Þjóðviljinn - 28.08.1963, Síða 2
2 SÍÐA
HÓÐVIUINN
Miðvikudagur 28 ágúst 1983
Eins og kunnugt er af fréttum er Nikita Krústjoff, forsætisráðherra
Sovétríkjanna, um þessar mundir staddur í heimsókn í Júgóslavíu
og hefur að undanförnu setið að máli við Tító forseta. Myndin sýn-
ir er þeir Krústjoff og Tító héldu innrcið sína í Beigrad og voru
ákaft hylltir.
Krústjoff og Tító
Tóbak og brennivín hœkka
Framhald af 1. síðu.
verðhækkun númer eitt.
Smásalar eru stundum að ríf-
ast um þessa fimmeyringa fram
yfif krónuna á vindlingaapökk-
unum eins og sést á Camel i
þetta skipti. Það sýnist litlu
skipta með álagningu upp á
mörg hundruð prósent hjá ríkis-
sjóði.
Afgreiðsla verður hinsvegar
svifaseinni.
Fimmeyririnn á Camelpakkan-
um er þó upp á þrjú hundruð
þúsund á ári fyrir ríkissjóð.
Veik-
in tala
Tíminn kveinkar sér mjög
undan pistlum sem hér hafa
birzt að undanförnu um Olíu-
félagið h.f., hermang þess og
milljónagróða í Hvalfirði.
Bkki hefur blaðið þó treyst
sér til þess að mótmæla nein-
um málsatriðum sem hér hafa
verið rakin, en heldur því í
staðinn fram að oft megi satt
kyrrt liggja. Séu upprif janir af
þessu tagi ríkisstjóminni einni
til hags, enda hafi Morgun-
blaðið og formaður Sjálfstæð-
isflokksins vitnað mjög ræki-
iega í þessa pistla að undan-
förnu.
Það vseru mikil tíðindi og
ánægjuleg ef árásargreinar á
hermang og gróðaspillingu
vaeru 1 samræmi við stefnu
Sjálfstæðisflokksins og af-
stöðu Bjama Benediktssonar.
En því miður hafa þau um-
skipti ekki gerzt. Allt þaðsem
hér hefur verið sagt um Olíu-
félagið h.f. hittir hermangs-
félög Sjálfstæðisflokksins á
nákvæmlega sama hátt. Morg-
unblaðið endurprentar ekki
pistla Þjóðviljans til þess að
miklast af verðleikum Sjálf-
stæðisflokksins í hemáms-
málum heldur játar blaðið
misgerðimar í því skyni að
geta einnig núið Framsóknar-
forustunni þeim um nasir.
Bjarni Benediktsson hefur
auðsjáanlega mikla ánægju af
því að geta ávarpað maddömu
Framsókn sem systur sína í
syndinni.
Það eru athafnir Framsókn-
arforustunnar, en ekki umtal-
ið um þær, sem hafa verið
ríkisstjóminni og hernáms-
stefnunni til hags.
Að
fela staðreyndir
Alþýðublaðið segir í gær að ,
að sú hafi verið stefna ís-
lenzku ríkisstjórnarinnar í
hernámsmálum „að leyfa ekki
staðsetningu kjamorkumann-
virkja í landinu eða neinna
tækja er þeim tilheyra.” Á
síðasta ári heimilaði ríkis-
stjórnin þó að Keflavíkur-
flugvöllur yrði bækistöð fyrir
bandarískar orustuþotur, bún-
ar tundurflaugum. Flaugar
þessar eru sérstaklega gerðar
fyrir kjamorkusprengjur.
Vera má að sprengjurnar séu
ekki enn komnar hingað til
lands, þótt vitnisburður Al-
þýðublaðsins um það efni sé
ekki órækur — en allavegana
hljóta vélar þessar að teljast
til „kjamorkumannvirkja”.
Og nú er ríkisstjórnin að gera
nýja samninga um Hvalfjörð.
