandskjör-
dæmi — þá vantaði enn úrslit
í þremur kjördæmum.
Já, ég hlusta mikið á út-
varpið. Það má auðvitað segja
að það sé mín eina skemmtun.
Ég sæti hér lengstaf einn í
dimmunni ef ég hefði ekki út-
varpið. Vonandi verð ég orö-
inn að ösku áður en sjónvarp-
ið kemur.
— Hversvegna að ösku?
— Síðan ég var 22ja óra hef
ég verið ákveðinn í að láta
brenna mig. Þá kom ég á Þjóð-
minjasafnið, og eitt hið fyrsta
sem ég sá var hauskúpa af ein-
hverjum manni. Ég ætla ekki
að láta grafa upp hauskúpuna
af mér eftir mörg hundruð ár
og stilla henni upp f safni.
J. B.
Blaðamannanámskeiðinu
lauk á lauqardaginn
Dönsku, finnsku, norsku og fimmtudaginn, höfðu þeir siglt
sænsku blaðamennirnir, sem þátt með varðskipinu Óðni upp á
tóku í námskeiði Norræna fé- Akranes og fengið tækifæri tfl
lagsins hér dagana 7.-14. júní, að renna færi fyrir fisk á leið-
fiugu heimleiðis á Iaugardaginn. inni, en síðar um daginn bauð
Var ekki annað að heyra en bæjarstjórn Akraness blaða-
þeim þætti þetta fyrsta blaða- mönnunum í ökuferð um sveitir
mannanámskeið, sem haldið er Borgarfjarðar. Komið var að
hér á landi á vegum NF, hafa Hvanneyri. þar sem Guðmundur
tekizt vel. Jónsson skólastjóri búnaðarskól-
, , ans, fræddi komumenn um land-
Siðasta dag namskeiðsins, þúnað á íslandi og búnaðarnám
íöstudag, ræddu norrænu blaða- hér, og farið var að Reykholti.
menniinii við Ólaf Thors for- þar sem prófasturir.n Einar
sætisraðherra. heimsóttu forseta Guðnason sýndi mönnum stað-
Islands og frú að Bessastöðum.
inn. Um kvöldið var Sements-
hlýddu á dr. Pál Isólfsson leika verksmiðja ríkisins á Akranesi
a Domknk.iuorgelið og snæddu skoðuð undir leiðsögn dr. Jóns
kvoldverð í ráðherrabústaðnum Vestdals forstjóra og kvöldverð-
við Tjamargötu í boði mennta- ur snæddur í boði verksmiðjunn-
málaráðherra. Daginn áður, á ar.
í
i