Þjóðviljinn - 23.06.1963, Page 6
▼
6 SIÐA
HÖÐVUIINN
Sunnudagur 23. jún{ 1933
Ctlagar, 1898—1900.
Listasafn Einars Jónssonar
Á Jónsmessudag ári'ð 1923 var Listasafn Einars Jóns-
sonar opnaö til sýnis almenningi, og er safnið' þannig
fjörutíu ára á morgun. ÞeLta var heiður júnídagur
og merkur atburður í sögu bæjarins og safnhúsið
orðið gamalkunnugt í vitund bæjarbúa.
Árið 1914 veitti Alþingi íslendinga kr. 10.000.00 til
byggingar safnhússins og var þaö fyrir forgöngu Bjarna
Jónssonar frá Vogi. Byggingin dróst á langinn og hlupu
einstaklingar undir bagga síðar og lögöu fram kr.
20 000.00 til smíði hússins, og beitti frú Gerða Hanson
sér fyrir þeirri söfnun hjá einstaklingum hér í bænum.
Fyrst átti að velja safninu stað, þar sem Þjóðleikhús-
ið stendur nú, en eftir ráöum listamannsins varð Skóla-
vörðuholtið fyrir valinu.
íslenzkur sveitapiltur kemur til Reykjavíkur í fyrsta
skipti um jónsmessuleytið og segist honum svo frá í
endurminningum sínum:
„Skólavarðan var fyrsta mannvirkið, sem ég sá í
Reykjavík, gnæfandi við haf og himin meðfram þjóð-
veginum ofan í bæinn. Eg starði á hana eins og tröll
40 ára
á heiðríkju, og pabbi sagði mér af ljúfu geði allt, sem
hann vissi um hana. Bærinn blasti við nokkru neðar,
— heill heimur töfra í augum mínum, vinin á eyðimörk
ferðalagsins, borgin í draumum.“
Einar Jónsson er fæddur að Galtafelli í Árnessýslu
11. maí 1874 og kominn af bændum langt aftur í ættir.
Vorið 1893 sigldi Einar til Kaupmannahafnar til list-
náms. Var hann fyrst á ýmsum teikniskólum, þá í tvö
ár hjá Stefán Sinding, norskum myndhöggvara, en
gekk síðan í Listaháskólann og lauk þar námi. Einar
sýndi fyrst höggmyndaverk „Útlaga“ á Charlotten-
borg árið 1901, en fór næsta ár til Rómaborgar og
dvaldi þar hálft annaö ár. Heimsótti hann listasöfn
í mörgum löndum Miö-Evrópu og á Bretlandi, en var
annars búsettur í Kaupmannahöfn til ársins 1914 og
mótaði allmargar myndir á þeim tíma.
Árið 1917 kvæntist Einar unnustu sinni Önnu M. M.
Jörgensen frá Kaupmannahöfn. Fóru þau það sama
ár til Bandaríkja Norður-Ameríku og komu heim til
íslands árið 1920. Hér starfaði listamaðurinn mörg ár
og bætti við fjölmörgum nýjum verkum, svo að safnið
jókst og margfaldaöist og stækka varð húsrúm þess.
Einar lézt í Reykjavík 18. október 1954. T-T~nn var graf-
inn á æskustöövum sínum.
Hér í Reykjavík standa ýms minnismerki eftir Einar
Jónsson: Helzt þeirra eru líkneskjur Jónasar Hall-
grímssonar, Ingólfs Arnarsonar, Kristjáns konungs 9.
Hannesar Hafsteins og Jóns Sigurðssonar. Afsteypa
af hinni síðastnefndu stendur við þinghúsið í Winnipeg
í Kanada. Þá stendur líkneski af Þorfinni karlsefni
í Fíladelfíu í Bandaríkjunum og bronsafsteypa af
því er hér í Reykjavík.
tr álögum, 1916—1921,
Alda aldanna, 1894—1905.
Dcmantinn.
/
I