þar sem m.a. er ákveðið að
koma fyrir rammgerðum sökkl- ..
um á hafsbotni og Jegufærum
sem að sögn Guðmundar í.
Guðmundssonar munu henta i
kjarnorkukafbátum, háskaleg- !
ustu „kjarnorkumannvirkj-
um” okkar tíma.
Alþýðublaðið er mjög fram-
takssamt í þeirri tegund nú-
tímablaðamennsku að fela
staðreyndir fyrir fólki. — j
AustrL
Finnskir borgarfulltrúar SilOHi
gestir hjá Reykjavíkurborg W"i. .1"!
Framhald af 1. síðu.
aði. Að borðhaldi loknu svöruðu
Finnamir ýmsum spurningum
blaðamanna um borgárstjörhar-.
mál í Helsingfors.
Þeir kváðu umferðarvandamál-
tn nú vera einhver erfiðustu við-
fangsefni borgarstjórnarinnar í
Helsingfors. Ibúar borgarinnar
eru nú nær hálf miljón manna
og um 100.000 búa í nágrenni
borgarinnar, þannig að Helsing-
fors er að verða stórborg. .Væri
bað mikið skipulagsvandamál
hvernig umferðinni yrði komið
fyrir á haganlegan hátt. og auk
bílaumferðarinnar væri nú unnið
að því að undirbúa byggingu
neðanjarðarbrautar til þess að
greiða fyrir fólksflutningum.
Jafnframt væri verið að ganga
frá áætlun um nýskipan mið-
borgarinnar, og hefði hinn
heimskunni arkítekt, prófessor
Aaltp, unnið að því verki. 1 sam-
bandi við þá áætlun væri ráð-
gerð sérstök menningarmiðstöð i
borginni með stórhýsum f.yrir
leiksýningar, hljómleika, ráð-
stefnur og aðra félagslega starf-
semi. 1
Kalt vatn þar dýrara en
heitt hér!
Finnarnir sögðu að þetta væru
helztu nýmælin í starfsemi borg-
arstjórnar Helsingfors, og bar
kæmu til greina ýms ágreinings-
mál sem yllu deilum milli
stjórnmálaflokkanna. Jafnframt
er unnið á vegum borgarstjóm-
arinnar að byggingu íbúðarhús-
næðis og skólabyggingum; voru
þeir þættir mikil vandamál í
Helsingfors í lok styrjaldarinnar
en nú hefur verið leyst úr mestu
örðugleikunum. Sérstakt' vanda-
mál í Helsingfors er nægilegt
neyzluvatn, er það tekið úr fljót-
um og verður að hreinsa með
ærnum tilkostnaði; það kom
fram í viðtalinu að kalt vatn i
Helsingfors er dýrara en heitt
fjtsvör ekki stighækkandi
38% af útgjöldum Helsingfors-
borgar eru greidd með útsvörum,
en að öðru leyti fær borgin' tekj-
ur sínar af ágóða af rafveitu.
vatnsveitu, hafnargjöldum, land-
leigu o.s.frv. Er þessi tilhögun
býsna ólík því sem tíðkast í
Reykjavík. þar sem 80—90% af
útgjöldum borgarinnar eru
greidd með útsvörum. Útsvörin
í Finnlandi eru ekki stighækk-
andi eftir efnum og ástæðum; bó
fær láglaunafólk ýmsar eftirgjaí-
ir.
Borgarstjórar til æviloka
Borgaríulltrúar í Helsingfors
eru 77 talsins, og hafa borgara-
flokkamir hreinan meirihluta.
43 fulltrúa, en verkalýðsflokkam-
ir 34. Stærsti flokkurinn er Ein-
100 ára afmælis ísafjarðar-
kirkju var minnzt sunnudaginn
11. ágúst með hátíðamessu.
Þar var mættur séra Bjami
Jónsson, vígslubiskup, sem full-
trúi biskups, en hann prédikaði,
ásamt sóknarprestinum, séra
Sigurði Kristjánssyní. Auk
þeirra voru viðstaddir athofn-
ina 8 sóknarprestar á Vest-
fjörðum, þeir: séra Grímur
Grímsson. Sauðlauksdal, séra
Tómas Guðmundsson, Patreks-
firði, séra Sigurpáll Öskarsson.
Bíldudal, séra Stefán Lárusson
Núpi, séra Jóhannes Pálmason
Stað í Súgandafirðí, séra Þor-
bergur Kristjánsson, Bolungar-
Vík, séra Baldúr vnhhlmssbn.
ingarflokkurinn, hægri flokkur,
með 21 fulltrúa. Sósíaldemókrat-
ar hafa 16 fulltrúa. og vinstri-
sósíaldemókratar 3. Alþýðu-
bandalagið finnska hefur 15 full-
trúa, Sænski þjóðarflokkurinn
13 og Finnski þjóðarflokkurinn
9.
Borgarstjórar í Helsingfors eru
sjö, einn yfirtíorgarstjóri og sex
almennir borgarstjórar sem fjalla
hver um sitt sérsvið. Borgar-
stjórarnir eru kjömir af borgar-
stjóm, en þeir eru síðan ráðnir
eins og embættismenn til ævi-
loka og ekki heimilt að víkja
þeim frá af pólitískum ástæðum.
Sem stendur eru 3 borgarstjór-
anna sósíaldemókratar tveir frá
Einingarflokknum, einn frá
Sænska þjóðarflokknum og oinn
fró Finnska þjóðarflokknum.
Vatþsfirði og séra Jón Ólafsson,
fyrrv. prófastur í Holti í ön-
unarfirði.
Sunnukórinn annaðist söng
við athöfnina. undir stjóm jrg-
anleikara kirkjunnar. Ragnars
H.' Ragnar, fyrrv. organleik-
ara Jónásar Tómassonar, Gunn-
laugur Jónsson söng einsöng f
kirkjunni.
Minningartafla um séra Hálf-
dán Einarsson. prófast. sem
byggði kirkjuna var afhjúpuð
við hátíðaguðþjónustuna af
Kristínu Þórisdóttur, sem er af-
komandi séra Hálfdáns i
fimmta lið. Á töflunni er svo-
hljóðandi áletrun: „Séra Hálf-
dán .Einarsson, prófastur. sóKn-
arprestur á Isafirði 1848-1865.
lét reisa þessa kirkju. Á eitt
hundrað ára afmæli hennar
| vottar ísafjarðarkaupstaður hon
um þökk og virðingu sína“.
Um kvöldið var fjöimenn
sameiginleg kaffidrykkja þar
sem margar ræður voru fluttar
og almennur söngur undir borð-
um.
Fyrrverandi biskupsfrú, Guð-
rúnu Pétursdóttur, var sérstak-
lega boðið til hátíðahaldanna
og var henni í kaffisamsætinu
afhent bók með skrautrituðu
ávarpi fró söfnuðinum.
Við hátíðarmessu tilkynnti
frú Guðrún Pétursdóttir, að Is-
firðingar búsettir syðra hefðu
ákveðið að gefa kirkjunni út-
skorinn prédikunarstól, sem
afhentur verður síðar. KirKj-
unni bárust einnig margar gjaf-
ir svo sem tveir myndskreytt-
ir gluggar í kór, altarisklæði,
hökull, sálmabækur margar o.
m. fl. Ennfremur bárust blóm
og mörg heillaskeyti.
ÍBÚÐ
Einhleyp kona, sem vinn-
ur heima, óskar eftir lítilli
íbúð eða herbergi með eld-
unarplóssi. 1
Upplýsingar í síma 38453
milli kl. 12 og 1.
íbúð fyrir einn. karl eða
konu. Stqfa með svefnkrók
eldhús og snyrtiherbergi,
geymsla og aðgangur að
þvottahúsi. Allt sem nýtt.
Utb. 150 búsund
3 herb. glæsileg íbúð við
Ásbraut.
2herb. ,, risíbúð í Mosgerði
Utborgun 125 bús.
2 herb. glæsileg íbúð vjð
kleppsveg.
2 herb. lítil nýstandsett j-
búð við Bergstaðastræti. !
3 herb. fbúð í Gerðunum. :
Góð kjör.
3 hcrb. góð hæð og 3 herb.
góð risfbúð við Njálsgötu
Erfðafest-ulóð
4 herb. hæð við Ásvalla-
götu.
Múrhúðað timburhús, 4 j
herb. góð íbúð við Lang- j
holtsveg. Stór steyptur |
bílskúr.
4 herb. góð fbúð 117 fer- >
metrar við Suðurlands-
braut. Stórt útihús.
4 herb. hæð við Bergstaða-
stræti.
4 herb. hæð við Nýlendu-
götu. Laus 1. sept.
5 herb. glæsileg íbúð við
Kleppsveg
Timburhús 3 herb íbúð við
Suðurlandsbraut. Útborg-
un 135 bús.
Timburhús við Breiðholts-
veg. 5 herb fbúð. Utborg-
un 100 bús.
Timburhús 80 fermetrar á
eignarlóð f Þingholtunum
3 hæðir og kjaliari.
Raðhús i Vogunum.
Múrhúðað timburhús. 3
herb fbúð. Selst til flutn-
ings með góðri lóð við
Vatnsenda. Góð kjör.
3 herb. jarðhæð við Digra-
nesveg. Fokheld.
Steinhús 4 herb. eóð fbúð
við Kleppsveg. Utb. 250
búsund.
Timburhús jámvarið á
steyptum kjaliara. 3 herb.
lítil íbúð f Högunum.
2—3 herb. íbúð f Hlíðunum.
Norðurmýri eða Holtunum
óskast. Mikil útborgun.
f SMfÐU^H.
4 herb. jarðhæQ við Safa-
mýrj tilbúin undir tré—
verk og málningu nú þeg-
ar.
4 herb. íbúð við háaleitis-
braut.
6 herb. glæsilegar endaf-
búðúðir við Háaleitis-
braut.
5—6 herb. glæsilegar hæðir
með allt sér í Kópavogi.
Raðhús og parhús 5 Kópa-
vogi. Tækifærisverð. Lúx-
useinbílishús f Garða-
hreppi.
KÓPAVOGUR.
3 herb. hæð f timburhúsi
við Nýbílaveg 1. veðr.
laus.
3 herb. hæö ásamt bygg-
ingarlóð.
Raöhús í Kóþavogf. Selst
tilbúið undir tréverk og
málningu.
Einbýlishús. fokhelt. 145
fermetrar með bílskúr, í
Garðahreppi. Utb 300 þús.
Höfum kaupendtir með mikl-
ar útborganir að flestum
tegundum fasteigna.
Starísstúlkur óskast
Starfsstúlkur vantar í eldhús Landspítalans.
Upplýsingar gefur matráðskonan í síma 24160.
Reykjavík, 27. ágúst 1963.
SKRIFSTOFA RÍKISSPÍTALANNA.
Stúdentar—
Menataskélanemar
Samband íslenzkra stúdenta erlendis og Stúd-
entaráð Háskóla íslands halda kynningu á há-
skóianámi heima og erlendis í íþöku Mennta-
skólans í Reykjavík í kvölcL kl. 20.00■
S.Í.S.E- S.H.Í
Móðir okkar,
JÓHANNA AMALÍA JÓNSDÓTTIR,
Ijósmóðir Grandavegi 39 Reykjavík,
vcrður jarðsungin, fimmtudaginn 29. ágúst, kl. 10.30 f.h.,
frá kapellunni í Fossvdgi.
Athöfninnii verður utvarpað.
Synir hinnar látnu.
Sendisveinn óskast strax
Prentsmiðjari Hólar hi,
Þingholtsstræti 27.
Hundrað áru afmæli
Isafjariarkirkju